Morgunblaðið - 02.07.1974, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLI 1974
BR ASILIUMENNIRNIR
STANDA FYRIR SÍNU
LIÐ AMGENTlNU: Carnevali, Glaria,
Heretlia, Bargas, Sabrindisi, Sueo,
BabiigtM, Balbuena, Ayala, Kempes.
Varaaeu: Carrascosa, Charzarreta, Hause-
■aa, Fillol. Perfumo.
UÐ BKASILfU: Leao, Ze Maria, Pereira,
Nariika, Franeisco Marinho, Ca ”
aaí, Rivellino, Dirceu, Jairzlnl
Varaunenn: Vuazza, Renato, /
andinba.Edu.
DÖMARI: Vital Loraux frá Belgfu
Brasilíumenn, sem að margra
áliti áttu litla möguleika til þess
að ná í toppinn f þessari heims-
meistarakeppni, og stóðu sig
reyndar fremur slaklega í 16 liða
úrslitunum, hafa nú sýnt, að þeir
eru enn með í myndinni, og það
minnsta, sem þeir geta hreppt, er
f jórða sætið. Á sunnudaginn báru
þeir sigurorð af nágrönnum sfn-
um frá Argentínu í leik, sem fram
fór í Hannover. Hafa þeir nú
fjögur stig í sínum riðli og leikur-
inn á miðvikudaginn við Holland
verður hreinn úrslitaleikur um
það að komast í úrslitaleikinn f
Mfinchen. I þeim leik dugar
Brasilíumönnum ekkert minna en
sigur.
Leikur Brasilfu og Argentínu
var allan tímann mjög jafn og
sigur gat fallið hvoru liðinu sem
var í skaut. Bæði liðin þóttu sýna
afbragðsgóða knattspyrnu —
Brasilíumennirnir þá beztu, sem
þeir hafa boðið upp á f keppninni
hingað til, og þykir augljóst, að
liði þeirra fer fram með hverjum
leik. Var þetta 20. sigur Brasilfu-
manna yfir Argentínumönnum f
þeim 59 leikjum, sem lið þessara
þjóðá hafa leikið, og jafnframt
mikilvægasti sigurinn.
Jairzinho — átti mjög góðan leik
gegn Argentfnu.
leiknum með marki Rivelinos á
31. mínútu, en aðeins fjórum mín-
útum síðar höfðu Argentínumenn
jafnað, eftir að Brindisi hafði
skotið i þverslá og inn með glæsi-
legri spyrnu, beint úr auka-
spyrnu. Sigurmark Brasilíumann-
anna var svo skorað á 4. minútu
seinni hálfleiks. Bakvörðurinn Ze
Maria, yfirgaf þá hinn sterka
varnarmúr Brasilfumanna, storm-
aði fram kantinn og sendi sfðan
knöttinn fyrir með hárri send-
: til Jairzinhos, sem
ð fallegu skoti.
Eftir mark þetta virtist sjálfs-
traust Brasilfumannanna aukast
og þeir náðu afbragðsgóðum leik-
köflum, sem minntu á forna
frægðardaga þeirra. En þeir
máttu heldur aldrei slaka á.
Argentínumennirnir börðust eins
og grimm Ijón og áttu reyndar
mörg góð tækifæri í hálfleiknum.
Þannig fékk Balbuena, sem tví-
mælalaust var bezti maður vallar-
ins, galopið tækifæri þegar aðeins
16. mínútur voru til leiksloka, en
þessum frábæra knattspyrnu-
manni brást þá bogalistin og
skaut yfir markið. Þá átti hinn
síðhærði Ruben Ayala einnig
gullið tækifæri skömmu fyrir
leikslok, en þá var hann of fljótur
á sér og skaut framhjá.
Brasilíumennirnir áttu einnig
góð tækifæri, t.d. er Rivelino
skaut yfir eftir aukaspyrnu og er
Jairzinho átti skot, sem sleikti
markstöng argentínska marksins
utanverða.
