Morgunblaðið - 20.03.1974, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1974
félk f
fréttum
fólk í
fjólmiélum
Magnús í nýtt starf
1 kvöld kl. 20.55 er þáttur
Magnúsar Bjarnfreðssonar,
„Krunkað á skjáinn". Þar verð-
ur rætt við Margréti frá Öxna-
felli, en Margrét er kunnur
lækningamiðill. Þá verður sýnt
hvernig matreiða á kútmaga,
myndagetraun lýkur og leið-
beint veður um frágang í mið-
stöðvarklefum.
Þessi þáttur er hinn síðasti,
sem Magnús stjórnar. Hann
hefur verið dagskrármaður við
sjónvarpið frá upphafi þess, en
hefur nú fyrir nokkru tekið við
öðrum störfum þar. Hann sér
nú um skipulagningu verkefna
og kostnaðaráætlanir vegna
þeirra, auk þess sem hann hef-
ur umsjón með endurhæfingu
og menntun starfsfólks stofn-
unarinnar.
Magnús hefur átt miklum
vinsældum að fagna meðal
sjónvarpsáhorfenda og er eftir-
sjá að honum af skjánum, en
við óskum honum góðs gengis í
hinu nýja starfi.
Þess cr vænzt, að þau Tord og
Christina prinsessa gangi f
hjónaband í júní. — En það
verður ekki á sunnudegi, sagði
Tord við blaðamenn, en vildi
ekki útskýra hvers vegna.
FJÖGURRA HÆÐA
FALL 1 BIFREIÐ
Hector Ruiz, 18 ára gamall
New York-búi, var fluttur í
sjúkrahús um daginn vegna
þess, að hann hafði farið úr
mjaðmarlið. Orsök þess, að
hann fór úr liðnum, er í hæsta
máta óvenjuleg og þegar Hect-
or hefur fengið bót meina sinna
og er kominn út í hringiðu
borgarlífsins á ný, getur hann
sagt vinum og kunningjum afar
óvenjulega slysasögu.
Hector var starfsmaður í bíla-
geymslu, sem er á mörgum
hæðum gamallar múrsteins-
byggingar. Einn daginn var
hann að bakka bifreið upp að
vegg á fjórðu hæð geymslunn-
ar, er bensíngjöfin festist í
botni og bifreiðin flaug á fullri
ferð á vegginn — og i gegnum
hann. Féll hún síðan niður á
draslhrúgu á lóðinni við hlið-
ina. Lenti hún á þakinu og
menn bjuggust við, að Hector
væri ekki lengur í lifenda tölu.
En hann reyndist hafa sloppið
betur en svo. — A myndinni er
slökkviliðsmenn að reyna að ná
honum út úr bílflakinu.
Útvarp Reykjavík §
MIÐVIKUDAGUR
20. m a rz
7.00 Morgunúívarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
FVétti r kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dag-
bl.). 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund bamanna kl. 8.45: Þor-
leifur Hauksson heldur áfram að lesa
söguna „Elsku Míó minn“ eftir Astrid
Li ndgren (17).
Morgunleikfóni kl. 9.20. Tilkynningar
kl.9.30.
Þingfréttirkl. 9.45. Létt kjg ámilliliða.
tJr játningum Agústínusar kirkjuföð-
ur kL 10.25: Séra Bolli Gústafsson i
Laufási Ies þýðingu Sigurbjörns Ein-
arssonar biskups (16)
Krikjutónlistki. 10.40.
Tónlist eftir Igor Stravinský kL 11.00:
Gold og Fizdale leika Sónötu fyrir tvö
píanó. / Columbiu-hljómsveitin leikur
,, Kossálfkonunnar".
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.30 Meðsfnulagi
Svavar Gests kynnir lög af hljómplöt-
um.
14.30 Sfðdegissagan: ,JFöstuhakl rahbf-
ans" efti rHarry Kamebnann
Séra Rögnvaldur Finnbogason les (8).
