Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974 33 Oddur Ólafsson alþm.: Rætist úr vanda- málum lang- legusjúklinga? Öllum þeim, sem að heilbrigðis- málum starfa, mun vera það ljóst, að aðbúnaður langlegusjúklinga er hinn hörmulegasti. Fjöldi sjúkra, sem nauðsynlega þarf á vistun á hjúkrunarheimili að halda, fær hvergi inni, þar eð flestar heilbrigðisstofnanir lands- ins veigra sér við því að taka inn sjúklinga, nema þær séu nokkurn veginn öruggar um að losna við þá aftur innan skamms tíma. Svo langt gengur þessi varfærni gagnvart öldruðum og sjúkum, að við liggur að þeir þurfi að leggja fram skriflega yfirlýsingu frá stofnun eða ættmennum um, að tekið muni við þeim aftur. Margir læknar telja þessa erfiðleika lang- legusjúklinga mesta vandamál heilbrigðisþjónustunnar í dag. Umönnun langlegusjúklinga hefur að mestu hvílt á herðum sveitarfélaga og einkastofnana og reyndar 1 vaxandi mæli, þar eð ríkisstofnanir er áður vistuðu langlegusjúka snúa sér nú í vax- andi mæli að öðrum verkefnum. Þess vegna kom það stjóm hús- sjóðs öryrkjabandalags íslands ekki á óvart, þegar forráðamenn Reykjavikurborgar færðu það í tal við stjórnina á síðasta ári, hvort unnt mundi að fá leigðar til 10 ára 3 hæðir í þvi háhýsi Ör- yrkjabandalagsins, sem nú er verið að byggja. Þar skyldi vista 80 aldraða öryrkja, er væru hjúkrunar þurfandi. Þegar húsið var fokhelt nú um áramótin, voru viðræður teknar upp að nýju og léð máls á því, að húsnæðið fengist leigt, ef Reykja- víkurborg greiddi leigu fyrir- fram, þannig að fjárskortur haml- aði ekki framkvæmdum og að húsnæðið yrði þess vegna tilbúið á árinu 1974. í dag er hins vegar frétt í Morg- unblaðinu, sem er tilefni þessara upplýsinga minna. Þar segir frá viðræðum borgar- læknis við stjórn hússjóðs Ör- yrkjabandalagsins og möguleik- ana á því að fá leigðar 3 hæðir í húsi þess, Hátúni 10B, til vistunar fyrir 80 aldraða borgarbúa, er séu hjúkrunar þurfi en hafi ferlivist. Síðan segir að heilbrigðismálaráð beini þvi eindregið til borg- arstjórnar að taka upp samninga við Öryrkjabandalagið að fengnu samþykki heilbrigðis- og trygg- ingarráðs. Samþykkt þessi hafi verið gerð með 6 atkvæðum gegn atkvæði Margrétar Guðnadóttur, er hafi greitt atkvæði gegn tillög- unni og talið að þetta mundi frek- ar tefja en leysa málefni aldraðra á Reykjavíkursvæðinu. Nú var það sannarlega ekki ætl- un stjórnar hússjóðs Öryrkja- bandalagsins að tefja fyrir lausn á þessu aðkallandi vandamáli og þar sem Margrét er eini lækna- deildarprófessorinn í heilbrigðis- málaráði Reykjavíkurborgar, þá ber að sjálfsögðu að fhuga náið álit hennar. Líklegt er, að prófessor Margrét hafi það í huga, að leggja beri áherzlu á byggingu B. álmu Borg- arspitalans, þar sem verða mun rúm fyrir 200 langlegusj'.'vlinga. Þetta mun vera eina störfram- kvæmdin á þessu sviði þar sem undirbuningsvinnu er lokið, og hægt er að hefjast handa með litlum fyrirvara. Varla mundi B. álman þó verða tilbúin fyrr en eftir 2 til 3 ár og það vefst fyrir mér að skilja það, hvernig á að una við núverandi ástand allan þann tíma. Eitt er þó víst, Margrét mundi ekki hafa snúist gegn þessu máli, nema hún hefði lausnina á takteinum. Það gleður okkur öll, sem þessi mál þekkjum. Aðal- atriðið er, að úrbætur fáist hið allra fyrsta og ennfremur að unn- ið verði markvisst að varanlegri lausn á þeim mikla vanda, sem langlegusjúklingar standa nú frammi fyrir. Frá heimsþingi JC International í Nissa í nóvember sl. Fulltrúar íslands voru Reynir Þorgrímsson landsfor- seti og Örn Johnson frá JC Reykjavík. Kynningardagur JC í Kópavogi Junior Chamber er alþjóðlegur félagsskapur ungra manna. Kynn- ingardagur aðildarfélagsins 1 Kópavogi er I dag, 10. febrúar, l félagsheimilinu efri sal. Verður þetta almennur upplýs- ingafundur um hitaveitumál. Frummælendur verða Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri, Gunnar Kristinsson yfirverkfræðingur Hitaveitu Reykjavlkur og Karl Ómar Jónsson framkvæmdastjóri Fjarhitunar h.f. Eftir