Morgunblaðið - 10.02.1974, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974
7
Kvikmyndir
Eftír Bjöm Vigni Sigurpálsson
Fjandinn
er
KLUKKAN er ekki nema sjö að
morgni í Beverly Hills i Holly-
wood, en þá þegar hefur mynd-
azt biðröð fyrir framan Fine
Arts kvikmyndahúsið. Það er
sama, hvernig viðrar, biðröðin
mun halda áfram að lengjast
eftir því sem á daginn liður unz
hún nær umhverfis alla bygg-
inguna. Seinna kemur lögregl-
an á vettvang til að koma ein-
hverri skipan á röðina, lög-
reglumenn gefa fyrirskipanir í
gegnum gjallarhorn og reyna
aðgreiða úr umferðarhnútum á
nálægum götum. Inni í kvik-
myndahúsinu og 24 öðrum um
öll Bandaríkin, þar sem sýning-
ar eru allan daginn fram yfir
miðnætti, falla fullhraustir
karlmenn í yfirlið og er komið
til meðvitundar af hópi
hjúkrunarkvenna, sem bera
amóniak að vitum þeirra, kven-
fólkið veinar og litil börn sitja
stirðnuð í sætum sínum, augun
stjörf af ótta. Hér hefur djöfull-
inn haldið innreið sína og næst-
um allir vilja kynnast honum.
Djöfullinn er kominn fram í
sviðsljósið með svo eftirminni-
legum hætti fyrir tilstilli kvik-
myndarinnar The Exorcist, eða
Særingin. Hún er byggð á sam-
nefndri sögu William Blatty, en
hann sótti aftur efnivið sinn i
sannsögulega atburði, sem jafn-
vel má finna í skrám kirkjunn-
ar og fjöldi virðulegra borgara
varð vitni að — um barn, sem
var haldið illum anda. Þetta bar
til í Georgetown í Washington
árið 1949, en Blatty var þá þar
við háskólanám. Særingin hef-
ur valdið firna miklu uppþoti
vestan hafs — innan kirkju,
læknis- og sálarfræði og meðal
menntamanna, þar sem nú fara
fram heitar umræður um
djöflatrú, hið yfirnáttúrulega
og eðli góðs og ills. Fyrir utan-
aðkomandi hljóma þessar um
ræður nánast sem félagsfræði-
legt furðufyrirbæri, því að sum
innleggin í þessar umræður
hafa á sér sannkallað miðalda-
yfirbragð. Myndin hefur þó
nær undantekningalaust verið
rökkuð niður af gagnrýnend-
um, en það hefur engu breytt
um það, að áhorfendur streyma
í kvikmyndahúsin, þar sem
myndin er sýnd.
laus
Hins vegar stendur læknum
og sálfræðingum vaxandi stugg-
ur af móðursýkislegum við-
brögðum vegna myndarinnar,
þvf að fjöldi fólks, sem séð hef-
ur myndina, er nú tekinn að
leita liðsinnis presta, guðspek-
inga og hvítasunnuprédikara
með það fyrir augum að láta
særa djöfulinn úr sér eða skyld-
mennum sínum. Hafa þessir
guðsmenn jafnvel sett á lagg-
irnar sérstakar stofnanir i
þessu skyni. Abyrgir kirkjunn-
ar menn eru algjörlega klofnir í
afstöðu til myndarinnar. Sumir
virðast álíta, að myndin sé til
þess fallin að vekja almenning
aftur til umhugsunar um hin
eilifu átök góðs og ills meðan
aðrir telja, að með henni sé
verið að hverfa frá upplýsingu
aftur til miðaldaguðsótta og
spilað á frumstæðustu tilfinn-
ingar mannsins — hjátrúna.
I Særingunni er djöfullinn
látinn ná tökum á 12 ára stúlku,
sem ku vera leikin af hreinni
snilld af 14 ára stúlku að nafni
Linda Blair. Að öðrum þræði
mun myndin vera ósköp
ómerkilegt sambland af
pornógrafíu og kvalalosta, en
það, sem gerir hana frábrugðna
öðrum slíkum, er æsispennandi
söguþráður, hugmyndarík leik-
stjórn og sú staðreynd, að guð
fer með sigur af hölmi i lokin.
