Morgunblaðið - 20.02.1974, Page 1
32 SIÐUR
42. tbl. 61. árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Aþenu, 19. febrúar, AP.
GRÍSKA stjórnin tilkynnti i dag,
að handteknir hefðu verið 35
háttsettir mehn f kommúnista-
flokki landsins, sem er bannaður.
Tilkynning um þetta var lesin
upp á fundi með fréttamönnum,
sem hafði verið kallaður saman í
skyndi. A fundinum, sakaði tals-
maður stjórnarinnar kommúnista
um að hafa í hyggju að steypa
stjórninni með valdi og koma á
einræðisstjórn kommúnista.
Talsmaðurinn sagði einnig, að
kommúnistar hefðu átt mikinn
þátt í óeirðunum i Aþenu i
nóvember síðastliðnum og svip-
aðar aðgerðir hefðu verið fyrir-
Framhald á bls. 18
Hvert stórmálið af öðru
kemur fram í sviðsljósið
almenningi sem mest til góða.
Jeremy Thorpe formaður
Frjálslynda flokksins sagði í dag,
að flokkur hans óskaði hvorki eft-
ir stjórnarsamstarfi við Verka-
mannaflokkinn né íhaldsflokk-
inn. Hann sagði, að flokkurinn
myndi berjast einn og spáði þvi,
að hann næði a.m.k. 60 sætum í
neðri deildinni í kosningunum 28.
Framhald á bls. 18
DAYAN vill ekki
í nýja ríkisstjórn
Jerúsalem, 19. febrúar,NTB.
Golda IVIeir forsætisráðherra
Israels mun á morgun eiga
fund með Katzir forseta og
verður þá tekin ákvörðun um,
hvort hún biður um frest f
þrjár vikur í viðbót til að reyna
að mynda nýja rikisstjórn. Lft-
ið hefur gengið í þeim málum
síðan kosningarnar voru haldn-
ar 30. desember sfðastliðinn, og
fsraelska útvarpið sagði f dag,
að IVloshe Dayan varnarmála-
ráðherra vildi ekki vera með í
myndun nýrrar stjórnar.
Verkamannaílokkur Goldu
Meir er ennþá stærsti stjórn-
málaflokkurinn í israel, þótt
hann hafi misst sex þingsæti i
kosningunum. Golda Meir
hefur haldið marga fundi með
formönnum þjóðlega trúar-
flokksins og óháða frjálslynda
flokksins, en hefur ekki tekizt
að komast að samkomulagi, sem
gæti verið grundvöllur fyrir
stjórnarmyndun.
Forsætisráðherrann vill ekki
hafa neina samvinnu við hinn
hægrisinnaða Likud og segir,
að eigi hann aðild að stjórn
ásamt Verkamannaflokknum,
yrði sú stjórn óstarfhæf vegna
sundrungar. Likud hefur lýst
sig andstæðan því að nokkrum
hluta herteknu svæðanna verði
skilað aftur. ísraelska útvarpið
segir, að Dayan hafi tekið
ákvörðun um að halda sig utan
stjórnarmyndunar vegna þeirr-
ar hörðu gagnrýni, sem hann
hefur orðið að þola eftir Yom
Kippur-striðið.
Knut Frydenlund utanríkisráðherra Noregs ásamt fjölskyldu sinni og Einari Ágústssyni hlýða á Þór
Magnússon þjóðminjavörð, er þau heimsóttu Þjóðminjasafnið nú um helgina. Sjá frásögn af fundi
ráðherrans með fréttamönnum og ræðu hans í kvöldverðarboði Einars Agústssonar á bls. 19.
Bretland:
Wilson vill þjóðnýta Norðursjávarolíuna
London, 19. febrúar,
AP-NTB.
Verkamannaf lokkurinn og
Ihaldsflokkurinn eru nú farnir að
rffast heiftarlcga um olíulindirn-
ar f Norðursjó og er það enn einn
liðurinn í kosningabaráttu, sem
vekur upp hvert málið á fætur
öðru. í upphafi stóð deilan ein-
göngu um verkfall kolanáma-
verkamanna, hvað hefði valdið
EIGINKONA Alexanders
Solzhenitsyn, Natalya, býr sig nú
undir að flytjast frá Sovétríkjun-
um ásamt börnum þeirra hjóna.
