Morgunblaðið - 31.01.1975, Síða 1
36 SIÐUR
25. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 31. JANUAR 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Útifundirnir bann-
aðir af yfirvöldum
Lissabon 30. janúar — Reuter.
PORTtJGALSKI herinn til-
kynnti í dag kommúnist-
um og sósíalistum að þeir
fengju ekki að halda ráð-
Norskir sjómenn:
Stærri skip
innan íslenzku
50 mílnanna
Þrándheimi 30. janúar
— NTB.
NORSKA sjómannasambandið
telur að takmarkaður fjöldi
norskra veiðiskipa stærri en
125 fet eigi að fá veiðiheimild
innan fslenzku 50 mflna mark-
anna. Fer sambandið þess á
leit við norsk stjórnvöld, að
þau ræði þetta mál við tslend-
inga til að fá undantekningu
frá núgildandi reglum. Sam-
kvæmt þeim hafa um 45 lfnu-
bátar innan við 125 fet leyfi til
veiða innan markanna, og sam-
komulag er um, að ekki fleiri
en 30 bátar séu á miðunum
samtfmis. Arið 1974 var sam-
tals 31 skip, sem sótti um og
Framhald á bls. 22
gerða útifundi sína á
morgun, föstudag, en báðir
flokkarnir höfðu ætlað að
koma saman á næstum því
sama stað og sama tíma til
að minnast uppreisnarinn-
ar gegn konungsveldinu
1891.
1 yfirlýsingu hersins segir, að
þessir útifundir væru f andstöðu
við tilraunir stjórnvalda til að
beina landinu f lýðræðisátt.
Óttazt var, að útifundir flokkanna
tveggja leiddu til árekstra milli
stuðningsmanna þeirra. Hins veg-
ar hefur Maóistaflokkurinn enn f
hyggju að halda sinn fund I trássi
við bönn stjórnvalda.
Bæði kommúnistar og
sósíalistar eiga sem kunnugt er
aðild að núverandi ríkisstjórn, en
upp á siðkastið hefur komið upp
vaxandi ágreiningur milli þessara
tveggja flokka. Það var Vitor
Alves, majór, sem er ráðherra án
ráðuneytis, sem gaf fyrrnefnda
yfirlýsingu i sjónvarpi fyrir hönd
hersins. Alves visaði á bug full-
yrðingum um að flotaæfing á veg-
um NATO undan Portúgalsströnd
um þessar mundir styddi yfir-
lýsingu Mario Soares, utanrikis-
ráðherra og leiðtoga sósíalista,
um að ihlutun utan frá i málefni
Portúgals væri yfirvofandi vegna
óvissuástandsins i landinu.
Vestur-Þjóðverjar
vondaufir um lausn
Bonn 30. jan.
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá AP:
VESTUR-þýzka utanrfkisráðu-
neytið telur litla möguleika á þvf,
að unnt verði að leysa fiskveiði-
deilu Islendinga og Vestur-:
Þjóðverja í bráð, að þvf er ríkis-
stjórnin skýrði frá f dag. Hans-
Jiirgen Wischenewski, ráðuneyt-
isstjóri, skýrði landbúnaðarnefnd
þingsins frá því f gær, að samn-
ingaviðræður hefðu valdið von-
brigðum. Hann kvaðst harma
átök á miðunum, jafnvel fyrir ut-
Nixon-gögnin
ekki opinberuð?
Washington 30. janúar
— Reuter
HENRY Ruth, Watergatesaksókn-
ari, tjáði Bandaríkjaþingi í dag,
að hann væri andvígur þvf, að
gögn um hlutverk Nixons, fyrrum
forseta, f Watergate-málinu, yrðu
birt opinberlega vegna þess að
slíkt bryti í bága við stjórnar-
skrána. Einnig yrði með því geng-
ið á rétt annarra manna, sem
rannsókn málsins beindist að, en
ekki voru ákærðir. Sagði Ruth í
yfirheyrslu fyrir dómsmálanefnd
fulltrúadeildarinnar að illgerlegt
væri að birta gögn sem eingöngu
f jölluðu um þátt Nixons.
an 50 mílna landhelgina, milli
vestur-þýzkra skipa og fslenzkra,
en skýrði það ekki nánar.
