Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974 Fa hu.a t \ 'AlAlt" 220-22- RAUOARÁRSTÍG 31 BILALEIGA CAR RENTAL n 21190 21188 tel 14444 • 25555 [BÍLALEIGA CAR RENTAL SENDUM '&ms OAA-mNTAL. Hverf isgötu 18 f \ 86060 (g BÍLALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL V24460 í HVERJUM BÍL PIO NEER ÚTVARP OG STEREO KASETTUTÆKI SAFNAST ÞEGAR SAMAN SKILTI Á GRAFREITI OG KROSSA Flosprent s.f. Nýlendugötu 1 4, sími 1 6480. ffiffl®® MARGFALDAR ' I Gegn betri vitund-herfjötur heimsins Ekkert er undarlegra i þess- um heimi en allt, sem gert er móti betri vitund. Stundum er eins og allir séu brjálaðir og heimurinn eitt sameiginlegt samsafn sinnisveikra, heltek- inna illmenna. Þetta kemur sér- staklega fram í styrjöldum. En samt miklu oftar. Og þá likt og herfjötur á öllum hinum, sem standa hjá oghorfa á. Svona er sú kynslóð, sem enn lifir, búin að horfa á tvær heimsstyrjaldir. Horfa og hlusta á kvalaóp og dauðastun- ur milljóna og aftur milljóna. Þanriig var og er horft og hlust-. að til landflótta Araba, til út- skúfaðs Israels, til mannræn- ingja, morðsveita, flugræn- ingja. Eins og enginn geti neitt nema þá helzt æst til enn meiri vitleysu, grimmdar og brjálæð- is. Þannig er einnig með ein- staklinga. Allur heimurinn virðist ekki geta bjargað einum Solzhenitsyn, ekki bætt um fyr- ir einum blökkumanni í Suður- Afríku, ekki bjargað einum unglingi í Norður-Irlandi. Allt gert og ógert látið gegn betri vitund. En við þurfum ekki að fara út í heím. Við þurfum ekki heillar aldar sögu til sönnunar. Það er nóg að litast um á bæjarhlaði í daglegu lifi hér heima á Eyjunni hvitu, regn- eyju Atlantshafsins með aðeins 200 þús. sálum. Hér etur og drekkur fólk sér öl dómsáfellis í veizlum og mannfagnaði með- an það veit, að fjöldi fólks er að deyja úr hungri vegna allsleys- is og vanþekkingar. Hér eru börn látin tæta sundur lesbæk- ur og lærdómskver, listilega skreyttar bókmenntir og dýrar, meðan milljónir barna eignast aldrei bók. Hér og um öll Vest- urlönd eru keyptir og notaðir bílar, þótt allir viti, að bifreiða- eign er löngu úrskeiðis gengin. Hún eyðileggur fjárhag alþjóð- ar og þjóða, spillir heilsu, veld- ur óþægindum, kostnaði, slys- um, hörmum, þjáningum og dauða, mengun og óþrifnaði um öll Vesturlönd. Allt er þetta gegn betri vit- und. Hversu rík gæti islenzka þjóðin verið og hraustari fyrir hjarta, ef hún notaði blátt áfram almenningsvagna og svo leigubíla, þegar ástæða þætti til. En þetta er mál einstakl- ings, frelsi má ekki skerða við sjálfan sig, dýrð handa mér. Og svo eru oliulindir og bensín- uppsprettur áþrotum. Það vita allir. En samt er eytt og sóað, allt gegn betri vitund um synd gegn nútíð og framtíð. Samt er þetta ekkert samanborið við alla vitleysu gegn betri vitund með brennivfn, tóbak og fíkni- íyf- Ungar fallegar konur klæða sig i gullskart og brakandi silki frá hvirfli og fram eða niður á tær, strá síðan heitri ösku um allt saman. Þær ,,dyfta“ sig og ,,stenka“ en anga siðan eftir örstutta stund eins og reykt hrossabjúgu, alltgegn betri vit- und. Þær eignast stofur og íbúðir eftir útreikningum arki- tekta sprenglærðra sunnan eða vestan úr heimi, og kaupa siðan dýrmæt húsgögn allt eftir nýj- ustu tízku