Morgunblaðið - 02.07.1974, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLl 1974
Kátt með þeim Nixon Bandaríkjaforseti og Breznev á fyrsta fundi þeirra í Kreml á
fimmtudag.
Fundur Nixons og Breznevs:
Rússar bjartsýnir um að
samningar takist um tak-
mörkun kjarnorkuvopna
Scheel tekínn
við sem forseti
Bonn, 1. júlí NTB.
WALTER Scheel, fyrrum
utanríkisráðherra Vestur-
Þýzkalands, sór I dag eið
sem forseti lands síns, en
við því embætti tekur hann
af Gustav Heinemann.
Scheel, sem er 54 ára að
aldri, var um árabil leið-
togi flokks frjálsra demó-
krata og varakanslari í
samsteypustjórn Willys
Brandts.
Megi dæma af úrslitum
skoðanakönnunar, sem birt
voru í dag, hefur sennilega
enginn v-þýzkur forseti átt
meiri vinsældum að fagna
við embættistöku, en sam-
kvæmt þeim nýtur hann
stuðnings 78% lands-
manna. Aðeins 9% kváðust
ekki hafa trú á honum sem
forseta.
Fráfarandi forseti, Gustav
Heinemann, sem er 75 ára að
aldri naut mikilla vinsælda og
stuðnings 82% V-Þjóöverja sam-
kvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar, sem birt var nýlega.
Heinemann neitaði fyrir aldurs
sakir að gefa kost á sér til endur-
kjörs. Hann hélt í dag ásamt eig-
inkonu sinni Hildu með járn- '
brautarlest frá Bonn til heima-
borgar sinnar Essen, þar sem
hann hyggst eiga búsetu.
Morðingi frú
King fyrir rétt
Atlanta 1. júll — AP
UNGUR ^ blökkumaður hefur
verið handtekinn grunaður um að
hafa myrt móður Martins Luther
King á meðan hún hlýddi á messu
á sunnudag. Maðurinn verður
dreginn fyrir dóm á mánudag.
Maðurinn, sem heitir Marcus
Wayne Chenault og er 23 ára
gamall, sagði við yfirheyrslu, að
hann hafi verið sendur til Atlanta
til að vinna verk, sem nú sé að
hluta lokið. Frú King var að hlýða
á messu I baptista kirkju I
Atlanta, þegar Chenault skaut á
hana og tvo aðra með þeim af-
leiðingum, að frú King og djákn-
inn létu lífið. Chenault er ekki
talinn heill á geðsmunum.
Moskva 1. júlí — NTB, AP
NIXON forseti og kona hans
heimsóttu á mánudag höfuðborg
Hvíta-Rússlands, Minsk, á meðan
gestgjafi þeirra, Leonid Breznef,
flokkksritari, snéri til Moskvu frá
Krfm, þar sem leíðtogarnir áttu á
sunnudag sinn lengsta fund fram
til þessa.
Utanrfkisráðherrarnir Henry
Kissinger og Andrei Gromyko
héldu áfram samningaviðræðum
um takmörkun kjarnorkuvopna.
Nixon mun um stund taka sér
frf frá stjórnmálum með heim-
sókninni til Minsk, sem að mestu
var eyðilögð af Þjóðverjum í
seinni heimsstyrjöldinni. Borgin
hefur nú verið byggð upp og var
nýlega útnefnd tfundi hefiubær
Sovétríkjanna.
Örlög Minsk í stríðinu gaf
Nixon tilefni til að undirstrika
Hungurverkfall
Moskvu 1. júlf — NTB.
ÞRETTÁN sovézkar fjölskyld-
ur af þýzkum ættum, búsettar í
Eistlandi, hafa ákveðið að fara
að dæmi kjarneðlisfræðingsins
Andrej Sakarov og hafið hung-
urverkfall. A verkfallið að
standa þá þrjá daga, sem
Nixon og Breznev þinga sam-
an.
Eldur í diskoteki
New York 1. júlf NTB
MIKIL hræðsla greip um sig f
diskoteki f Port Chester á
laugardagskvöldið, þegar eld-
ur brauzt út og varð 23 að
bana. Margir þeirra tróðust
undir þegar fólk flúði í ofboði
hita og reyk. Tæplega 30
slösuðust, þar á meðal margir
slökkviliðsmenn.
Kröfu
Fischers
hafnað
Nizza, AP.
Alþjóðaskáksambandið neitaði
á laugardag að verða við kröfum
Bobbys Fischers um breytingar á
fyrirkomulagi heimsmeistara-
keppninnar f skák, en lét jafn-
framt f ljós von um, að Fischer
tæki um það ákvörðun hið fyrsta
hvort hann hygðist verja heims-
mikilvægi samvinnu á milli stór-
veldanna og hann fullvissaði ráða
menn borgarinnar um, að viðræð-
ur hans og Breznevs snérust um
hvernig koma mætti í veg fyrir að
Palestínskir
skæruliðar:
Lofa að hætta
árásum
frá Líbanon
Beirut 1. júlf — NTB.
PALISTlNSKIR skæruliðafor-
ingjar hafa tilkynnt stjórninni I
Beirut, að þeir muni binda endi á
allar árásir á Israel frá liban-
önsku landssvæði, að þvf er tvö
Ifbönsk blöð skýrðu frá f morgun.
Samkvæmt fréttum blaðanna til-
kynntu þrfr skæruliðaleiðtogar,
Takieddin Solh, forsætisráðherra
það á sunnudag.
