Morgunblaðið - 02.07.1974, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1974
Fa
Itll.t I.I H. A V
'4 lAtt"
220*22*
RAUDARÁRSTIG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
f *
CAR RENTAL
Tt 21190 21188
LOFTLEIÐIR
tel. 14444*25555
BfLALEIGA CAR RENTAL
'ABI
OAN-mMTAL*
Hverfisgötu 18
27060
VELDUR, HVER MÆæOSl HELDUR
0 SAMVINNUBANKINN MmW^WÆL
Ferðabílar hf.
Bílaleiga — Sími 81260
Fimm manna Citroen G.S.
station. Fimm manna Citroeri
G.S. 8-—22 manna Mercedes
Benz hópferðabílar (m. bílstjór-
um).
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodh
LEICBH
AUÐBREKKU 44-46.
5ÍMI 42600.
HOPFERÐA-
BÍLAR
Til leigu i lengri og skemmri ferðir
8—50 farbega bílar.
KJARTAN INGIMARSSON
Sími 86155 og 32716
Afgreiðsla B.S. í.
Sími 22300.
<S
BÍLALEIGAN
5IEYSIR
CAR RENTAL
«24460
í HVERJUM BÍL
PIOIMŒŒJR
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
Breytingar á
kjördæmaskipun
1 umræðunum, sem fram
fðru fyrir þær kosningar til Al-
þingis, sem nú eru afstaðnar,
var lftilsháttar minnzt á gamalt
og nýtt deiluefni, kjördæma-
skipunina. Fimmtán ár eru nú
liðin frá þvf, að núverandi kjör-
dæmaskipan komst á. Ómðt-
mælt er, að kjördæmabreyting-
in 1959 var til verulegra bðta að
þvl Ieyti a.m.k., að með benni
náðist meiri jöfnuður, þannig
að flokkarnir fengu þingmenn I
nokkru samræmi við heiidarat-
kvæðatölu þeirra yfir landið.
Þð að þessi kjördæmaskipan
hafi þannig verið til mikilla
bðta hafa þéttbyggðustu kjör-
dæmin ávallt borið skarðan
hlut frá borði. Atkvæði greitt á
Vestfjörðum hefur verið og er
raunar margfalt á við eitt at-
kvæði greitt f Reykjaneskjör-
dæmi. Hér á landi hefur það
lengi verið viðurkennt, að at-
kvæði í strjálbyggðum
kjördæmum, þar sem samgöng-
ur við stjórnsýslumiðstöðvar I
þéttbýlinu eru erfiðar, hafi
meira vægi en önnur. Vita-
skuld getur það verið álitaefni,
hvort sjðnarmið af þessu tagi
eigi við nægileg rök að styðjast.
En hvað sem þvf ifður er nú
Ijðst orðið, að mjög hallar á
einstök kjördæmi f þessum efn-
um þannig að nærri stappar
verulegu ranglæti. Á þetta
einkum við Reykjaneskjör-
dæmi og e.t.v. einnig Reykja-
vfk.
Alþingi endurspegli
skoðanir fólksins
t sjðnvarpsumræðum efstu
manna framboðslistanna f
Reykjavfk aðfararnótt sfðast-
liðins mánudags kom skýrt
fram, að nú virðist vera
pðlitfskur jarðvegur fyrir
endurskoðun kjördæmaskipun-
arinnar. Sérstaklega kom það
fram f tali Geirs Hallgrfmsson-
ar, Gylfa Þ. Gfslasonar og
Magnúsar Kjartanssonar, að
flokkar þeirra leggja áherzlu á,
að komið verði á meiri jöfnuði f
þessum efnum, þannig að kjós-
endur I einu kjördæmi hafi
ekki margfaldan atkvæðisrétt á
borð við kjðsendur f öðru.
Þðrarinn Þðrarinsson for-
maður þingflokks framsðknar-
manna minntist á gamla hug-
mynd um einmenningskjör-
dæmi, en hún hefur jafnan átt
nokkru fylgi að fagna bæði f
röðum Framsðknarflokksins og
Sjáifstæðisflokksins. 1 umræð-
unum kom einnig fram sú
hugmynd að taka hér upp að
eriendri fyrirmynd kjördæma-
skípan, þar sem annar helming-
ur þingmanna yrði kjörinn I
einmenningskjördæmum, en
hinn yrði landskjörinn. Með
þvf mðti má sameina kosti ein-
menningskjördæma og upp-
bðtakerfisins til jöfnunar á
milli flokka.
