Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 45
— Ljóð um ást Framhald af bls. 13 útjöskuðum yfirlýsingum. En við- leitni hans til að opna ljóðið, gera það nákomið lesandanum hefur tvímælalaust tekist með Astar- ljóðum. Djöflarnir er stutt saga, aðeins 61 bls. og bókin í smáu broti. Sagan segir frá ungum vfsinda- manni og kynnum hans af frum- stæðu sveitalífi, sveiflast milli viðkvæmni og hrottaskapar eins og nú tíðkast hjá mörgum höfund- um. Af sögunni má draga þann lærdóm, að fólki verður ekki breytt, umhverfið mótar það og örlögin hafa það í hendi sér. Lýs- ing unga mannsins er skemmti- leg. Drykkjuveislan í lok sögunn- ar eru hugvitssamleg lausn. Þar er hinum andstæðu skautum, unga lærdómsmanninum og bóndanum stefnt saman, annar fínlegur draumóramaður, hinn ösvikinn ruddi. Þótt þessi saga verki á margan hátt eins og æfing ungs rithöfundar, leikur að gam- alkunnu viðfangsefni, færir hún lesandanum heim sanninn um, að Hrafn Gunnlaugsson kann ekki síður að segja sögu en yrkja ljóð. Hann er einn þeirra ungu rithöf- unda, sem ástæða er til að fylgjast með. Hann er dálitið óútreiknan- legur, lætur ekki pota sér i neina ákveðna skúffu, en hefur gaman af að koma lesandanum á óvart. — Söngvar Framhald af bls. 13 félög hvort ekki væri kostur á að láta þýða texta við úrval norr- ænna söngva og gefa þá út, því víst er að slík útgáfa yrði Isl. söngvurum kærkomin og kynning norrænna tónbókmennta þá ekki aðeins tengd gestakomum. Af 18 söngvum er Margit Tuure-Laurila söng þekkti undirritaður aðeins fjóra söngva og undrast raunar stórum hví fsl. söngvarar hafa ekki lagt það á sig að æfa þessa söngva og kynna þá hérlendis. Söngvar eftir Sibelíus, Járnefelt og Kuula hafa verið meðal við- fangsefna ísl. karlakóra, en ein- söngslög þeirra og Kilpinen hafa lítið verið flutt af ísl. tónflytjend- um. Ekki þarf um að kenna að þau geri litlar kröfur til flytjenda, öðru nær. Margit Tuure-Laurila hefur mikla og vel skólaða rödd, sem er jöfn í lit eða blæ, hvort sem hún syngur sterkt eða veikt, hátt eða djúpt. Tuure-Laurila er hlýleg og næm söngkona, sem gaman væri að hlýðaoftará. — Persónusaga Framhald af bls. 13 annað tveggja; skemmtigildi eða á liinn bóginn notagildi með hlið- sjón af skólanámi. Jón R. Hjálmarsson hefur með bókum sfnum, þar með talinni þeirri, sem hér er nefnd, leitast við að upp- fylla siðar töldu þörfina, auk þess sem hann hefur reynt að verða við þeirri sígildu kröfu, sem ungt fólk gerir á öllum tímum til les- efnis: að það sé læsilegt. Viðhorf I sagnfræði breytast, einnig skoð- anir manna á þvi, hvernig rita skuli sagnfræði. Ekki eru allir sagnfræðingar rithöfundar að eðlisfari. En sumir eru það. Og þeirra er að skrifa. Ég held, að margur unglingur muni lesa þessa bók sér til fróð- leiks og ánægju og þar með þok- ast nær því að vita, hvernig lífinu var lifað hér aldirnar í gegnum; hvernig rekja má ýmis framfara- spor til dugmikilla einstaklinga; hvað annars vegar ber að þakka þeím einum eða á hinn bóginn þjóðinni, sem veitti þeim brautar- gengi til að vinna þau verk, sem sfðan halda nafni þeirra á lofti. Erlendur Jónsson RUCLVSinCRR «0^22480 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974 45 g VBINGO o i N G m O verður haldið í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi í kvöld og hefst kl. 21: Spilaðar verða 1 2 umferðir. GLÆSILEGIR VINNINGAR m.a. myndavélarog loftvogir. Corona föt Barnabingó Enginn frá Herrahúsinu kl. 3. aðgangseyrir. íþróttafélagið Grótta. GRÍSAVEIZLA í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU, í KVÖLD SUNNUD. 