Morgunblaðið - 20.03.1974, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1974
— Dr. Róbert A. Ottósson
Framhald af bls. 10
frú Abraham. Ég vísaði fólkinu til
stofu og hvarf. Mig grunaði ekki
þá hvaða áhrif þessi maður ætti
síðar eftir að hafa á líf mitt, en
myndin af þeim mæðginunum
greyptist í huga minn, og sé ég
þau ennþá ljóslifandi fyrirmér.
Árið 1947 var seinni Utvarps-
kórinn i Reykjavfk stofnaður.
Róbert Abraham var stjórnandi
hans meðan hann starfaði, og
söng ég í kórnum allan þann tíma.
Þau ár með Róbert réðu úrslitum
uin það, að ég lagði út á söng-
brautina. Það var fámennt en góð-
mennt f Utvarpskórnum, og segja
má, að hópurinn hafi verið eins og
samhent fjölskylda meðan hann
starfaði. Og ótrúlega fjölbreytta
tónlist sungum við, enda elja og
vinnugleði söngstjórans fágæt.
Eiginkona Róberts, Guðriður
Magnúsdóttir, var með okkur í
Utvarpskórnum, og bundumst við
þar sterkum vináttuböndum.
Skyldi nokkur maður hafa verið
jafn vel giftur og Róbert? Ég
efast um það. Guðriður, sú góða
kona, hafði einstök, sefandi áhrif
á hann, tók þátt í gleði hans, bar
með honum þungar stundir og var
alltaf til taks þegar á þurfti að
halda. Hún var honum ómissandi
og enginn vissi það betur en Rób-
ert, sem mat hana meir en nokkra
aðra mannsekju.
Róbert var mjög tilfinninga-
næmur og á yngri árum sínum var
hann oft fljótur til geðbrigða.
Hann þoldi ekki misþyrmingu á
tónlist og hvort sem hann vann
við æfingu, upptöku eða jafnvel
konsert, átti hann það til að slá af
og byrja á nýjan leik ef eitthvað
það kom fyrir, sem hann sætti sig
ekki við. Á hinn bóginn varð hann
svo glaður ef vel var gert, að hann
gat lagt frá sér sprotann og tárazt.
En hann var alltaf fullur af lffi,
áhuga, vinnusemi og krafti og um-
fram allt ást á viðfangsefninu.
Hann var stjórnandi af guðs náð.
En hann vissi bezt sjálfur, að eng-
inn stjórnar af guðlegum inn-
blæstri einum saman. Hvernig
hann vann, lærði og kunni allt,
sem við kom hverju því tónverki,
sem hann stjórnaði, vita allir, sem
með honum hafa starfað fyrr og
siðar. Virðinguna, sem hann bar
fyrir tónbökmenntunum miðlaði
hann okkur, sem hann mótaði.
Ég ætla ekki að telja upp þau
fim, sem Róbert hefur unnið og
afrekað á ævi sinni. Það er svo
margþætt og rismikið, að furðu
sætir. En mig langar til að þakka
honum fyrir hve mannlegur hann
var og ótrúlega hjartahlýr. Hann
elskaði fjölskyldu sina og varljúf-
menni á heimili. Hann virti eldra
fólk, móður sína annaðist hann af
stakri umhyggju meðan hún lifði,
og hlýrra samband en ríkti milli
hans og tengdaforeldra hans hef
ég aldrei þekkt. Föður mfnum
veikum sýndi hann einstaka góð-
vild, ræktarsemi og trygglyndi.
Sjálf á ég honum svo ótal margt
að þakka. Hann studdi mig mín
fyrstu spor á söngbrautinni, og
síðar ótal önnur. Hann var
kennari minn í tónlistarnámi,
leiðbeinandi i kennslu og kór-
störfum, og bar föðurlega um-
hyggju fyrir öllu mfnu starfi.
Vinátta okkar var djúp og stóð af
sér margvísleg veðrabrigði lífs-
ins.
