Morgunblaðið - 20.02.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20- FEBRUAR 1974
15
22. þingi Norður-
landaráðs að ljúka
Stokkhólmi, 19. febr.,
frá feirni Jóhannssyni,
22. ÞINGI Norðurlandaráös lýkur
hér á morgun, en fáir eða engir
tslendingar munu sækja fund
ráðsins þá. Flestir fara árdegis
áleiðis til Kaupmannahafnar til
að ná sfðustu flugvélinni, sem fer
heim vegna verkfallsins.
Verkfall verzlunarfólks, sem
stöðvar m.a. utanlandsflugið,
hefur komið róti á Islendingana
hér á þinginu og margir hafa orð-
ið að breyta fyrirætlunum sfnum.
Fregnir að heiman voru óljósar
fyrst í stað, því að mjög erfiðlega
gekk að ná símasambandi við
Reykjavík. Þegar á daginn leið
bárust nánari fréttir og flestir
brugðu á það ráð að panta far með
siðustu vélinni frá Kaupmanna-
höfn, þar sem óvíst er, hve lengi
utanlandsflugið liggur niðri.
Ekki er ákveðið, hvar aukaþing
Norðurlandaráðs verður haldið
næsta haust, en forsætisnefnd
ráðsins kemur saman 22. marz til
að fjalla um það. Fulltrúi íslands
i forsætisnefndinni er Matthias
A. Mathiesen.
Watergate:
Svo sem frá hefur verið skýrt í fréttum tók tvítugur Bandaríkja-
maður, Robert Preston að nafni, upp á því um helgina að stela þyrlu
frá herflugvelli I Maryland og fljúga henni til Hvfta hússins, með
viðkomu á nokkrum stöðum og uppátækjum ýmiss konar á leiðinni.
Preston var neyddur til að lenda þyrlunni á flötinni rétt sunnan við
Hvfta húsið og var hann sfðan handtekinn. Myndirnar sýna þyrluna,
þar sem hún er lent rétt hjá forsetabústaðnum og Preston, er hann
var fluttur í lögreglustöð í Wæshington.
Þögnin á segulbands-
spólunni eisn rannsökuð
Herforingjastjórnin í Chile:
New York, 19. febr., AP.
BANDARÍSKUR rafeindasér
fræðingur hefur afhent lögfræð-
ingum Hvfta hússins fimm blað-
sfðna skýrslu um hina alræmdu
• •
011 stjórnmálastarf-
semi bönnuð í 5 ár
Santiago, Chile,
19. febr., AP-NTB.
AUGUSTO Pinochet hers-
höfðingi, leiðtogi herforingja-
stjórnarinnar f Chile lýsti því yfir
Verðlaun kennd við
Xanþippu veitt í
fyrsta sinn í Osló
Osló, 19. febr., NTB.
Á SJÖTÍU ára afmæli landsráðs
norskra kvenna voru í fyrsta sinn
veitt svokölluð Xanþippuverð-
laun, sem ætlunin er að veita í
framtfðinni karlmönnum, sem
starfa f þágu jafnréttindabaráttu
kvenna eða sýna jafnréttisafstöðu
til kynjanna í starfi sínu. Verð-
launin hlutu að þessu sinni Haag-
en Ringnes dagskrárfulltrúi hjá
norska sjónvarpinu fyrir mál-
efnalega afstöðu til konunnar f
Sjónvarpsdagskrám sfnum og
fyrir að taka f ræðu og riti virka
afstöðu gegn mismunun kynj-
anna.
Verðlaunin voru veitt við hátið-
lega athöfn, þar sem meðal gesta
voru Sonja krónprinsessa og full-
trúar kvennasamtaka og ráða
víðsvegar í Noregi. A sérstökum
umræðufundi, sem haldinn var í
Osló í tilefni afmælisins, var sér-
staklega fjallað um stöðu kon-
unnar i svæðauppbyggingu lands-
byggðarinnar.
Formaður landsráðsins, Anna
Louise Beer dómari, sagði við
verðlaunaafhendingu, að með því
að veita verðlaunin eingöngu
karlmanni beittu kvennasamtök-
in misrétti kynjanna i fyrsta sinn,
en þeim þætti ástæða til að verð-
launa menn eins og Ringnes, sem
í starfi sínu sýndu jafnréttisaf-
stöðu, er mjög væri til fyrirmynd-
ar og óskandi að sjá sem víðast.
