Morgunblaðið - 20.02.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR 1974
31
Leeds úr leik
Bristol City rauf ein-
stæða sigurgöngu liðsins
Sigurganga Leeds United er á
enda. í gærkvöldi tapaði liðið fyr-
ir 2. deildar liðinu Bristol City í
ensku bikarkeppninni í knatt-
spyrnu, en fyrri leik liðanna, sem
fram fór sl. laugardag, hafði lykt-
að með jafntefli 1:1. Leeds hafði
UL í
lyftingum
Unglingameistaramót ís-
lands í tvíþraut lyftinga fer
fram í Laugardalshöllinni
laugardaginn 23, febrúar
og hefst kl. 14.30. Kepp-
endur eru beðnir að
athuga, að þeir þurfa að
mæta kl. 13.30 til vigtunar.
Búast má við skemmti-
legri keppni milli hinna
ungu og efnilegu lyftinga-
manna, og ekki er ólíklegt,
að einhver íslandsmet
falli.
FRÍ-bingó
FRJALSlÞRÓTTASAMBAND ls
lands gengst fyrir „stórbingói" að
Hótel Sögu I kvöld. Hefst það kl.
20.30.
Stjórnandi hingósins verður
Svavar Gests. Með þessu bingói er
FRÍ að afla fjár til starfsemi
sinnar.
ekki tapað leik fyrir ensku liði
síðan í apríl í fyrra, er það tapaði
fyrir Manchester United, en þá
skömmu áður hafði Leeds tapað
fyrir 2. deildar liðinu Sunderland
í úrsl italeik bikarkeppninnar.
Leikur Leeds og Bristol City,
sem fram fór á heimavelli Leeds í
gærkvöldi, var geysilega spenn-
andi. 47.000 áhorfendur fylgdust
með leiknum og hvöttu heimalið-
ið ákaft. Til að byrja með var
jafnvægi í leiknum, en Bristol
City átti þó öllu betri tækifæri.
Um miðjan seinni hálfleik var
pressa að marki Leeds. Einn leik-
manna Bristol City, Keith Fear,
átti þá stórkostlega góðasendingu
á samherja sinn, Gillies, inn í
vítateiginn, og áður en Leeds-
vörnin fræga fékk vörnum við
komið náði hann að skjóta þrumu-
skoti, sem hafnaði i marki Leeds,
án þess að hinn ágæti markvörður
liðsins, David Harvey, fengi vörn-
um við komið.
Leeds sótti án afláts síðustu 20
mínúturnar, en hinir ungu og
frísku leikmenn Bristol City náðu
að hrinda öllum áhlaupunum og
gengu með sigur af hólmi. Meðal-
aldur leikmanna Bristol-liðsins er
23 ár og þóttu piltarnir sýna stór-
kostlega góða og yfirvegaða knatt-
spyrnu í þessum leik, og víst var,
að þeir báru enga virðingu fyrir
frægum mótherjum sínum.
Þar með er draumur Leeds-
manna um sigur í deildarkeppn-
inni og bikarkeppninni, eða „the
double“ eins og það er kallað í
Englandi úr sögunni, en Bristol
City mætir meisturum fyrra árs,
Liverpool, í undanúrslitum bikar-
keppninnar.
Thomas Magnusson frá Svíþjóð sigraði í 30 km göngunni á sunnudaginn. Þá notaði hann nýja gerð
skfða úr gerviefni, sem síðan hafa orðið miklar deilur um. Töldu sumir, að bannað væri að nota slík
skfði.
Norðmenn fengu upp-
reisn með sigri Myrmo
Fram í erfið-
leikum með KR
LEIK Fram og KR í 1. deild
kvenna, sem fram fór í Laugar-
dalshöllinni á mánudagskvöldið
lauk með naumum sigri Fram.
Hafa Framstúlkurnar unnið alla
sína leiki I deildinni til þessa og
allt bendir til þess að þær verði
Islandsmeistarar íár. Það verður
þó að segjast að sigurinn gegn KR
var þeirra naumasti í deildinni til
þessa og komu heilladísirnar og
hagstæðir dómarar Framliðinu til
hjálpar i leiknum.
Fram byrjaði leikinn vel og
komst í 4:0, þá vöknuðu KR-stúlk
urnar af værum blundi og munur-
inn jókst ekki það sem eftir var
hálfleiksins. Staðan i leikhléi var
10:7 fyrir Fram. Sylvía Hall-
steinsdóttir hafði verið tekin úr
umferð í fyrri hálfleiknum, en
það lamaði ekki verulega leik
Framliðsins. í síðari hálfleiknum
var Oddný Sigsteinsdóttir hins
vegar tekin úr umferð og kom það
öllum leik Framliðsins úr jafn-
vægi. Arnþrúður Karlsdóttir var
þá eina Framstúlkan sem náði að
ógna og með krafti sínum hélt
Arnþrúður Framliðinu á floti.
Síðustu mfnúturnar voru
KR-stúlkurnar mjög óheppnar og
hefðu með smáheppni átt að
hljóta annaðstigið— eða bæði.
Beztar í Framliðinu voru Arn-
þrúður, Oddný og Sylvía, einnig
áttu Bergþóra og Jóhanna góðan
leik. KR-liðið komst allt mjög vel
frá leiknum, en Hansína og mark-
vörðurinn stóðu sig þó öðrum bet-
ur.
Mörk KR: Hansína 7, Soffia 2,
Hjördís 2, Hjálmfríður 1.
Mörk Fram: Arnþrúður 6, Odd-
ný 3, Bergþóra 2, Sylvía 1, Helga 1
og Þóra 1.
