Morgunblaðið - 31.01.1975, Side 36
FÖSTUDAGUR 31. JANUAR 1975
JHffirgiiisiM&frifr
nuGivsinGnR
^22480
Seðlabankinn:
í fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu barst í gær
frá Seðlabanka Islands,
segir, aó nokkrar breyting-
ar hafi verið gerðar á af-
greiðslu gjaldeyrisum-
sókna, þannig, að þær geti
verið tafsamari en áður en
hins vegar hafa engar
gjaldeyrishömlur verið
settar á. Fréttatilkynning-
in er svohljóðandi:
„A ný hefur verið tekinn upp sá
háttur i gjaldeyrisafgreiðslum, að
Gjaldeyrisdeild bankanna fjalli
um yfirfærsluumsóknir áður en
til afgreiðslu kemur, og getur
þetta leitt til dráttar á afgreiðslu
þeirra. Þeirri reglu er fylgt, að
aðeins gjaldfallnar kröfur eða
kröfur sem eru að falla til
greiðslu, verða afgreiddar.
Á sama hátt skal á það bent, að
gjaldeyrir vegna ferðalaga er af-
Algjört vatnsleysi
í Neskaupstað
Ný vatnsveita nauðsyn
Neskaupstaður 30. jan.
VATNSLEYSI plagar Norðfirð-
inga mjög mikið, og við cinstaka
götur eins og t.d. Blómsturvelli
hefur vart komið dropi úr krana
siðan fyrir áramót. Fjölmargir fá
vatn kannski í hálfa klukkustund
á dag og þá verður hver og einn að
vera tilbúinn að láta renna i potta
og kyrnur. Hins vegar hafa bæjar-
búar nægan snjó til að bræða og
fjölmargir stunda þá iðju til að
hafa eitthvert vatn.
Bærinn hefur nú látið aka vatni
í þær götur, sem verst hafa orðið
úti. Af þessum sökum hefur t.d.
orðið að láta loka í íþróttahúsinu
og sundlaugin hefur ekki verið
opin siðan um áramót. Ofanjarð-
arleiðslur vatnsveitunnar í Nes-
kaupstað hafa að líkindum
skemmzt i snjóflóðunum í desem-
ber og hefur sú skemmd ekki
fundizt enn. Fólk er víða orðið
Framhald á bls. 22 fyrir Langanes.
greiddur þegar þrír dagar lengst
eru til brottfarar.
I þessu felst, að innflytjendur
vara geta átt von á nokkurri töf í
afgreiðslu gjaldeyris frá því sem
verið hefur. Sama gildir um allar
yfirfærslur utan frílista, svo sem
alls konar þjónustu greiðsiur.
Að gefnu tilefni skal loks tekið
fram, að engar breytingar hafa
verið gerðar á frilistanum né regl-
um um náms- og ferðagjaldeyri
eða aðrar hliðstæðar reglubundn-
ar greiðslur."
Norglobal á miðin um
miðja næstu viku?
Allar þrœr fullar frá Vopnafirði til Hornafjarðar
— VIÐ vinnum I málinu af full-,
um krafti og ég geri mér fastlega
vonir um að samningar um leigu
á Norglobal verði undirritaðir
einhvern tfma á morgun. Eftir að
tilskilin leyfi komu frá tslandi þá
þurftum við að fara yfir mörg
atriði og er það ástæðan fyrir því
að samningar hafa ekki verið
undirritaðir fyrr. Á morgun geri
ég svo ráð fyrir, að byrjað verði
að útbúa Norglobal til Islands-
ferðarinnar og ætti skipið að vera
komið á miðin um miðja næstu
viku, sagði Jón Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri, þegar Mbl. hafði
samband við hann f Ösló í gær-
kvöldi.
Samkvæmt upplýsingum
Loðnulöndunarnefndar eru nú
allar þrær á Austfjöröum eða frá
Höfn í Hornafirði til Vopnafjarð-
ar fullar og víða bíða bátar eftir
löndun. Þaó rými, sem opnast
öðru hverju á stöðunum, nægir
yfirleitt einu skipi, enda eru
farmar loðnuskipanna orðnir það
stórir. Sjómenn biða því óþreyju-
fullir eftir komu Norglobal. t
gærkvöldi var byrjað að bræla á
loðnumiðunum, komin 5 vindstig
og erfitt var þá að sigla með afla
Afkastageta þeirra verksmiðja,
sem nú eru í gangi á Austfjörð-
um, á svæðinu frá Vopnafirði
til Hornafjarðar, er samtais 3210
lestir á sólarhring, en með til-
komu Norglobal, sem bræðir allt
að 2500 lestir á sólarhring, verður
Framhald á bls. 22
Sigurgeir f Eyjum tók þessa
mynd f pökkunarsal Fiskiðj-
unnar í Eyjum, en f bakgrunni
sjást fjórar af 12 myndum,
sem Fiskiðjan lét mála til þess
að skreyta fiskvinnslusalinn,
en þar vinna um 100 konur
þegar allt er komið f fullan
gang. Myndirnar eru allar ein-
faldar f formi, en Guðni Her-
mansen listmálari gerði frum-
teikningarnar. Á myndinni
eru nokkrar af blómarósum
Fiskiðjunnar, en f baksýn haf,
blóm, klettar og tungl.