Geir Hallgrfmsson sagði það
sem sfna skoðun, að við breyt-
ingu á kjördæmaskipaninni
yrði einkum að gæta þess, að
fulltrúatala mismunandi
stjðrnmálastefna á Alþingi
væri rétt spegilmynd af skoð-
unum kjósenda f landinu. Þá
lagði hann ennfremur áherziu
á, að kosningakerfið yrði að
vera með þeim hætti, að kjðs-
andinn hefði ekki einvörðungu
kost á að velja einn ákveðinn
stjðrnmálaflokk, heldur hefði
hann einnig áhrif á það hverjir
veldust til framboðs og til
þeirrar ábyrgðar að fram-
kvæma þá stjðrnmálastefnu,
sem hann styður.
I viðtali við Morgunblaðið
skömmu fyrir kosningar sagði
Geir Hallgrfmsson um þetta
efni: „Það er að vfsu varasamt
að breyta stjðrnarskránni með
stuttu millibili að þessu leyti.
Og æskilegt væri, að slfkar
breytingar ættu sér stað sam-
fara ráðgerðri endurskoðun
stjðrnarskrárinnar almennt,
sem áratugum saman hefur
verið á dagskrá.
En svo brýn nauðsyn kann að
reynast á endurskoðun kosn-
ingalaga og kjördæmaskipun,
að það verði ekki unnt að bfða
þess.“
Ummæli þessi gefa ðtvfrætt
til kynna að vænta megi um-
ræðna og jafnvel tillagna um
endurskoðun á kjördæmaskip-
aninni á næsta kjörtfmabili. En
fæstum dylst, að mál þetta þarf
örugglega gaumgæfilegrar at-
hugunar við eins og nú standa
sakir.
Frá vorhátið sendiherrahjðnanna og fslenzkra fyrirtækja á hðtel D’Angleterre. Talið frá vinstri:
Agnar Tryggvason forstjðri, Börge Schmith borgarstjðri, ólög Pálsdðttir, frú Knudsen, Sigurður
Bjarnason og K.C. Knudsen framkvæmdastjðri.
1100 ára afmælis Islands
minnzt í Kaupmannahöfn
K. höfn I júni.
Frá fréttaritara Mbl.
Hér í Kaupmannahöfn hefur
30 ára lýðveldis og 100 ára af-
mælis Islandsbyggðar verið
minnzt með ýmsum hætti.
Hófst það með því, að 1. aprfl
voru haldin fjölmennur hádeg-
isverður og vorhátíð á hótel
D’Angleterre. Buðu íslenzku
sendiherrahjónin til hans fyrir
hönd landbúnaðardeildar Sam-
bands fslenzkra samvinnu-
félaga, fslenzku flugfélaganna,
Flugfélags tslands og Loftleiða,
Sölustofnunar lagmetis og
Utflutningsmiðstöðvar iðnaðar-
ins.
Flutti sendiherra þar ræðu
um viðskipti Islendinga og
Dana sfðustu árin. Ræddi hann
einnig sögu Islands að fornu og
I
nýju. Islenzkar landbúnaðar- og |
sjávarafurðir voru á borðum og 1
veitingahúsið hafði þær á boð-
stólum í heila viku. Börge f
Scmith borgarstjóri þakkaði
fyrir hönd gestanna og minntist I
Islands og þjóðar þess mjög vin-
samlega. Vakti þessi landkynn-
ing mikla athygli. ,
Hinn 13. mal höfðu sendi- ,
herrahjónin Ólöf Pálsdóttir og í
Sigurður Bjarnason móttökur
fyrir 75 danska blaðamenn,
sem voru á leið til tslands, og
hinn 17. júni var fjöldi Islend-
inga og danskra vina Islands f
móttöku í sendiherrabústaðn-
um. Hinn 19. júnf var þar boð
fyrir erlenda sendiherra, ráð-
herra, þingmenn, fólk úr
dönsku atvinnulífi, listamenn
og blaðamenn. Islendingafélög-
in höfðu fjölmenna hátfðarsam-
komu hinn 14. júní. Stjórnaði
Þorsteinn Máni Arnason for-
maður Islendingafélagsins
henni, en sendiherra flutti
aðalræðu kvöldsins. Islenzkir
listamenn, söngvarar, streng-
leikarar og hljómsveit frá Sel-
fossi önnuðust skemmtiatriði.
