Morgunblaðið - 20.02.1974, Qupperneq 32
lESIO
JHofgttnfrli&ifr
DnciEcn
fHðrðttutHMfrifr
RUGIVSHIGRR
^*-»22480
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR 1974
Yerkfallsverðir stöðv-
uðu Loftleiðafarþega
Flugfreyja, flugstjóri og farþegi — einn þeirra þriggja, sem komust með vélinni — ganga upp í
Loftleiðavélina á Keflavíkurflugvelli í gær. Ljósm. Mbl. Heimir Stígsson.
Verkfall verzlunarfólks
hefur lamandi áhrif
VERKFALLSVERÐIR frá Verzl-
unarmannafélagi Suðurnesja
stöðvuðu í gær afgreiðslu 15—20
Loftleiðafarþega, sem komnir
voru til Keflavíkurflugvallar og
ætluðu með Loftleiðaflugvél til
Bandarfkjanna. Hins vegar fóru
þrír farþegar í vélina án þess að
verkfallsverðir stöðvuðu þá, en
þessir farþegar höfðu með ein-
hverjum hætti fengið afhent svo-
nefnd brottfararspjöld og var þvf
af hálfu tollvarða hleypt f gegn-
um útlendingaeftirlit og út í vél-
ina. Hinir farþegarnir, sem ekki
Undirskrifta-
söfnuninni
lýkur í kvöld
I DAG eru síðustu forvöð að rita
nafn sitt á undirskriftalista Var-
ins lands. Söfnuninni lýkur í dag,
enda mun að því stefnt að ganga
frá gögnum um hana og afhenda
þau forsætisráðherra og forseta
sameinaðs alþingis um mánaða-
mótin.
Þegar blaðið hafði samband við
talsmann Varins lands í gærdag,
fengust þær upplýsingar, að þá
þegar hefðu borizt um 47.000 und-
irskriftir. Vitað væri þó, að mikið
af listum hefði enn ekki borizt
skrifstofunni, þannig að búast má
við, að þessi tala eigi enn eftir að
hækka verulega.
Til gamans má geta þess, að tala
þessi jafngildir því, að síðustu
vikurnar hafi eitt nafn verið ritað
undir listann á mínútu hverri,
dag og nótt.
Eindregið er hvatt til þess, að
listum sé skilað nú þegar. Jafn-
framt skal þess getið, að enn er
þörf fyrir fé til að standa straum
af kostnaði við undirskriftasöfnun
ina, og er tekið við framlögum í
skrifstofum Varins lands, sem
flestar verða opnar til kl. 10 í
kvöld. Skrá yfir skrifstofurnar er
í Dagbók Morgunblaðsins á bls. 6.
Concorde
kom í gær
HLJÓÐFRAA farþegaþotan Con-
corde kom öðru sinni til Keflavfk-
urflugvallar í gær, að þessu sinni
á leið til baka til Frakklands frá
ÖLAFUR Jóhannesson forsætis-
ráðherra sagði á Alþingi f gær, að
ræða sú, sem Magnús Kjartansson
iðnaðarráðherra flutti á fundi
Norðurlandaráðs sl. sunnudag,
hefði hvorki verið samþykkt f
rfkisstjórninni, samin þar né
flutt á hennar vegum. Hefði ræða
ráðherrans eingöngu lýst hans
eigin skoðunum. Ekki væri tftt,
að ráðherrar flyttu slfkar ræður á
komust út í vélina, urðu að snúa
aftur til höfuðborgarinnar.
Félagar í Verzlunarmannafé-
lagi Suðurnesja og Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur hafa
lýst því yfir við Mbl., að þeir telji
Loftleiðir hafa framið verkfalls-
brot með ýmsum hætti, t.d. með
því að boða farþegana til flugs,
láta flytja þá út á Keflavíkurflug-
völl, veita þremur þeirra brott-
fararspjald og einnig með því að
taka við og fylla út ýmis skjöl
varðandi flugið, sem flugstjóri
hefur jafnan með sér i hverju
flugi. Félagsmenn í verzlunar-
mannafélögunum vinna að jafn-
aði ákveðin störf í sambandi við
alla þessa þætti og telja þeir fé-
lagsmenn, sem Mbl. talaði við, að
af hálfu Loftleiða hafi verið farið
inn á verksvið þeirra manna, sem
í verkfalli eru, en slíkt flokkist
undir verkfallsbrot.
Finnbjörn Þorvaldsson, einn af
yfirmönnum Loftleiða, sagði í
samtali við Mbl., að hann teldi
Framhald á bls. 18
VERKFALL Verzlunarmannafé-
lags Reykjavfkur og flestra ann-
arra verzlunarmannafélaga innan
LlV kom til framkvæmda á mið-
nætti í fyrrinótt. Samtökin hafa
innan sinna vébanda á milli 7 og
8 þúsund manns, og hefur því
verkfallið mjög lamandi áhrif á
allt þjóðlíf. Stærsta félagið í LlV
er Verzlunarmannafélag Reykja-
vfkur, en félagssvæði þess er
Reykjavík, Kópavogur, Seltjarn-
arnes og Mosfellssveit. Sam-
kvæmt upplýsingum Helga Guð-
mundssonar skrifstofustjóra VR
var fjöldi fólks við verkfalls-
Alaska, þar sem hún hefur verið
vegna flugrannsókna undanfarna
daga. Vélin kom til flugval larins
um kl. 13.40 og hafði tæpra
tveggja stunda viðdvöl vegna eld-
neytistöku. Hélt hún á brott á ný
um kl. 15:30. Fátt var um fólk á
vellinum að þessu sinni og vakti
koma vélarinnar ekkert svipaða
athygli og er hún kom hér fyrsta
sinni fyrir nokkrum dögum, þá á
leið tii Alaska.
fundum Norðurlandaráðs, en þó
væri það ekki einsdæmi. Sagði
forsætisráðherra, að ekki yrði um
frekari viðbrögð að ræða af sinni
hálfu við ræðunni en fram hefðu
komið í ræðu sinni á fundinum.