Þar er höfðað jöfnum höndum
til samúðar og lægstu hvata
áhorfenda — i fyrstu birtist
þeim aðlaðandi stúlka, sem fyr-
ir tilstilli illra afla umbreytist i
æpandi ófreskju, sem m.a. not-
ar blóðugan kross til sjálfsfró-
unar, reynir að tæla fullorðna
karlmenn til lags við sig, hreyt-
ir út úr sér verstu klámsyrðum
og spýtir grænni ælu á klerka,
sem vilja nálgast hana.
Leikstjóri þessarar myndar
er William Friedkin, sem á sín-
um tima fékk Óskarsverðlaunin
fyrir The French Connection.
Hann var tvö ár að fullgera
Særinguna og fór 2,5 milljónir
dala fram úr fjárhagsáætlun,
sem stafaði að verulegu leyti af
alls kyns óvæntum og furðuleg-
um óhöppum, sem töfðu gerð
myndarinnar. Leikarar fengu
dularfulla kvilla, starfsfólk
varð fyrir mótorhjólum, einn
missti framan af fingri, írski
leikarinn Jack McGowran lézt i
þann mund sem tökunni lauk,
og leikmunir hurfu með óskýr-
anlegum hætti.
Friedkin staðhæfir, að hann
og Blatty fylgi i myndinni svo
til alveg hinni raunverulegu
fyrirmynd, en þar sem viki frá
henni sé það gert til að vernda
fólkið, sem hér kom við sögu. I
veruleikanum var fórnarlamb-
ið drengur, og djöfulæði hans
lýsti sér, samkvæmt skilgrein-
ingu kaþólsku kirkjunnar, — i
fjórum meginatriðum:
í fyrsta lagi talaði hann tung-
um, með röddu, sem var ólik
hans eigin. i öðru lagi fóru
hlutir á hreyfingu i kringum
hann, alltént hristist rúmið
hans upp og niður og fólk, sem
reyndi að halda því kyrru, kast-
aðist frá þvi. í þriðja lagi bjó
hann yfir ómennsku afli, hafði
það m.a. af að handleggsbrjóta
prest nokkurn, og í fjórða lagi
átti hann til skyggnigáfu, sá og
vissi hluti, sem barn á hans
aldri átti ekki að bera neitt
skynbragð á.
Læknar og sálfræðingar
stóðu ráðþrota frammi fyrir
þessum undrum, og ef drengur-
inn þjáðist af einhverjum sjúk-
dómi, kunnu þeir engin skil á
honum. Ættingjar drengsins,
sem Friedkin átti sjálfur tal
við, bera að samfara djöfulæð-
inu hafi fylgt alls konar yfir-
náttúruleg fyrirbæri, eins og
það, að hlutir svifu í lausu lofti
húsgögn voru á stöðugri hreyf-
ingu. Einn dag bar það til tíð-
inda, að orðin „Farið til St.
Louis“ komu fram í rauðum
rákum á læri hans. Þá var fjöl-
skyldu hans nóg boðið og fór
með drenginn til jesúita við St.
Louis-háskólann, þar sem sær-
ing var framkvæmd. Drengur-
inn náði sér siðan algjörlega og
lifir nú í hamingjusömu hjóna-
bandi, 38 ára að aldri. Hann
man ekkert eftir þessum at-
burðum.
En fjaðrafokið, sem myndin
veldur, kemur framleiðamda
hennar, The Warner Brothers,
ekki illa. Fýrirtækið býst við
um 20% tekjuaukningu á þessu
ári og þakkar það Særingunni
fyrst og siðast. Mesta furðu vek-
ur þó, að myndin skuli vera
sýnd um öll Bandaríkin án þess
að vera bönnuð börnum, og er
næsta óskiijanlegt, hvernig hún
komst i gegnum kvikmyndaeft-
irlitið þar, sem hefur orð á sér
fyrir fordóma og íhaldssemi af
flestu tagi. Aðeins á einum stað
hefur hún verið bönnuð börn-
um — er það í höfuðborginni
Washington, en þar þurfti til
sérstakan úrskurð dómsstóla.
SCANIA VORUBÍLL Scania L 80 super 1971, vörubíll til sölu. Upplýsingar í síma 51576. ' TILLEIGU 3ja herbergja íbúð i Hraunbæ Upplýsingar i sima 86165 eftir kl 18
GAMALT ÚTVARP i góðu lagi óskast til kaups. Upplýsingar í sima 38720 BRONCO ÁRG. 1967 mjög góður til sýnis og sölu Sam- komulag með greiðslu. Sir . 16- 289 — 1 9032.
