Morgunblaðið - 20.02.1974, Blaðsíða 29
MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1974
29
ROSE-
ANNA
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MAJ SJÖWALL OG
PER WAHLOÖ
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
ÞÝDDI
36
Hana vantaði þrjár minútur í tólf.
Tveimur mínútum síðar opnuð-
ust dyrnar á skrifstofunni og há-
vaxinn maður i dökkleitum
frakka og með svartan hatt kom
út. Kolberg lagði peninga fyrir
kaffið á borðið, reis upp, tók hatt
sinn og leit ekki af manninum,
sem nú gekk yfir götuna og fram-
hjá kaffistofunni. Þegar Kolberg
kom út sá hann að maðurinn
beygði fyrir hornið. Hann gekk í
humátt á eftir honum. Rétt hjá
var matstofa og maðurinn gekk
inn.
Það var biðröð við afgreiðslu-
borðið og maðurinn beið þolin-
móður. Þegar hann kom að borð-
inu tók hann bakka, mjólkur-
flösku, brauð og smjör, pantaði
eitthvað við lúguna og svo settist
hann við laust borð og sneri baki í
Kolberg.
Stúlkan við afgreiðsluborðið
hrópaði „laxinn tilbúinn“og mað-
urinn stóð upp og sótti diskinn
sinn. Hann borðaði hægt og ein-
beitti sér að máltiðinni. Hann leit
aðeins upp frá diskinum, þegar
hann rétti út höndina eftir
mjólkurglasinu. Kolberg hafði
náð í kaffi og komið sér þannig
fyrir, að hann sá andlit mannsins.
Ekki var langur tími liðinn unz
hann var sannfærður um, að
þarna væri kominn maðurinn sem
þeir höfðu leitað að.
Hann drakk ekki kaffi á eftir
matnum og hann reykti ekki. Þeg-
ar hann hafði lokið við að borða,
þurrkaði hann sér um munninn
tók hatt sinn, fór i frakkann og
stóð upp. Kolberg elti hann til
Hammgötunnar og þar sveigði
hann yfir til Kungstradsgötu.
Maðurinn gekk heldur greitt og
Kolberg reyndi að halda sig í
hæfilegri fjarlægð. Við Molins
gosbrunnim beygði hann til
hægri, og hélt áfram eftir skógar-
stígnum. Svo gekk hann áfram
allmiklar krókaleiðir og virtist
fyrst og fremst vera í þessari
gönguferð sér til hressingar, því
að hvergi stæðnæmdist hann fyrr
en hann var aftur kominn að
skrifstofu sinni.
Ja, ekki vantar það, hugsaði
Kolberg. Þetta er æsispennandi.
Hann leit á úrið. Máltíðin og
gönguferðin höfðu tekið nákvæm-
lega þrjá stundarfjórðunga.
Ekkert umtalsvert gerðist það
sem eftir var dagsins. Bílarnir
komu og fóru og klukkan fimm
mínútur i fimm kom annar vöru-
flutningabílstjóranna út ásamt
feitlaginn, gráhærðri konu.
Klukkan fimm kom annar bíl-
stóri, sá þriðji var ekki kominn
aftur með bílinn sinn. Hann sá
þrjá menn til viðbótar ganga út úr
portinu. Þeir komu inn á kaffi-
stofuna, pöntuðu sér öl og drukku
það þegjandalegir.
Þegar klukkan var fimm mínút-
ur yfir fimm kom hávaxni maður-
inn út. Hann læsti útidyrunum.
Svo setti hann lyklana í vasann,
aðgætti hvort áreiðanlega væri
læst og síðan kom hann yfir göt-
una.
Kolberg var að klæða sig í
frakkann, þegar hann heyrði að
einhver bilstjóranna sagði:
— Þá fer Folke heim.
Og annar bætti við:
— Ekki skil ég hvað hann er
alltaf að flýta sér heim, fyrst
hann hefur ekki látið neinn kven-
mann hanka sig. Maðurinn veit
ekki hvað hann er mikill lukk-
unnar pamfíll. Þið hefðuð átt að
heyra öskrin í minni kerlingu í
gær, þegar ég kom heim. . . djöf-
uls gauragangur út af því einu, að
maður fær sér fáeina bjóra eftir
vinnu. ..