Xanþippu-verðlaunin eru
kennd við konu heimspekingsins
Sókratesar, sem uppi var fyrir
2300 árum og þótti skelegg mjög.
Sagði Beer dómari, að líta mætti á
Xanþippu sem fyrstu virku kven-
réttindakonuna, því að það hefði
verið fyrir réttláta reiði hennar
sem hún hlaut sess i mannkyns-
sögunni „sem ella fjallar ein-
göngu um afrek karlmanna í sam-
félögum karimanna", sagði dóm-
arinn.
Xanþippu-verðlaunin eru högg-
mynd af konu gerð af mynd-
höggvaranum Skule Waksvik.
I gær, að öll stjórnmálastarfsemi
yrði bönnuð í landinu næstu
fimm árin að minnsta kosti og
herinn mundi halda völdum þar
jafnvel ennþá lengur.
Pinochet sagði þetta i viðtali við
fréttamann Reuters og bætti því
við, að hinar ströngu öryggisráð-
stafanir, sem stjórnvöld hefðu
viðhaft frá því herinn steypti
stjórn Salvadors Allendes, yrðu
látnar gilda áfram og Chilebúar
, mættu búast við erfiðum timum
framundan vegna erfiðleika í
efnahagslifi landsins.
Pinochet staðhæfði, að meiri-
hluti Chilebúa styddi stjórn sína,
en hún mundi engu að síður við-
halda öryggisráðstöfunum meðan
nokkur hætta væri á valdbeitingu
af hálfu marxískra afla. Því er
haldið fram af stjórnarinnar
hálfu, að stuðningsmenn Allend-
es ráði enn yfir miklu magni
vopna og skotfæra, sem þeir
geymi á leyndum stöðum víða um
landið.
I AP-frétt frá Amsterdam segir,
að Carlos Altimirano fyrrverandi
aðalritari sósialistaflokksins í
Chile hafi sagt í viðtali við
hollenzka sjónvarpið, að enn
væru 240 fyrrverandi stjórnmála-
foringjar Chile í fangelsum, þar
sem þeir biðu þess, að réttarhöld
væru haldin í máli þeirra.
Altimirano sagði, að mikilvæg-
ustu stjórnmálafangarnir væru
fluttir til Santiago og leiddir fyrir
herrétt með leynd.
Altimirano, sem nú kemur fram
sem leiðtogi chileönsku stjórnar-
andstöðunnar í útiegð, sagði enn-
fremur, að enn væru þúsundir
manna fangar herforingja-
stjórnarinnar og pyntingar fanga
væru daglegt brauð. Viðtalið við
Altimirano var tekið í Sofiu,
höfuðborg BÚlgariu, þar sem
hann dvelst um þessar mundir.
13V4 minútu þögn á einni af segul-
bandsspólum forsetaembættisins,
að því er dagblaðið The New York
Times skýrir frá í dag. í skýrslu
sérfræðingsins segir, að þögnin
kunni að stafa af mistökura eða
bilun í sjálfu segulbandstækinu.
Þessi umsögn brýtur í bága við
skýrslu sex rafeindasérfræðinga,
sem Hvíta húsið og Leon Jaworski
rannsóknardómari dómsmála-
ráðuneytisins fengu til að rann-
saka böndin á dögunum, en þeir
komust að þeirri niðurstöðu, að
margsinnis hefði verið „spilað
ofan 1“ þennan hluta spólunnar
og undir mætti greina óm af sam-
tali, sem sennilega væri hið upp-
runalega samtal Nixons forseta
við Robert Haldeman yfirmann
starfsliðs Hvíta hússins. Samtal
þetta fór fram skömmu eftir inn-
brotið í aðalstöðvar Demókrata-
flokksins i Watergate.
Sex líflátnir
Teheran, 19. febr., AP.