TRÉSMÍÐI Smíða klæðaskápa, set upp skil- rúm. Set i húrðir og annast breytingar Simi 35974 VOLGAÁRG 1973 keyrður 18.000 km til sýnis og sölu i dag. Samkomulag með greiðslu. Sími 1 6289 — 1 9032
Áteiknuð PUNTHANDKLÆÐI hvit og mislit, gömlu mynstrin Hillurnar komnar aftur. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut. HORNETÁRG. 1972 Mjög fallegur einkabill Skoðaður 1974 Vökvast , útv Má borga með 3ja — 4ra ára skuldabréfi, eða eftir samkomulagi. Simi 16289 — 1 9032
FALLEGU ANTIK FLAUELSDÚKARNIR komnir i mörgum litum og stærð- um Heklugarn og Heklubækur i miklu úrvali. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut. BRONCOÁRG. 1966. Öll bretti ný, litið keyrður til sölu. Samkomulag með greiðslu. Simi 16289 — 1 9032.
VÖRUBÍLAR — VARAHLUTIR Get útvegað beint frá Sviþjóð vörubíla Volvo FB — 88 og F — 88. Einnig alla varahluti i Volvo og Scania Vabis. Upplýsingar í sima 42001. HÚSEIGENDUR Viljum leigja íbúð, helzt í efra- Breiðholti. Upplýsingar i síma 19337.
VIL KAUPA VOLKSWAGEN árg 6 5 — 66 í góðu standi á vetrardekkjum. Upplýsingar í síma 371 26. HÁSETA VANTAR á nýlegan 65 tonna bát. sem er að byrja netaveiðar frá Sandgerði. Upplýsingar í sima 92-71 26
GÓÐUR BÍLL — INNFLUTTIR BÍLAR Til söluToyota Corona station, árg. árg. '67, fasteignatryggt skulda- bréf (3 — 5 ára). Getum útvegað frá Þýzkalandi notaða bíla Hag- kvæm viðskipti. Uppl. i s 81 301 KEFLAVÍK Menn vantar nú þegar við bflarétt- ingar og fleira. Bílasprautun Suðurnesja, simi 1081.
ÓSKA EFTIR ÍBUÐ Fyrirframgreiðsla kemur til greina. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Simi 26246 KVÖLDVINNA 1 7 ára stúlka óskar eftir vinnu á kvöldin Upplýsingar i síma 19854
HÚSVAGN óskast keyptur. Upplýsingar í sima 21485 og 15738 TIL LEIGU 4ra herb. íbúð til leigu i háhýsi i Heimahverfi, nú þegar. Upp- lýsingar i sima 36273
TOYOTA CELICA óskast til kaups. Góð útborgun Upplýsingar i síma 86281 BRÚNN PELS sem nýr, til sölu á Barónsstiq 49, 2 hæð
OPEL RECORD ÁRG. 1971 Fallegur bill. Til sýnis og sölu i dag. Samkomulag með greiðslu Slmi19032og16289 MARKS HEKLU- OG PRJÓNABLÖÐ nr. 50. 52, 54, 55, 57, 58. 61 og 64 Hannyrðabúðin, Linnetsstig 6, Hafnarfirði, simi 51314.
STÚLKA ÓSKAR eftir atvinnu strax Hef verið við afgreiðslu Með bil- próf. Vinsamlegast hringið i síma 10861 milli kl 1 —3 MARKS HEKLUBLÖÐIN KOMIN AFTUR Hannyrðaverzlunin Minerva, Hrísateig 47.
ÞORRAMATUR — VEIZLUMATUR Matarbúðin, Hafnarfirði. sér um þorrmatinn í þorrablótin, 16 tegundir innifaldar Einnig köld borð og annan veizlumat Matar- búðin, Hafnarfirði S. 51 186. NÝKOMIÐ úrval af hannyrðavörum Strengir, púðar og reflar með góbelín-saum frá Gunnari Pedersen Hannyrðaverzlunin Minerva, Hrísateig 47.
Til leigu Til leigu er 30 — 40 fm húsnæði fyrir skrifstofu eða hliðstæðan rekstur á 3. hæð við Austurstræti. Upp- lýsingar í sima 1 2644.