Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚÁR1974 12 Minningarsýning □ I Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur nú yfir yfirlitssýning á myndverkum eftir Gísla heitinn Kolbeinsson, er lézt á liðnu sumri aðeins fjörutíu og sex ára að aldri. Æviferill þessa manns mun hafa manns mun hafa verið all litríkur að því er marka má af inngangi í sýningarskrá og myndir hans segja manní, að hér hefur verið á ferð stemningamaður, róman- tíker með útþrá í blóðinu og þær staðfesta einnig, að listfengið hef- ur verið honum meðfætt. 1 stórum dráttum var lífssaga hans þessi: P’æddur 6. júni 1927, sonur Kol- beins Sigurðssonar skipstjóra og Ingileifar Gísladóttur. Kvæntur Dagmar Guðnadóttur. Litir freist- uðu Gísla snemma en fyrstu til- sagnar naut hann hjá Jóhanni Briem, fór svo í Handíðaskólann en þaðan lá leið hans í Lástahá- skólann I Kaupmannahöfn. Hann var þá um tvítugt og málaði tals- vert á þessum árum. Flestar myndir hans munu þó hafa orðið til á árunum 1955—1965. Þessar upplýsingar, sem sóttar eru í sýningarskrá, sýna, að hann átti skammt að sækja útþrána en hvaðan list- fengið er komið veit ég ekki því að maðurinn var mér alls ókunn- ur og ég mi nnist þess ekki að hafa séð myndir eftir hann áður, þótt það sé ekki útilokað. Myndir hans segja manni þó allnokkuð um manninn og persónuna, virðist hafa verið um að ræða togstreitu milli tveggja ólíkra höfuðþátta í skapgerð hans, annars vegar var það tjáningar- og sköpunarþörfin en hins vegar útþráin hvikul og eggjandi enda varð farmennska ævistarf hans og brauðstrit og síð- ustu árin var hann stýrimaður á erlendum skipum og málaði þá lítið en, fann tjáningarþörf sinni þá farveg í skrifum og liggja eftir hann fjölmargar smásögur, sem út hafa komið, og ein skáldsaga: Rauði kötturinn. Það er ekkert nýtt, að myndlistarmenn hafi til- finningu fyrir málinu og séu vel ritfærir enda geymir sagan margt stórvel gert á því sviði frá þeirra hendi og margir heimsþekktir rit- höfundar hafa byrjað feril sinn á myndlistarsviðinu eða verið á ein- hvern hátt tengdir myndlist, en það undarlega er, að miklu færri, sem byrjað hafa sem rithöfunar, hafa endað sem málarar. Þetta staðfestir það, hve myndlistar- sviðið er víðfeðmt, upprunalegt og auðugt af þroskandi atriðum enda er vettvangur hennar fram- ar öðru að skynja umhverfi sittog lífræn fyrirbæri og auka við hinn almenna skilning. Það er ekki nóg að skilja fyrirbærin því að ef til- finninguna vantar, verður útkom- an ófrjó, skortir þá grómagn. Gísli Kolbeinsson hefur verið óvenju hlédrægur maður hvað Myndlist eftir BRAGA ÁSGEIRSSON myndlistina áhrærir, sem er sennilega vegna þess, að hann hefur skynjað það hve miklu bet- ur hann gat gert, — en þetta var að mínu viti óþarflega mikil hlé- drægni, því að með því svipti hann sjálfan sig þeirri uppörvun og andlegum stuðningi, sem eru hverjum skapandi listamanni nauðsynleg. Það kann að hafa ráð- ið nokkru um eigið vanmat, að á þeim tíma, er hann málaði hvað mest, var vegur hinnar hörðu geometríu hvað mestur hérlendis og flestir útskúfaðir, sem ekki máluðu þannig, væri þá ekki um gróna listamenn að ræða og er hér um að ræða erfiðan kafla í ís- lenzkri myndlist. Prófessor Gísla í Kaupmanna- höf, Kræstén Iversen (1886—1955), mun hafa haft gott álit á hæfileikum hans, einnig kennarar hans hér heima, en Gísli stundaði ekki námið af hörku, var nokkuð laus við. Þetta hafa mér sagt félagar hans og einn kennari. Á þeim árum, er Gísli var í Höfn, var aðstreymi