Morgunblaðið - 20.02.1974, Síða 22
22
MORGUNBLAÐÍÐ, ,\IIÐVIKUDAGUR.20. FKKRUAR 19,4
Einar Jóhannsson
Mýrarkoti - Minning
Fæddur 19. apríl 1877,
Dáinn 2. febrúar 1974.
Einar Jóhannsson fæddist að
Höfða a Höfðaströnd, en fluttíst
ungur að Mýrarkoti, Hofshreppi,
Skagaf irði. Sonur hjónanna
Sigríðar Jónsdóttur og Jöhanns
Einarssonar. Ölst hann þar upp
ásamt fleiri systkinum við gott
atlæti. Því þótt jörðin væri ekki
stór I þá daga, skorti aldrei mat í
Mýrarkoti, og hægt að miðla öðr-
um ef með þurfti. Allt var nýtt,
eggin og fuglinn úr Drangey, og
silungurinn úr Höfðavatni sem
nágránnarnir voru ósparir á að
senda bæði fyrr. og síðar, en
Mýrarkot átti ekki land að vatni.
Einar átti góða nágranna og
veit ég nú að hann mundi vilja að
leiðarlokum þakka þeim alla
þeirra alúð og hlýju í sinn garð.
Einar stundaði búskap um 50
ára skeið allt frá árinu 1910. En
þá er hann minnkaði við sig bú-
skap settist í búið Konráð Ás-
grímsson og Guðrún Þorsteins-
dóttir sem bjuggu þar i nokkur ár.
Síðan tóku við búinu Jón Þor-
steinsson og Ragnheiður Jóns-
dóttir, en Jón var bróðursonur
Hólmfríðar seinni konu Einars og
áttu þau hjónin þar öruggt skjól.
Einar gat aldrei hugsað sér að
fara frá jörðinni sinni, sem hon-
um þótti svo vænt um, þar hafði
hann alist upp og starfað langa
ævi, og þar vildi hann deyja, hon-
um varð að þeirri ósk. Þökk sé
þeim hjónum Jóni og Ragnheiði
sem alla tíð umvöfðu hann kær-
leika sem væri hann þeirra eigin
faðir.
Einar Jóhannsson vartvíkvænt-
ur. Fyrri konu sína Geirlaugu
Gunnlaugsdóttir missti hann árið
1922 frá ungum börnum og varð
það honum mikið áfall, syrgði
hann hana alla ævi. Þeim varð
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
JÓHANN TRYGGVI ÓLAFSSON,
frá Krossum.
lézt í Landspltalanum að morgni 1 2. febrúar. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl 15 00 Þeim sem vildu
minnast hans er bent á Hjartavernd
Guðný Gunnarsdóttir,
Erla Jóhannsdóttir,
Friðgeir Olgeirsson,
Jóhann Sigurjón Friðgeirsson.
t
Móðir mín,
ÞURÍÐUR KÁRADÓTTIR,
Kvisthaga 11, Reykjavik,
andaðist 1 8. þ.m.
Páll Pálsson.
t
Þökkum innilega sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
eiginkonu, móður, tengdamömmu og ömmu,
GUÐMUNDU EIRÍKSDÓTTUR,
Hverfisgötu 101,
einnig þökkum við læknum og hjúkrunarliði Borgarspitalans góða
umönnun í hennar löngu og erfiðu legu.
Ingimundur Guðmundsson,
HelgiG. Ingimundarson, Birna Þórðardóttir,
Rósa E. Ingimundardóttir, Halldór Þorsteinsson
og barnabörn.
fjögurra barna auðið og komust
þrjú þeirra til fullorðins ára. Þau
eru Gunnlaugur húsgagnabólstr-
ari á Akureyri, Elín húsfrú i
Hafnarfirði og Sigurður útvarps-
virki f Kópavogi. Nikólína lést
barn að aldri.
Seinni konu sína Hólmfríði
Helgadóttir missti Einar 1966, þá
orðinn gamall maður og var hon-
um þá mikils virði að vera hjá
góðu fólki sem létti honum byrð-
ina.
