Morgunblaðið - 20.02.1974, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR 1974
Tillaga um friðlýsingu
NA-Atlantshafs felld
Stokkhólmi, 19. febr.,
frá Birni Jóhannssyni.
TILLAGA kommúnista og rót-
tækra vinstrimanna í Norður-
landráði um, að Norðaustur-Atl
antshafið verði friðlýst svæði, var
felld með miklum meirihluta á
þingi ráðsins í dag, — með 46
atkvæðum gegn 11.
Samkvæmt tillögunni skyldu
rikisstjórnir Norðurlanda láta
fulltrúa landanna hjá Sameinuðu
þjóðunum leggja til, að Norð-
austur-Atlantshafið yrði friðlýst i
samræmi við hugmyndirnar um
friðlýsingu Indlandshafs.
Tillagan um friðlýsinguna var
borin fram á aukaþingi Norður-
landaráðs í Stokkhólmi i október-
mánuði sl. Meðflutningsmaður að
tillögunni var Gils Guðmundsson.
SALT-viðræður
eftir 3 mánaða hlé
Genf, 19. febrúar, AP.
FULLTRUAR Bandarfkjanna og
Sovétrfkjanna hófu að nýju við-
ræður um takmörkun kjarnorku-
vfgbúnaðar (SALT-viðræðurnar)
í dag, eftir þriggja mánaða hlé.
Um leið hefur verið tilkynnt, að
Sovétríkin séu byrjuð að reyna
nýja tegund fullkominna eld-
flauga.
Þessar viðræður hafa verið
harðlega gagnrýndar að undan-
förnu og þykir mönnum, að þeir
rúmlega fimmtíu fundir, sem þeg-
ar hafa verið haldnir, hafi verið
næsta árangurslitlir. Lítið gekk
að ná samkomulagi á síðustu
fundunum, sem haldnir voru fyr-
ir þrem mánuðum, en lagt hefur
verið hart að samningamönnun-
um að ná nú einhvers konar sam-
— Verkfalls-
verðir
Framhald af bls. 32
Loftleiðir í engu hafa farið inn á
starfssvið VR eða VS í sambandi
við þetta mál. Deildarstjóri í far-
skrárdeild í Reykjavík hefði
heimild til að starfa og hann hefði
séð um afgreiðslu farþeganna í
Reykjavík. Deildarstjóri farþega-
deildar á Keflavíkurflugvelli
hefði heimild til að starfa og hefði
átt að sjá um farþegana þar suður
frá. Ailt sýndist þvf vera þannig,
að Loftleiðir gætu óáreittar
haldið uppi flugi með viðkomu
hér á landi.
Þá kom einnig fram í samtölum
Mbl. við félaga i VS, m.a. Gunnar
Árnason, sem á sæti f nefnd
þeirri, sem annast framkvæmd
verkfallsvörzlu, að þeir teldu, að
lögreglan á Keflavfkurflugvelli
hefði aðstoðað Loftleiðir við verk-
fallsbrot, en lögreglubifreið var
skammt frá Loftleiðavélinni, er
hún beið við flugstöðina, og settur
lögreglustjóri og yfirlögreglu-
þjónn fylgdust með framgangi
mála í flugafgreiðslunni, þar sem
félagar i VS héldu uppi verkfalls-
vörzlu. Þorgeir Þorsteinsson sett-
ur lögreglustjóri kvað lögregluna
alls ekki hafa haft afskipti af mál-
unum og lögreglubifreiðin hefði
aðeins verið til taks hjá flugvél-
inni, ef einhverjir áhorfendur
hefðu ætlað sér út að vélinni.
Lögreglan
í bensínleit
í húsum
LÖGREGLAN f Kópavogi
gerði í gær leit að bensíni í
Viðlagasjóðshúsunum f Kópa-
vogi, en henni höfðu horizt
upplýsingar um að bensfn-
birgðir væru geymdar í ein-
hverjum húsanna, sem öll eru
úr timhri. Að sögn lögreglu-
varðstjóra í samtali við Mbl. í
gær, fannst nokkuð magn af
bensíni í þessari leit. Ekki
kvað hann hafa verið gerða
leit í öðrum Kðpavogshúsum,
en ákaflega óvarlegt og raunar
ólöglegt væri að geyma bensín
f íbúðarhúsum.
komulagi, þar sem Nixon forseti
og Leonid Brezhnev samþykktu í
júni síðastliðnum, að reynt skyldi
að ná samkomulagi fyrir árslok
1974.
I viðræðum þessum er ætlunin
að ná samkomulagi um hámarks-
fjölda kjarnorkuvopna, sem risa-
veldin megi koma sér upp, en þótt
þau hafi komið sér saman um
ýmis atriði i því sambandi nú þeg-
ar, þykir mörgum sem þau séu
lítið farin að nálgast upphaflegt
takmark. Allavega hafa kjarn-
orkuvopnabúr þeirra beggja
stækkað til muna siðan viðræð-
urnar hófust og allar horfur á, að
svo haldi áfram á næstunni.
— Watergate
Framhald af bis. 1
framlengdur til 28. maí næst-
komandi.
