Morgunblaðið - 10.02.1974, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974
Þeir aÖilar,
sem rekið hafa dagvistunarheimili (leikskóla, dagheimili
og skóladagheimili) á árinu 1973 og falla undir lög nr.
29/1973 um hlutdeild ríkisins í byggingu og rekstri
dagvistunarheimila, eru beðnir að skila rekstrarreikning-
um til menntamálaráðuneytisins fyrir lok febrúar. Enn-
fremur eru þeir sem eigi hafa sent ráðuneytinu fullkomin
gögn um stofnkostnað dagvistunarheimila á árunum
1 973 og '74 beðnir að skila þeim fyrir sama tíma.
6.2. 1973
MenntamálaráðuneytiS
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðar sem eru skemmdar eftir árekstra:
árgerð
Dodge Charger 1971
Peugeot 204 1970
Cítroén ID 1 9 1963
Taunus 1 7 m 1966
Saab 96 1 962
Morris Mini 1962
Chevrolet pick up 1965
Bifreiðarnar verða til sýnis á Kársnesbraut 104, Kópa-
vogi, mánudaginn 1 1. þ.m.
Tilboð sendist á skrifstofu vora Laugavegi 178 fyrir kl.
1 7:00 sama dag.
Trygging h.f.
Datsun unnendur ath.
Vegna endurnýjunnar, er þessi Datsun (diesel) árgerð ' 71
til sölu. Bílnum hefur ávallt verið vel við haldið og fengið
góða meðferð
Nánari upplýsingar eru gefnar í símum 72671, 13324
og 86683, næstu daga.
Bifreiðin verður til sýnis eftir umtali.
Alberta Albertsdóttir,
ísafirði, 75 ára
Síðustu áratugirnir hafa verið
timar umbrota og breytinga. Yfir-
gnæfandi meiri hluti fólks, sem
vaxið hefur úr grasi í þeim héruð-
um, sem oft eru kölluð útkjálkar á
máli þéttbýlisfólks, hefur, þegar
aldur hefur færzt yfir, flutzt til
þéttbýlisins frá sínum heimahög-
um. En það er einnig til fólk, sem
ekki getur hugsað til þess að
hverfa frá heimabyggð sinni,
hvað sem í boði er. Það er fólk,
sem er bundið órjúfanlegri tryggð
við þáljyggð, sem hefur fætt það
og alið, og getur engan veginn
hugsað sér að festa rætur í fjar-
lægum byggðum. Ein slík mann-
eskja á 75 ára afmæli á morgun,
frú Alberta Albertsdóttir, kona
Marselliusar Bernharðssonar
skipasmiðameistara á ísafirði. Eg
hygg, að fátt myndi koma mér
meira á óvart en það, ef ég frétti,
að þau hjón hefðu í hyggju að
flytjast frá isafirði, svo fjarstæð
er sú tilhugsun í huga mínum.
Þessi ágætu hjón hafa sett svip
sinn á höfuðstað Vestfjarða í
marga áratugi. Hann sem einn
mesti athafnamaður og stjórnandi
eins stærsta atvinnufyrirtækisins
í bænum og bæjarfulltrúi í hart-
nær þrjá áratugi og hún sem
eiginkona hans, sem staðið hefur
fyrir einu fjölmennasta og
gestrisnasta heimili í bæjarfélag-
inu í tæpa hálfa öld.
Alberta Albertsdóttir er borinn
og barnfæddur ísfirðingur, og á
ísafirði hefur hún dvalið allan
sinn aldur. Foreldrar hennar
voru hjónin Messíana Sæmunds-
dóttir og Albert Bjarnason skip-
stjóri. Þau hjón eignuðust ellefu.
börn og féll faðir hennar frá, þeg-
ar elzta barnið var á 12. ári. Það
var erfitt hlutskipti, sem þá beið
móður hennar, en hún var þrek-
kona, sem barðist harðri baráttu í
lifinu og bognaði aldrei. Eins og
að líkum lætur, þá fóru þau
systkinin að vinna um leið og
þrek þeirra leyfði, til þess að
hjálpa móður sinni og sjá heimil-
inu farborða. Þar lét Alberta ekki
sinn hlut eftir liggja. Nú eru
aðeins tvö systkini hennar eftir á
lífi, en þau eru Jóna, gift Stefáni
Þorkelssyni bifreiðastjóra f
Reykjavík, og Brynjólfur,
kvæntur Kristínu Halldórsdóttur,
og eru þau búsett í Keflavík.
Alberta Albertsdóttir er barn
þeirra ára, sem buðu fólki þrot-
lausa vinnu og erfiði til þess að
hafa i sig og á. Hún ólst upp í
hinum harða skóla lífsins og
lærði barn að aldri, að dugnaður
og vinna voru undirstaða þess, að
fólk kæmist áfram. Hún vann
mikið og komst vei áfram og
ávann sér traust og virðingu
þeirra, sem henni kynntust. Ung
að árum giftist hún Kristjáni
Stefánssyni stýrimanni, en hann
fórst með vélbátnum Gissuri
hvíta á árinu 1924, Þau áttu þrjú
börn. Stóð hún nú hálf þrítug að
aldri uppi með þrjú ung börn.
Þann 3. júní 1927 giftist hún
Marselliusi Bernharðssyni og var
það mikil gæfa fyrir þau bæði.
