Morgunblaðið - 31.01.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1975
5
„Reykjavík
1100 ár”
í Helsinki
UM ÞESSAR mundir eða dagana
18. janúar til 2. febrúar er haldin
í Helsingfors sýningin „Reykja-
vfk 1100 ár“. Sýning þessi var á
s.l. hausti haldin í Hásselby-
stofnuninni f Stokkhólmi, en hún
er sem kunnugt er menningar-
miðstöð, sem höfuðborgir Norður-
landa reka sameiginlega. Sýning-
in vakti þar allmikla athygli og að
henni lokinni bauð borgarstjórn
Helsinki, að sýningin yrði sett
upp f „Glogalleriet“, en það er
sýningarsalur, sem er eign Hels-
inki-borgar.
Sýningin var opnuð laugardag-
inn 19. janúar s.l. við hátíðlega
athöfn. Yfirborgarstjórinn í Hels-
inki, Teuvo Aura, bauð sýninguna
velkomna til borgarinnar, en
Birgir Isleifur Gunnarsson, borg-
arstjóri, opnaði sýninguna og hélt
um leið fyrirlestur um Reykjavík.
Þá var sýnd kvikmynd um
Reykjavík. Margt manna var við-
statt opnunina.
Á sýningunni má sjá þróun
Reykjavíkur í myndum og texta
svo og Reykjavíkurlífið í dag. Þá
eru sýndar barnateikningar, en
það er úrval úr ýmsum barnaskól-
um borgarinnar. Þá eru sýndar
litskyggnur eftir Gunnar Hannes-
son í sérstökum hliðarsal og
a.m.k. daglega er sýnd Reykjavfk-
urkvikmynd Gísla Gestssonar.
Um uppsetningu sýningarinnar
sá Stefán Snæbjörnsson, innan-
húsarkitekt.
Bátur sökk
í Siglu-
fjarðarhöfn
FIMM tonna bátur, Jökull SI 118,
sökk við bryggju í Siglufjarðar-
höfn í fyri*adag. Atvikið átti
sér stað — samkvæmt upplýsing-
um fréttaritara Mbl. á Siglufirði
— með þeim hætti, að annar og
stærri bátur var að fara frá
bryggju og sprengdi isspöng frá
lagís í höfninni og rakst spöngin í
Jökul og gerði á hann gat.
Jökull sökk svo til samstundis.
Eigandr bátsins er Gunnar
Jóhannsson, en báturinn hefur að
undanförnu verið á línu- og hand-
færaveiðum.
•ftlovgtmWatníi
MARGFALOAR
JHorgunWaMfc
MARGFALDAR
2ttov£imMat>it>
MARGFALOAR
VETRARUTSALAN
SEM ALLIR HAFA
BEÐH) EHIR HEFSTI
4
40
I ■§ VERZLUNUM
SAMTÍMIS M.A.:
□ STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF
TERYLENE- OG ULLARBUXUM
FRAMLEIDDAR BEINT Á ÚTSÖLUNA
ALDREI MEIRA ÚRVAL
□ PEYSUR — BLÚSSUR — BOLIR
□ HERRASKYRTUR — BINDI
□ KULDAJAKKAR
□ KJÓLAR — PILS — JAKKAR
□ FÖT M/VESTI — STAKIR JAKKAR
LÁTIÐ EKKI HAPP ÚR HENDI SLEPPA
LÆKJARGÖTU 2 SIMI 21800