Morgunblaðið - 10.02.1974, Page 42

Morgunblaðið - 10.02.1974, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10, FEBRUAR 1974 Gísll, Elríkur 09 Helgl eltir inglbjOrgu Jónsdóltur „Gjöfin er ósýnileg," sagði Eiríkur hrifinn. „Ég var að vona, að enginn gæti séð hana nema ég. Það er ósýnilegur brunabíll!“ „Að hugsa sér!“ sagði Gisli og var bæði grænn og gulur af öfund. Pálfna fór meira að segja fram úr sófanum til að líta á þessa ósýnilegu gjöf. „Er hægt að leika sér að ósýnilegum brunabíl?" spurði Helgi. „En ekki hvað?“spurði Gísli. Helgi tók ósýnilega brunabílinn og lét hann aka fram og aftur um gólfið. Gísli sat í stólnum og sagði: „Ba-bú, ba-bú,“ og þarna ók bílinn ósýnilegi fram og aftur um gólfið viftmikla hrifningu áhorfenda. Frænkurnar flýðu allar fram f eldhús og sóttu mömmu Helga. Mamma hans var ekki svifasein í þetta skiptið, þótt hún væri bæði stór og feit. Hún kom inn í gættina á stofunni. „Hvað ertu að gera?“ spurði hún Helga litla, sem Góðan daginn! Foreldrar þínir hafa vafalaust kennt þér að heilsa fallega og bjóða góðann daginn, með þvf að rétta fram hægri hendina. En af hverju? Af hverju heilsa menn svona, og af hverju endilega með hægri hendinni? Skýringin er mörg þúsund ára gömul. Þá voru mannverurnar ekki eins menningarlegar f framkomu. I raun sáu þær óvin 1 hverri persónu er varð á vegi þeirra. Sem merki um, að menn hefðu ekki Ijót áform 1 huga, réttu menn hendina fram, og ætíð þá hægri, því I hægri hendi báru menn yfirleitt vopn sfn. En þegar hún var framrétt, var erfitt til slagsmála eða illra verka. ók bílnum sínum ósýnilega fram og aftur eftir gólfinu. „Mér virðist þú vera að keyra bíl.“ „Ég er með ósýnilegan bíl,“ svaraði Helgi litli. „Hann Eirfkur vinur minn gaf mér hann.“ Mamma hans Helga litla hljóp inn í eldhús og skellti áeftir sér. „En, hvað hún mamma þín skellir fast,“ sagði Eirikur. „Hún er víst einstaklega skemmtileg mamma. Aldrei þorir mamma mín að skella á eftir sér.“ „Það er nú bara af því að hann pabbi þinn er alltaf heima,“ sagði Gísli. „Mömmur eru alltaf að hugsa um þessa pabba.“ Afmælisveizlan átti loksins að hefjast og þetta varð afmælisveizla, sem sagði sex. Eiríki þótti afmæliskakan svo góð, að hann borðaði hana alla aleinn og kertin átta með. Það er nú eiginlega saga að segja frá því. Fyrst blés Helgi á kertin átta og mamma hans sagði, að nú mætti hann bera fram eina ósk. „Ég óska þess, að þetta verði einstakt afmælisboð,“ sagði Helgi litli og það slokknaði á öllum kertunum um leið og hann blés á þau. Mamma hans varp andanum léttara, því að nú yrði kannski allt í lagi, þrátt fyrir leiðindin, sem á undan höfðu gengið. En óskin hans Helga litla rættist víst alltof vel. Um leið og mamma Helga litla bauð gestunum að gjöra svo vel, réðst Eiríkur á tertuna og áður en þú hefðir getað sagt einn tveir þrfr var hann búinn að borða hana með kertum og öllu saman. Það er nú svona að vera mathákur. Eiríki fannst hann hafa staðið sig vel. Hann skildi eitt kerti eftir, handa þeim, sem ekkert höfðu fengið. Gísli drakk fjórar flöskur af kók og mamma hans Helga litla var eitthvað að tala um það, að drengir kynnu sér ekkert hóf, þegar þeir væru á vissum * aldri, þegar Sigga frænka veinaði. „Það kom eitthvað við fæturna á mér,“ sagði hún. „Voruð þið að gera eitthvað af ykkur, strákar?" spurði mamma hans Helga byrst í bragði. „Ne-ei,“ svaraði Helgi hikandi. „Eiríkur borðaði bara kökuna og Gísli drakk allt kókið, en þeir eru nú gestir og svo leifði Eiríkur einu kerti.“ Gísli ropaði. £Nonni ogcTVIanni Jón Sveínsson Freysteinn Gunnarsson þýddi Við stóðum báðir upp og réttum skipstjóranum höndina og þökkuðum honum fyrir allt, sem hann hafði gert fyrir okkur. „Ekkert að þakka, drengir góðir“, sagði hann. „En nú er bezt, að þið farið heim sem fyrst vegna foreldra ykkar“. Því næst hætti hann við: „En á meðan Fylla liggur hér, eruð þið alltaf velkomnir nm borð, þegar þið fáið leyfi til“. Þetta líkaði okkur. Við þökkuðum honum fyrir aftur. Þá fylgdi honn okkur sjálfur upp á þilfar til þess að sjá um flutning okkar í land. Snjóhvítur skipsbátur var settur á flot, litli bátur- inn okkar festur við hann og þremur hásetum boðið að flytja okkur í land. Við skiluðum sverðunum okkar og kvöddum alla skipshöfnina. Drengirnir, sem orðnir voru vinir okkar, stóðu við uppgöngustigann og biðu. Þegar Manni sá þá, datt honum nokkuð í hug. Hann hljóp til yfirforingjans og sagði: „Mega drengirnir ekki fara með okkur í land?“ Skipstjórinn brosti og leyfði það. „En þú verður að sjá um það“, sagði hann við Manna, „að þeir komi aftur, en týnist ekki eins og þið“. „Það skal ég gera, skipstjóri“, sagði Manni. Þá hljóp hann til drengjanna og sagði þeim, að þeir mættu fara í land með okkur. Þeim þótti meira en lítið í það varið, því að þeir fengu mjög sjaldan landgönguleyfi, eftir því, sem þeir sögðu. ÍTfeeÖ !9unlMffÍnu — Uss, farðu varlega, — Ég er viss um a3 hann er hérna einhvers staðar í nágrenn- inu. ... — Nei, ég er ekki nýr gestur. 1 grímubúning, heldur nágranni sem kvartar undan hávaða... .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.