Undanfarna mánuði hefur
athygli þjóðarinnar beinzt óskipt
að opinberum yfirheyrsl-
um Watergaterannsóknarnefnd-
arinnar, enda hefur hver stór-
fréttin af annarri komið fram í
þeim. Bæði hefur verið sjónvarp-
að og útvarpað frá yfirheyrsl-
unum og ekki verið horft meira á
annað efni.
Vélknúin
svifflugvél
væntanleg
Svifflugfélag tslands fær í vor
nýja svifflugvél frá Þýzkalandi.
Þessi svifflugvél verður mjög frá-
brugðin eldri svifflugum félags-
ins, því að í nýju vélinni verður
lítil vél, sem nægir tii að koma
vélinni á loft og knýja hana áfram
i loftinu ef með þarf.
Nýja vélin, sem.er tveggja sæta,
er aðallega ætluð til æfingaflugs,
og með tilkomu hennar segjast
svifflugmenn geta flogið f mun
verra veðri en hægt var með eldri
gerðum véla, sem Svifflugfélagið
átti.
— Bretland
Framhald af bls. 1
febrúar. Hann útilokaði þó ekki
þann möguleika, að flokkur hans
gæti frá máli tii máls unnið með
minnihlutastjórn. Fróðir menn
telja þó nokkuð víst, að Ihalds-
flokkurinn myndi njóta meiri að-
stoðar en Verkamannaflokkur-
inn.
Ekki vildi Thorpe alveg sam-
þykkja tillögur Wilsons um að
þjóðnýta olíulindirnar í Norður-
sjó, en sagði, að þörf væri á nýrri
og mikið breyttri löggjöf, sem
tryggði þjóðinni sinn hluta af arð-
inum. Hann kom m.a. fram með
þá hugmynd að nota vissan hluta
af tekjunum til einhvers konar
uppbyggingar í iðnaði.
Dansflokkurinn sýnir Boðorðin
Næst síðasta sýning Islenzka dansflokksins á Etudes og Boðorð-
unum verður í listdanssal Þjóðleikhússins n.k. fimmtudagskvöld
kl. 21. Sfðasta sýningin verður n.k. mánudag, 25. febr. á sama
tíma, en um miðjan marz er von á nýrri dagskrá hjá I.istdans-
flokknum. Myndin er af nokkrum af stúlkunum f Islenzka
dansflokknum. (Ljósm. Á.J.)
kkert aðhafzt um bætt-
ar og ódýrari ferðir
Stokkhólmi, 19. febr.,
frá Birni Jóhannssyni.
GILS Guðmundsson tók til máls f
fyrirspurnartíma í morgun á 22.
þingi Norðurlandaráðs og
spurðist fyrir um framkvæmd
tillögu, sem samþykkt var árið
1972 um könnun á bættum og
ódýrari ferðum milli Færeyja, ís-
lands, Grænlands og hinna
Norðurlandanna.
Gils kvaðst hafa borið fram
fyrirspurnina, þar sem fram var
komið, að ekkert hefði verið
aðhafzt í málinu. Fyrirspurninni
svaraði Damsgaard samgöngu-
ráðherra Dana. Kvað hann ýmsa
annmarka vera á fram-
kvæmd tillögunnar, m.a. vegna
þess, að í heinni væri ekki bent á
nein atriði til lausnar málinu.
Óskaði ráðherrann eftir því, að
samgöngumálanefnd ráðsins
tæki málið til athugunar á ný.
Gils Guðmundsson tók aftur til
máls og lýsti óánægju sinni með,
— Fjöldahand-
tökur
Framhald af bls. 1
hugaðar seint í þessum mánuði.
Stjórn sú, sem nú situr, tók völdin
af George Papadopoulosi eftir
óeirðirnar í nóvember.
Það fylgdi þessari frétt, að
leyniskýrslur kommúnistaflokks-
ins hefðu fundizt og væru nú í
höndum lögreglunnar. Eins hefði
hún lagt hald á prentsmiðjur, sem
hefðu verið notaðar til að prenta
þúsundir áróðursplakata fyrir
kommúnista. Talsmaðurinn sagði,
að á síðustu 30 dögum hefðu
kommúnistar varið um 37 þúsund
dollurum til að undirbúa óeirðir
við háskóla í Aþenu og víðar.
Hann hélt því fram, að flestir
hinna handteknu leiðtoga komm-
únista hefðu komið til landsins á
ólöglegan hátt, með hjálp falsaðra
persónuskilríkja. Loks sagði
hann, að búizt værí við frekari
handtökum á næstunni.
að ekkert hefði verið aðhafzt við
framkvæmd tiliögunnar, en taldi
vfst, að nefndin ræddi málið á ný.
— 2600 millj.
Framhald af bls. 2
lægri tekjuhópa, en útreikningar
munu sýna, að hjá lægri tekju-
hópum þyngist skattbyrðin mjög
vegna þessarar breytingar.