Wischnewski sagði að rfkisstjórn-
in hyggðist halda áfram að reyna
að leysa þorskastrfðið.
Hann sagðist vondaufur um að
Efnahagsbandalag Evrópu vildi
hefja einhvers konar þrýsting á
tslendinga. Hins vegar sagði emb-
ættismaður f utanríkisráðuneyt-
inu, að hann vonaðist eftirjákvæð-
um árangri í samningaumleitun-
um vegna málamiðlunarsam-
komulagsins sem náðist milli
Norðmanna annars vegar og Vest-
ur-Þjóðverja, Breta og Frakka,
hins vegar, um togveiðibann við
Noreg.
Danmörk — Karl Skytte, forseti danska þjóðþingsins, t.h., ræddi í gær m.a. við
fulltrúa Venstre-flokksins, Poul Hartling, fráfarandi forsætisráðherra, og Knud
Engaard.
Sex flokkar halda nú áfram
stjómarmyndunarviðræðum
Ríkisstjórn jafnaðarmanna og Radikale Venstre enn sennilegust
Kaupmannahöfn 30. janúar.
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
Gunnari Rytgaard:
0 FORMAÐUR þjóðþingsins,
Karl Skytte, ræddi f allan dag við
flokksleiðtoga um möguleika á
myndun rfkisstjórnar f Dan-
mörku. Að afloknum viðræðum
dagsins kom f ljós, að fjórir
stjórnmálaflokkar hafa útilokað
sig frá áframhaldandi viðræðum.
I fyrramálið, föstudag, munu hins
vegar hinir flokkarnir sex, sem
eru reiðubúnir til að taka þátt f
myndun breiðrar ríkisstjórnar,
hittast f svonefndu sáttaherbergi
þingsins, — herbergi nr. 50 í
Kristjánsborg —, til að reyna að
ná samkomulagi um pólitfskan
grundvöll. Ekki eru þó taldar lfk-
ur á að stjórn verði mynduð fyrr.
en í fyrsta lagi f næstu viku.
0 Flokkarnir sex, sem enn taka
þátt í viðræðunum, eru Jafnaðar-
mannaflokkurinn, Venstre,
Framfaraflokkurinn, lhaldssami
þjóðarflokkurinn, Radikale
Venstre og Kristilegi þjóðar-
flokkurinn. Flokkarnir þrfr á
vinstri vængnum, — Sósfalíski
þjóðarflokkurinn, Kommúnistar
og Vinstri-sósfalistar — hafa ekki
viljað taka þátt f myndun
breiðrar rfkisstjórnar, — sá fyrst-
nefndi vegna þess að hann vill
ekki rfkisstjórn með þátttöku
Venstre og Framfaraflokksins,
hinir tveir vegna þess að þeir
vilja aðeins jafnaðarmenn f
stjórnina. Miðdemókratar, sem f
kosningunum hröpuðu úr 13
þingsætum f 4, lögðu ekki út f
stjórnarþátttöku af taktfskum
ástæðum. Þeir hyggjast þó styðja
breiða samsteypustjórn á þingi.
Óljóst er hversu löng stjórnar-
kreppan verður. Verkefni Skyttes
sem „konunglegs rannsakanda“
er að finna möguleika á myndun
breiðrar rikisstjórnar. Heppnist
það ekki hlýtur hlutverki hans að
vera lokið.
Líkur eru á einhliða aðgerðum
ef ekki næst samkomulag 1 Genf
— segir David Ennals, aðstoðarutanríkisráðherra Breta
London, 30. janúar.
Reuter.