Tveir leikmanna Argentínu:
Houseman og Bargas fengu að sjá
gula spjaldið eftir að hafa veitzt
Framhald á bls. 23.
Nýju liðin verði
frá þriðja heiminum
—HINN nýi forseti FIFA er gam-
all sundknattleiksmaður. Þeim
mun leiðinlegra er það fyrir hann
að hljðta þau örlög að drukkna á
þurru landi f eigin loforðum.
Þannig fðrust einum af forýstu-
mönnum Evrópuknattspyrnusam-
bandsins orð um Havelang, eftir
að ljóst var orðið, að hann mun
hafa lofað rfkjum þriðja heims-
ins einu og öðru styddu þau hann
sem forseta FIFA.
Þegar hefur verið ákveðið að
bæta fjórum liðum við I næstu
úrslitakeppni HM og Havelang
hefur lýst því yfir, að hann mundi
berjast fyrir því, að 24 lið tækju
þátt í lokakeppninni 1982. En það
er ekkert skilyrði, að fjölgun
þessi verði til að tryggja það, að
beztu knattspyrnuþjóðir heims
komist örugglega í úrslit. Þvert á
móti. FIFA-forsetinn hefur hafið
baráttu fyrir því, að þau lið, sem
bætast við í keppnina, verði frá
Asíu og Afríku. Vill hann láta
a.m.k. þrjú lið frá hvorri álfu
komast sjálfkrafa í keppnina.
Knattspyrnuíþróttin á sjálfsagt
framtíðina fyrir sér í löndum
þessara heimsálfa, en þeir, sem
um málið hafa fjallað, eru sam-
mála um, að lönd þriðja heimsins
þurfi a.m.k. tvo áratugi til þess að
standa Evrópu og S-Ameríku á
sporði. Mörgum þykir nógu súrt I
broti að lið frá Zaire, Ástralíu og
Haiti komust í lokakeppnina í
Þýzkalandi meðan Englendingar
sátu heima, þótt ekki verði á bætt.
Verða heima
SPURNINGUNNI um,
hvort leikmenn a-þýzka
landsliðsins hefðu leyfi til
þess að taka hugsanlegum
atvinnutilboðum frá félög-
um f Vestur-Evrðpu, svar-
aði ríkisþjálfarinn, Georg
Buschner, þannig: Við
setjum ekki stein í götu
þeirra leikmanna, er það
vilja. Þeir ráða sjálfir,
hvort þeir taka slfkum til-
boðum, ef þau berast. Hins
vegar hef ég engar áhyggj-
ur. Enginn leikmannanna
hefur minnsta áhuga á þvf
að verða atvinnumaður í
knattspyrnu. Þeir koma
heim eftir keppnina og
verða þar!
WORLDCUP
JOHANN
CRUYFF ll/MM 741
SNILLINGUR
SNILLINGANNA
Á WM 74
NOTAR
Klapparstig 44 Reyk|ovik simi 11783
Gerd Muller á þarna f höggi við A-Þjóðverjann Konrad Weise I leiknum í
Weise hins frækna HoIIendings, Johans Cruyff, en Miiller barðist með
V-Þjóðverjar ur
að taka á öllu
U«) V-ÞVZKALANDS: Sepp Maier, Vogls,
Breitner, Sehwarzenbeek, Beeenbauer, Bonhof.
Höness, Hölzenbein, Overath, Muller, Herzog.
Varamenn: Nigbur, Höttges, Cullmann, Flohe,
Grabowski.
LZÐ SVtÞJOÐAB: Hellström, Olsson, Augusts-
son, Karlsson, Nordqvist, Larsson, Thorstens-
son, Tapper, Edström, Grahn, Sandberg. Vara-
menn: Hagberg, Grip, Ijdersted, Lindman, Pers-
son.
DOMARl: Pavel Kasakov frá Sovétrfkjunum.