Var þetta ein fjölmennasta
samkoma, sem Islendingafélög-
in hér hafa lengi haldið. Fór
hún mjög virðulega fram.
Dansk-fslenzka félagið efndi
til samkomu 23. aprfl. Þar flutti
dr. Jakob Benediktsson ftarlegt
og fróðlegt erindi um Land-
námu.
Hinn 13. júnf beitti Dansk
fslenzka félagið sér einnig fyr
ir hátfðarsamkomu. Þar flutti
ávörp þeir Kaj Peterssen for-
maður félagsins og Bent A.
Kock ritstjóri. Aðalræðuna
flutti Gylfi Þ. Gfslason fyrrv.
menntamálaráðherra. Flestir
ræðismenn Islands f Danmörku
hafa undanfarið beitt sér fyrir
móttökum víðsvegar um land af
tilefni 1100 ára afmælisins.
Fjöldi greina og frásagna hafa
undanfarið birzt f dönskum
blöðum um lsland og fslenzku
þjóðina.
spurt og svarad
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
□ HESTALEIGA:
Miðvikudaginn 26. maí sl.
birtist f þessum dálki spurning
þess efnis, hvar hægt væri að fá
leigða hesta. Spurningunni
svaraði Bergur Magnússon
framkvæmdastjóri Fáks og
kvað hann ekki hægt að fá
leigða hesta á höfuðborgar-
svæðinu.
Nú hefur Þórarinn Jónasson,
Laxnesi, Mosfellssveit, haft
samband við blaðið og gert leið-
réttingu við svar Bergs. Kvaðst
Þórarinn hafa 15 hesta tii út-
leigu í Laxnesi og hefði starf-
semin þar verið rekin sl. tvö ár.
Hafa ferðamenn notfært sér
mikið þessa þjónustu og hafa
verið sóttir til Reykjavíkur.
Þórarinn sagði, að leigan væri
bundin við hópa — menn gætu
hringt í síma 66179 alla daga
vikunnar og pantað tíma. Einn-
ig væri hægt að fá leiðsögu-
menn í ferðirnar.
Þessari leiðréttingu er hér
með komið á framfæri.
□ Fæðingarstyrkir:
Alfheiður Arnadðttir spyr
fyrir hönd hjúkrunarkvenna á
kvenlækningadeild Landspítal-
ans:
„Hvenær verður fæðingar-
styrkur gerður að styrk til við-
komandi konu, en ekki látinn
ganga upp í sjúkrahúslegu eins
og nú er gert? Hvað er það, sem
tefur slíka breytingu?
Ingimar Sigurðsson, fulltrúi í
Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu, svarar:
„Núgildandi ákvæði um fæð-
ingarstyrk er að finna í 2. gr.
laga nr. 63/1974 um breytingu
á almannatryggingalögunum
nr. 67/1971. Eðlilegast hefur
þótt, að styrkurinn rynni beint
upp í sængurlegukostnað, m.a.
vegna þess, að annars yrðu for-
eldrar að greiða kostnaðinn
sjáifir, þar sem ekki er fyrir að
fara neinum öðrum styrk er þar
gæti komið þeim til góða. Slík
tilhögun er einföldust í fram-
kvæmd.
Um breytingar á þessu fyrir-
komulagi er vandi að spá, þar
sem þær eru háðar vilja og
framkvæmdasemi verðandi
þingmanna, þ.e. lagabreytingu
þarf til.“
□ Ellilaun:
Guðbrandur Benediktsson,
Álfhólsvegi 21, Kópavogi, spyr:
„Hvað mega hjón hafa mestar
tekjur til þess þó að njóta há-
marksbóta úr ellitrygginga-
sjóði?”
Ingimar Sigurðsson, fulltrúi í
Heiibrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu, svarar:
„Samkvæmt 2. gr. reglug.
dags. 28. maí s.l. um lágmarks-
lífeyri og hækkun trygginga-
bóta skv. lögum um almanna-
tryggingar, ber hjónum, sem
bæði njóta ellilífeyris, en hafa
ekki aðrar tekjur en lffeyri al-
mannatrygginga, er eigi fara
fram úr kr. 67.500,- á ári, upp-
bót á lífeyri að upphæð kr.
144.000,- á ári. Hafi hjón hins
vegar tekjur umfram kr.
67.500,- á ári, skal skerða upp-
bótina um helming þeirra
tekna, sem umfram eru.“