HÆTTA á einhliða útfærslu fisk-
veiðilögsögu rfkja mun aukast
stórlega ef hafréttarráðstefnunni
f Genf tekst ekki að koma á sam-
komulagi f aðalatriðum um þessi
efni, að þvf er David Ennals
aðstoðarutanrfkisráðherra Bret-
lands sagði f dag á hafréttarfundi
með fulltrúum ríkisstjórnarinnar
og brezka fiskiðnaðarins. Hann
benti á að ráðstefnan f Genf f vor
kynni að vera sfðasti möguleikinn
til að ná samkomulagi og gæti
skapazt alvarlegt ástand á höfun-
um ef það tekst ekki.
Ennals ftrekaði vilja brezku
stjórnarinnar til að ræða um 200
milna efnahagslögsögu, sem m.a.
myndi ná til fiskveiðiréttinda,
„svo framarlega sem siglinga-
frelsi og flugfrelsi... er tryggt".
„Við gætum ekki viðurkennt
efnahagslögsögu, þar sem réttur
strandríkisins yrði svo viðtækur,
að hún nálgaðist að jafngilda
landhelgi,“ sagði Ennals enn-
fremur.
Varðandi hina umdeildu smá-
eyju Rockall undan vesturströnd
Skotlands sagði Ennals: „Rockall
er hluti Bretlands. Samkvæmt
núgildandi alþjóðalögum hefur
Rockall að okkar mati sitt eigið
landgrunn. Eyjan hefur einnig
sína eigin 12 mílna fiskveiðilög-
sögu eins og hver annar hluti
Bretlands." Bæði írland og Dan-
mörk hafa sem kunnugt er gert
tilkall til Rockall vegna réttinda
til að nýta hugsanlegar gas- og
olíulindir þar. Þetta mál mun
væntanlega verða tekið fyrir á
hafréttarráðstefnunni í Genf.
Raunsæislega séð, má segja að
hin svokallaða breiða rikisstjórn
verði ekki mynduð. Hins vegar er
mikill áhugi meðal þjóðarinnar á
að slík stjórn verði mynduð með
þátttöku bæði Jafnaðarmanna-
flokks Anker Jörgensens og
Venstre-flokks Poul Hartlings, að
þvi er fram kemur í skoðanakönn-
unum. Stuttu eftir kosningar
jókst þessi áhugi frekar er 19
velþekktir borgarar, einkum úr
hópi jafnaðarmanna og Venstre-
manna, hvöttu þessa tvo stóru
flokka opinberlega til að mynda
samsteypustjórn. Marius Ander-
sen, borgarstjóri eins stærsta
bæjarfélags Danmerkur, Ála-
borgar, sem er jafnaðarmaður,
sagði i dag i viðtali í Kristeligt
dagblad að Danmörk hefði nú
þörf fyrir ríkisstjórn jafnaðar-
manna, Venstre og Radikale
Venstre, og hvatti til myndunar
slíkrar stjórnar.
En enginn stjórnmálaskýrandi
telur líklegt að jafnaðarmenn
með sin 54 þingsæti og Venstre
með 42 þori að hefja náið
stjórnarsamstarf, af því að annar
hvor þeirra verður að afsala sér
forsætisráðherraembættinu, sem
nú er mjög eftirsótt. I stjórnar-
myndunarviðræðunum sem nú
standa yfir hefur leiðtogi Kristi-
lega þjóðarflokksins, Jens Möller,
einmitt lagt til af þessari ástæðu,
að í embætti forsætisráðherra
ætti að fá utanþingsmann.
Ef Karl Skytte mistekst að
mynda breiða stjórn þarf að fela
öðrum stjórnarmyndunarstarfið.
Óvist er hvort það verður Jörgen-
sen eða Hartling, eða einhver
annar, sem það verkefni hlýtur.
Þess vegna er það ekki öruggt, en
engu að siður sennilegt, að hin
nýja ríkisstjórn Danmerkur verði
mynduð af jafnaðarmönnum og
Radikale Venstre. Þvi er haldið
fram, að þessir tveir flokkar séu
þegar tilbúnir með 19 manna ráð-
Framhald á bls. 22