Morgunblaðið - 20.03.1974, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1974
Politiken:
Stefnan í síldveiði-
málum óverjandi
Kaupmannahöfn 19. marz NTB.
DAGBLAÐIÐ Politiken gagnrýn-
ir í ritstjórnargrein í dag afstöðu
danskra stjórnvalda til síldveið-
anna á NA-Atlantshafi. Segir
blaðið m.a.: „Afstaða opinberra
aðila í Danmörku gagnvart
hafinu og auðæfum þess virðist
nokkuð ruglingsleg. Það er hægt
að skilja þau skammtimasjónar-
mið, sem marka stefnu Dana f
þessum málum, en þau eru aiger-
lega överjandi með það í huga, að
það er ljóst, að síldin er að
hverfa.“
1975 — ALÞJOÐ-
LEGT KVENNAÁR
Frá ársfundi Osta- og smjörsölunnar sf.
OSTASALA HEFUR AUKIZT
STÖÐUGT Á SÍÐUSTU ÁRUM
HEILDARSALA Osta- og smjör-
sölunnar sf. nam 1.125 milljónum
kr. á árinu 1973 og hafði aukizt
um 217 milljónir kr. frá árinu
áður, eða um 23,9%. Smjörsalan
stóð því nær í stað, en veruleg
aukning varð á sölu annarra
mjólkurvara og munaði þar mest
um aukna ostasölu.
Þetta kom fram í skýrslu fram-
kvæmdastjórans, Öskars H. Gunn-
arssonar, á ársfundi fyrirtækisins
15. marz sl. Kom þar ennfremur
fram, að ostaneyzla er nú um 5,2
kg. á hvern íbúa landsins á ári,
en þó allmiklu meiri á höfuðborg-
arsvæðinu, eða um 7,5 kg á mann.
Hefur ostaneyzlan aukizt stöðugt
á undanförnum árum og jókst t.d.
sala á 45% osti um 10,7% í fyrra.
— Á árinu 1973 var tekin í notk-
un mjög fullkomin ostapökkunar-
vél og jókst sala á pökkuðum osti
um 40%. Tilraunasendingar af
— Frummyndir
Framhald af bls. 2
og hefur af mörgum verið talin
eitt merkilegasta rit um Island
fyrr og siðar. í þeirri útgáfu var
51 myndablað, og voru það eir-
stungur, sem flestar voru gerðar
eftir frumteikningum Eggerts.
En lengi hefur verið kunnugt um,
að Eggert gerði fleiri myndir en
þær, sem prentaðar voru, og Vil-
hjálmur Þ. Gíslason segir i ævi-
sögu sinni um Eggert, að Vísinda-
félagið danska geymi ein 113
myndablöð og væru flest þeirra
lituð.
Það var svo ekki fyrr en rann-
sókn dr. Egils Snorrasonar, yfir-
læknis í Kaupmannahöfn, á
Ferðabókinni og myndum hennar
kom fyrir almenningssjónir á ís-
landi í Árbók Fornleifafélagsins
árið 1972, að menn hér á landi
vissu nánari deili á þessum
myndum, en rannsókn þessi er
talin mjög ítarleg. Þessar lit-
myndir eru taldar mun betri en
eirstungurnar, auk þess sem þær
eru um þriðjungi fleiri.
Þýðing Steindórs Steindórs-
sonar ko.m út árið 1943, og hefur
verið ófáanleg um langt skeið.
Steindór kannaði þetta mynda-
Athugasemd
VEGNA viðtals við Hermann
Guðmundsson í Mbl. í gær skal
það tekið fram, að er Hermann
sagði, að samninganefnd verka-
lýðsfélaganna, sem samdi við
íslenzka álfélagið, hefði ekki
brugðizt stefnu kjaramálaráð-
stefnu ASÍ, átti engin fullyrðing
að vera um, að samninganefndin
væri sú eina, sem staðið hefði við
stefnu ASÍ. Ber ekki að skilja
þétta atriði í viðtalinu sem verið
sé að snupra aðrar samninga-
nefndir fyrir að hafa samið gegn
stefnu kjaramálaráðstefnunnar.