til að ata allt út í ösku, ryki og reyk, brenna bletti á fleti borða og stóla, yfir- borð teppa og púða. Þar getur einn brunablettur lækkað fín- heiún um tugþúsundir á einu augabragði — eða kveikt í öllu saman. Alltgegn betri vitund. Og samt er þetta ekkert við það, sem bókstaflega er brennt til óþrifnaðarins, ef miðað er við tóbaksverð, þar sem ein myndarhjón geta reykt fyrir hundruð þúsunda króna á ári ásamt gestum sínum. Og eitt enn, það allra versta, reykt sig í hel með lungnakrabba, hjarta- bilun og æðakreppu. Allt gegn betri vitund. Og allt er þetta ágætt, aðeins vani, sjálfsagðir hlutir, eigin- lega lifið sjálft, tízkan, sem að- eins hlægilegir kjánar amast við. Hugsunin einnig mót betri vitund. Eigum við annars að halda lengra? Þai'f nokkuð að minna á brennivínið, vodkað eða viskíið eða kannski ,,kogg- ann“og „dingalingið"? Og allt, sem af neyzlu þess leiðir, áflogin,, rifrildið, hjóna- skilnaðina, þjófnaði, falsanir, innbrot, svik, manndráp og morð, kostnað við löggæzlu á þrautpíndar pyngjur skattborg- ara, þar sem vakt yfir einum meðalbrjálæðingi innan fang- elsismúra getur kostað milljón- ir til viðbótar við allar yfir- heyrslurnar, málaferlin og rétt- arþrasið? Nei, heyrið þið mig nú? Er þetta ekki allt saman ágætt? Þetta tiiheyrir, er ekki svo, hér á íslandi 20. aldar? Og svo vesa- lingarnir, sem eru lokaðir inni ár eftir ár, — já, áratug eftir áratug, af þvi að þeir hafa verið fullir eins og aðrir — en óheppnari en ég eða þú, eða hinir, sem eru kannski í hlekkj- um í fangelsi af því að fölkið, sem kastar milljónum í vörð yfír föngum, getur ekki kostað eins miklu til geymslu og bata fyrir vitlaust fólk. Og hjónin, sem skildu i gær og ætla að láta tryggingarnar ala upp börn sín? Nei, heyrið og sjáið kæru samlandar. Er ekki rétt að stanza, líta í kringum sig, breyta um stefnu. Við þekkjum öll stefnuna. Vitum hvað gera skal. Láta skynsemi og mann- dóm, sannleika og sjálfsvirð- ingu taka í tauma áður en ailt verður gegn betri vitund? Árelius Níeisson. Við gluggann eftir gt. ÁreUns Níelsson J t !s!m FYá Bridgefélagi Akureyrar. Sveitakeppni félagsins er nú lokið með sigri sveitar Páls Pálssonar, og hlýtur hún titil- inn Akureyrarmeistarar 1974. Ásamt Páli eru í sveitinni Frímann Frímannsson, Soffía Guðmundsdóttir, Magnús Aðalbjörnsson og Gunnlaugur Guðmundsson. Tvö sl. ár hefur sveit Alfreðs Pálssonar unnið titilinn, en varð nú að láta i minni pokann, enda þótt baráttan hafi verið afar tvísýn. Röð sveitanna varð þessi: Sveit: Páls Pálssonar 220 Alfreðs Pálssonar 217 Þormóðs Ei narssonar 216 Sigurbjörns Bjarnasonar 176 Guðmundar Guðlaugssonar 168 Grettis Frímannssonar 151 Sveinbjörns Sigurðssonar 148 GunnarsBerg 139 Finns Marinóssonar 91 Bjarka Tryggvasonar (MA) 89 Ásgeirs Valdimarssonar 62 Stefáns Jónssonar 58 Tómasar Sigurjónssonar 44 Valdimars Halldórssonar 43 Næsta keppni félagsins verður firmakeppni, og hefst hún nk. þriðjudag. — O — BRIDGEKLOBBUR AKRANESS Nýlokið er sveitakeppni, sem 10 sveitir tóku þátt i. Röð efstu sveita var þessi: Sveit: Halldórs Sigurbjörnssonar 160 Þráins Sigurðssonar 142 Þórðar Elíassonar 134 Alfreðs Viktorssonar 117 Baldurs Ólafssonar 94 Nú stendur yfir Akranes- meistaramót í tvímenningi. Að Ioknum 2 umferðum af 5 er röð efstu para þessi: Alfreð Viktorsson — ÓIi Örn Ólafsson 276 Hörður Jóhannesson — Kjartan Guðmundsson 241 Hallgrímur Árnason — Valur Sigurðsson 239 Ólafur G. Ólafsson — Þórður Elíasson 234 Guðjón Guðmundsson — Hörður Pálsson 230 Að loknum 5 umferðum í svæðismóti Vesturlands er röð efstu sveita þessi: Sveit: ÞórðarElíassonar, Akranesi 68 Arna Bragasonar, Akranesi 60 Halldórs Sigurbjörnss., Akr. 53 Eyjólfs Magnúss., Borgarn. 