stutt inngangserindi munu frummælendur sitja fyrir svörum. Stefnt er að þvl, að á þessum fundi geti bæjarbúar fengið svör við öllum spurningum slnum um hitaveitumál, hvort sem er að ræða mál bæjarins 1 heild, dreifi- kerfið eða nauðsynlegan undir- búning og breytingarí einstökum húsum áður en hitaveita er lögð i þau. Allir bæjarbúar eru boðnir til fundarins. Junior Chamber stefnir að fé- lagslegri uppbyggingu einstakl- ingsins án tillits til stjórnmála- skoðana, trúarbragða, litarháttar eða kynja. Félagsskapurinn velur sér verkefni með það í huga, að þau séu til hagsbóta fyrir viðkomandi heimabyggð. Að þessu markmiði starfar fé- lagsskapurinn með námskeiða- haldi, skipulögðum nefndarstörf- um og kynningu innbyrðis eða út á við. Junior Chamber er fjöl- mennasta hreyfing ungra manna í heiminum með tæpl. 500.000 þús. félaga í 9000 félögum í 84 þjóð- löndum. Hægt er að skipta starfseminni i þrjár deildir eða takmörk. 1. Námskeið. Vitundaruppbygg- ing einstaklingsins með ýmsum námskeiðum, t.d. ræðu- og mælskuþjálfun, fundarstjórn og fundarreglur, stjórnunar- og stjórnþjálfunarnámskeið o.s.frv. 2. Skipulögð nefnd- arstörf. Öllum félagsmönn- um er skipt í ýmsar nefndir, þar sem þeir læra að vinna skipu- lega, samkvæmt ákveðnum regl- um. Takmarkið er að kenna ung- um mönnum að taka skjótari ákvarðanir eftir ftarlegar athug- ariir, skipuleggja betur tíma sinn og annarra. ISinnig er stefnt að því, að sérhver einstaklingur geti orðið hæfari stjórnandi, hver i sínu fagi. Þessi þáttur er mjög mikilvægur í okkar hreyfingu. 3. Kynning. Mjög ánægjulegur og jafnframt nauðsynlegur þátt- ur. í Junior Chamber kynnast menn innbyrðis, ekki aðeins í sínum eigin klúbbi, heldur í allri hreyfingunni, um allt land. Siðar gefst tækifæri tii að kynnast ung- um félögum frá 84 þjóðlöndum. Slik kynni geta orðið mjög gagn- leg, bæði til ánægju og ekki síður til viðskipta. Þetta er Junior Chamber — þannig starfar það. Verkefnin, sem félögin velja, eru ætið valin með það i huga, að þau séu til hagsbóta fyrir viðkom- andi heimabyggð. Junior Chamber stefnir að fé- lagslegri uppbyggingu einstakl- ingsins, án tillits til stjórnmála- skoðana, trúarbragða, litarháttar eða ky nja. Þetta er því sannur félags- skapur fyrir ungt fólk, sem vill á hlutlausan hátt þroska félagslöng- un sína og kynnast öðru ungu fólki með sama áhugamál. Stefn- an er sjálfsþroski. Junior Chamber er opið öllu ungu fólki með einlægan áhuga á málefnum þess og starfsemi. Aldurstakmark er 18—40 ára. Ákveðið hefur verið að fjölga mjög i hreyfingunni og gefa mun fleira ungu fólki tækifæri til að taka þátt í störfum. Fréttatilkynning frá JC. Öflugt starf lýðhá- skólans í Skálholti SÍÐASTLIÐIÐ haust fluttist starfsemi lýðháskólans í Skál- holti í nýju skólabygginguna, sem nú er verið að reisa, og hefur þar verið öflugt starf I vetur. Kennslustofur, mötuneyti og dag- stofa hafa nú verið teknar í notk- un, svo og 4 herbergi f heimavist. Piltarnir búa enn i húsakynnum sumarbúðaskála, en stúlkur f skólahúsinu nýja. 1 vetur eru nemendur skólans 27 talsins. Ákvarðast sú tala ein- göngu af fjölda herbergja i heimavist I skálanum, en umsókn- ir um skólavist voru mun fleiri. Vonir standa til, að á næsta vetri verði hægt að hýsa 36 nemendur. en fullbyggður er skólinn ætlaður um 60 nemendum alls. Meðal nýjunga i starfsemi skól- ans má nefna vikulegar kvöld- vökur, þar sem ýmis menningar- og þjóðmál eru tekin fyrir. Eru þessi kvöld einnig opin öllum úr sveitinni. Innan þessa ramma hefur verið haldið stjórnmála- námskeið, þar sem fulltrúum stjórnmálaflokkanna hefur verið boðið að kynna flokkasína. Við skólann starfa nú þrir kennarar: Skólastjórinn, sr. Heimir Stigsson, ásamt Arnóri Karlssyni og Bjarna Þorkelssyni. Myndin var tekin á einu stjórnmálanámskeiðinu 1 lýðháskólanum I Skálholti — fremst á myndinni t.v. má sjá þá Heimi Steinsson skólast jóra, Arnór Karlsson kennara og Svein Skúlason skólanefndarformann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.