Reyndi að smygla inn
159 flöskum af áfengi
Tekinn með varninginn í bíl, réttindalaus og ölvaður
LÖGREGLAN í Hafnarfirði hand-
tók f fyrrinótt skipverja á vöru-
flutningaskipinu Reykjafossi,
þar sem hann var að reyna að
smygla í land rúmiega 13 kössum
af áfengi. Samtals voru þetta 159
flöskur, 99 flöskur af vodka og 60
flöskur af genever. Þegar maður-
inn var tekinn með smyglið var
hann lagður af stað með það frá
skipshlið í sendibíl. Reyndist
hann bæði ölvaður og réttinda-
laus og hafði auk þess tekið bif-
reiðina ófrjálsri hendi. Hann hef-
ur verið úrskurðaður í gæzluvarð-
hald á meðan rannsókn málsins
stendur yfir.
Reykjafoss kom til Hafnarfjarð-
ar klukkan 16 á miðvikudaginn,
og var hann að koma frá Rotter-
dam i Hollandi. Að sögn Sveins
Björnssonar aðalvarðstjóra rann-
sóknarlögreglunnar í Hafnarfirði,
urðu lögreglumenn i Hafnarfirði
Framhald á bls. 22
Geirfinnsmálið:
Hálf milljón i verð-
laun fyrir lausnina
AÐILI, sem ekki vill láta nafns
síns getið hefur ákveðið að
veita hverjum þeim hálfa
miiljón króna í verðlaun, sem
getur látið lögreglunni í té
upplýsingar, sem verða til þess,
að hvarf Geirfinns Einarssonar
upplýsist. Þessi aðili hafði sam-
band við Morgunblaðið í gær,
og bað um að þessu yrði komið
á framfæri. Sparisjóðurinn í
Keflavík mun greiða út fyrr-
greinda upphæð, að fengnu
samþykki lögreglunnar í Kefla-
vfk. Viðkomandi skal snúa sér
til lögreglunnar f Keflavík, og
verður farið með allar upplýs-
ingar sem algert trúnaðarmál.
Geirfinnur Einarsson hvarf i
Keflavik hinn 19. nóvember sl.
og eru því liðnir nær tveir og
hálfur mánuður frá hvarfi
hans. Víðtæk leit hefur farið
fram og rannsóknin á hvarfi
hans hefur verið geysilega um-
fangsmikil. Upplýsingar hafa
borizt frá almenningi svo
hundruðum skiptir, en þrátt
fyrir það hefur enn ekkert
komið fram, sem hefur getað
upplýst þetta dularfulla manns-
hvarf, sem hefur komið róti á
hugi allralandsmanna og fengið
mjög á nánustu ástvini Geir-
finns. Þeir lifa i stöðugri óvissu
um afdrif hans. Með það i huga
fyrst og fremst að létta þessari
óvissu, hefur fyrrgreindur aðili
boðið fram verðlaunin.
BANN VIÐ RÆKJU
VEIÐUM NÖKKVA
Skipstjórinn fær ekki að fara út
fyrir lögsagnarumdæmið
I GÆR var kveðinn upp sá úr-
skurður á Hvammstanga, að
rækjubátnum Nökkva HU-15 væri
óheimilt að stunda rækjuveiðar
fyrr en dómur hefði verið kveð-
inn upp f „rækjumálinu" svo-
nefnda eða málum lokið á annan
hátt fyrir héraðsdómi. llm leið
leggst rækjuvinnsla niður hjá Sæ-
rúnu h.f. á Blönduósi, þar sem
fyrirtækið hefur engan afla til ad
vinna úr.
Sigurður Hallur Stefánsson,
setudómari í þessu máli sagði í
samtali við Morgunblaðið i gær-
kvöldi, en hann var þá á Hvamms-
tanga, að hann hefði yfirheyrt
áhöfn Nökkva í gær á Hvamms-
tanga og þá úrskurðað að skip-
stjóra bátsins væri óheimilt að
fara út fyrir takmörk lögsagnar-
umdæmisins. Þá hefði hann
kunngert, að bann yrði sett við
því, að Nökkvi héldi til rækju-
veiða þar til dómur væri uppkveð-
inn eða málinu lokið á annan hátt
fyrir héraðsdómi.
Þá sagði hann, að yfirheyrslum
yrði lialdið áfram á morgun,
föstudag, og þeim myndi væntan-
lega ljúka þá, og siðan myndi
rannsókn málsins haldið áfram.
Kæran, sem iiggur fyrir, af
hendi ráðuneytisins, hljóðar upp
á að Nökkvi hafi stundað rækju-
veiðar eftir að leyfi bátsins hafði
verið afturkallað, en síðan það
var gert hefur báturinn farið 10
veiðiferðir.
Verjandi i þessu máli er Bene-
dikt Blöndal hrl. en fyrir hans
hönd við réttarhöldin i gær mætti
Óttar Yngvason, hrl. Mbl. náði í
gærkvöldi tali af Óttari, þar sem
hann var staddur á Hvamms-
tanga. Óttar hafði eftirfarandi um
málið að segja:
„Dómnum var auðvitað mótmælt,
sem alltof fljótt ákveðnum á
Framhald á bls. 22
Engar gjald-
eyríshömlur