Meira heyrði Kolberg ekki.
Hávaxni maðurinn var horfinn úr
augsýn. Hann vissi nú, að hann
hét Folke Bengtsson. Hann kom
aftur auga á hann á Norrlands-
götu. Maðurinn stefndi í áttina til
Hammgötu og gekk yfir að
strætisvagnastöð.
Hann fór úr vagninum við St.
Erikstorgið. Hér var umferðin
mikil og maðurinn var lengi að
komast yfir á hinn hluta torgsins.
Þar gekk hann inn i verzlun.
Eftir að hafa gert innkaup ark
aði hann áfram eftir Rörlands-
götu, fór fram hjá Birkagötu og
yfir götuna og inn í húsagang.
Kolberg var ekki lengi að ganga
úr skugga um, að Bengtsson bjó
þarna á þriðju hæð.
Hann kom sér fyrir úti fyrir og
horfði upp I gluggana. Vegna um-
mæla mannanna á veitingastof-
unni vissi hann að Bengtsson var
ókvæntur. Hann mændi upp í
gluggana og stöku sinnum fannst
honum manni bregða fyrir i eld-
húsinu og það benti ýmislegt til
að Bengtsson væri að koma vörun-
um fyrir eða matbúa handa sér,
því að tuttugu mínútum siðar var
slökkt í eldhúsinu og kveikt í her-
berginu við hliðina á. Svo sá hann
Bentgsson koma út í glugga og
galopnahann. Svodró hann rúllu-
tjöldin niður. Þau voru gul að lit
og Kolberg sá skuggann af honum
fyrir innan gluggann.
Kolberg hringdi til Stenströms.
— Hann er heima núna. Ef ég
hringi ekki fyrir níu kemur þú og
leysir mig af.
Klukkan átta mfnútur yfir niu
kom Stenström. Ekki hafði þá
borið annað til tíðinda en að ljósið
í loftinu hafði verið slökkt klukk-
an átta og siðan hafði aðeins
glampinn frá sjónvarpinu borizt
út gegnum rúllutjöldin.
Stenström hafði blað í vásanum
og þeir komust að þeirri niður-
stöðu, að maðurinn væri að horfa
á bandaríska biómynd í sjónvarp-
inu.
— Hún er ágæt, sagði Kolberg.
— Eg sá þessa mynd fyrir einum
tíu fimmtán árum. Endirinn er
frábær, mig minnir allir láti lífið
nema kvenhetjan. Eg fer núna,
kannski ég nái að sjá hana heima.
Ef þú hringir ekki fyrir sex kem
égþá.
Morgunninn var kaldur og bjart-
ur. Stenström hafði staðið á sama
stað alia nóttina og Kolberg
öfundaði hann ekki af því hlut-
skipti. Hann var feginn þegar
maðurinn birtist í dyrunum og
lagði af stað til vinnu sinnar, hina
sömu leið. Dagurinn gekk fyrir
sig eins og dagurinn áður. Hann
brá sér inn í brauðbúðina og fékk
sér kaffi og vínarbrauð. Um há-
degið fór hann á sama veitinga-
staðinn og klukkan fimm mínút-
ur yfir fimm kom hann út úr
skrifstofunni og læsti á eftir sér.
Hann tók strætisvagninn heim,
keypti inn og fór heim til sín.
Klukkan tiu mínútur yfir sjö
birtist hann aftur. Hún stikaði
hann þangað sem yfir dyrunum
stóð keiluspil. Kolberg fór inn
líka og sá þar nokkra af mönnun
um, sem unnu á flutningastöð-
inni. Klukkan ellefu kom Bengts-
son út aftur méð starfsfélögum
sínum. Þeir skildust við hornið á
St. Eriksgötu, Bengtsson hélt
heim og klukkan tuttugu mínútur
yfir ellefu var hann búinn að
slökkva. En þá var Kolberg líka
kominn heim til sín en Stenström
gekk fram og aftur fyrir utan
húsið og barði sér til hita. Hann
hafði kvefast.