I tillögum ríkisstjórnarinnar
segirm.a.: „Með tillögum sem lýst
er hér að framan, er mikilvægt
skref stigið í þá átt að lækka
beina skatta og taka upp almennt
skattaafsláttarkerfi. Við fram-
haldsendurskoðun yrði unnið að
þvf að einfalda tekjuskattinn og
e.t.v. sameina algengustu bætur
almannatryggingakerfisins (eink-
um fjölskyldubætur), þeim vísi
að skattafsláttarkerfi, sem hér er
ráðgerður. Þar með væri stefnt að
þvf að sameina og samræma
tekjuskiptingarafskipti ríkisins í
almennu tekjujöfnunarkerfi. Við
þessa endurskoðun yrði tryggt, að
byrði beinna skatta þyngdist ekki
frá því, sem að er stefnt með
tillögum í 1 og 2 hér að framan.
Endurskoðun söluskatts með upp-
töku virðisaukaskatts í hans stað
á næstu árum fyrir augum, yrði
einnig liður í þessu samráði. En
með þeim breytingum yrði m.a.
stefnt að því að létta óbeinum
sköttum af framleiðslunauðsynj-
um.“
Þá segir einnig í tillögum ríkis-
stjórnarinnar, að „frekari viðræð-
ur um K-vísitölukerfið og stöðu
skattbreytinga í því verði teknar
upp á öðrum vettvangi".
LEIÐRÉTTING
í gær birtist hér í blaðinu listi
yfir frambjóðendur i prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
og féllþá niður heimilisfang eins
frambjóðandans, Sigríðar Ás-
geirsdóttur lögfræðings, en hún
býr að Fjölnisvegi 16.
Innbrot í
Hagaskóla
UM helgina var brotizt inn í
Hagaskólann i Reykjavík og mikil
spjöll unnin á hurðum, mikið
rótað til, en engu stolið, að því er
virtist.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
Mánudaginn 18. febr. sl. kl.
21.15 var ekið á svarta Mercedes
Benz-fólksbifreið, R-3347, þar sem
hún stóð við bensínafgreiðslu
Skeljungs við Hafnarfjarðar-
veginn í Öskjuhlíð, og hægra
frambretti hennar beyglað og
luktin brotin. Þeir, sem kynnu að
geta gefið upplýsingar um
ákeyrsluna, eru beðnir að láta lög-
regluna vita.
— Noregur og
NATO
Framhald af bls. 15
ræður þess efnis að taka fyrir
þátttöku Norðmanna í vörnun-
um í norðri. Daily Express
hafði sagt, að NATO æfingarn-
ar „Absalon Express" bentu til
þessa og að áætlanir um norð-
urvarnir ættu einungis að
byggja á Danmörku og V-Þýzka
landi. Norski ráðherrann'sagði,
að blaðið drægi þessa ályktun
af því einu, að ofangreindar
æfingar hefðu farið fram í Dan-
mörku og án þátttöku norskra
hersveita.
Varðandi skrif brezka blaðs-
ins um nýlega stóraukningu á
uppbyggingu og starfsemi
sovézka flotans á norðurslóðum
sagði Fostervoll, að uppbygging
hans hefði staðið yfir árum
saman og Norðmenn litu á hana
sem lið í heimsstefnu Sovét-
manna í hermálum. Og upp á
síðkastið hefði þessi starfsemi
frekar beinzt að því að auka
hæfni sovézka flotans en að
fjölga skipum.
— Lánin þurfa
Framhald af bls. 2
6. Gert er ráð fyrir, að launaskatt-
ur, sem rennur í Byggingasjóð
rikisins, verði hækkaður í 2%.
7. Yfirlýsing þessi er gefin i
trausti þess, að þátttaka líf-
eyrissjóða stéttarfélaga
í fjármögnun þessara
»félagslegu bygginga verði
20% af árlegu ráðstöf-
unarfé þeirra, frá og með
þessu ári. Þátttaka lífeyris-
sjóða í fjármögnun Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins er mið-
uð við kaup verðtryggðra
skuldabréfa með ríkisábyrgð
og skulu verðtrygging og vext-
ir jafngilda hagstæðustu á-
vöxtunarkjörum, sem í gildi
verða á hverjum tíma á verð-
skuldabréfum, sem út eru gef-
in á vegum ríkisins.
— Sundurlyndi
Framhald af bls. 14
mundu landsmenn fella hana í
næstu almennu kosningum.
Sverrir Hermannsson (S) sagði
Lúðvík hafa svarað í umræðunum
í gær og f dag með útúrsnún-
ingum.
Þetta mál snerist ekki um,
hvort iðnaðarráðherra fengi að
tjá persónulegar skoðanir sínar.
Á Norðurlandaráðsfundinum
hefði hann talað sem ráðherra í
ríkisstjórn íslands og þá hefði
hann orðið að tala sem slíkur.
Framkoma hans hefði verið til
háborinnar skammar.
Lárus Jönsson (S) sagði, að
iðnaðarráðherra hefði skv. upp-
lýsingum ráðherranna talað sem
einstaklingur á fundi Norður-
landaráðs. Hins vegar hefði hann
sagt í ræðu sinni: ríkisstjórnin
vill þetta, ríkisstjórnin vill hitt.
Svo virtist sem þessi ráðherra
teldi sig vera ríkisstjórnina.