Morgunblaðið - 03.12.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.12.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974 TDsgr THE OBSERVER Eftir Walter Schwarz Matvœlmðstoð fer minnkandi SAMÞYKKTIR alþjóða mat- vælaráðstefnunnar í Róm um miðjan nóvember þóttu ekki ýkja fréttnæmar á hungur- svæðum Suður- og Suðaust- ur-Asíu. Ekki var heldur búizt við merkum áföngum þaðan. Undanfarið ár hafa íbúar Ind- lands og Bangladesh komizt að raun um að þótt hungurs- neyð herji, geti þeir ekki lengur átt von á þeirri miklu og skjótu aðstoð, sem þeir áður voru vanir að bærist. Þessi augljósi samdráttur i hjálparstarfinu nær ekki ein- ungis til opinberrar aðstoðar, heldur einnig til aðstoðar einkasamtaka, sem standa fyrir almennum söfnunum. Mismunurinn á hjálparstarf- inu í ár og i fyrra er gifurleg- ur. í fyrra var ég á þurrka- svæðunum i Maharashtra- héraði á Indlandi. íbúarnir liðu af matarskorti, en eng- inn dó hungurdauða Allskon- ar aðstoð streymdi að. Ind- landsstjórn kostaði fjölda hjálparbúða, svo til i hverju þorpi, þar sem allir gátu fengið vinnu og notað launin til nauðsynlegustu matar- kaupa. Allsstaðar virtust hjálparstofnanirnar að störf- um, við matargjafir til barna, rekstur læknamiðstöðva, og við dreifingu fatnaðar og teppa. í ár er þessu allt öðru- vísi farið. Eftir hungurdauða tugþúsunda á undanförnum mánuðum hafa yfirvöld á Indlandi og i Bangladesh nú komið á fót nokkrum al- menningseldhúsum, og þeir sem þangað leita geta fengið ókeypis skammt af mjöl- graut. En bæði í Vestur- Bengal á Indlandi og í Rangpur í Bangladesh eru þessir skammtar of fáir og of seint á ferð. Þá ber lítið á þeirri umframaðstoð, sem einkasamtökin héldu uppi áður fyrr. Allsstaðar er þörfin mest fyrir barnamat. Bitnar það verst á ungum börnum, sem eru of gömul til að þrif- ast af móðurmjólkinni, en of ung til að melta mjölgraut- inn. Margar ástæður eru fyrir samdrættinum í aðstoðinni. Um allan heim er skortur á kornvöru, og efnahags- kreppa er allsstaðar að gera vart við sig. Á Vesturlöndum gætir mikillar óánægju yfir framkvæmd hjálparstarfsins á neyðarsvæðunum. Á þessi óánægja nokkurn rétt á sér. Fólk af öllum stéttum, opin- berir starfsmenn, verzlunar- menn og hungraðir bændur, kvarta yfir spillingu, aðallega i Bangladesh. Opinber starfs- maður í Rangpur hvíslaði því að mér að hann væri sann- færður um að aðeins brot af þeim matvælum, sem send væru frá Dacca, kæmust til skila í héraði hans. Trúnaðartraust Bangla- desh náði algjöru lágmarki fyrir nokkrum mánuðum. Tony Hagan, fyrrum stjórn- andi hjálparstarfs Sameinuðu bjóðanna í Dacca, sagði í sKýrslu um starfið að aðeins ein dós af hverjum sjö af barnamat og aðeins eitt teppi af hverjum 13, sem gefin væru til hjálpar, kæmust í réttar hendur. Hitt, sagði Hagan, lendir allt í höndum svarta-markaðs braskara. Af þessum sökum var um- heimurinn tregur til að taka við sér þegar Bangladesh sendi út hjálparbeiðni vegna mikilla flóða fyrr á þessu ári. Grunur hafði fallið á helztu hjálparsamtök landsins, Rauða krossinn, þarsem yfir- maður samtakanna — valdamikill stjórnmálamaður — var þekktur fyrir spillingu. Ekkert var verið að fela Rauða kross teppin, sem seld voru á opnum mörkuðum. Spillingin er ekki takmörk- uð við hjálparstarfið. Öllu áhrifaríkara er það mikla smygl, sem stundað er og hefur leitt til þess að rlflega milljón tonn af hrísgrjóna- uppskeru landsmanna hverfa árlega yfir landamærin til Indlands. Þessi miklu við- skipti gætu aldrei þrifizt án þegjandi samþykkis yfir- valda. Á þá að gefa Bangladesh