10. febrúar 1 974: Kl. 1 9.00 Borðhald sett og veizlan hefst: aligrís, kjúkling- ar og fleira góðgæti á spænska vísu. Söngur, glens og gaman. Ferðakynning: Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri, kynnir fjölbreyttar, ódýrar ÚTSÝNARFERÐIR 1974. Ferðabingó: Vinningar 3 ÚTSÝNARFERÐIR til Spánar, Ítalíu og Kaupmannahafnar. Skemmtiatriði ???? Dans til k1. 01 .00. Vinsamlega pantið tímanlega og missið ekki af ódýrustu veizlu ársins: aðeins kr. 695.- fyrir mat, þjónusta og skattar innífalið, að viðbættu helgargjaldi hússins. Borða- pantanir hjá yfirþjóni í síma 20221 frá kl. 15.00 á föstudag. Munið, að alltaf er fjör og fullt hús á ÚT- SÝNARKVÖLDUM. FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN Hvöt, félag Sjálfstæ6iskvenna, heldur fund í Átthagasal Hótel Sögu, mánudaginn 1 1. febrúar kl. 20.30. Fundarefni: Fóstureyðingafrum- varpið Frummælendur: Guðrún Erlends- dóttir, hæstaréttarlögmaður og Jón Þ. Hallgrímsson, læknir. Sjálfstæðiskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Seltjarnarnes- hreppur óskar eftir að ráða nú þegar: Gröfumann á traktorsgröfu, mann á loftpressu og traktor, verkamenn. Matur á staðnum, mikil vinna og góður aðbúnaður. Upplýsingar veitir verkstjóri hreppsins Valdemar Jó- hannsson í vinnusíma 21180 eða 37757 heima. Hart móti hörÓu, sagÓi kerlingin ... I kvöld er eftirfarandi á dagskrá: 1. T Royal Music Orchestra — Johnson & Sigurjohnson flytja frumsamið tónverk— 2. Gas station blues 3. The singing waffles. 4. Deivídridlúbávítíbólanrexkúbersveppurskreiðkarlapungsigþórpe tersenkirkjustrætjakowskifriðrikkiddisódó II (lengsta orð í is- lensku) Enginn fær að koma inn, sem er fæddur siðar en 1958. Gjaldið er kr. 100,00 og greiðist það innheimtumanninum. Takið með ykkur gesti. Ætli myndin sé af Bimbó. Haldið upp á auglýsinguna. IN N ANHÚSS-ARKITEKTU R I frítíma yðar — bréflega. Engrar sérstakrar menntunar er krafizt af þátttakendum. — Skemmtilegt starf, eða aðeins til eigin persónulegra nota. Námskeiðið fjallar m.a. um húsgögn og skipulag þeirra, liti, lýsingu, list þar undir listiðnað, gamlan og nýjan stíl, plötur, samröðun, nýtízku eldhús, gólflagn- ingar, veggfóðrun, vefnað þar undir gólfteppi, áklæði og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Sendið afklippinginn — eða hringið (01) 131813 — og þér fáið allar upp- lýsingar. Námskeiðið er á dönsku og sænsku. Ég óska án skuldbindinga að fá sendan bækling yðar um innanhússarkitekturnámskeið. Nafn: .............................................. Staða: ............................................. Heimili: ........................................... Akademisk Brevskole, Badstuestræde 13, DK 1209 Kobenhavn, K. M.D. 10/2 '74. Auglýsing trá Upplýslnga- og framkvæmdastotnun mlðbæjar Kópavogs Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að efna til hugmýnda- samkeppni um nafn á nýja miðbæinn í Kópavogi. Þeir, sem áhuga kynnu að hafa á þessu sendi tillögur til stofnunarinnar Álfhólsvegi 5, fyrir marzlok 1 974. Allar upplýsingar um gögn og skilmála verða látnar í té á sama stað. F.h. Upplýsinga- og framkvaemdastofnun miðbæjarins í Kópavogi, Forstöðumaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.