I MORGUN voru teknir af lífi í
Teheran sex menn, sem herdóm-
stóll hafði dæmt til dauða fyrir
skemmdarverk og morð. Voru
menn þessir sekir fundnir um að
kveikja I lögreglustöð, kvenna-
klúbbi í borginni, kvikmyndahúsi
og ökutækjum opinberra starfs-
manna svo og að að hafa drepið
sjö manneskjur, þar á meðal
nokkra lögreglumenn. Fjórir
menn aðrir, sem töldust meðsekir
í þessum verkum, hlutu 5—15 ára
fangelsisdóma.
Fostervoll varnarmálaráðherra Noregs:
Noregur er ekki veikur
hlekkur í vömum NATO
Osló, 19. febr., NTB.
Landvarnaráðherra Noregs,
Alv Jakob Fostervoll, vfsaði I
dag á bug fréttum, sem nýlega
birtust í brezka blaðinu Daily
Express þess efnis, að herfor-
ingjar og stjórnmálaleiðtogar I
Vestur-Evrópu fjölluðu um
þe ssar mundir um áætlanir,
sem gengju út frá því, að
Noregur yrði ekki þáttur I
skipulagi varna Vesturveld-
anna gegn hugsanlegri árás af
hálfu Sovétríkjanna.
Daily Express hafði sagt, að
herforingjar I V-Evrópu væru
þreyttir orðnir á tilraunum til
að koma upp skynsamlegu
varnarkerfi, þar sem Noregur,
sem væri þó aðili að Atlants-
hafsbandalaginu, neitaði í sí-
fellu að leyfa vist erlendra her-
sveita ánorsku landi.
Blaðið gaf ekki upp heim-
ildarmann þessara upplýsinga,
en kvað þær hafðar eftir her-
foringja nokkrum. Talsmaður
NATO í Brússel hefur afdrátt-
arlaust vfsað þeim á bug.
Fostervoll landvarnaráð-
herra sagði, að sér væri með
öllu ókunnugt um það, hvaða
umræðuvettvang herforingja
Og stjórnmálaleiðtoga blaðið
kynni að eiga við. Hann vissi
heldur ekki til þess, að nein
gagnrýni hefði verið borin
fram á stefnu Norðmanna í her-
stöðva- og varnarmálum; þvert
á inóti hefði sú stefna verið
viðurkennd innan NATO sem
heppilegur þáttur í þeirri við-
leitni bandalagsins að sýna
Austur-Evrópu og sanna, að
NATO væri varnarbandalag, en
hefði ekki árás í huga. Að tala
um Noreg sem veikan hlekk í
varnarkeðju bandalagsins, væri
því í algerri mótsögn við þá
viðurkenningu, sem ráðherra-
fundurinn i desember 1972
hefði látið í ljós um varnar-
stefnu Noregs.
I frétt Daily Express hafði
sérstaklega verið rætt um
samninga Norðmanna og Sovét-
ríkjanna um afnot af flugvell-
inum á Svalbarða og Norð-
mönnum legið á hálsi fyrir að
ætla að leyfa sovézka flugfé-
laginu Aeroflot afnot þar af.
Sagði Fostervoll þetta meiri
háttar mistúlkun sannleikans,
þvf að þessar viðræður um af-
not af Svalbarðaflugvellinum
hefðu staðið yfir árum saman
og ekki verið neitt leyndarmál.
Sovétríkin væru aðilar að Sval-
barðasamningnum og hefðu
þar af leiðandi rétt til að stunda
þar ýmsa starfsemi, en jafn-
framt væri öll hernaðarstarf-■
semi þar um slóðir bönnuð.
„Þar sem Noregur og Sovétrik-
in eru einu aðildarriki Sval-
barðasamningsins, sem halda
þarna uppi nokkurri umtals-
verðri starfsemi, var eðlilegt,
að fulltrúar stjórnanna ræddu
sín i milli ýmsar hliðar sam-
eiginlegrar notkunar flug-
vallarins, sagði Fostervoll og
bætti því við, að hann væri op-
inn öllum löndum, sem þyrftu á
aðstöðu þar að halda í sam-
bandi við starfsemi á Sval-
barða.
Fostervoll sagði að lokum, að
Norðmönnum væri algerlega
ókunnugt um, að innan NATO
væru uppi nokkurs konar um-
Framhald á bls. 18