Daginn eftir var miðvikudagur
og fór öllu fram eins og venjulega
að því undanskildu að um kvöldið
fór Bengtsson í bíó. Kolberg sat
fimm bekkjum fyrir aftan hann
og þeir horfðu á amerískt vöðva-
fjall ráða niðurlögum hvers and-
stæðingsins, á fætur öðrum, fyrir-
hafnarlaust að kalla.
Næstu tveir dagar liðu og ekk-
ert gerðist. Kolberg og Stenström
skiptust á að fylgja manninum
hvert fótmál og nú mátti heita að
tekizt hefði að ganga úr skugga
um, hversu fábrotnu lífi hann
lifði, og í hve föstum skorðum það
var. Kolberg fór aftur í keilúspils-
húsið og komst þar að raun um að
Bengtsson þótti ágætis spilari og
að hann hafði komið á hverju
þriðjudagskvöldi í langan tíma
ásamt starfsfélögum sinum þrem-
ur.
Á sjöunda degi fóru þeir
Bengtsson og Kolberg að sjá ís-
knattleikslandsleik milli Svia
og Tékkóslóvaka. Um kvöldið
fór hann upp á skrifstouf
sina og skoðaði myndirnar
enn einu sinni. Hann skoðaði
hverja mynd fyrir sig vel
og lengi, en enda þótt hann ætti
erfitt með að trúa því að þetta
væri maðurinn, sem hann hafði
nú fylgzt með í fjórtán daga og
ekkert virtist gera af sér annað en
lifa heldur leiðinlegu lífi, gat
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi
til föstudags.
£ Framhaldsþætt-
irnir um
Hammond-
bræðurna
St. Th. skrifar:
,,Er hér með tillögu viðvíkjandi
framháldsþáttum sjónvarpsins, er
ég hygg, að margur muni styðja:
Tökum sem dæmi þáttinn um
Hammond-bræðurna, sem ég tel
vera geysivinsælan og vafalaust
að flestir, sem fylgzt hafa með
fyrri hluta, hafi einnig áhuga á að
sjá þann síðari.
Nú mun áformað, að síðari hluti
hefjist um miðjan maí, en það
þýðir, að honum lýkur ekki fyrr
en um það leyti, sem sumarleyfis-
tíminn er hálfnaður eða í enda
hans.
Væri ekki sanngjarnt gagnvart
svo stórum hópi að breyta fyrir-
komulaginu, þannig að þeir endi
t.d. 15. maí eða byrji 15 septem-
ber, en þá er sumarleyfi flestra
lokið? Sé vilji til að hafa fram-
haldsþáttinn yfir sumartímann sé
ég ekkert því til fyrirstöðu, að nýr
þáttur, er ekki væri eins borið í,
væri látinn hefjast á nýbyrjuðu
orlofsári, og væri þá fyrir þá
mörgu er ekki komast i orlof.
Sé erfitt að gera breytingu með
Hammond-bræðurna, sem ég tel
að eigi þurfi að vera, tel ég, að
seinni hluti ætti ekki að hefjast
fyrr en um miðjan september, en
þá er sumarleyfi flestra lokið.
Með þökk fyrir birtinguna.
St. Th.“
• Hætt
í miðjum klíðum
Kona nokkur, mikill aðdáandi
Hammond-fjölskyldunnar, hafði
samband við Velvakanda og var
mjög óánægð með að sýningum
hefði verið hætt þegar spennan
var sem mest. Hún sagðist efast
um það, að blöðin kæmust upp
með að hætta í miðri spennandi
framhaldssögu, og sæi hún ekki
hvers vegna sjónvarpið gæti
fremur farið svo að ráði sínu.
Enda þótt að sumu leyti væri eðli-
legt, að gert yrði nokkurt hlé að
svo viðamiklum og löngum fram-
haldsmyndaflokki, sem hér væri
um að ræða, væri nauðsynlegt að
gera það þar sem raunveruleg
þáttaskil væru, en ekki i miðju
kafi.
