Morgunblaðið - 03.12.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974
5
GuSlaugur GuSmundsson,
höfundur Reynistaðarbræðra
Enginn má undan líta
MORÐMÁLIN Í HÚNAÞINGI — sagnfræSilegt skáld-
rit, sem varpar nýju ijósi á aSdraganda þeirra og
afleiSingar.
Höfundur leiðir lesendur sína af mikilli fimi og
mannlegri innsýn inn í atburðarásina, svo þeir
finna hjartslátt fólksins og tíðarandann, og
hann kollvarpar þjóðsögunni um örlög fang-
anna sem fluttir voru til Kaupmannahafnar.
Magellan
og fyrsta hnattsiglingin
eftir lan Cameron, þýSandi: Kristín Thorlacius.
Rifstjóri: Sir Vivian Fuchs.
Umsjón á fslandi: Örnólfur Thorlacius.
Þetta er upphaf stórmerks bókaflokks um
frömuði landafunda, afrek þeirra og tímabil.
Magellan sigldi fyrstur manna umhverfis jörð-
ina og er hnatttferð hans talin til stórafreka
mannkynssögunnar. Bók þessi er ríkulega
skreytt litmyndum. Ritstjórjnn er einn þekktasti
landkönnuður Breta á okkar dögum.
Blærinn í laufi
eftir Einar frá Hergilsey.
Fyrsta bók Einars frá Hergilsey, „Meðan jörð-
in grær“ varð í 15.—16. sæti frumsamdra og
endurprentaðra íslenskra bóka ársins 1972,
sem mest voru keyptar í almenningsbókasöfn.
Sviptibyljir mannlegra ástríðna og hin sterka
taug átthaga- og æskuástar er undiralda hins
nýja og rammíslenska skáldverks.
Allir eru ógiftir í verinu
eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk.
Þetta er þriðja bók hinnar ungu skáldkonu.
Hinar tvær ,,Næturstaður“ og „Ráðskona ósk-
ast í sveit“ vöktu strax verðskuldaða athygli
og þessi gefur þeim ekkert eftir. Hún lýsir á
raunsæjan, en þó rómantískan hátt, frystihúsa-
og verbúðalífinu og gæti skeð í hvaða verstöð
sem er.
Dr. Jóna»
Kristjansflon
foratöOu maður Ámasafna
fylgir hðfunrii tir hlaöí
Skýrt
og skorinort
Helgi a HrafnkelBstööum ræöir
umbúöalaust um menn og1 málefní
Skýrt og skorinort
Helgi á Hrafnkelsstöðum ræSir umbúSalaust um
menn og málefni.
Dr. Jónas Kristjánsson, forstöSumaSur Árnasafns
fylgir höfundi úr hlaði.
Þeir munu fáir íslendingar, sem ekki hafa heyrt
getið Hrafnkelsstaðabóndans. Hann vekur hvar-
vetna athygli og á fræði hans er hlustað,
innanlands sem utan. Það leiðist engum lest-
urinn, sem hefur bók Helga í höndunum. Helgi
segir ætíð umbúðalaust sína meiningu, hvort
sem hann ræðir menn eða málefni.
Þrautgóðir á raunastund
börgunar- og sjóslysasaga íslands, sjötta bindi,
eftir Loft GuSmundsson.
Bókin hefst á hinu sögufræga brúðarráni séra
Odds V. Gíslasonar og er fjörlega skrifuð bók
um þrjá mannlega og framsýna forystumenn,
sem hófu merki björgunar- og slysavarna á
íslandi, þá séra Odd V. Gíslason, Sigurð Sig-
urðsson frá Arnarholti og Jón E. Bergsveins-
son erindreka SVFÍ.
ÞórSur Halldórsson frá Dagverðará:
Náttúran er söm við sig
undir Jökli
Loftur GuSmundsson færði i letur.
Ragnar Kjartansson myndskreytti.
Það er aðeins til einn Þórður frá Dagverðará
og það sannast í annarri bók refaskyttunnar,
listmálarans, skáldsins og sagnaþulsins, að
bæði hann og náttúran undir Jökli eru söm
við sig. Þórður er ekki einhamur I lýsingum
sínum á mönnum og mannlegri náttúru, né
þeirri yfirnáttúrulegu, og bók sem þessi verður
aldrei aftur skrifuð.
® undirjökli
Jeffrey Furst:
Jesús Kristur í
dálestrum Edgars Cayce
Þetta er fjórða bók Edgars Cayce, en hann
er einn athyglisverðasti miðill, sem uppi hefur
verið. Hann var gæddur undramætti til lækn-
inga og hæfileikum til þess að sjá bæði aftur
og fram í tfmann. Hin nýja bók sýnir lesand-
anum tíma Meistarans frá Nasaret, eins og
þeir birtust Cayce í sýnum í dáinu.
s
s
3
3
m
&
Ö
Gersemar
guðanna
ERICH
VON
DANIKEN
Gersemar guðanna
Nýjar sannanir fyrir því ósannanlega eftir Erich von
Daniken.
Dagur Þorleifsson þýddi.
Þriðja bók Erich von Dániken flytur eins og
fyrri bækur þessa djarfa fornleifafræðings og
söguskýranda, nýjar sannanir fyrir því ósann-
anlega og hann fer hvergi troðnar slóðir, eag-
inn sem lesið hefur þessar bækur lítur verald-
arsöguna sömu augum og áður. Kenningar
Dánikens og dr. Helga Pjeturs koma að mörgu
leyti heim og saman.
Návígi á norðurhjara
Fjóröa bók Colins Forbes.
Þýðandi: Bjöm Jónsson.
Návígi á norðurhjara er ein magnaðasta ævin-
týraskáldsaga sem borin hefur verið á borð
kröfuharðra lesenda á síðustu árum. Sagan
skeður mestmegnis í Grænlandsísnum. Hramm-
ur kalda stríðsins kemur af stað blóðugum
átökum þar norður frá, en bakgrunnur átak-
anna er skákeinvígið á íslandi.
m GÖÐ BÓK ER GÓD GJÖF
WW Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Sími: 25722