Þá skal þess og getið, að fullyrð-
ing um, að iðnaðarmenn innan
girðingar hjá ÍSAL séu á lægra
kaupi nú en starfsfélagar þeirra
utan girðingar, er samkvæmt
dómi og mati iðnaðarmannanna
sjálfra, er vinna hjá ÍSAL, en
ekki var um skoðun Hermanns
sjálfs að ræða. Segir Hermann, að
iðnaðarmenn hjá ÍSAL hafi látið
þessa skoðun f ljós við sig.
safn Vísindafélagsins danska árið
1972 og kvaðst hann hafa séð, að i
nýrri íslenzkri útgáfu Ferða-
bókarinnar yrðu þessar frum-
myndir að vera. Þegar svo bo'kaút-
gáfan Örn og Örlygur ákvað að
gefa Ferðabókina út, fóru þeir
Steindór og Örlygur Hálfdánar-
son til Hafnar og tókst að fá allt
myndasafnið léð hingað heim í
stuttan tíma fyrir milligöngu
Sigurðar Bjarnasonar sendiherra
og greiðvikni Asger Lomholt
safnvarðar. Veitti síðan dr. Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður
Árnasafns, myndunum viðtöku
hér heima 4. október s.l., en þær
verða geymdar f Arnagarði og þar
verður unnið að undirbúningi
prentunar þeirra.
Er fyrirhugað að halda sýningu
á myndunum í húsakynnum Þjóð-
minjasafnsins. Gert er ráð fyrir,
að enska útgáfan komi út með
vorinu, og hafa ymsar endur-
bætur verið gerðar á þeirri
þýðingu, sem notuð er, en hún
kom út 1805. islenzka útgáfan
ætti síðan að öllu forfallalausu að
komast út í haust. Hönnun bók-
anna og uppröðun mynda annast
Hilmar Þ. Helgason f samráði við
þýðanda og útgefendur.
Nixon
pökkuðum osti hafa farið til út-
landa og eru horfur á að útflutn-
ingur osts f neytendaumbúðum
eigi framtfð fyrir sér, einkum til
Bandaríkjanna.
Utflutningur mjólkurvara, ann-
arra en undanrennudufts, dróst
nokkuð saman á árinu. Mest var
flutt til Svíþjóðar og Bandaríkj-
anna eins og áður. Hæst verð
fékkst fyrir svonefndan Óðalsost,
en framleiðsla hans hefur farið
vaxandi undanfarin þrjú ár.
Birgðir mjólkurvara i ársbyrjun
og árslok 1973 voru svipaðar og
ekki umfram eðlilegar þarfir.
Innvegin mjólk til mjólkursam-
laganna jókst um rúmlega 2,5%
og varð aukningin hlutfallslega
mest á Hornafirði. Af þeim vör-
um, sem Osta- og smjörsalan
verzlar með, voru framleiddar
rúmlega 1.600 lestir af smjöri,
2.100 lestir af osti, 850 lestir af
nýmjólkur- og undanrennudufti,
260 lestir af kaseini og 650 lestir
af kálfafóðri.
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi
mjólkursamlagsstjóri, sem verið
hafði í stjórn frá 1961, gekk nú úr
stjórn, en í hans stað var kjörinn
Vernharður Sveinsson. Aðrir í
stjórn eru: Stefán Björnsson, for-
maður, Erlendur Einarsson,
Einar Ólafsson, Hjalti Pálsson og
Grétar Simonarson.
KVENRÉTTINDAFÉLAG
tslands hefur nýlega haldið aðal-
fund sinn. Kom þar m.a. fram
hvatning frá Alþjóðlega kvenrétt-
indasambandinu, The Inter-
national Alliance of Women um
að aðildarfélög þess, en K.R.F.l.
er eitt þeirra, noti vel alþjóðlega
kvennaárið 1975 til að efla fram-
farir á sviði félags- og stjórnmála,
og vinni að jafnari skiptingu
auðæfa heimsins. Verður f til-
efni af þessu kvennaári skipuð
nefnd innan K.R.F.l. og höfð
samvinna við kvenréttindasantök
hinna Norðurlandanna. t frétt frá
félaginu segir, að einmitt sé nú i
undirbúningi samnorrænn
fundur um þetta efni, og verður
hann haldinn í Finnlandi í júnf
n.k.
Að þessi sinni átti að ganga úr
stjórn K.R.F.Í. varaformaður, sem
kosinn er til tveggja ára í senn.
