Morgunblaðið - 02.07.1974, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLI 1974
— Otvíræð
Framhald af hls. 2
ræða, að honum hafi tekizt að
skapa hættuástand hjá kjósend-
um þannig, að þeir hafa haldið
meiri tryggð við hann en við
áttum von á. Sá klofningur, sem
við vissum um, virðist ekki hafa
haft mikil áhrif, þegar í kjör-
klefann var komið. Þá hefur
það einnig reynzt svo, að frjáls-
lynda fylgið frá Birni hefur
frekar farið yfir til Alþýðu-
bandalagsins. .
Þetta hefur valdið mér tölu-
verðum vonbrigðum, en að
öðru leyti getur Sjálfstæðis-
flokkurinn unað sæmilega við
sinn hlut í kjördæminu. Hlut-
fallstala okkar hefur hækkað
og er hærri en hún hefur verið
um árabil."
Suðurland:
Aldrei betra
hlutfall
„Ég er mjög ánægður með
úrslitin, bæði í kjördæminu og
eins yfir heildina," sagði
Ingólfur Jónsson, efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi. „Við
höfum aukið okkar hlutfall í
báðum tilfellum, og það hefur
aldrei verið svona gott hjá
sjálfstæðismönnum á Suður-
landi. Við erum nú með 42,7%.
Skýringarnar á þessu fylgi
Sjálfstæðisflokksins hér sem á
öllu lapdinu eru auðvitað þær,
að fólk veit um þennan
aðsteðjandi efnahagsvanda,
það veit, hvað vinstri stjórnin
ætlaði að framkvæma f varnar-
málunum. Kjósendur I kjör-
dæminu er margir þeim ráð-
stöfunum mjög mótfallnir og
fólk treystir Sjálfstæðisflokkn-
um til að tryggja öryggi lands-
ins og takast á við vandann
sem framundan er.“
Ath. Þar sem ekki var
símasamband við
Blönduós í gær tókst
ekki að ná tali af Pálma
Jónssyni efsta manni á
lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra.
70 ára í dag
70 ára er f dag, 2. júlf, Þorlákur
Bernharðsson, Hátúni 10. Hann
verður að heiman f dag.
Týndi 20
þúsund krónum
UNGUR piltur týndi f gær 20
þúsund krónum á leið frá Laufás-
vegi upp Skólavörðustfg, Grettis-
götu og að Klapparstfg. Pening-
arnir voru fjórir fimm þúsund
króna seðlar, sem hann var með f
vasanum. Þetta tap er mjög baga-
legt fyrir piltinn, sem er 14 ára,
og eru þeir, sem kunna að hafa
fundið eitthvað af fénu, beðnir að
hafa samband við lögregluna.
31)
Frá afhendingu prófskírteina H.l. í Háskólabíói sl. Iaugardag.
„Sé það góðu heilli
gjört og vitað”
A LAUGARDAG fór fram f Há-
skólabfói afhending prófskfrteina
þeirra stúdenta, sem f vor luku
prófum frá Háskóla Islands — og
var við það tækifæri lýst kjöri
fjögurra heiðursdoktora við há-
skólann, rithöfundanna Gunnars
Gunnarssonar og Þórbergs
Þórðarsonar, fræðimannsins
sænska, Peters Hallbergs og
Steingrfms Jónssonar, rafmagns-
verkfræðings og fyrrverandi
rafmagnsstjóra. Við athöfnina
lék strengjakvintett undir stjórn
Þorvalds Steingrfmssonar ásamt
Carli Billich pfanóleikara.
Lokaprófi luku að þessu sinni
162 stúdentar og er það fjölmenn-
asti hópur til þessa, sem braut-
skráist f senn frá háskólanum.
Þeir skiptust þannig f deildir:
Guðfræðideild 4, Lagadeild 21,
Læknadeild 19, Lyfjarfæði lyfsala
3, Tannlæknadeild 6, Heimspeki-
deild 14, námsbraut í þjóðfélags-
fræðum 4, Viðskiptadeild 34 og
Verkfræði- og raunvfsindadeild
57, en þeir síðasttöldu skiptust
þannig, að 37 tóku próf f ýmsum
raungreinum en 20 tóku lokapróf
í verkfræði og er það fyrsti hópur-
inn, sem lýkur því prófi sam-
kvæmt reglugerð, er sett var þar
að lútandi árið 1970. Próf í raun-
greinum skiptust svo, að 5 höfðu
stærðfræði sem aðalgrein, eðlis-
fræði 2, efnafræði 7 líffræði 13,
jarðfræði 6, jarðeðlisfræði 1 (og
var fyrsti stúdentinn, sem útskrif-
ast í þeirri grein frá H. I.) og
landafræði 3.