% Ættartengsl við
Vestur-lslendinga
Gfsli Guðmundsson skrifar:
Kæri Velvakandi.
„Nú að undanförnu hafa mér
borizt mörg bréf frá Vestur-ís
lendingum, sem eru væntanlegir
hingað til landsins á komandi
sumri. I sumum af þessum bréf-
um eru fyrirspurnir um skyldfólk
hér á landi, stundum er auðvelt
að veita nokkrar upplýsingar en
oftar þó er það erfitt, því að gefin
eru upp nöfn á forfeðrum, sem
voru á lífi fyrir siðustu aldamót.
Nú datt mér í hug, hvort dálkarn-
ir þínir væru ekki tilvalinn staður
til að koma slikum fyrirspurnum
á framfæri. Hvað segir þú um það
að setja i þá smá klausu undir
yfirskriftinni „Ættartengsl", þar
sem ég kem á framfæri þessum
fyrirspurnum og bið um upplýs-
ingar. Sem dæmi er eftirfarandi:
Mrs. Martha Callister, R.R.2,
Port Alberni B.C. Canada skrifar:
„Móðir mín var systir Kristins
Jónssonar, klæðskera, sem dó
fyrir um 10 árum siðan." Eru ein-
hverjir afkomendur hans hér,
sem hefðu áhuga fyrir að hafa
samband við þessa konu?
Mrs. Jóhanna Sigurgeirsson,
1120 — 4th Avenue, Richmond,
B.c.
„Maðurinn menn, Sigurgeir, er
sonur Jakobs, sem var sonur séra
Sigurgeirs Jakobssonar á Grund í
Eyjafirði. Vilhjálmur sonur hans
smiðaði orgel. sem var leikið á við
messur í kirkjunni. Veit nokkur
um þetta orgel eða hvað varð af
því?“
Ég myndi ekki senda þér nema
2—3 fyrirspurmr í hvert sinn og
svörin er hægt að senda til min
eða beint til fyrirspyrjanda.
1 von um, að þú getir orðið við
þessari bón minni, kveð ég að
sinni.
Þinn einlægur
Gísli Guðmundsson.“
Velvakandi hefur ekkert á móti
því að hafa milligöngu um það, að
fólki takist að hafa upp á ættingj-
um sínum, en vill jafnframt fá
sinn skerf af fróðleiknum, og
mun koma honum á franifæri eft-
ir því sem tilefni gefst til. Það
væri til dæmis gaman að vita hvað
hefur orðið af orgelinu.
0 Kaffitería
B.R. skrifar:
„Velvakandi sæll.
Mikið leiðist mér þetta orð, sem
haft er í hámæli hér á íslandi.
Lengi vel voru staðir þar, sem
hægt var að fá keypt kaffi og
aðrar veitingar, nefndar veitinga-
stofur eða kaffistofur, og þá
saknaði enginn útlendrar nafn-
giftar í þessu sambandi. Nú
bregður hins vegar svo við, a?
farið er að kalla þessa staði kaffi-
teríur, sem er ekki annað en
óþarft orðskripi.
Ég var nú svo barnalegur að
halda, að við islendingar værum
upp úr því vaxnir að þurfa endi-
lega að hafa útlend orð yfir flesta
hluti, eins og tiðkaðist hér áðui
fyrr, en skánaði mikið við það, af
ötulir málhreinsunarmenn hófu
herferð. A.mk. tókst þeim ai
konia því inn hjá þjóðinni, að það
væri ófínt að sletta útlenzkunni
en nú er ég hræddur um, að þessi
heilbrigða stefna sé á undanhaldi
Margt fleira mætti tína til en
þetta eina orð, en mér leiðist þaf
bara svo óumræðilega, að ég get
ekki stillt min um að vekja
athygli á því.. .
I öllum bænum — látum okkur
nægja að kalla þetta 'fyrirbrigð
annað hvort veitingastofu eða
kaffistofu, eða jafnvel greiðasölu
ef hin orðin þykja ekki nógu
spennandi.