Það eru margir, sem gráta
Róbert í dag. Allir, sem hafa
sungið með honum, lært hjá hon-
um, unnið með honum að hvers
kyns störfum, sakna hans sárt.En
það er fyrst og fremst Róbert
sjálfur, sem við syrgjum, maður-
inn með glettnina í augunum,
fjörið, áhugann, sorgina, gleðina
og ástina til okkar allra. Það var
hann, sem við misstum. Eg bið
Ástkær faðir okkar ■
KARL ÞÓRHALLSSON,
Njálsgötu 1 3 b,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. marz kl. 3
Ásgeir Karlsson, Haraldur Karlsson,
Guðrún Karlsdóttir, Kristján Jónsson,
Þórhalla Karlsdóttir, Jóhann Eymundsson,
Sigríður Karlsdóttir, Einar Pétursson,
Kristm Karlsdóttir, Alvar Óskarsson,
Hjördfs Karlsdóttir, Sigurður Bjarnason,
Fjóla Karlsdóttir, Gisli ísleifsson,
Þórdís Karlsdóttir, Jón B. Ingimundarson.
Hjartkær eiginkona min, móðir okkar, dóttir og systir,
MARGRÉT AUSTMANN JÓHANNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. marz kl. 3.
Ómar Pétursson,
Helena og Sigrún Ómarsdætur,
Þórhalla Karlsdóttir, Jóhann Eymundsson,
Ulfhildur Þorsteinsdóttir, PéturÁrnason
og aðrir ættingjar.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
SVANHILDAR BOGADÓTTUR,
Stigahlíð 6.
Helgi Gíslason, börn,
tengdaborn og barnabörn.
t
Frænka mín,
UNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
andaðist að Hrafnistu 1 8. marz.
Kristin Benjamínsdóttir.
t
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur og fjölskyldum okkar samúð við
andlát og jarðarför systur okkar,
KRISTÍNAR SVEINSDÓTTUR,
Hafnarfirði.
Guðríður Sveinsdóttir, Bótólfur Sveinsson,
Jónatan Sveinsson, Sigurjón Sveinsson.
t
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför,
FRIÐGEIRS JÚLÍUSSONAR,
Ránargötu 1 2.
Finney Kjartansdóttir,
Sigurborg Friðgeirsdóttir, Eggert Jósefsson,
Edda Friðgeirsdóttir Kinchin, Eric Kinchin.
t Okkar beztu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur vinsemd og samúð við fráfall og jarðarför móður okkar ELÍNRÓSAR BENEDIKTSDÓTTUR, Smáratúni 2, Keflavik. Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og starfsfólki Sjúkrahúss Keflavikur, fyrir frábært starf kærleika og hlýju við móður okkar meðan hún var i Sjúkrahúsinu. Börnin. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, ÓLAFS S. ÓLAFSSONAR, Gunnarssundi 1, Hafnarfirði. Eiginkona, börn, tengdasynir, barnabörn, bróðir og mágkonur.
t Það tilkynnist ættfólki og vinum, að bróðir okkar SVEINBJÖRN HALLBJÖRNSSON lézt í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn sunnudaginn 17/3 s.l. rúmlega áttatíu ára að aldri. Útför hans fer fram í Kaupmannahöfn næstkomandi miðvikudag. Heimilisfang sonar hans, Erik Hallbjörnsson, er: Gammelgárdsvej 16 Farum, Danmark. Þuríður Hallbjörnsdóttir, Páll Hallbjörnsson, Kristey Hallbjörnsdóttir, Cæsar Mar Hallbjörnsson, Sigrún Hallbjörnsdóttir, Oddur Hallbjörnsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðír og afi ÁGÚST BJARNASON, frá Hraunmúla, Laugavegi 27 B, Reykjavik, sem lézt 14. marz sl. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtu- daginn 21. marz kl. 13.30 Þeir, sem vildu minnasf hins látna er bent á líknarstofnanir Svava Lúthersdóttir, Hermann S. Ágústsson, Sólveig 1. Gunnlaugsdóttir, Elínbjörg J. Ágústsdóttir, Rúnar Ingi Finnbogason, Bjarni J. Ó. Ágústsson, Ásta M. Marinósdóttir, Kristín Th. Ágústsdóttir og barnabörn.