Ragnhildur Helgadóttir og Geir
Hallgrfmsson inntu forsætisráð-
herra eftir afstöðu hans til eftir-
farandi ummæla iðnaðarráðherra
f ræðu hans: „Hins er ekki að
vörzlu innan félagsins í gær, en
Iítið sem ekkert var um verkfalls-
brot utan meintrar tilraunar Loft-
leiða til þess að afgreiða eina
flugvéla sinna — svo sem getið er
á öðrum stað hér á sfðunni.
Allar stórverzlanir í Reykjavík
og nágreni voru lokaðar í gær
sökum verkfallsins, verzlanir
Silla og Valda, Sláturfélagsins
Sambandsins og KRON, en nokkr-
ir kaupmenn, sem höfðu aðstöðu
til þess að hafa opið sjálfir, af-
greiddu vörur í verzlunum sfnum.
Fæstir þeirra voru þó vel búnir
undir verkfall og eiga litlar birgð-
ir til vara — eins og kemur fram í
viðtali vð Hjört Hjartarson for-
mann Verzlunarráðsins á bls. 3 í
blaðinu í dag. Verður því mjög
fljótlega skortur á neyzluvörum f
verzlunum og eins og Hjörtur seg-
ir mun annar atvinnurekstur
stöðvast fljótlega, ef verkfall
heldur áfram. Segir Hjörtur, að
nú komi greinilega i ljós, hve mik-
ilvæg atvinnugrein verzlun sé. Þá
ber þess og að geta, að öll trygg-
ingafélög eru lokuð, skipafélög og
flugfélög starfa ekki.
dyljast, að rfkisstjórn tslands
finnst hún hafa haft ákaflega
lítinn stuðning frá rfkisstjórnum
annarra Norðurlanda f þessu
örlagarfka máli.“ (þ.e. varnar-
málunum). Spurðu þau, hvort
Magnús hefði talað þarna í nafni
ríkisstjórnari nnar, eins og orð
hans bentu til.
Ölafur Jóhannesson sagði, að
fslenzka rfkisstjórnin vænti sér
Morgunblaðið fékk i gær þær
upplýsingar hjá Gunnari Guð-
jónssyni formanni stjórnar Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna að
verkfall verzlunarmanna lamaði
HASETI á togaranum Karlsefni
frá Reykjavfk féll fyrir borð og
drukknaði föstudaginn 8. febr.
sl., er skipið var að veiðum við
Aasturland. Ilann hét Berg-
mundur Bæring Jónsson, tví-
tugur að aldri, til heimilis að Háa-
leitisbraut 119 í Reykjavfk.
Slysið varð, er verið var að hífa
inn vörpuna um kl. 7 að morgni.
Bergmundur stóð aftur á skipinu
og var að fást við trollhlera, er
alda reið undir skipið og hann
missti jafnvægið. Féll hann i skut-
ekki neins sérstaks stuðnings frá
Norðurlöndunum f varnarmálun-
um. Hún færi ekki fram á slfkan
stuðning og mundi ekki fara fram
á hann. Yrði ákvörðun í málinu
tekin út frá fslenzkum hagsmun-
um einvörðungu.
Umræður þessar fóru fram
utan dagskrár á Alþingi I gær og
er sagt frá þeim á þingsfðu blaðs-
ins, bls. 14.
mjög útflutningsverzlun lands-
manna og skapaði henni ýmsa erf-
iðleika. Hann kvaðst þó vera
bjartsýnn og vona hið bezta, en
mörg vandamál væru enn óleyst.
rennuna og rann síðan í sjóinn.
Öflugum kösturum var sam-
stundisbeint á þann stað, erBerg-
mundur féll i sjóinn. Karlsefni og
Bergmundur Bæring Jónsson
10 önnur skip, sem voru á veiðum
þar nærri, leituðu Bergmundar
lengi, en án árangurs. — Þess
skal getið, að viku áður, í sömu
veiðiferð, hvarf annar skipverji,
Matthías Steingrímsson, af
skipinu, er það var að veiðum við
Austurland, og fannst ekki þrátt
fyrir leit. Sjópróf vegna beggja
slysanna fóru fram í Reykjavík í
gærmorgun.
Bergmundur Bæring Jónsson
var sonur hjónanna Ingunnar
Jónasdóttur og Jóns Magnús-
sonar.
Forsætisráðherra á Alþingi:
Ræðan hvorki samin né flutt
á vegum ríkisstjórnarinnar
FÉLL ÚTBYRÐIS
OG DRUKKNAÐI