Mér datt aðeins í hug, að verit
gæti, að þetta orðskripi vær
notað til að þóknast ferðamönn
um, þannig að þeim gengi betur
að finna þessa staði, en þykir það
heldur langsótt skýring.
79 ferðir
til og frá
r
Islandi
SUMARÁÆTLUN millilanda-
flugs Flugfélags Islands og Loft-
leiða hefst hinn 1. apríl n.k. og
gildir til 31. október í haust. V'fir
háannatímann verða alls 79 áætl-
unarflugferðir á viku frá Íslandi
til átta viðkomustaða í Evröpu og
þriggja vestanhafs (aðGrænlandi
meðtöldu). F'arkostir, nýttir til
þessara flugfcrða, verða fjórar
þotur af gerðinni I)C-8 með rými
fyrir 249 farþega hver og tvær af
gerðinni Boeing 727, sem taka 120
farþega hvor. Auk þess verða
Friendship-skrúfuþotur nýttar til
Færeyjaflugsins.
Yfir háannatímann í sumar
verður flugferðum hagað sem hér
segir:
Til Bandarfkjanna verða flogn-
ar 24 ferðir á viku, þar af 19 til
New York og fimm til Chieago.
Þannig verða þrjár ferðir á dag til
New York alla daga vikunnar
nema þriðjudaga og sunnudaga,
er þær verða tvær á dag. Til
Chicago verður flogið mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga.
Til borga i Evrópu verður flogið
sem hér segir:
Til Óslóar verður flogið fjórum
sinnum á viku, þ.e. á mánudögum,
miðvikudögum, föstudögum og
sunnudögum. Til Stokkhólms
verða þrjár ferðir á viku, þ.e. á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. 12 ferðir á viku
verða til Kaupmannahafnar, þ.e.
tvær daglega alla daga vikunnar
nema mánudaga og föstudaga,
þegar aðeins er'eitt flug.
Til Glasgow verða alls fimm
ferðir á viku, þar með talin tvö
næturflug með brottför á mánu-
dags- og laugardagskvöldum.
Flogið verður á mánudögum, mið-
vikudögum og föstudögum. Til
London verður flogið fimm
sinnum á viku, þ.e. á þriðjudög-
um, fimmtudögum. laugardögum
(tvær) og sunnudögum.
Til Luxemborgar verða allt að
19 flug^á viku. Flognar verða
þrjár ferðir alla daga vikunnar,
nema miðvikudaga og laugar-
daga, er þær verða tvær. Til
Frankfurt am Main verður flogið
tvisvar í viku, þ.e. á þriðjudögum
og laugardögum.
Til Færeyja verður flogið
þrisvar á viku, þ.e. á sunnudög-
um, þriðjudögum og fimmtu-
dögum. Þess má geta, að 1 fyrsta
sinn er Færeyjaflugið i beinu
sambandi við áætlunarflug til
Bandarikjanna — í báðar áttir.
TilNarssarssuaq fljúga íslenzku
flugfélögin áætlunarflug á mið-
vikudögum og fimmtudögum.
Auk þess annast Boeing þoturnar
áætlunarflug fyrir SAS milli
Kaupmannahafnar, Keflavíkur og
Narssarssuaq á mánudögum og
föstudögum. Til Grænlands verða
því fjögur áætlunarflug á viku.
Flæddi inn í
26 kjallara
í Keflavík
Keflavik 18. febrúar
VATN komst inn í 26 kjallara-
íbúðir í Keflavfk í flóðunum í
gær og í nótt.Talsverðar skemmd-
ir urðu af völdum vatnsagans, en
þær eru ekki fullkannaðar ennþá.
Vatn í kjöllurum komst víða í
40—50 sm hæð og kom það ýmist
upp um niðurföll eða inn með
hurðum. Lögreglan, slökkviliðið
og bæjarstarfsmenn Keflavíkur-
kaupstaðar höfðu ærinn starfa i
gær við að hjálpa fólki að dæia
vatni út úrkjöllurum.
Fréttaritari
B.R.