Hann gekk börnum hennar í
föðurstað og hefur alla tíð síðan
reynzt þeim sem hinn bezti faðir.
Þau hjón eignuðust 10 börn og
dóu tvö þeirra í æsku. Barnabörn-
in eru orðin 45 og barnabarna-
börnin 6.
Það er mikið starf, sem liggur
eftir Albertu. Hún hefur með
myndarskap og stórhug stjórnað
stóru heimili. Þareru allir hlutir i
reglu og til þeirra hjóna er alltaf
gott og gaman að koma. Alberta
er kona, sem fylgist vel með þeim
máium, sem efst eru á baugi, og
er ákveðin og hreinskilin f sam-
skiptum við fólk. Hún kann vel að
meta það, sem er skemrritilegt, og
getur glaðzt með glöðum. Þó að
árin séu orðin mörg, er hún ung í
anda og kann vel við sig með
ungu fólki. Alberta hefur tekið
nokkurn þátt í félagsmálum, og er
í kvenfélaginu Ösk, kvennadeild
Slysavarnafélagsirts og sjálf-
stæðiskvenfélagi ísafjarðar. Lífs-
braut þessarar ágætu konu
hefur ekki verið dans á
rósum. Hún hefur orðið að þola
margt mótlæti í lífinu. Þvi hefur
hún tekið á likan hátt og hennar
stórbrotna móðir gerði og vaxið
við hverja raun. En hún hefur
líka verið hamingjumanneskja og
búið í hjónabandi i 47 ár með
manni, sem hún ber virðingu
fyrir, og hann ekki síður fyrir
henni. Á milli þeirra hjóna ríkir
sönn vinátta og djúpur skilning-
ur. Þau líta yfirfarinn veg liðinna
áratuga og mega sannarlega
gleðjast yfir mörgu. Þó að skipzt
hafi á skin og skúrir, þá er barna-
hópurinn og barnabörnin ánægju-
legt lífsstarf að líta yfir. Sigrar
þerra hjóna i starfi þeirra eru
miklir og margir, sem þau mega
verastolt yfir.
Á þessum tímamótum í ævi Al-
bertu er mér bæði ljúft og skylt
að þakka henni fyrir vináttu og
tryggð frá okkar fyrstu kynnum.
Henni og manni hennar var mér
hollt að kynnast og eiga að vinum
í öll þessi ár. Sú vinátta hefur
aldrei brugðizt og fyrir þeim mun
ég hér eftir sem hingað til bera
mikla virðingu og meta að verð-
leikum þeirra mikla starf og
mannkosti.
Gæfan fylgi þér góða gamla vin-
kona og ykkur hjónum báðum,
börnum ykkar og öllu skylduliði,
með þakklæti okkar hjóna fyrir
örofa tryggð og fölskvalausa vin-
áttu. Margt eigum við sameigin-
legt, en sennilega ekkert nær en
að óska þess, að vestfírzk byggð,
frægð og saga megi eflast og
dafna, og hamingja og velferð
megi sitja í öndvegi á hverju
heimili.
Isfirðingar og allir aðrir Vest-
firðingar, sem kynnzt hafa Al-
bertu Albertsdóttur og hennar
ágæta manni, senda þeim á
þessum degi hjartanlegar
hamingjuóskir með þakklæti
fyrir liðna daga og óskir um heill
og hamingju á ókomnum ævidög-
um.
Matthías Bjarnason.
Á þessum tímamótum í lífi Al-
bertu Albertsdóttur er mér bæði
ljúft og skylt að rifja upp og
þakka kynni mín við hana og fjöl-
skyldu hennar. Þau hófust á önd-
verðum vetri 1962, er ég fluttist
aftur til míns gamla fæðingarbæj-
ar og hóf störf þar.
Var ég til húsa hjá þeim
heiðurshjónum, Albertu og
Marselliusi, langa hríð og minnist
traustra og góðra kynna, sem
snerust til einlægrar vináttu milli
fjölskyldu þeirra og minnar.
Alberta er hin vænsta kona til
orðs og æðis, handtak h-ennar
hlýtt og raungæði og hjálpsemi
móta far hennar allt. •
í umróti langrar ævi hefur
hún kynnzt gleði og sorgum
og orðið að þola margvíslegt
mótlæti, en hún hefur ekki
kiknað undir þeim byrðum,
en staðið af sér sérhvert hret-
viðri af þeim manndömi og þeirri
sterku skapgerð, sem hún er búin.
Manni sínum, börnum og fjöl-
mennum hópi afkomenda, hefur
hún reynzt frábærlega vel og ver-
ið þeirra kjölfesta í lífinu.
Heimili þeirra heiðurshjóna
liggur um þjóðbraut þvera, ef svo
mætti að orði komast, hefur ævin-
lega verið mjög gestkvæmt þar,
og er gestrisni og rausn þeirra
hjóna slik, að í annála mætti færa.
Fjölskylda mín og ég viljum
nota þetta tækifæri til þess að
senda afmælisbarninu heilla- og
hamingjuóskir og um leið einlæg-
ar þakkir til fjölskyldunnar allrar
á Austurvegi 7 fyrir ljúf kynni og
samfylgd á liðnum árum.
llögni Torfason.