Hefur palistfnska andspyrnu-
hreyfingin A1 Fatah lofaði að
hætta öllum aðgerðum gegn Israel
og stöðva ferðir skæruliða yfir
landamærin. Heimildir innan
stjórnarinnar f Beirut hafa lýst
undrun sinni yfir þessari ákvörð-
un, en hún kemur þrem dögum
áður en fundur utanríkis- og
varnarmálaráðherra Arabaland-
anna hefst á miðvikud., en á hon-
um átti að ræða aðgerðir gegn
frekari árásum Israel á Líbanon,
sem gerðar hafa verið f hefndar-
skyni við hryðjuverk skæruliða I
Israel.
meistaratitilinn eða afsala sér
honum. eins og hann hefur hótað.
Bandarfskir skákmenn mæltust
til þess á fundi sambandsins að
orðið yrði við kröfum Fischers, en
því var hafnað með yfirgnæfandi
meirihluta og þær reglur, sem
þegar hafa verið settar fyrir eín-
vígið 1975, staðfestar.
I fyrstu stóð til að gefa Fischer
90 daga frest til þess að ákveða
hvort hann ætlaði að standa við
yfirlýsingu sína frá því á föstudag
um að hann afsalaði sér heims-
meistaratitlinum en síðan var
fallið frá þessum tiltekna frestí f
von um að takast mætti að leysa
þennan ágreining á skemmri
tfma.
íslendingar
7. í B-riðli
önnur styrjöld brytist út og
öryggi og friður yrði tryggður
komandi kynslóðum.
Kissinger og Gromyko héldu
áfram, ásamt ráðgjöfum sínum,
tilraunum til að yfirvinna þær
mörgu hindranir á leiðinni til
varanlegs samkomulags á milli
Sovétríkjanna og Bandarfkjanna
um takmörkun á árásarvopnum.
Meðal fylgdarliðs Nixons er
ekki mikil bjartsýni um, að sam-
komulag náist um takmörkun
vopna á þessum fundi leiðtog-
anna. Eftir hinn 7 klst. langa fund
þeirra Nixons og Breznevs á
sunnudag virtist lftið hafa miðað í
málum varðandi SALT og varan-
legt samkomulag virðist langt
undan, að mati Bandarfkjamanna.
Rússar hafa hins vegar látið það
leka út, að leiðtogarnir hafi náð
einhvers konar samstöðu um,
hvaða mál eigi að leggja fyrir
SALT ráðstefnuna í Genf og
hvernig beri að haga málum, svo
að samningar náist fyrir áramót.
Nizza, 1. júlf AP.
BANDARlKIN unnu
Tekkóslóvakíu í síðustu
umferð Olympíumótsins í
skák og urðu því númer
þrjú í röðinni eftir Sovét-
ríkjunum og Júgóslavíu.
ísland og Frakkland gerðu
jafntefli f 15. og síðustu
umferð mótsins og lenti Is-
land í 7. sæti í B-riðli með
32 vinninga.
Helztu úrslit í A-riðli urðu
þessi: 1. Sovétríkin 46 v. 2.
Júgóslavía 37'Á v. 3. Bandaríkin
36H v. 4. Búlgarfa 36!4 v. 5. Hol-
land 35Á v. 6. Ungverjaland 35 v.
7. V-Þýzkaland 32 v. 8. Rúmenía
29W v. 9. Tekkóslóvakia 29'á v. 10.
England 26 v.
Helztu úrslit f B-riðli urðu
þessi: 1. Israel 40Ví v. 2. Austur-
ríki 38Ví v. 3. ítalía 38 v. 4.
Colombía 32H v. 5. Pólland 32 v.
6. Noregur 32 v. 7. Island 32 v. 8.
Danmörk 31 v. 9. Kanada 31 v. lft
Kúba 31 v.
Peron forseti
Argentínu látinn
Isabel kona hans tekur við
Buenos Aires 1. júli
AP, NTB.
JUAN Peron forseti Argentfnu
lézt f dag 78 ára að aldri. Það var
ekkja Perons og eftirmaður sem
forseti, Maria Estelle Peron, sem
tilkynnti það 1 stuttu úrvarps-
ávarpi.
Allar sjónvarps og útvarps-
stöðvar rufu þegar f stað dagskrár
sfnar til að útvarpa sorgarlögum.
Forsetinn lézt 1 forsetabústaðn-
um f útborginni Olivos, þar sem
hann hefur verið rúmfastur sfð-
ustu 2 vikur. Fyrir helgi hrakaði
heilsu hans svo, að hin 43 ára
gamla eiginkona hans tók við for-
setastörfum til bráðabirgða. Þar
með varð hún fyrsti kvenforseti
sögunnar.
I útvarpsávarpi sínu hvatti frú
Peron argentfnsku þjóðina til að
gleyma innbyrðis deilum og vær-
ingum og sameinast f sorg vegna
andláts forsetans.
Peron var einn sterkasti leið-
togi í Suður-Amerfku. Hann var
fyrst kjörinn forseti 1946, þrem
árum eftir að hann hafði átt þátt í
valdaráni hersins. 1955 var hon-
um steypt af stóli af hernum, en
slapp naumlega úr Iandi. I júnf
1973 snéri hann loks heim eftir 18
ár við mikinn fögnuð þjóðar sinn-
ar. I kosningum f marz vann hann
glæsilegan sigur og var kjörinn
forseti, en kona hans Estelle,
venjulega kölluð Isabel, var kosin
varaforseti. Þau hittust f Panama,
þar sem hún starfaði sem dans-
mær, gerðist einkaritari Perons
og síðar eiginkona. Margir hafa
efast um hæfileika hennar á sviði
stjórnmála, en henni hefur samt
sem áður tekizt að afla sér virð-
ingar sem stjórnmálamaður.
Juan Peron, hinn látni forseti
Argentfnu ásamt Isabel, eigin-
konu sinni og eftirmanni.