Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974
Jóhann Hafstein:
Sandurínn rennur úr
stundaglasinu
o.s.frv. Allt er þetta rétt, en rétt-
lætir þetta tvöföldun á skuldum í
góðæri, i svo miklu góðæri, að á
sama tíma hefur stóraukizt og
stundum allt að tvöfaldazt verð-
mæti útflutningsafurða okkar ís-
lendinga?
Því segja ekki kommúnistarnir
af sér ráðherraembættum í ríkis-
stjörninni vegna varnarmálanna?
Þeir eru þar algjörlega á öndverð-
um meiði við aðra ráðherra og það
eru engar líkur til þess, að stjórn-
in fylgi þeirra stefnu. Það er aug-
ljóst svarið við þessari spurningu:
Þessir menn eru ekki sjálfráðir.
Þeim hefur verið sagt að sitja
meðan sætt er í ríkisstjórninni og
láta ekkert á sig fá. Þau skilaboð
hafa sennilega komið í gegnum
rússneska sendiráðið frá Moskvu.
Þau eru byggð á því, að áfram-
haldandi seta þeirra í núverandi
ríkisstjórn sé miklu þýðingar-
meiri fyrir kommúnismann,,
heldur en það þótt Lúðvík og
Magnús segi af sér.
En hvað meinar þá Magnús,
gætu menn spurt. Hann skrifar
grein eftir grein i Þjóðviljann,
þar sem hann segir, að það komi
ekki til málá að vera áfram upp á
þau býti, sem við blasa i ríkis-
stjórninni. Hann veit sjálfur, að
hann meinar ekki orð af þessu og
stendur ekki við orð af þessu,
hann á að hlýða öðru og hann
mun hlýða öðru. —
En það er hægt að reka
kommúnistana úr ríkisstjórninni
eða veita þeim lausn frá embætti,
það getur fórsætisráðherra gert.
En þá er önnur spurning og hún
er í sjálfu sér alvarlegri og ein-
læg. Hún er þessi: Því segir ekki
Einar Agústsson, utanríkisráð-
herra lausu sinu embætti? Einar
Ágústsson er drengur góður. Það
er ekki i samræmi við eðli hans að
eiga samneyti né sjá við pólitísk-
um refum eins og Magnúsi og
Lúðvík. Mérer persónulega kunn-
ugt um, að hann hefur margt vel
gert, enda þótt árangur hafi ekki
orðið sem skyldi. Menn geta haft
mismunandi skoðanir á hæfileik-
um Eínars sem utanríkisráðherra,
en hann getur lika haft marga
aðra hæfileika; sem mundu gera
þjóð hans meira gagn, ef hann
ætti að sinna öðrum verkum. Ef
Einar Ágústsson segði lausu utan-
ríkisráðherraembættinu og i stað
hans fengist maður með mikla
staðfestu og skapfestu á sviði
varnar- og öryggismála landsins,
væri sjálfsagt að fá Einari Agústs-
syni virðulegt og sómasamlegt
embætti við hans hæfi. Það ætti
að stefna að þvi með einurð, að
hlutur hans yrði á engan hátt til
vansæmdar honum.
Við íslendingar urðum strax að
viðundri í hinum vestræna lýð-
ræðisheimi með yfirlýsingu
stjórnarsáttmálans f varnar- og
öryggismálum landsins. Því var
lýst yfir, þegar þessi stjórn tók
við völdum, að það væri ágrein-
ingur milli stjórnarflokkanna um
sjálf öryggis- og varnarmálin.
Kommúnistarnir vildu fara úr
NATO, en fyrst um sinn yrði látið
við það sitja að vera í NATO.
Aumara gat þetta ekki verið, og
aumari var ekki hægt að gera
okkur i augum þjóða, sem þekkja
af alvöru til þessara mála og hafa
þurft að fórna heilum kynslóðum
í banvænu stríði gegn böli komm-
únismans. Hvar í hinum vestræna
heimi gæti það yfir höfuð gerzt,
að samstjórn fleiri flokka settist á
laggirnar með yfirlýsingu um
það, að hún væri ósammála í
öryggis- og varnarmálum lands-
ins?
Málin eru nú að kristaliserast.
Loddaraleikurinn getur ekki
lengur haldið áfram. Kommúnist
ar fara aldrei úr ríkisstjórninni
ótilneyddir. Þeir munu sitja þar
áfram, enda þótt þeir semji um
það við aðra ráðherra, að hér
skulu halda áfram að vera varnir,
„lítil herstöð“, eða jafnvel alveg
sams konar herstöð eða varnar-
stöð og hér hefur verið. Kommún-
istarnir í Moskvu segja þeim, að
vitaskuld geri þeir þeim miklu
meira gagn innan ríkisstjórnar,
þótt áfram haldist svipuð skipan
varnarmála á Islandi og verið
hefur. Slík skipan sé kommún-
ismanum ekki hættuleg. Þá sé
von á Nixon forseta Bandaríkj-
anna bráðlega í heimsókn til
Moskvu, og friðsamlega verði tal-
að og skálaræður fluttar, en
þar muni enginn minnast á litla
ísland. Menn hugsa bara, hvað
yrði um ísland eftir að búið væri
að hrekja siðasta varnarliðsmann-
inn þaðan.
