Morgunblaðið - 03.12.1974, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974
Valur vann Snæfell 94—83
VALUR sigraói Snæfell á sunnu-
dagskvöldið með 94 stigum gegn
83. Mun minni sigur en maður
hefði getað reiknað með fyrir-
fram, en Snæfellsliðinu virðist
fara talsvert fram þessa dagana.
Leikmenn liðsins eru orðnir virk-
ari en áður, ekki byggist lengur
allt upp í kringum Einar Sigfús-
son. En það voru ekki nema f jórir
leikmenn, sem skoruðu fyrir
liðið í þessum leik, nokkuð sem
er ekki alveg nógu gott. — Vals-
liðið virðist mér mjög svipað og
áður, lið, sem getur unnið hvaða
lið sem er, en dettur niður þess á
milli.
Snæfell hafði forustuna í leikn-
um framan af og komst t.d. í 13:6
og síðar í 29:19. En Valsmenn áttu
góða kafla s.h. hálfleiksins og
voru komnir yfir í hléinu 43:36.
í byrjun s.h. komst Valur svo í
63:48, en Snæfell skoraði þá 14:2
og munurinn var kominn niður í 3
stig 65:62. En Valsmenn voru
greinilega með betra úthald, og
það fór að koma fyrir oftar og
oftar að maður á mann vörnin,
sem liðið lék allan völlinn, næði
boltanum af Snæfelli á þeirra eig-
in vallarhelmingi og skoraði.
Hafsteinn Hafsteinsson kom
talsvert mikið við sögu í þessum
leik, og háði marga harða baráttu
við miðherja Snæfells undir kröf-
unum. Komst hann allvel frá
þeim viðureignum og virðist vera
að koma mikið til. Annars voru
það þeir bræður Þórir og
Jóhannes, sem mest bar á, en
Torfi lék lítið með vegna meiðsla.
Þeir f jórir, sem skoruðu öll stig
Snæfells í leiknum, bera liðið
uppi, en þeir Bjartmar og Davíð
eru orðnir vel liðtækir.
Stighæstir: Valur: Þórir 24,
Hafsteinn 19, Kári Marísson 20,
Jóhannes 13.
Snæfell: Einar Sigfússon 27,
Kristján Ágústsson 26, Sigurður
Hjörleifsson 18 og Þórður Njáls-
son 12.
IR vann HSK
Leikið á
fímmtudag
N.K. FIMMTUDAGSKVÖLD
leika KR-ingar seinni leik sinn í
Evrópubikarkeppninni í körfu-
knattleik við austurriska liðið
UBSC. Sem kunnugt er fengu KR-
ingar hina verstu útreið f leik sfn-
um í Austurrfki, töpuðu með 98
stiga mun 132—34. Ber KRingun-
um saman um, að þeir hafi aldrei
séð eins snjalla körfuknattleiks-
menn og skipa þetta austurrfska
lið, en í því eru tveir Bandarfkja-
menn. Má til gamans geta þess, að
lágvaxnasti maður liðsins 1,91
metrar að hæð, en sá stærsti er
2,14 metrar. Meðalhæð liðsins er
2,00 metrar, og því sjálfsagt nokk-
uð til f þvf, sem KR-ingarnir
sögðu, — að austurrfska liðið
hefði leikið á næstu hæð fyrir
ofan þá.
Dómarar leiksins verða frá Hol-
landi og Skotlandi og eru KRing-
ar mjög óánægðir með þá ráðstöf-
un, þar sem hún felur f sér mik-
inn kostnaðarauka fyrir þá.
iR-ingar eru enn eina ósigraða
liðið í 1. deildarkeppninni. Þeir
léku um helgina við HSK og sigr-
uðu auðveldlega f þeirri viður-
eign. Kom fyrir ekki þótt þeir
Skarphéðinsmenn mættu til
leiksins með Anton Bjarnason,
því þrátt fyrir góðan leik hans gat
IR Ieyft sér að nota „vindlana"
langtímum saman. Þeir héldu
alveg í við HSK, og vel það.