kærleika." Rektor kvað hilla und-
ir nokkrar nýjar námsbrautir í
skólanum á sviði heilbrigðismála,
svo sem í hjúkrunarfræðum,
sjúkraþjálfun meinatækni,
félagsráðgjöf o.fl., og aðrar vera á
umræðustigi m.a. námsbraut fyrir
starfsfólk í matvælafræði, endur-
skoðun, fjölmiðlun o.fl. en
nauðsynlegt væri að skapa góða
aðstöðu til rannsókna og kennslu
áður en nemendum væri stefnt
inn á nýjar brautir, ella mætti
vænta vonbrigða. Rektor minnti
og á, að þjóðfélagið þarfnaðist
fleira en háskólagenginna manna
og kvað hættulegt, ef það yrði
útbreidd skoðun, að háskólapróf
væri eini lykillinn að lífs-
hamingju manna.
Þegar prófskírteini höfðu verið
afhent, var lýst kjöri heiðursdokt-
ora. Forseti heimspekideildar,
prófessor Sigurjón Björnsson,
skýrði frá þeirri ákvörðun sem
deildin hefði tekið á fundi sínum
8. marz sl. að sæma rithöfundana
Þórberg Þórðarson og Gunnar
Gunnarsson heiðursnafnbótinni
„doctor litterarum islandicarum
Margrét Jónsdóttir tekur við heiðursskjali fyrir mann
sinn heiðursdoktor Þórberg Þórðarson, rithöfund.
Lýst kjöri
heiðurs-
doktora við
Háskóla
r
Islands
og próf-
skírteini
afhent
honoris causa“ og hinn kunna
fræðimann dr. Peter Hallberg,
lektor við háskólann í Gautaborg,
heiðursnafnbótinni „doctor philo-
sophiae honoris causa“. Gerði pró-
fessor Sigurjón örstutta grein fyr-
ir ferli þeirra hvers um sig og
afhenti heiðursskjöl deildarinnar
til staðfestingar — með orðtakinu
„Sé það góðu heilli gjört og vit-
að". Af heilsufarsástæðum gat
Þórbergur Þórðarson ekki tekið
við heiðursskjali sínu og gerði
kona hans, Margrét Jónsdóttir,
það fyrir hann.
Þá skýrði forseti verk-
fræðideildar, Guðmundur Björns-
son, prófessor, frá því, að deildin
hefði á fundi sínum 11. júní sl.
samþykkt að sæma Steingrím
Jónsson fyrrum rafmagnsstióra,
heiðursnafnbótinni doctor
technicae honoris causa" og sam-
þykktin verið staðfest 18. júní sl.
á 84 ára afmæli Steingríms. Gerði
Guðmujjdur stutta grein fyrir
starfsferli hans og afhenti honum
síðan heiðursskjalið með sömu
orðum og áður voru viðhöfð.
Háskólarektor gat þess f ávarpi
sínu til kandidata og annarra við-
staddra, að á síðastliðnu hausti
hefðu 57 stúdentar lokið prófi og í
febrúar sl. 44, þannig, að alls
hefðu 263 tekið lokapróf á einu
ári. Hann kvaðst vænta þess, að
um 1000 nýir stúdentar innrituð-
ust f háskólann nú á næstunni og
gæfi hin öra fjölgun stúdenta í
háskólanum tilefni til, að Islend-
ingar spyrðu sig tveggja mikils-
verðra spurninga, annarsvegar
hvort háskólinn væri undir það
búinn að veita öllu þessu fólki
skammlausar viðtökur og hins-
vegar, hvort þessi braut væri öll-
um til góðs, sem út á hana legðu.
„Ég tel þessar spurningar
umhugsunarvirði fyrir þá, sem
stýra menntamálum og stjórna
skólum, sagði rektor, og ekki síð-
ur fyrir þá, sem eru að búa sig
undir lffið með námi í skólum,
fyrir foreldra, sem vilja leiða
börn sfn til lffshamingju og fyrir
þá, sem leggja skattpeninga til
samneyzlu þjóðarinnar... Það
hlýtur að vera mikils um vert, að
við getum verið sannfærð um, að
skólinn geri þeim, sem hann
sækja, eitthvert gagn og skili
þjóðinni, sem hefur fóstrað þá,
verðmætum f mannviti og mann-
Heiðursdoktorarnir Peter Hallberg, Gunnar Gunnarsson rithöfundur og Stein-
grímur Jónsson. Milli þeirra síðarnefndu tveggja situr frú Margrét Jónsdóttir,
eiginkona dr. Þórbergs Þórðarsonar, rithöfundar.