— PG
NORSKIR skíðagöngumenn
fengu i gær uppreisn æru í heims-
meistarakeppninni í Falun í Sví-
þjóð, er Magne Myrmo sigraði i 15
kílómetra göngunni og tveir aðrir
Norðmenn voru í sex efstu sætun-
um. Keppnin um gullið var æsi-
spennandi og að lokum skildi
aðeins tæp sekúnda þrjá fyrstu
menn. Magne Myrmo kom fyrstur
í mark þessara keppenda og
sagðist hann aldrei hafa upplifað
aðra eins spennu og þegar beðið
var eftir því, hvort keppinautum
hans tækist að bæta tíma hans.
A-Þjóðverjinn Gerhard Grimmer
virtist eiga góða möguleika á því,
en skammt frá markinu varð
hann fyrir því óhappi að detta og
við það minnkuðu möguleikar
hans verulega. Þjóðverjinn gekk
síðasta spölinn mjög rösklega, en
það nægði ekki til. Var Myrmo
fagnað gífurlega af löndum sín-
um, sem voru fjölmennir i hinum
15 þúsund manna áhorfendahópi,
þegar ljóst var orðið, að gullverð-
launin voru hans.
Eftir keppnina sagði Myrmo, að
hann hefði ekki búizt við sigri,
heldur hefði hann átt von á því,
að baráttan stæði milli landa
sinna Ivar Formo og Oddvar
Braa.
Halldór 66.
Einn íslendingur keppti í
göngunni, Halldór Matthíasson
frá Akureyri. Varð hann 66., á
47:52,93 mín. Ekki hefur komið
fram í fréttaskeytum hversu
margir kepptu, en þeir munu
hafa verið um eða liðlega 100 tals-
ins.
Úrslitin: mín.
Magne Myrmo, Noregi 41:39,09
Gerhard Grimmer, A-
Þýzl. 41:40,01
Vasily Rochev, Sov. 41:40,56
Juha Mieto, Finnl. 41:47,60
Oddvar Braa, Noregi 42:08,30
Ivar Formo, Noregi 42:10,49
Getrauna- tafla nr. 26 40 •H 40 cö rH & U o 2 Vxsir 40 •H 40 Ctí l—1 & 2 40 xx 1—( < Tíminn Ruöurnes.iatíðindi a G •H •r: rH •H > 40 *o •rz o Sunday Mirror News of the World Sunday People Sunday Express Sunday Teleftraph SAMTALS
1 X 2
Birminftham - Arsenal i 1 X X 1 2 X X 1 X X 4 6 1
Burnley - West Ham i 1 X X X X 2 4 0
Ghelsea - QPR X X X 2 X 2 1 X X X X ] 2
Everton - Goventr,/ 1 1 í 1 1 1 1 X 1 1 1 lo 1 0
Leicester - Sheffield Utd. i 1 í 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Manchester Utd. - Wolves í 1 í 1 2 1 X 2 1 2 X 6 2 5
Newcastle - Livernool 2 1 í 1 2 2 X 2 X 2 2 5 2 8
Norwich - Derbv 2 X X X X X X X 1 2 2 1 7 8
Southampton - Man. Citv 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 n 0 0
Stoke - Leeds 2 X X X 2 1 2 1 X 2 2 2 4 8
Tottenham - Ipswich 1 1 1 2 1 1 1 2 1 X 1 8 1 2
Millwall - Notthinfqham E. 1 X 1 1 2 X X X X X X •_Lj _2_ 1
Norræn tvíkeppni:
Olympíumeistarinn frá leikun-
um í Sapporo 1972, Ulrieb
Wehling frá Austur-Þýzkalandi,
bar nokkuð öruggan sigur úr být-
um í norrænni tvíkeppni —
göngu og stökki.
Eftir keppnina í stökki hafði
Stefan Hula frá Póllandi forystu
og var með 215 stig. Hans Hartleb
frá A-Þýzkalandi var annar með
213,7 stig og Rauno Miettinen frá
Finnlandi þriðji með 211,5 stig.
Wehling var í sjöunda sæti með
204,3 stig, og þar sem gangan
hefur löngum verið hans sterka
grein f tvíkeppninni mátti ljóst
vera, að hann væri liklegur sigur-
vegari. í göngunni náði svo Wehl-
ing þriðja bezta tímanum, en
helztu keppinautar hans voru
mun aftar, t.d. varð Stefan Hula í
10. sæti. Hann hlaut þó bro'ns-
verðlaunin í keppninni og munaði
mjög litlu, að silfurverðlaunin
yrðu hans, en þau hlaut Guenter
Deckert frá Austur-Þýzkalandi.
ÚRSLIT: stig.
Ulrich Wehling, A-Þýzkl. 421,14
Guenter Deckert, A-Þýzkl. 420,28
Stefan Hula, Póllandi 417,93
Hans Hartleb, A-Þýzkl. 417,62
Arne Bystöl, Noregi 404,84
Rauno Miettieen, Finnl. 404,22
5 km ganga kvenna
Sovézka stúlkan Galina Kula-
kova, sem hlaut þrenn gullverð-
laun á Olympiuleikunum f
Sapporo, bætti enn dýrgrip i verð-
launasafn sitt eftir 5 km gönguna
í Falun, en þar varð hún sigur-
vegari, þótt mjöu munaði. Ung
tékknesk stúlka, Paulu að nafni,
veitti henni övænt mjög harða
keppni og leit lengi vel út fyrir
sigur hennar. Timi göngu-
kvennanna þykir frábær, ef
miðað er við brautina, og fremur
er fátítt, að þessi vegalengd sé
gengin á svo skömmum tíma.
ÚRSLIT: mín.
Galina Kulakova, Sovétr. 15,17
Blana Paula, Tekkóslv. 15,19
Barbra Petzold, A-Þýzkal. 15,36
I. Balditsjeva, Sovétr. 15,39
Unna Fossen, Noregi 15.50