Virðast þeir bara koma vel út
þegar þeir fá tækifæri, t.d. Ásgeir
Guðmundsson og Sigurbergur
Bjarnason, sem báðir áttu að
mörgu leyti góðan leik.
Sökum yfirburða IR var þessi
leikur aldrei skemmtilegur á að
horfa. IR náði strax í byrjun 29:13
forustuna, en Anton, sem kom þá
inn á, sá um að halda i við IR fram
að hálfleik en þá var staðan 47:32
ÍR i vil.
Sigur IR var svo aldrei i hættu í
seinni hálfleik og lokatölur urðu
84 stig ÍR gegn 68 stigum HSK. —
ÍR-liðið virðist vera í mjög góðri
æfingu þessa dagana, og er leikur
liðsins á allan hátt þannig, að liðið
verðskuldar að vera I efsta sætinu
— ennþá að minnsta kosti.
Það er ekki að efa, að koma
Antons Bjarnasonar i HSK-liðió á
eftir að verða því mikill styrkur,
þ.e.a.s. ef hann verður meira not-
aður en í þessum leik. Hann sat
langtimum saman á varamanna-
bekk, sennilega upp undir helm-
ing leiktímans. Þegar hann verð-
ur kominn inn í liðið á fullu getur
hann e.t.v. orðið sá neisti, sem
vantar óneitanlega í liðið, og gæti
bjargað því frá falli.
Stighæstir hjá IR: Kristinn
Jörundsson 25, Agnar Friðriksson
19, Jón Jörundsson og Ásgeir
Guðmundsson 8 hvor.
HSK: Anton Bjarnason 21,
Birkir Þorkelsson 13, Gunnar
Jóakimsson8.
UMFN
ÞEIR ERU erfiöir heim að
sækja körfuknattleiks-
mennirnir í Njarðvík, og
um helgina fengu Vals-
menn að kynnast þvf.
Leikurinn fór nefnilega
þannig, að Njarðvík
sigraði með 88 stigum
gegn 79, og er þetta annar
leikurinn af þremur, sem
liðið vinnur á heimavelli.
Það sannaðist í þessum leik, að
maður kemur í manns stað, því nú
þegar Stefán Bjarkason var ekki
upp á sitt bezta, auk þess sem
hann var í villuvandræðum og
varð að yfirgefa völlinn þegar
skammt var liðið á síðari hálfleik,
kom Gunnar Þorvarðsson, lands-
liðsmaðurinn í Njarðvíkurliðinu,
í staðinn með mjög góðum leik i
vörn og sókn. Var Gunnar maður-
inn bak við sigur UMFN öðrum
ÍR-KR 34-29
EINN leikur var leikinn í m.fl.
kvenna I íslandsmótinu um helgina,
leikur KR og ÍR. ÍR, sem verið hefur
ósigrandi I þessum flokki um árabil,
fékk nú loksins verulega keppni, og
máttu ÍR-ingar þakka það leik-
reynslu sinni, að sigur vannst r þess-
um leik. KR var nefnilega yfir nær
allan leikinn og hafði fimm stiga
forustu þegar þrjár min. voru til
leiksloka 29:24. Og i leik, sem ekki
er skorað meira en þetta, hefði þetta
átt að nægja KR. En hinar keppnis-
vönu ÍR stúlkur skoruðu 10 stig
lokakaflann á meðan KR stúlkurnar
virtust vera að hrynja vegna tauga-
álags.
Langmest bar á þeim Friðnýju
Jóhannsdóttur og Linu Gunnars-
dóttur i liði ÍR i þessum leik, og þær
skoruðu 9 stig hvor.
Emilia Sigurðardóttir var langbezt
KR stúlknanna og skoraði 11 stig. I
lið KR vantaði hina hávöxnu
Guðrúnu Sigurþórsdóttur, og vant-
aði hana illilega eftir að Katrín Axels-
dóttir miðherji KR fékk 5. villuna.
Eftir það réðu ÍR-ingar öllu undir
körfunum.
r
I
körfunni
ÞEGAR menn fréttu úrslit í
leik Islandsmeistara KR gegn
meisturunum frá Austurrlki
varð mörgum skiljanlega illa
við. Hvað er um að vera? sögðu
margir, er þetta geta ísl. körfu-
knattleiksmanna á alþjóðavett-
vangi í dag? Og var nema von
að spurningar vöknuðu.