15.00 Miðdegistónleikar Norræn tónlist
Fflharmóníusveitin i Osló leikur Con-
serto Grosso Norvegese op. 80 eftir
Olab Kielland; Höfundur stjórnar.
Eyvind Möíler leikur á píanó Chaeonnu
op. 32 eftirCarl Nielsen.
FTIha rmónísveitin f Oslóleikur Sinffin-
iu nr. 2 Bjame Brustadt; Övind P'leld-
stedt stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15Veður-
f regnir.
16.25 Popphornið
17.10 Utvárpssaga harnanna: „Öli og
Maggi meðgullleitarmönnum"
eftir Ármann Kr. Einarsson. Höfund-
urles (6).
17.30 Framburðarkennsla íspænsku
17.40 Tónleikar.
18.00 Til umhugsunar
Þáttur um áfengismál í umsjá Sveins
H. Skúlasonar.
18.15 Tónleikar.Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.25 Orðaforði
Hefur rikiætjórninþingstyrk til áfram-
haldandi setu?
Þorsteinn Pálsson stjórnar umræðum,
en þátttakendur eru: Hjálma r Hannes-
son, Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
fræðingur og Kjartan Ólafsson rit-
stj óri.
20.00 Kvöldvaka
a. Einsöngur
Jón Sigurbjörnsson syngur íslenzk lög;
Ölafur Vignir Albertsson leikur á
píanó.
b. Söguslöðir
Sigvaldi Jóhannesson bóndi í Enniskoti
í Víðidal flytur erindi um landnám
Ingimundar gamla; fyrri hluta.
c Liðins tfma lýsigull
Elin Guðjíwsdóttir flytur annan hluta
hugk'iðingar Bjartmars Guðmundsson-
ar frá Sandi um Þingeyskar stökur og
höfunda þeirra.
d. Æviminningar Eiríks Guðlaugsson-
ar.
Baldur Pálmason les fjórða hluta frá-
sögu húnvetnskserfiðismanns.
e. Um fslenzka þjóðhætti
Árni Björnsson eand. mag talar.
f. Kórsöngur
Karlakór Akureyrar syngur; Áskell
Jónsson stj.
21.30 Utvarpssagan: „Ditta mannsham"
eftirMartin Anderson Nexö
Einar Bragi skáld byrjar lestur sögunn-
ar í þýðingu sinni.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passíusálma (33)
22.25 Framhaldsleikritið: „Hans há-
gögi‘‘eftir Sigurð Róberfcson
Fyrsti þáttur endurfluttur. Leikstjóri:
Baldvin Halklórsson.
23.15 Nútímatónlist
Halklór Haraldsson kynnir.
23.55 Fréttirí stuttu máli. Dagskrárlok.
Á skjánum
PRINSESSAN
OG UNNUSTINN
— Ég spuröi afa í fyrrasum-
ar, hvort ég mætti trúlofast
Tord, og hann varð afar glaður
og gaf mér strax leyfi sitt. Það
var ætlunin, að trúlofunin yrði
opinberuð um haustið, en þá dó
afi og þess vegna biðum við þar
til nú.
Svo mæltist Christinu Svía-
prinsessu, stóru systur Karls
XVI Gústafs Svíakonungs, er
hún, fyrr á þessu ári, opinber-
aði trúlofun sína og Tord Magn-
usson, sænsks kaupsýslumanns.
Hann er 33 ára, en hún 30 ára.
Þau hafa þekkzt í nær 14 ár,
kynntust á Skansinum,
skemmtigarði Stokkhólms, árið
1960.
Trúlofunin kom mönnum
ekki beint á óvart, því að prins-
essan og „Tosse“, eins og Tord
er jafnan kallaður, hafa nánast
verið óa ðskiljanleg frá
því þau fyrst hittust. En
menn bjuggust þó við, að
prinsessan, sem hefur haft ýms-
um skyldum að gegna opinber-
lega eftir lát afa síns, myndi
fresta trúlofun sinni fram yfir
30. april nk., en þá verður Karl
XVI 28 ára gamall og menn
Miðvikudagur
20. mars 1974
18.00 Skippí
Ástralskur myndaflokkur fyrir börn og
unglinga.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.25 Svona eru börnin
— f Tyrklandi
Norskur f ræðslumyndaflokkur um
börn i ýmsum heimshlutum.