Fráfarandi varaformaður, Ásta
Björnsdóttir, baðst eindregið
undan kosningu, enda hefur hún
árum saman verið í stjórn
félagsins eða gegnt þar öðrum
trúnaðarstörfum. Stjórnin er nú
þannig skipuð: Guðný
Helgadóttir formaður, Bryn-
hildur Kjartansdóttir varafor-
maður, Lára Sigurbjörnsdóttir,
Sigríður Anna Valdimarsdóttir
og Þóra Brynjólfsdóttir. Einnig
Fanney Long Einarsdóttir,
Guðrún Gísladóttir, Margrét
Einarsdóttir og Valborg Bents-
dóttir, sem eru tilnefndar af
Landsfundi K.R.F.I.
— Heath
Framhald af bls. 1
fyrir aðild Bretlands að EBE.
Hann sagði, að samningaviðræður
um þetta mál myndu byrja á því,
að kannað yrði hvort hinar EBE-
þjóðirnar sýndu skilning á hags-
munum Breta. „En ekki munum
við reyna að leysa slfkan ágrein-
ing,“ sagði ráðherrann. Hann
sagði, að stjórn Verkamanna-
flokksins myndi vinna að því að
opna meir evrópska markaði, en
ekki taka þátt í tilraunum til að
byggja um evrópska einingu á
„andbandariskum grundvelli".
— Israelar
Framhald af bls. 1
i fréttum frá Beirut segirí dag,
að Assad Sýrlandsforseti muni á
næstunni fara i ferðalag til
Moskvu og ræða þar við áhrifa-
menn. Fyrr í þessum mánuði kom
Gromyko, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, til Sýrlands, eins
og frá hefur verið sagt.
Galdrabók
frá 16. öld
á uppboði
London 18. marz AP.
SJALDGÆF fyrsta útgáfa af 16.
aldar bók um galdra var í dag seld
á uppboði hjá Sothebys í London
fyrir um 5 þús. dollara, eða um
450 þús. ísl. krónur. Bókin heitir
„The Discovery of Witchcraft"
eftir Reginald Scott og var hún
gefin út árið 1584. Aðeins örfá
eintök hafa varðveitzt, þar sem
bókin var bönnuð og gerð upp-
tæk.
Kjölturakkar Brezhnevs
Framhald af bls. 1
næsta hausti, vegna Watergate-
málsins, svo og vegna skattamis-
ferlis Nixons, sem hann er
grunaður um.
Buckley sagði, að sigur Nixons
árið 1972 hefði verið traustsyfir-
lýsing, sem hefði gefið honum
tækifæri til að framkvæma sögu-
legar umbætur. — En nú, sextán
mánuðum síðar, er ég sannfærður
um, að forsetinn hefur glatað
hæfileikanum til að uppfylla þær
vonir, sem við kosningu hans
voru bundnar, bætti Buckley við.
Hugh Scott, leiðtogi repúblik-
ana í öldungardeildinni, var
spurður álits á orðum Buckleys og
sagði hann það vera heiðarlega
sannfæringu Buckleys, sem hann
hefði látið í ljós. Barry Goldwater
kvaðst ekki taka undir afsagnar-
kröfu Buckleys á þessu stigi en
kæmi í ljós, að Nixon hefði verið
viðriðinn eitthvað, sem teljast
mætti glæpsamlegt, myndi hann
endurskoða afstöðu sina og styðja
kröfu Buckleys.
FJÓRIR hippar í Menntaskólan-
um við Hamrahlið senda skáldinu
og mikilmenninu Alexander
Solzhenitsyn ,,kveðju“ sina i
Morgunblaðinu 1. þ.m. Lýsa þeir
velþóknun sinni á þeirri ákvörð-
un sovézku ríkisstjórnarinnar að
vfsa þessum landráðamanni, sem
þeir nefna svo, úr landi.
Þegar ég las þessa orðsendingu,
flaug mér ósjálfrátt í hug það
alþekkta eðli hundanna að vilja
glefsa íhælaþess manns, sem fall-
inn er í ónáð hjá húsbónda þeirra.
Hundarnir eru ótrúlega fljótir að
átta sig á slíku og haga gerðum
sínum samstundis samkvæmt því.