Þegar Einar var ungur maður
réðst hann í það að fara til Akur-
eyrar og læra þar bókband,
minntist hann þess tíma ávallt
með gleði.
Alla tíð vann hann að bókbandi
jafnframt búskapnum og þeir eru
ófáir sem eiga bækur bundnar af
Einari frá Mýrarkoti.
Þótt Einar hafi hlotið það hlut-
skipti f lífinu að verða bóndi og
yrkja jörðina hygg ég að bækur
hafi staðið mjög nærri huga hans.
Hann var víðlesinn og kunni góð
skil á mönnum og málefnum. Ein-
ar var frekar heilsugóður um æv-
ina og vann við bókband þar til
fyrir nokkrum árum að hann varð
að hætta. Einar hefði orðið 97 ára
19. aprfl n.k. svo starfsævin var
orðin löng og ég veit að honum
hefir þótt gott að sofna og hverfa
til ástvinanna sem á undan voru
farnir. Að endingu kveð ég kæran
tengdaföður með þessum orðum:
P'ar þú í friði,
friðurG uðs þig blessi,
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Tengdadóttir.
Spánn og
Marokkó
ná sam-
komulagi
í FRETT, sem borizt hefur frá
Kanaríeyjum, segir, að útfærsla
Jiskveiðilögsögu Marokko í 70
mflur hafi valdið því að takmörk-
in náðu nær því að strönd Kanarí-
eyja, sem eru næst Afríku og
þar með voru útilokaðar fiskveið-
ar eyjaskeggja. Þar eru einmitt
beztu sardínumið þeirra. Kom til
alls konar árekstra, en nú hafa
Spánn og Marokkó gert milliríkja-
samning, og á að leyfa um 200
spænskum fiskibátum að veiða
innan Iandhelgi Marokkós.
Spánskir og marokkanskir fiski-
menn hafa einnig myndað nokk-
urs konar sameiginlegt útvegsfyr-
irtæki í sambandi við löndun og
sölu.
t
Móðir okkar tengdamóðir og amma,
MARGRÉT SIGFÚSDÓTTIR
frá Uppsölum Hrefnugötu 8, sem andaðist 12 febr. s.l verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21 þ.m., klukkan 1.30
e b Börn, barnabörn og
tengdabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA TÓMASDÓTTIR,
Hátelgsvegi 32, •
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni i Reykjavik, laugardaginn 23. febrúar
kl. 10 30.
B. Óli Pálsson
Tómas Grétar Ólason Guðlaug Gisladóttir og börn
Pálmar Ólason Sigurveig Sveinsdóttir og börn.
Smári Ólason
t
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður bg ömmu,
LAUFEYJAR ÓSK JÓNSDÓTTUR,
Krókatúni 5, Akranesi.
Kristín Magnúsdóttir, Svanberg Ólafsson,
Ingibjartur Þórjónsson og dætur.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
SIGURMUNDUR RUNÓLFSSON,
Vestmannabraut 25
Vestmannaeyjum
sem lézt á St. Josefsspítalanum í Hafnarfirði 16 febrúar sl., verður
jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 23.
febrúarkl.2 , ,
Isey Skaftadottir
Guðrún Jóhannsdóttir Heiðmundur Sigurmundsson
Emilía Jónasdóttir Ingólfur Sigurmundsson
María Vilhjálmsdóttir Arnar Sigurmundsson
Svanhildur Gísladóttir Guðjón Róbert Sigurmundsson
og barnabörn
t
Minningarathöfn um móður okkar og tengdamóður
AÐALBJORGU SIGURÐARDÓTTUR,
verður haldin í safnaðarkirkju hennar í Reykjavík, Kirkju óháða
safnaðarins við Háteigsveg, laugardaginn 23. febrúar kl, 2 e.h
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 25. febrúar kl 2 e.h
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta Elliheimili Akureyrar
njóta þess
í Reykjavík fást minningarkort Elliheimilisins í íslenzkum heimilis-
iðnaði, Hafnarstræti 3, og Bókabúð Glæsibæjar
Bergljót og Bjarni Rafnar
Guðrún og Jónas H. Haralz.