Ekki er þó nákvæmlega vitað,
hvenær hún getur farið á eftir
manni sfnum, þvf að samkvæmt
sovézkum lögum verður að gefa
upp ákveðinn ákvörðunarstað ef
fólk ætlar úr landi. Solzhenitsyn
hefur ekki tekið ákvörðun um,
hvar þau skuii setjast að.
Mörg lönd hafa orðið til þess að
bjóða skáldinu og fjölskyldu hans
búsetu, en búizt er við, að hann
verði fyrst um sinn kyrr i Sviss,
því og orsakir þess, en síðan hef-
ur Harold Wilson varpað hverri
„pólitísku'* sprengjunni af ann-
arri að stjórn Edwards Heath.
Wilson krefst þess nú, að oliu-
lindirnar í Norðursjó verði þjóð-
nýttar hið bráðasta og kvað
skattaívilnanir og önnur fríðindi,
sem olíufélögin hefðu fengið,
vera fyrir neðan allar hellur.
Heath svaraði því til, að félögin
meðan hann hugsar ráð sitt. Vinir
hjónanna, sem hafa heimsótt
Natalyu í Moskvu, segja, að þar
séu nú bækur um allt gólf og
heimilið beri öll merki brottflutn-
ings.
Ekki hefur enn verið skýrt frá
því, hvort Solzhenitsyn fær
skjalasafn sitt, sem er mikið að
vöxtum, en hann hefur miklar
áhyggjur af því að yfirvöld leggi
hald á það. I því eru heimildir,
sem hann hefur safnað á mörgum
árum og byggt ýmis ritverk sin á.
Á fundi með fréttamönnum sagði
hann, að það væri andlegt morð ef
yfirvöld legðu hald á skjölin.
hefðu þegar varið rúmum
milljarði sterlingspunda til leitar
að olíu í Norðursjó, en ekki fengið
eitt einasta pund í staðinn enn
sem komið væri.
Hann sagði tillögu Wilsons um
að þjóðnýta lindirnar fáránlegar,
en lofaði hins vegar, að þess yrði
gætt, að tekjur þær, sem í fram-
tíðinni fengjust af lindunum,
yrðu nýttar þannig, að þær kæmu
Sökuð um
að hafa
myrt 12
Dewsbury,'l9. febrúar, AP.
TUTTUGU og fjögurra ára
gömul stúlka, Judith Theresa
Ward, hefur verið sökuð um
morð, f sambandi við
sprengingu í áætlunarbifreið,
sem varð alls tólf manns að
bana hinn 4. þessa mánaðar. í
bifreiðinni voru brezkir her-
menn og fjölskyldur þeirra.
Ónafngreindur upphringjari
sagði blaði á Norður-irlandi,
að hryðjuverkasamtök, sem
kölluðu sig rauðu hersveitina,
hefðu komið sprengjunni
fyrir. Brezka lögreglan hefur
ekki gefið upp, hverrar þjóðar
Judith Ward er.
Natalya býst
til flutnings
Watergate:
Opinberum yfir-
heyrslum er lokið
Washington, 19. febrúar,
AP—NTB.
WATERGATERANNSÓKNAR-
NEFND öldungadeildar Banda-
rfkjaþings ákvað f dag að hætta
opinberum vitnaleiðslum og eru
litlar líkur á, að þær verði hafnar
að nýju. Sam Erwin formaður
nefndarinnar sagði við frétta-
menn, að hún hefði komizt að
þeirri niðurstöðu, að ekki hefðist
neitt upp úr frekari yfirheyrsl-
um.
Nefndin mun nú snúa sér að því
að gera skýrslu um málið, en mun
þó jafnframt halda áfram að viða
að sér ýmsum gögnum. Hún hefur
þó samþykkt dómsúrskurð um, að
hún gæti ekki gert kröfu um að fá
fleiri af segulbandsspólum
Nixons forseta afhentar. Nefndin
átti að skila skýrslu sinni 28.
febrúar næstkomandi, en nú er
ljóst, að það verður alls ekki
mögulegt og því hefur hún farið
fram á, að starfstími hennar verði
Framhald á bls. 18
Fjöldahandtökur
í Grikklandi