Því er hinsvegar til að svara,
að leikir ísl. félagsliða við
félagslið í Evrópu gefa ekki
rétta mynd af stöðu okkar gagn-
vart þeim þjóðum nema að
mjög takmörkuðu leyti. Það
eru mörg ár sfðan það varð
opinbert leyndarmál, að körfu-
knattleikur f flestum löndum
Evrópu er byggður upp á því að
fá körfuknattleiksmenn frá
öðrum löndum, (aðallega
Bandaríkjunum) og fyrir
þeirra tilstilli aðallega nær
íþróttin vinsældum í viðkom-
andi landi. Þetta er sfðan viður-
kennd aðferð við að afla körfu-
knattleiknum vinsælda, því
þeir leikmenn frá Banda-
ríkjunum, sem gefa kost á sér
til keppni f Evrópu, eru geysi-
lega snjallir, og svo auk þess að
leika sjálfir, þá taka þeir að sér
þjálfun yngri leikmanna fé-
lagsliðanna. £g, sem þessar
línur rita, hefði sjálfur f haust
getað útvegað þeim félags-
liðum hérlendis, sem áhuga
hefðu haft og tækifæri, leik-
menn frá Bandaríkjunum, sem
hér vildu setjast að til lengri
eða skemmri tíma, og sumir
þeirra vildu taka að sér þjálfun
yngri flokka. Var mikið talað
um f þessu sambandi að komast
f samband við lið, sem færu f
Evrópukeppni. Þegar ég tjáði
umræddum aðiljum, að slfkt
væri ekki samkvæmt þeim
lögum, sem fþróttir færu eftir
hérlendis, varð undrunin
rnikil. „Borgið þið leikmönnum
liðanna virkilega ekki einu
sinni vinnutap?" var spurt með
undrunarhreim.
— Sannleikur málsins er
hinsvegar sá f dag, og ég hef séð
talsvert af körfuknattleik f
Evrópu undanfarin ár og þekki
allvel til vfða, að ég kem ekki
fyrir mig f svipinn nema 3
löndum f Evrópu þar sem ekki
er horft framhjá ströngustu
áhugamannaregium til upp-
gangs körfuknattleik. Það er f
Noregi, Irlandi og á Islandi. —
Á Irlandi er það hinsvegar
þannig, að stórfyrirtæki styðja
við bakið á íþróttunum með
auglýsingum og telja sér hag
að. — Fyrir u.þ.b. 10 árum
lékum við unglingalandsleik
við England. Við unnum þann
leik auðveldlega, og enskir
viðurkenndu, að við stæðum
þeim mun framar f fþróttinni.
En hvað hefur gerzt síðan? Við
hjökkum f sama farinu á
meðan þeir í Englandi flytja
inn körfuknattleiksmenn frá
Bandarfkjunum og deila þeim
á félagsliðin. Þeir ganga svo
langt að gefa þeim við komuna
til Englands „1. stk. vegabréf"
svo þeir geti notað krafta
þeirra f landsliði sfnu. — Því
fer fjarri, að ég mæli með
slíku, og við gátum stoltir sagt
við Englendinga f haust þegar
við töpuðum fyrir þeim, að við
hefðum f raun og veru tapað
fyrir U.S.A. og það væri engin
skömm að þvf.
Fleiri dæmi gæti ég nefnt
hér, en þess gerist ekki þörf,
okkar vandamál er nefnilega
ekki hvað þessi eða hin þjóðin
gerir til eflingar körfuknatt
leiknum í heimalandi sfnu.
Framhald á bls. 27.
Hafsteinn Hafsteinsson og Einar Sigfússon f baráttu undir körf-
unni, en Jóhannes Magnússon fylgist með framvindu mála.
lagði
fremur. Annars lék UMFN liðið
þennan leik mjög vel þegar litið
er á heildina, gagnstætt því, sem
var hjá Val. Torfi Magnússon lék
ekki þennan leik með Val vegna
meiðsla, og virtist það koma illa
við liðið. En lið með annað eins
mannaval og Valur ætti þó ekki
að setja mikið niður þótt einn
leikmann vanti, og það þótt um
góðan leikmann eins og Torfa sé
að ræða. En að mínu mati var það
bara sterkara liðið, sem sigraði í
þessari viðureign.