íslendinga að lista- háskólanum hvað mest og sópaði mikið að þeim bæði innan skóla og utan enda mun félagslífið inn- byrðis hafa verið fjörugt en um leið glepjandi, — þess guldu ýms- ir enda munu þeir nokkrir hæfi- leikamennirnir i hópnum, sem lit- ið hefur kveðið að síðan, en slík hefur verið saga alltof margra Is- lendinga á Hafnarslóðum á liðn- um öldum. Ýmis ytri atvik hafa sitt að segja. Á sýningunni i Boga- sal koma fram nokkur ex- pressjónísk áhrif enda var Jóhann Briem fyrsti leiðbein- andi Gísla sem fyrr segir, en greinilegt er, að Gísli hefur haft góða og upprunalega tilfinningu fyrir lit, það sanna nokkrar myndir á sýningunni og eink- um olíulitamyndirnar, en þar var hann tvímælalaust á sínu rétta sviði. Litirnir eru furðu grónir ínn í léreftið, sem sýnir, að Gisli hefur skynjað innri lifæðar litarins. Máli mfnu til stuðnings vil ég benda á myndir líkt og nr. 26, 28, 30, 32, 33, 34, 38 og 54, sem allar eru áberandi litrænar og málaðar af fágaðri myndvísi. Eng- inn vafi er á að sýning á slíkum myndum hefði vakið athygli hve- nær sem hún hefði verið sett upp og orðið Gisla til vegsauka og að þessum myndum hefði ýmsum honum þekktari málurum verið sómi að. Listasafnið mætti gjarn- an falast eftir einni af þessum myndum til að rækta þennan kafla innan íslenzkrar mynd- listar. Mig langar til að benda á, að litirnir í einstaka mynd- um eru farnir að brotna og slíkt Jiarfnast viðgerðar og væri slíkt ómáksins vert, gæði þeirra standa undir slíku. Myndirnar á sýningunni eru mjög misjafnar sem vonlegt er, þegar um jafn ósamfelld vinnubrögð er að ræða, en beztu olíumálverkin og olíukrítarmyndirnar (t.d. nr. 12 og 26) standa fyrir sínu og sýningin í heild er vissulega vel þess virði, að henni sé gaumur gefinn. Hún sannar það, að ís- lendingar hafa átt og eiga margt hæfileikamanna, sem hefðu getað og geta náð enn lengra, fái þeir notið sin rétt og ef hlúð er að þeim gróðri. Sem slík hefur þessi sýning mikinn tilgang. Eg þakka svo þeim, sem stuðl- uðu að sýningunni, hún nær lengra en að vera hinzta kveðja fjölmargra vina og aðdáenda Gísla Kolbeinssonar, sjóarans, sem hlotið hafði náðargáfu list- fengisins i vöggugjöf, því að hún stuðlar að varðveizlu nafns hans og minningar. Bragi Ásgeirsson. Hljómplötur eftir HAUK INGIBERGSSON Matthías Johannessen: Sókrates Leikstjóri: Helgi Skúlason Tónlist: Magnús Blöndal Jóhannsson Mono, LP Fálkinn Þetta mun vera fimmta plat- an, sem út kemur hjá Fálkan- um á tiltölulega fáum árum, sem hefur að geyma leikrit. Er þetta framtak Fálkans mjög virðingarvert, þar sem þessar útgáfur rnunu tæpast skila ágóða og eru tilkomnar vegna áhuga Haralds Olafssonar, for- stjóra Fálkans, á bókmenntum og fslenskri menningu. Nýjasta útgáfa Fálkans er leikritið Sókrates eftir Matthi- as Johannessen, sem var frum- flutt í útvarpið í nóvember 1971, en áður hafði leikritið Fjaðrafok og einþáttungarnir Eins og þér sáið og Jón gamli verið fluttir í Þjóðleikhúsinu, en fram til þessa hefur höfund- ur eingöngu stundað leikritun í hjáverkum. í leikritinu Sókrates er sú spurning lögð til grundvallar, hvað sé veruleiki og hvað sé óraunverulegt, hvað sé líf og hvað sé dauði, og áhersla er lögð á hið ótrygga; allt er í heiminum hverfult. Leikritið er lítt staðbundið, utan hvað umhverfi Reykjavíkur skýtur nokkrum sinnum upp kollin- um, og timasetning leikur á tugum alda, þótt hugtök og hug- myndir eigi við nútímann. Þessi óákveðni um stað og stund fellur þó fyllilega að efn- inu og undirstrikar