Lýðræðisflokkarnir verða allir
að taka höndum saman, eins og
áður var í varnar- og öryggismál-
Jóhann Hafstein
um landsins. Það er kominn timi
til þess að leika sér ekki að eld-
inum lengur. Við getum endur-
reist traustið, sem við höfðum
skapað okkur í hinum vestræna
lýðræðisheimi og þar er okkur að
vænta skjóls til öryggis og varnar.
Siðan þurfum við að takast
alvarlega á við hin erfiðu við-
fangsefni i efnahagsmálum lands-
ins. Það ótrúlega hefur gerzt, að i
mestu góðærum, sem yfir ísland
hafa gengið, hafa tvöfaldazt ríkis-
skuldir landsmanna út á við.
Hverju má þetta sæta? Jú, það
hafa verið keyptir skuttogarar.
kannski ein eða tvær flugvélai
Ríkisstjórnin getur lafað áfram
eftir ösk guðföður hennar,
Eysteins Jónssonar, forseta Sam-
einaðs Alþingis enn um nokkra
stund, en henni er markaður
aldurtili. Kosningar á íslandi
verða ekki umf lúnar og þær verða
ekki síðar en i júní-mánuði 1975.
Við, sem höfum þurft að Iifa öll
þau ósköp, sem yfir okkur hafa
dunið meðan núverandi ríkis-
stjórn hefur farið með völd, höf-
um næga þolinmæði til þess að
þrauka enn um hríð og bíða jafn-
vel fram að kosningum. Lengur
verður hins vegar ekki beðið. Þá
mun kjósandinn taka völdin á
þessum eina degi, sem hann hefur
völdin á Islandi, það er kjördegi.
Eftir kjördag skapast nýir tímar.
Þá verðum yið að súpa seyðið af
óstjórninni, sem yfir okkur hefur
dunið. Þá megum við ekki vera að
því að eyða timanum í það að
rifast um gamlar væringar, þá
verða aiíir góðir menn að leggjast
á eitt.
Sá, sem hefur i fávizku sinni og
gáleysi anað út í vökina verður að
koma sér upp úr henni sjálfur.
Sjálfir verðum við að bjarga
okkur, sjálfs er höndin hollust.
Electrolux
m
Frystikista
410 Itr
4
3?
Electrelux Fr> «tlklsta TC 14S
410 lítra, Frystigeta
28 kg á dag. Sjálfvirkur hitastill-
ir (Termostat). Öryggisljós með
aðvörunarblikki. Hraðfrystistill-
ing. Plata með stjórntökkum.
Lás á loki. Tvær körfur. Skilrúm.
Útbúnaður, sem fjarlægir vatn
úr frystihólfinu. Segullæsing.
Fjöður, sem heldur lokinu uppi.
margfaldar
marhad yðar
CITROEN GS
Til sölu Citroen GS '71 ekinn 37 þús. km. Upplýsingar í
síma 1 5579 á skrifstorutíma.
3 stykki
löndunarkrabbar
til sölu
Upplýsingar í síma 50437.
Til leigu
Glæsilegt skrifstofu- og vörugeymsluhúsnæði til leigu
í húseign Heildar h/f, Sundaborg við Klettagarða,
samtals 375 fermetrar. Húsnæðið er tilbúið til
notkunar. Upplýsingar hjá
Kr. Þorvaldsson & Co heildverzlun,
Grettisgötu 6, símar 24478 — 24730
Laust starf
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða starfs-
mann í innheimtudeild, til lokunaraðgerða (lokunar-
mann).
Umsækjendur þurfa að hafa bifreið til umráða. Umsókna-
eyðublöð og nánari uppl í skrifstofu Rafmagnsveitunnar,
Hafnarhúsinu 4. hæð.
RAFMAGNS
VEITA
REYKJAVÍKUR
Lltið Iðnaðarhúsnæðl
óskast til leigu, Þarf að vera með niðurföllum. Fiskbúð
kemur vel til greina. Tilboð sendist Morgunblaðinu
merkt: „Matvælavinnsla — 658". fyrir miðvikudag.
Elnbýllshús - Laugarás
200 ferm. einbýlishús ásamt bílskúr á bezta stað i
Laugarásnum. Fullfrágengin lóð.
Fasteignasalan Norðurveri,
Hátúni 4a. Símar 21870
og 20998.
Seltjarnarneshreppur
óskar eftir að ráða
bygglngatæknlfræðing
til starfa nú þegar.
Aðalverkefni, eftirlit með byggingu nýs gagnfræðaskóla
og verklegum framkvæmdum hreppsins ásamt hönnun
gatna.
Góð kjör. Fjölbreytt starfssvið.
Upplýsingar veita sveitarstjóri og verkfræðingur í síma
18088 og 18707.
Æskulýðsráð Reykjavíkur
Staða forstöðumanns
í félagsmiðstöð Æskulýðsráðs Reykjavíkur í Fellahverfi
(Breiðholti III) er laus til umsóknar. Laun skv. launakerfi
opinberra starfsmanna.
Umsóknarfresturertil 25. febrúar.
Umsóknareyðublöð ásamt starfslýsingu liggja frammi á
skrifstofu ráðsins að Fríkirkjuvegi 1 1, sem jafnframt veitir
mánari upplýsinga.
ÆSKULÝÐSRÁÐ REYKJAVÍKUR