upp á bátinn sem botnlausa hít fyrir alþjóðahjálp? Nei, alls ekki. Mujibur Rahman, fursta og forsætisráðherra, er fullkunnugt um þetta vanda- mál. Hann hefur þegar gert ráðstafanir til að vinna bug á því, og fleiri ráðstafanir eru á döfinni. Rauði krossinn í Bangladesh er loks orðinn virkur, og virðist yfirmaður samtakanna hafa tekið að- vörunum. Hernum hefur ver- ið fyrirskipað að beita sér gegn smygli og matvæla- söfnun einstaklinga. Einnig bendir allt til þess að Mujib ætli sér að auka mjög völd sín. Má segja að það séu slæmar fréttir fyrir lýðræðis- kenninguna, en það dregur úr áhrifum þeirra stjórnmála- manna og þingmanna, sem notað hafa völd sín í þágu spillingaraflanna. Varðandi smyglið þá ber að benda á að landamæri Bangladesh eru allt of löng til að unnt sé að gæta þeirra sem skyldi. [ borgarastyrjöld- inni 1971 reyndist her Pakistans ókleift að hindra ferðir skæruliðasveita yfir landamærin. Eina svarið við smyglinu er efnahagsaðgerð- ir, en ekki stjórnmálaaðgerð- ir. Það verður að auka mat- vælaræktunina í Bangladesh og fella gengið svo hagnað- urinn af smyglinu verði minni. 7 Bólstrun Tek bólstruð húsgönþ, i klæðn- ingu. Fast verðtilboð, ef óskað er. Bólstv. Bjarna G uðmundssonar, Laugarnesvegi 52, sími 32023. Brotamálmar Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27 Simi 25891. Iðnaðarhusnæði óskast til leigu ca. 1 00 fm. helst i austurbæ eða austurbæ Kópa- vogs, þarf að vera jarðhæð. Tilboð sendist Mbl. merkt Iðnaðarhús- næði 4645. Bókhaldsþjónusta Viðskiptaskrifstofan, Austurstræti 10, 5. h. Sími 1 3995. Er vaskurinn stílfaður? Tek stiflur úr handlaugum, baðkör- um, eldhúsvöskum og niðurföll- um. • Baldur Kristiansen pipulagningameistari. Simi 19131. Grindavík Til sölu nýlegt einbýlishús 137 fm, ásamt bilskúr. Skipti á 110—120 fm íbúð i Reykjavik eða Kópavogi æskileg. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Keflavik, simar 1 263 og 2890. íbúð óskast óska eftir 4ra—5 herb. ibúð í Hafnarfirði til leigu fyrir barnlaus bandarísk hjón. Uppl. i sima 52808. Garðahreppur — Kópavogur Get bætt við mig klæðningum á bólstruðum húsgögnum fyrir jól. Bólstrun Sveins Halldórssonar, Skógarlundi 1 T, Gh. s. 43905. Geymið auglýsinguna. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni i stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustöðin h.f., simi 33603. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni i stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustöðin hf., simi 33603. Sandgerði Til sölu einbýlishús og góðar hæð- ir i tvibýlishúsi. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik, sími 92-3222. Eignarlóð — Mosfellssveit 1 200 fm eignarlóð á einum feg- ursta stað sveitarinnar undir ein- býlishús til sölu. Lysthafendur vinsamlegast sendið tilboð til Mbl. merkt: Glæsilegt útsýni 4648. Keflavik Til sölu vandað parhús, 5 svefn- herb. og stofa. Bilskúr fylgir. Laus fljótlega Fasteignasalan Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavik, símar 1 263 og 2890. ^ÞEIR RUHR viflsmPTin seri RUCLVSRI JT JflorguuMaímtu Rowenfa. Klukkur (EU 02). Ganga fyrir rafhlöðu. Ljós á skifu kviknar þegar tekið er á henni. ___________________/ Hemlavarahlutir í bifreiðir Eigum fyrirliggjandi hemlaklossa fyrir diska- hemla á flestar gerðir bifreiða. Svo sem: amerískar, enskar, þýzkar, sænskar, ítalskar, japanskar, rússneskar (Lada), ásamt ýmsum öðrum varahlutum í helmakerfi. Sérgrein okkar er hemlaþjónusta. Stilling h. f ., Skeifan 11, sími 31340 og 82 740.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.