Leikurinn var mjög jafn í
byrjun, UMFN komst í 6:2 en
Valsmenn jöfnuðu, síðan komst
UMFN yfir aftur 14:9 en Valur
minnkaði muninn í 13:14. Upp úr
þessu fóru Njarðvíkingarnir að
síga framúr, og höfðu 9 stiga for-
ustu í háifleik 43:34.
Byrjunin í s.h. var einnig mjög
góð hjá UMFN, þvi á fyrstu 6 mín.
hálfleiksins náðu þeir 18 stiga
forustu 62:46. En upp úr þessu
fór að síga á ógæfuhliðina fyrir
UMFN, leikmenn liðsins fóru að
tínast af velli með 5 villur, fyrst
Stefán Bjarkason, siðan Sigurður
Hafsteinsson, þá Einar Guð-
mundsson en þessir þrír eru allir
Val
í byrjunarliði UMFN. Svo þegar
sá fjórði fékk reisupassann um
miðjan hálfleikinn virtist útlitið
svart hjá liðinu. En þeir Gunnar
Þorvarðsson og Haukur Guð-
mundsson voru mjög góðir loka-
kaflann og sáu um að hala sigur-
inn í land. Valsmenn náðu að
minnka muninn i 8 stig fjórum
min. fyrir leikslok, 72:80, en
lokatölur urðu 11 stiga sigur
Njarðvikur 88:79 og þeir fögnuðu
mikið i lokin.
A eitt atriði væri ekki úr vegi
að minnast hér, en það er fram-
koma sumra áhorfenda í Njarð-
vik. Flestir þeirra yngri virðast
haga sér allvel, en sumir hinna
eldri eru vægast sagt mjög dóna-
legir gagnvart aðkomuliðinu og
sérstaklega dómurum. Það er allt
lagi að áhorfendur láti í ljós álit
sitt á dómurum leikjanna, en
dónaskapur hinna eldri þegar
þeir gera það er slæm fyrirmynd.
Stigahæstir: UMFN: Gunnar
27, Brynjar Sigmundsson 18,
EinarGuðmundsson 14.
Valur: Þórir Magnússon 24,
Kári Marísson 15, Jóhannes
Magnússon 13.
STAÐAN
f R 5 5 0 423:373 10 Kolbeinn Pálsson KR 18:12 = 67%
KR 4 3 1 384:320 6 Jón Jörundsson f R 16:11 = 63%
Armann 5 3 2 398:372 6 Jón Sigurðsson Ármanni 23:14 = 61%
UMFN 5 3 2 397:389 6 Sfmon Olafsson Ármanni 30:18 = 60%
Valur 6 3 3 520:505 6
fs 4 2 2 295:289 4 BROTTVlSUN AF VELLI <5 VILLUR).
Snæfell 6 1 5 389:469 2 HSK 0
HSK 5 0 5 332:421 0 fR 1
fs 1
ÞEIR, SEM IIAFA SKORAO YFIR 100 STIG: Snæfell 5
Einar Sigfússon Snæf., 119 Ármann 7
Kristján Ágústsson Snæf., 118 Valur 8
Þórir Magnússon Val 114 KR 8
. Stefán Bjarkason UMFN 112 UMFN 9
# Kristinn Jörundsson IR 111
Kári Marfsson Val 108 VILLUR DÆMDAR A LIÐIN:
Jón Sigurðsson Ármanni 108 fs 72
Agnar Friðriksson f R 101 IISK 92
fR 94
BEZT VÍTASKOTANVTINC (15 SKOTEDA KR 109
FLEIRI TEKIN): Snæfell 113
Ingi Stefánsson ÍS 20:15 = 75% UMFN 122
Kristinn Jörundsson ÍR 30:21 = 70% Ármann 139
Stefán Bjarkason UMFN 18:12 = 67% Valur 147