Morgunblaðið - 20.02.1974, Side 30
EINS og frá hefur verið skýrt
fara þrír handknattleiksleikir
fram í Laugardaishöllinni i
kvöld, og verður ágóða af leikjum
þessum varið tii styrktar íslenzku
landsliðsmönnunum, sem taka
þátt í lokakeppni heimsmeistara-
keppninnar í Austur-Þýzkalandi,
en hún hefst um næstu mánaða-
mót. Fyrsti leikurinn hefst kl.
20.15, en frá kl. 19.45 mun Skóla-
hijómsveit Kópavogs leika í Höll-
inni og hún mun einnig leika á
milli leikja.
Hápunktur leikkvöldsins verð
ur viðureign FH og landsliðs-
ins og verður það síðasti leikur
kvöldsins. Sem kunnugt er, á FH
nú að baki óslitinn sigurferil f
vetur, og verður fróðlegt að sjá
hvernig liðinu vegnar í baráttu
sinni við landsliðið. Búast má við
jöfnum og skemmtilegum leik
alla vega, þar sem hvorugur aðil-
inn lætur eftir fyrr en f fulla
hnefana.
Hinir leikirnir verða milli
landsliðsins, sem lék f heims-
meistarakeppninni 1964, og
úrvalsliðs úr 2. deild og dómarar
og íþróttafréttamenn leiða saman
hesta sína, væntanlega í æsi-
spennandi leik, eins og verið hef-
ur þegar þessi „snjöllu“ lið hafa
mætzt. Má geta þess, að dómarar í
þeim leik verða Ragnheiður
Lárusdóttir og Sigrún Guðmunds-
dóttir, báðar leikkonur með 1.
deildar liði Vals.
Annars verða liðin, sem leika i
Höllinni í kvöld, þannig skipuð:
Landsliðið 1964:
Þorsteinn Björnsson, Fram
Guðmundur Gústafsson, Þrótti
Sigurður Einarsson, Fram
Örn Hallsteinsson, FH
Birgir Björnsson, FH
Guðjón Jónsson, Fram
Ragnar Jónsson, FH
Ingólfur Óskarsson, Fram
Hörður Kristinsson, Ármanni
Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram
Karl Jóhannsson, KR
Úrvalslið 2. deildar:
ÍvarGissurarson, Gróttu
Marteinn Árnason, UBK
Árni Indriðason, Gróttu
Björn Pétursson, Gróttu
Halldór Bragason, Þróttur
Sveinlaugur Kristins, Þrótti
Trausti Þorgrímsson, Þrótti
Haukur Ottesen, KR
Einar Ágústsson, Fylki
Hörður Harðarson, UBK
Brynjólfur Markússon, KA
Þorleifur Ananíasson, KA
Ölíklegt er, að Akureyringarnir
tveir', Brynjólfur og Þorleifur,
komist suður til leiksins vegna
verkfallsins og hafa því þeir Atli
r
Italska
knattspyrnan
URSLIT leikja í 1. deildar keppn-
inni í knattspyrnu á ítaliu urðu
þessi um s.l. helgi:
Cesena—Milan 1—0
Fiorentina — Genoa 0—0
Inter — Verona 0—0
Juventus—Napoli 4—1
Vicenza—Bologna 2—1
Roma—Torino 0—0
Sampdoria — Lazio 1—0
Cagliari — Foggia 1—0
Lazio hefur forystu í deildinni
með 25 stig, Juventus er með 23,
Fiorentina og Napoli hafa 22 og
Milan 20.
Þór Héðinsson, Gróttu, og Björn
Blöndal, KR, verið valdir í þeirra
stað.
Lið dðmara:
Kristófer Magnússon
Jón Friðsteinsson
Karl Jóhannsson,
Ingvar Viktorsson,
Valur Benediktsson,
Magnús Pétursson,
Öli Olsen,
Björn Kristjánsson,
Sveinn Kristjánsson
Gunnar Gunnarsson
Ásgeir í leik með Standard, hart er sótt að honum og fjórir leikmenn reyna að stöðva hann.
Asgeir settur við hlið
snillingsins Van Himst
Lið íþróttafréttamanna:
Helgi Daníelsson (Mbl.)
ÓmarRagnarsson (Sjónv.)
Sigurdór Sigurdórss. (Þjóðv.)
Steinar J. Lúðvíksson (Mbl.)
Sigtryggur Sigtryggss. (Alþbl.)
Hallur Símonarson, (Vísi)
Ágúst I. Jónsson (Mbl.)
Sigm. Ó. Steinarss. (Tímanurn)
AlfreðÞórsteinsson (Tímanum)
Ingvi Hrafn Jónsson (Mbl.)
HM-Iandsliðið:
Ólafur Benediktsson, Val
Gunnar Einarsson, Haukum
Gunnsteinn Skúlason, Val
Gisli Blöndal, Val
Ólafur H. Jónsson, Val
Einar Magnússon, Víkingi
Guðjón Magnússon, Víkingi
Sigurbergur Sigst.s.,Fram
Björgvin Björgvinss., Fram
Axel Axelsson, Fram
Hörður Kristinss., Armanni
Geir Hallsteins., FH/Göppingen
Lið FH:
Hjalti Einarsson
Birgir Finnbogason
Birgir Björnsson
Auðunn Óskarsson
Viðar Símonarson
GunnarEinarsson
Árni Guðjónsson
Ólafur Einarsson
Gils Stefánsson
Þórarinn Ragnarsson
Jón Gestur Viggósson
Örn Sigurðsson.