grund- vallarspurningu leiksins. Lifi er blásið í ýmsar hetjur mann- kynssögunnar og er þar fremstur Sókrates, sem leikinn er á eftirminnilegan hátt af Val Gíslasyni. Einnig koma við sögu Van Gogh, Darwin, Galileo, Sölvi Helgason auk Loðvíks 14. og frillu sonarsonarsonar hans, Madame de Pompadour. Að loknu forspjalli höfundar hefst leikritið með mikilli ræðu Darwins um, hversu „kerfið“sé óréttlátt, og siðan koma persón- urnar hver af annarri til sög- unnar, og er líður á leikritið verða tími og staður stöðugt ógleggri. Þó að leikritið fjalli um jafn alvarlegan hlut og líf og dauða, er það þó launfyndið, þar sem höfundur hefur skotið alls konar hugdettum og sögu- skýringum inn í umræðurnar um grundvallarspurningúna. Til þess að njóta fyndninnar að fullu þurfa hlustendur þó trú- lega að kunna einhver skil á lífi og starfi persónanna, eins og sögubækur telja að það hafi verið. Tónlistin, sem er eftir Magn- ús Blöndal Jóhannsson, fellur einkar vel að anda leikritsins og skiptir því niður í þætti. Höfundur mun hafa skrifað þetta leikrit upp úr stærra verki og er þetta alvarleg til- raun til ljóðrænnar leikritunar, sem er vel þess virði, að hlustað sé á og ættu t.d. skólar að geta gert sér töluverðan mat úr því. Persónu- saga og sagn- fræði Bðkmenntlr eftir ERLEND JONSSON Jón R. Hjálmarsson: BRAUTRYÐJENDUR. 251 bls. Suðurlandsútgáfan. Skógum 1973. l) JÓN R. Hjálmarsson er bæði sagnfræðingur og skólamaður. Með hvort tveggja að leiðarljósi veit hann, hvernig láta má ungt fólk meðtaka sögulegan fróðleik. Ungt fólk er í eðli sínu stjörnu- dýrkendur, hefur gaman af persónusögu, frásögnum af af- reksverkum og öðru, sem óvenju- legt getur talist, en lætur sig litlu varða þá sögu, sem er ekki tengd mannanöfnum og þar með ger- sneydd dramatískri spennu, eng- in met slegin. Nafnlaus saga er fyrir sjónum þess engin saga. Sið- ar kemst það svo að raun um — út frá persónusögunni — að fleira skiptir máli í sagnfræðinni en af- rek einstakra manna: að íslensk bókaútgáfa var grundvölluð af fleirum en Guðbrandi biskupi, Reykjavík byggð upp af fleirum en Skúla fógeta, að ár landsins hefðu að lokum verið brúaðar, þó Tryggva Gunnarssonar hefði ekki notið við og þar fram eftir götun- um. I Brautryðjendum Jóns R. Hjálmarssonar er I stuttu máli skráð saga sextíu „merkra íslend- inga á síðari öldum“, eins og segir á titilblaði, hver þáttur þrjár til Jón R. Hjálmarsson fjórar síður. Voru þættir þessir í fyrstunni fluttir i útvarp, ef ég man rétt, og þá ætlaðir börnum og unglingum sérstaklega, en þó býsna gagnlegir fyrir hvern, sem á hlýddi. í fyrsta þættinum er sagt frá Guðbrandi biskupi Þorlákssyni. Lestina rekur Sveinn Björnsson forseti. Þar á milli gefur svo að líta nöfn flestra einstaklinga, sem verulegan svip settu á íslandssög- una frá sextándu til tuttugustu aldar. .Jlugmynd mín með þessum þáttum," segir höfundur í for- mála, „er að segja í örstuttu máli frá einstökum afreksmönnum, er verið hafa brautryðjendur í ýms- um greinum, og bregða jafnframt ljósi yfir ýmis svið sögu okkar á siðari öldum.“ Þetta hefur að minni hyggju tekist. Val ,,afreksmannanna“ er vitanlega umdeilanlegt. Lang- mest ber þarna á skáldum og öðr- um andans mönnum, og er það eðlilegt, því þau stóðu helst upp úr á þeim öldum, sem bo'kin spannar, þar eð erfitt reyndist að finna kröftum sínum viðnám á öðrum sviðum. Sakni ég þarna nafna, kemur mér helst i hug Einar Benediktsson, sem var ein-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.