Tilgangur þessara tryggu dýra i
þessu tilviki er óefað sá einn að
votta húsbóndanum hollustu sína.
Hið nefnda, vanhugsaða brölt
hippanna er trúlega nákvæmlega
sama eðlis.
Ekki virðist hvarfla að hippun-
um, að Solzhenitsyn er margfald-
ur ofjarl þeirra, svo að í saman-
burði við hann eru þeir undur
lítil peð á taflborði viðburðanna.
Solzhenitsyn er ekki einungis
mikill andans maður, hann er og
hetja, því að ekki munu innan
landamæra Rússlands aðrir en
hetjur voga sér að andmæla gerð-
um valdhafanna. Slíkt ætla ég, að
ekki sé áhættulaust.
Það er athyglisvert, að
Solzhenitsyn er að dómi hippanna
landráðamaður. Samkvæmt því
eru það landráð að segja sannleik-
ann. Ef hipparnir halda, að slíkur
þvættingur gangi í islendinga al-
mennt, er dómgreind þeirra langt
undir meðallagi.
Solzhenitsyn hefur líklega
aldrei orðið samur maður eftir
dvöl sína í hinum illræmdu fanga-
búðum Stalíns. Kvalaóp þeirra,
sem böðlar kommúnismans
píndu, hafa ömað í vitund hans æ
síðan og ekki gefið honum frið.
Hans eina hugsvölun hefur þá
verið sú að bera sannleikanum
vitni og það gerði hann, enda þótt
honum hafi hlotið að vera ljóst, að
slíkt gat kostað hann lífið. Sjálfur
þekkir hann af biturri reynslu
það víti á jörðu, sem fangabúða-
lífið í höfuðríki kommúnismans
er, og getur því um það rætt af
fyllstu þekkingu.
Nart og baknag hippanna í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
skaðar Solzhenitsyn ekki. Hann
er meiri persóna en svo. Hefði
hippunum óneitanlega verið holl-
ara að leiða hugann að því, að
löngu eftir að þeirra nöfn verða
gleymd og vindurinn úr þeim far-
inn, mun nafn Solzhenitsyns vera
þekkt um víða veröld 'sem eins af
mikilmennum mannkynssög-
unnar. Þeirri augljósu staðreynd
fá hipparnir ekki breytt.
Eyþór Erlendsson.
— Listahátíð
Framhald af bls. 14
eftir Fjölni Stefánsson, sem þeir
Kristján Þ. Stephensen og Einar
Jóhannesson flytja á obo og klari-
nett, og Trio eftir Skúla Halldórs-
son, sem þau flytja Jón H. Sigur-
björnsson á flautu, Pétur Þor-
valdsson á selló og Helga Ingólfs-
dóttir á sembal. Þá verður fluttur
sembalkonsert eftir Manuel de
Falla fyrir sembal og fimm hljóð-
færi. Helga leikur einleikshlut-
verkið, og auk þeirra, sem fyrr
eru nefndir, bætist í hópinn Rut
Ingólfsdóttir með fiðlu. Síðasta
verkið á þeim tónleikum er Tríó
opus 8 eftir Brahms. Það leika
Rögnvaldur Sigurjónsson á píanó,
Guðný Guðmundsdóttir á fiðlu og
Pétur Þorvaldsson á selló.
— Þetta verða mjög fjöl-
breyttir tónleikar og mikið í þá
lagt, sagði Kristinn Gestsson.
Margir menn leggja þarna hönd
að verki. Vonandi verða tón-
leikarnir vel sóttir.
Ekki þarf raunar annað en lfta
á myndirnar hér á síðunni til að
sjá, hve margir leggja þarna hönd
að og eru að undirbúa tónleikana,
svo þeir megi verða sem bezt úr
garði gerðir. Þegar svo mikið er
um að vera, eins og er á skömm-
um tíma á listahátið, er hætt við,
að fólk missi af ýmsu, sem það
hefði viljað sjá og heyra. En
kammertónleikarnir á siðustu
listahátíð voru ekki eins vel sóttir
og efni stóðu til. Nú er bæði
lengri tími til listahátíðar og
heldur dregið úr fjölda atriða, svo
fólk ætti að hafa betri möguleika
á að ná i það, sem eftirsóknarvert
er.eins og t.d. kammertónleikana.
E.Pá.