Forsala:
Forsala aðgöngumiða að leikj-
unum hefst í Laugardalshöllinni
kl. 17.15. Skal tekið fram, að sæti
verða ónúmeruð.
ÞEIR Ellert Schram og Bjarni
Felixson stjórnarmenn f Knatt-
sp.vrnusambandinu voru á ferð í
Belgíu um síðustu helgi og var
erindi þeirra að semja um leik-
daga í Evrópukeppni iandsliða. 1
Brussel hittu þeir að máli
forystumenn belgíska félagsins
Anderlecht, en það félag er nú
nær öruggt með sigur í 1. deild-
inni belgísku. Höfðu þeir á orði,
að Ásgeir Sigurvinsson væri
orðinn stórsnjail leikmaður í
belgísku knattspyrnunni og ef
hann héldi áfram í atvinnu-
mennskunni í 3—4 ár í viðbót
yrði hann einn af aibeztu leik-
mönnum I Belgíu.
Ásgeir og lið hans Standard
Liege hefur nú hlotið 20 stig í 1.
deildinni og á tæplega lengur
möguleika á sigri í deildinni,
Ánderlecht er með titilinn innan
seilingar. Hins vegar er hart
barizt um næstu sæti og sex lið
eiga möguleika á 2. sætinu.
Ásgeiri hefur vegnað vel I síðustu
leikjum sínum og skorað öll þau
þrjú mörk, sem Standard hefur
skorað í sfðustu leikjum. Asgeir
fær undantekningarlaust góða
dóma fyrir leiki sína og þessi
næstyngsti leikmaður í belgisku
1. deildinni var um sfðustu helgi
valinn einn af fjórum beztu leik-
mönnum 1. deildarinnar. Þar var
hann Settur við hliðina á fjórum
belgfskum landsliðsmönnum,
þeirra á meðal snillingnum Van
Himst.
I leik Standard Liege og Ander-
lecht, sem fór fram á dögunum í
Brússel að viðstöddum 40 þúsund
manns, skoraði Ásgeir eina mark
Standard, sem tapaði 1:3. 1
leiknum gerðist það, að Ásgeir
hugðist skjóta á markið frá víta-
teig, en Van Bernst — belgískur
landsliðsmaður — var ekki á því
að hleypa knettinum í gegn. Hann
„tæklaði" af mikium krafti á móti
Ásgeiri með þeim afleiðingum, að
knötturinn hvellsprakk.
Mörk Standard Liege hafa í
vetur dreifzt mjög á leikmenn og
er Ásgeir nú orðinn markahæsti
leikmaður liðsins með 3 mörk.
Lambrichs hefur skorað 4 mörk,
en f mun fleiri leikjum.
Standardliðið hefur átt við mikil
meiðsli leikmanna að stríða f vet-
ur og hefur liðið notað 24 Ieik-
menn f aðalliðinu. Nú eru leik-
menn liðs Asgeirs þó óðum að ná
sér og í næsta leik verður Stand-
ard með fulit lið í fyrsta skipti f
langan tfma.
Jafn leikur
jafnra liða
JAFNTEFLI varð í leik Ármanns
og FH f 1. deild kvenna á mánu-
dagskviildið, hvort lið skoraði 11
mörk. Jafntefli í leik þessara liða
gefur góða mynd af því, hversu
jöfn liðin eru, en þau gerðu einn-
ig jafntefli í fyrri umferðinni.
Leikurinn var hnifjafn framan
af, en þegar 10 mínútur voru eftir
af fyrri hálfleiknum, náði FH
tveggja marka forystu, sem Erla
minnkaði þó fljótlega niður í eitt
mark, 5:4. Guðrún skoraði síðasta
mark hálfleiksins fyrir FH og
staðan í leikhléi var því 6:4. Strax
í síðari hálfleik jöfnuðu Armenn-
ingar og hélzt leikurinn f jafn-
vægi það sem eftir var.
Ármannsstúlkurnar léku mjög
vel i siðari hálfleiknum, en í þeirn
fyrri áttu þær i erfiðleikum með
að skora. Beztar Ármannsstúlkn-
anna voru þær Erla Sverrisdóttir
og Guðrún Sigþórsdóttir og skor-
uðu þær 10 af 11 mörkum liðs
síns. Alfheiður Emilsdóttir varði
ágætlega í leiknum.
Svanhvít Magnúsdóttir átti
mjög góðan leik með FH i fyrri
hálfleiknum, en í þeim síðari var
hún tekin úr umferð. Markvörður
FH-liðsins varði mjög vel og Guð-
rún skoraði dýrmæt mörk fyrir lið
sitt.
Mörk Armanns: Erla 6, Guðrún
4. Þórunn 1.
Mörk FH: Svanhvít 5, Guðrún 3,
Kristjana, Brynja og Gréta 1 hver.
— PG.
Ömar Ragnarsson — ein skærasta stjarnan í stjörnuliði fþróttafréttamanna hefur þarna komizt framhjá
Val Benediktssyni og skorar framhjá Sveini Kristjánssyni í leik í fyrra.
Barátta í Höll-
ínní í kvöld