Gjafir til
Arbæjar-
safnaðar
A síðastliðnu ári bárust Ár-
bæjarsöfnuði margar verðmætar
og veglegar gjafir, bæði kirkju-
munir og lausafé.
Aður hefur þess verið getið hér
í blaðinu, að á páskum í fyrravor
voru vfgðir tveir fagrir altaris-
kertastjakar úr kopar og gáfu
þrenn hjón i söfnuðinum þá
væntanlegri kirkju og safnaðar-
heimili.
Á fimm ára afmælisfundi Kven-
félags Árbæjarsóknar hinn 3.
desember síðastliðinn færði for-
maður félagsins, frú Margrét
Einarsdóttir, söfnuðinum að gjöf
frá félaginu í tilefni afmælisins,
kaleik og patinu úr silfri, hina
fegurstu gripi, sem bættu úr
brýnni þörf, því að enn á
söfnuðurinn fátt kirkjulegra
muna.
Rétt fyrir jól gaf kona ein í
söfnuðinum vandað sýningartjald
til afnota fyrir félagsstarf unga
fólksins í sókninni.
Á kirkjubyggingardaginn 26.
ágúst í fyrra, bárust byggingar-
sjóði safnaðarins höfðinglegar
gjafir: Frá Kvenfélagi Árbæjar-
sóknar kr. 300.000, frá Bræðra-
félagi Arbæjarsafnaðar kr.
240.000 og Framfarafélag Ár-
bæjar- og Selássókna afhenti
söfnuðinum afsalsbréf fyrir eign-
um félagsins, er renna skulu til
safnaðarheimilisins nýja, en þar
fær félagið síðar aðstoðu fyrir
starfsemi sína. Aðrar gjafir, sem
borizt hafa í byggingarsjóð
safnaðarins eru þessar:
Frá Þ J. kr. 5.000—, H. Þ. kr.
1.000—, B. ð. kr. 5.000—, N. N.
kr. 1.000—, A. C. kr. 1.000—, E. J.
kr. 1.000—, H. K. kr. 1.000—, H. S.
kr. 1.000—.
Auk þess rann í byggingarsjóð-
inn andvirði seldra bóka og fé í
samskotabauk að upphæð kr.
22.000. Þá hafa mangir, bæði ein-
staklingar, fyrirtæki og félög,
styrkt fjáröflunarstarfsemi
safnaðarins með góðum gjöfum,
og fórnfúsu sjálfboðaliðastarfi.
Þessar mörgu og miklu gjafir eru
vissulega fagnaðarefni félitlum
söfnuði, sem á mikil verkefni
framundan við að koma sér upp
aðstöðu fyrir kirkjulegt starf í
sókninni og verður í ríkum mæli
að treysta á góðhug og fórnarlund
safnaðarmanna og annarra vina
kirkjunnar.
í nafni safnaðarins flyt ég gef-
endum heilshugar þakkir og bið
þeim öllum blessunar Guðs.
Guðmundur Þorsteinsson
(sóknarprestur)
EKIÐ A KYRR-
STÆÐA BÍLA
Föstudaginn 15. febr. sl., kl.
09—11:30, var ekið á ljósdrapp-
lita Fiat-bifreið, R-35647, á stæði
við Suðurlandsbraut 4 og hurðin
hægra megin mjög dælduð. —
Frá kl. 19 á laugardagskvöld 16
febr. til kl. 16:30 á sunnudag var
ekið á nýja, rauðbrúna Saab-bif-
reið, R-5052, á Háteigsvegi gegnt
húsi nr. 34 og hurðin vinstra meg-
in dælduð og rispuð. — Þeir, sem
kynnu að geta gefið upplýsingar
um ákeyrslurnar, eru beðnir að
láta lögregluna vita.
JHóVtjmiWníriíi
margfaldar
markað yðar