51 Alfreðs Viktorssonar, Akr. 49 I sveit Halldórs spila auk hans þeir Skúli Þórðarson, Guðni Eyjólfsson, Ólafur Guð- jónsson, Askell Jónsson og Björn Viktorssón. __ 9 __ Frá Bridgefélaginu Asunum f Kópavogi. Fírmakeppni félagsins er lokið og var spilað í 10 riðlum. Sigurvegari varð verktakinn Guðni Stefánsson, (spilari Ólaf- ur Valgeirsson) en hann hlaut 123 stig. Sigurvegarar í öðrum riðlum urðu þessir: stig. Blómabúðin Mímósa (Olafur Lárusson) 117 Pétur Arnason múrari (Þórarinn Arnáson) 114 Fasteignasalan Húsával (Þorvaldur Þórðarson) 116 Réttingaverkstæði Guðlaugs Guðlaugssonar (Ragnar Sæmundsson) 113 Kristinn og Einar (Hermann Finnbogason) 110 Aðalbraut hf. (Guðmundur Jónasson) 118 Aladín (Hermann Láruss.) 118 Ora hf. og Húsgagnahúsið (Jón Hermannsson og Guðmundur Kristjánss.) 104 Nesti hf. (Jóhann Jónss.) 110 Hæstu skor einstaklinga voru þessi: Þórarinn Árnason 408 Guðmundur Kristjánsson 400 Páll Þörðarson 386 Á morgun hefst baromelér- keppni félagsins. Spilað er i Fé- lagsheimili Kópavogs og eru fé- lagar hvattirtil að fjölmenna. — O — Að fimm umferðum loknum í meistarakeppni Bridgefélags Reykjavíkur er staða efstu sveitanna þessi: Sveit: Hjalta Elíassonar 94 Harðar Arnþórssonar 73 Guðmundar Péturssonar 73 Gylfa Baldurssonar 70 Axels Magnússonar 65 Þóris Sigurðssonar 64 Braga Jónssonar 55 Viðars Jónssonar 46 Sveit Axels á ennþá ólokið leik sínum við sveit Hannesar Jónssonar og hafa sveitir þeirra því spiiað einum leik færra en hinar. Næsta umferð verður spiluð í Domus Medica n. k. miðviku- dagskvöld kl. 20. Bridgefélag Keflavfkur og ná- grennis. Meistarakeppni B.K.N. í tví- menningi er nú hafin með þátt- töku 22 para og er spilað eftir barometerkerfi. Staðan eftir 8 umferðir er nú þessi: Efstu pör: Gunnar og Sigurbjörn 85 Alfreð og Guðmundur 73 Björgvin og Ingimundur 71 Lárus og Þórir 68 Gestur og Sigurjón 59 Gunnar og Skúli 57 Marteinn og Sigurður 57 Einar og Sumarliði 44 Spilað verður næst 14. febr. í litla sal Stapa. Keppnisstjóri er Sigurður Steindórsson. Orslit J.G.P. mótsins i sveita- keppni, sem lauk fyrir skömmu, urðu þessi: 1. Sv. Vals Símonarsonar 138 stig, I sveitinni ásamt Val voru Runólfur, Lárus og Þórir. 2. Sv. Sigurhans Sigurhans- sonar 122 st. Með Sigurhans voru Hreinn, Gunnar, Skúli, Guðmundur og Kjartan. 3. Sv. Loga Þormóðssonar 117 st. Með Loga voru Rúnar Einar, Helgi, Jóhannes og Hjálmtýr. 4. Sv. Marons Björnssonar 105 stig. 5. Sv. Dagbjarts Einarssonar 101 stig. 6. Sv. Gunnars Guð- björnssonar 97 stig. 7. Sv. Sigurðar Þorsteins- sonar79 stig. 8. Sv. Haralds Brynjólfssonar 68 stig. 9. Sv. Sigurðar Margeirssonar 37 stig. 10. Sv. Gests Rösinkarssonar 36 stig. Keppnisstjóri var Gestur Auðunsson. A.G.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.