Þýðandi og þulur Elk*rt Sigurbjörns-
son.
18.45 Gítarskólinn
Gítarkennsla fyrir byrjendur.
7. þáttur.
Kennari Eyþór Þorláksson.
19.20 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Konan mfn I næsta húsi
Breskur gamanmyndaflokkur.
Hjúskaparafmælið
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
20.55 Krunkað á skjáinn
Þáttur með blönduðu efni.
Umsjónarmaður Magnús B/arnfreðs-
son.
21.30 ,JMyllan“
Bandarísk ádeilumynd byggð á heim-
ildum með léttu ívafl
Myndina gerði Emil de Antonio um
stjórnmálaferil Riehards Millhouse
Nixons, Bandarikjaforseta allt fram til
ársloka 1971.
Þýðandi og þulur Þrándur Thorodd-
sen.
23.10 Dagskrárlok
Karl XVI Gústaf, Svlakonungur, systir hans Christina prinsessa
og Tord Magnusson, tilvonandi eiginmaður hennar.
búast almennt við því, að þá
opinberi hann trúlofun sína.
Ennþá hefur ekki verið
ákveðið, hvenær prinsessan og
kaupsýslumaðurinn ganga I
hjónaband, en talið er líklegt,
að það gerist í júní nk. og síðan
flytji hjónin í tíu herbergja ein-
býlishús í útjaðri Stokkhólms.
— Ég vona, að ég geti sem frú
Christina Magnusson haldið
áfram starfi mínu í fjölmiðla-
deild sænska utanríkisráðu-
neytisins, sagði prinsessan og
fitlaði við trúlofunarhring sinn,
sem er úr gulli og skreyttur 12
demöntum. — En, hélt hún
áfram, ég mun sem prinsessa
Christina frú Magnusson eins
og áður hafa ýmsum opinberum
skyldum að gegna.
A fréttamannafundinum lét
Karl XVI lítið á sér bera. Hann
vildi ekki segja neitt um orð-
róminn um sina eigin trúlofun.
— Ég er ánægður yfir, að
systir min ætli að giftast Tord,
sagði hann. — Hann er fínn
náungi. Við vorum saman f
skóla. Hann var frábær í gam-
anleikriti i skólanum, er hann
lék Línu Langsokk.
Eirfkur Guðlaugsson.
Eiríkur Guðlaugsson heitir
húnvetnskur maður, sem nú
stendur á áttræðu. Hann hefur
margt reynt um dagana eins og
heyra má í æviminningum
hans, en Baldur Pálmason les
nú úr þeim á kvöldvökunum á
miðvikudögum. 1 kvöld er
fjórði lesturinn, en minning-
arnar eru í sjö hlutum.
Eiríkur ólst upp á Sviðningi á
Skagaströnd hjá ömmu sinni og
föðurbróður, en eftir lát föður
sins gerðist hann fyrirvinna
móður sinnar. Eirikur varð
snemma Jagvirkur og hændur
til smíða, — bjó t.d. til kaup-
skip með rá og reiða I hjáset-
unni, en átti ekki kost á lær-
dómi í smíðagreinum fyrr en
löngu síðar. Hann gekk að bú-
skaparstörfum til 17 ára aldurs,
en þá réðst hann á bát frá
Kálfshamarsvík. Síðar reri
hann með Ólafi Ketilssyni út-
vegsbónda á Kalmanstjörn í
Höfnum og Einari í Garðshús-
um í Grindavík, en einnig reri
hann frá Vestmannaeyjum. Sið-
ar gerðist hann bóndi og smiður
í heimahéraði sínu og var bú-
settur í mörg ár á Blönduósi.
Hann dvelst nú hjá stjúpsyni
sínum á Seltjarnarnesi.