Það var sem skvett hefði verið
köldu vatni á hina fjölmörgu þýzku
áhorfendur í Dusseldorf er Svfþjóð
tók forystu í leiknum við heima-
menn á 25. mfnútu. Og það voru
ekki bara áhorfendur, sem voru
miður sín. Mark þetta virtist fá
mjög á þýzka liðið, sem náði sér ekki
á strik í fyrri hálfleiknum. Þjálfari
þess, Helmut Schön, sýndi hins veg-
ar hvers hann er megnugur. I leik-
hléinu tókst honum að tala kjarkinn
í sína menn, og það var gjörbreytt
þýzkt lið, sem kom inn á völlinn í
seinni hálfleik. Og því tókst að
vinna þennan mikla baráttuleik 4:2
og þar með er Þýzkaland búið að
tryggja sér réttinn til þess að leika
um a.m.k. þriðja sætið í heimsmeist-
arakeppninni. Nægir liðinu jafn-
tefli í leiknum við Pólland á mið-
vikudaginn til þess að komast í úr-
slitaleikinn.
Leikurinn í Diisseldorf á sunnu-
dagskvöldið var mjög jafn framan
af. Svíarnir voru þó heldur atkvæða-
meiri, og náðu góðum tökum á
miðju vallarins. Svo var þá á 25.
mínútu, sem Svíarnir sóttu og lauk
sókninni með því að Sandberg átti
glæsilega og nákvæma sendingu
fram á Edström, sem staðsett hafði
sig hárrétt, og áður en Sepp Maier
hafði áttað sig lá knötturinn í mark-
inu fyrir aftan hann.
Þung vonbrigðastuna leið frá
áhorfendum, en fljótlega upphófst
mikill gauragangur á áhorfenda-
pöllunum. Þýzku áhorfendurnir
kröfðust þess að þeirra lið jafnaði
og sigraði síðan. Virtust þessi læti
virka mjög i þá átt að gera þýzka
liðið óstyrkara, en á sama hátt tví-
efldust Svíarnir og höfðu mjög góð
tök á leiknum í fyrri hálfleik. Kom-
ust þeir nokkrum sinnum í góð
marktækifæri, án þess þó að hafa
heppnina til að binda endahnút á
sóknina með sér.
Helmut Schön breytti liði sínu
nokkuð í hálfleik og sendi m.a.
Grabowski inná. Átti það
eftir að verða heilladrjúgt fyrir
þýzka liðið. Grabowski átti þarna Vestur-þýzki markvörðurinn Sepp M:
þann bezta leik, sem hann hefur Sandbergs, sem fylgt hefur fast.
nokkru sinni náð og var maðurinn á
bak við sigur þýzka liðsins.
Þegar seinni hálfleikur hafði
staðið í 5 mínútur og knötturinn
verið á vallarhelmingi Svíanna
allan þann tíma, kom loks að því, að
Þjóðverjarnir jöfnuðu. Mikil bar-
átta var inni f vftateignum og lauk
henni með því að Overath fékk
knöttinn og gat sent hann í gegnum
þvöguna rétta boðleið í markið. Og
nú slaknaði loks á spennunni meðal
leikmanna og áhangenda þýzka liðs-
ins.
Strax eftir að miðjan var tekin
náðu Þjóðverjarnir sókn, og áður en
Svíarnir náðu að átta sig lá knött-
urinn í marki þeirra að nýju. Kom
það mark á mjög svipaðan hátt og
hið fyrra. Þvaga myndaðist fyrir
framan markið og Bonhof náði að
skjóta. Knötturinn leriti í stönginni
hægra megin og hinn ágæti mark-
vörður Svfanna kastaði sér á eftir
honum. Frá stönginni skoppaði
knötturinn eftir marklfnunni í
stöngina vinstra megin og þaðan inn
í markið.
Martröð Þjóðverjanna breyttist
með marki þessu í gífurlegan fögn-
uð. Ætlaði allt um koll að keyra á
áhorfendapöllunum og úti á leik-