Lokað 1 úag. mlðvlkudag, vegna útfarardr. Þórðar Þorbjarnarsonar. Lokað 1 dag 20. mars fyrir hádegi vegna jarðarfarar.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðaríns. Hafrannsóknastofnunin.
Guðríði, einkasyninum Grétari
Ottó og Magnúsi tengdaföður
guðs blessunar.
Og Róbert þökkum við allt
Þuríður Pálsdóttir.
Með dr. Róbert Abraham Ottós-
syni er horfinn einhver svipmest-
ur persónuleiki þessara daga.
Hann var allt i senn: hinn fæddi
snillingur, fágætur kennari og
elskulegur vinur. Um slfka finnst
oss jafnan þeir dvelji of stutt. Hitt
ber að þakka, að vér skyldum
hafa þá hamingju að njóta um
hríð útvalins afreksmanns og
öðlings, enda skarð hans að því
skapi vandfyllt sem hann var
aldrei einhamur.
Dr. Róbert fæddist í Berlín 17.
mai 1912. Hann lauk stúdents-
prófi frá Falke Realgymnasium í
fæðingarborg sinni 1931, en
stundaði síðan nám við heim-
spekideild Friedrich Wilhelm-há-
skólans þar í borg. Hann nam
tónlistarfræði við Staatliche
Akademische Hochschule fúr
Musik i Berlín árin 1932 til 1934,
er hann hélt til Parísar, þar sem
hann hafði tónsmfðar og hljóm-
sveitarstjórn að aðalnámsgrein-
um. Veturinn 1934 til 1935 dvald-
ist hann f Kaupmannahöfn og
starfaði þar m.a. víð stjórn
sinfóníuhljómsveitar. Hann flutt-
ist til íslands haustið 1935, settist
að á Akureyri og kenndi við Tón-
listarskólann þar.
Eftir að hann fluttist til Reykja-
víkur var hann kennari við Tón-
listarskólann, og kenndi einnig
við Barnamúsíkskólann í Reykja-
vík. Hann var einn af stofnendum
Söngsveitarinnar Fílharmóníu, og
leiðtogi hennar og stjórnandi æ
síðan. Margsinnis stjórnaði hann
Sinfóníuhljómsveit íslands og
sömuleiðis óperuflutningi í Þjóð-
leikhúsinu. Veturinn 1956 til 1957
stjórnaði hann Sinfóniuhljóm-
sveit Berlfnar og árið 1962 fór
hann fyrirlestra- og hljómleikaför
til ísraels. Hann tók við embætti
söngmálastjóra þjóðkirkjunnar
árið 1961 og stofnaði skömmu síð-
ar Tónskóla þjóðkirkjunnar, sem
brautskráir kantora og menntar
kirkjuorganista. Ötull í starfi
ferðaðist hann um land allt, þjálf-
aði kóra og hélt kórstjórnarnám-
skeið. Hann var afar nákvæmur
t
Eiginmaður minn, faðir og
tengdafaðir
GUÐMUNDUR HANNESSON
frá Móhúsum, Stokkseyri,
andaðist á Hrafnistu sunnudag-
inn 1 7. marz.
Stefanía Sigurðardóttir,
börn og tengdabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim, sem sýndu samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför,
SIGURÐAR BREIÐFJÖRÐ
ÞORSTEINSSONAR
Sérstakar þakkir færum við
tengdafólkinu fyrir alla þeirra
miklu aðstoð
Guð bléssi ykkur öll
Guðlaug Kristjánsdóttir
og börnin.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð, vin-
semd og hlýhug við andlát og
útför,
INGIBJARGAR KRISTÍNAR
FINNSDÓTTUR,
frá Garðsenda.
Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki og systrum á St.
Fransiskurspítalanum í Stykkis-
hólmi fyrir frábæra umönnun og
hlýju sl. 3 ár
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.