Morgunblaðið - 05.10.1975, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975
Ibúasamtök Grjóta-
þorps stofnuð
STOFNAÐ hefur veriö félag í
Grjótaþorpi, sem nefnist íbúa-
samtök Grjótaþorps. Markmið
félagsins er, að vinna að viðhaldi
og endurbótum á núverandi
byggð f hverfinu, «g standa vörð
um gróður og umhverfi Grjóta-
þorps óg stuðla þar að
manneskjulegri og Iffvænlegri
byggð fyrir fólk á öllum aldri og
að stuðla að því, að þær nýbygg-
ingar, sem rfsa innan hverfisins,
falli vel að núverandi byggð og
bæti það umhverfi, sem fyrir er.
Félagsrnenn geta orðið allir
þeir, sem búa í hverfinu og þeir,
sem eiga þar fasteignir. Þá geta
þeir, sem vilja vinna að markmiði
félagsins, orðið stuðningsfélagar.
I framkvæmdanefnd félagsins
voru kosin: Laufey Jakopsdóttir
Aðalstræti 16, Gestur Ólafsson
Garðastræti 15, Frfða Haralds-
dóttir Bröttugötu 3a, Arnlín 01 a-
dóttir Garðastræti 9 og Helena
Ben Garðastræti 21.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
ÞÚ AL'GLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR I MORGUNBLAÐINU
Yaprok, með áhrifum aust-
urlenzkra mynsturgerða.
Fall (Haust) leiftrandi haustlitir. Það má hnýta í þeirri
stærð, sem hæfir best heima hjá yður.
OKEYPIS, GRIÐARSTOR MYNDALISTI.
Hnýtið yðar eigið Rya teppi
á vegg, gólf eða púða.
Hér sjást aðeins fáein af hinum fjölmörgu teppum
og púðum, sem þér getið hnýtt eftir hinni þekktu
Readicut aðferð.
Calypso púðinn; skemmtilegir
og frjálslegir litir. Hægt er áð
velja um ótal mynstur bæði í
sterkum og þægilegum litum.
Winter Moon, — veggteppi með
fallegri myndbyggingu í mild-
um litum. Vrval veggteppa í
hverskonar stærðum og lita-
samsetningum.
Riviera, stílhreint blómamynstur. Hvernig kæmi það
til með að taka sig út á heimili yðar?
Hann er kominn út. Stóri og efnismikli tómstundaiðjulistinn frá Readicut.
Myndalisti um hnýtingu gólfteppa, veggteppa og púða.
Hér að ofan sjást aðeins 5 af mynstrum listans. I stóru teppabókinni eru
125 mynstur til viðbótar, — nýtízkuleg og hefðbundin, leiftrandi í litum eða
með mildri áferð. Þér getið vafalaust fundið mynstur við yðar hæfi í bók-
inni. Því miður eru bækurnar og sýnishornin af garninu aðeins til í tak-
mörkuðu magni; sendið okkur því útfylltan pöntunarseðil strax í dag.
Athugið: Readicut fæst aðeins í póstverzlun okkar. ^ ý&p*
Þetta allt fáið þér í
Readicut öskjunni:
Myndalistann, teppanál,
garn í sýnishomabúntum,
skorið í réttar lengdir, og
þar að auki auðskilinn leið-
arvísi. með fjölmörgum
myndskýringum.
Til Readicut
Holbergsgade 26
1057 Kobenhavn K
Sendið mér nýju teppabókina ásamt garnsýnishorrium
í 52 fallegum litum, án endurgjalds.
Nafn
Heimilisfang
Borg/hérað/land
Blóm
vlkunnar
Blómlaukaspjall IV
ÞEGAR rætt er um ræktun
blómlauka verður vart hjá því
komizt að minnast lítillega á
inniræktun þeirra, enda er hún
bæði ánægjuleg og auðveld.
Allir þekkja jóla-hyasintur,
þær eru ýmist ræktaðar í vatni
í þar til gerðum glösum eða þá i
mold og má þá nota til þess
hvaða ílát sem er. Ýmsa aðra
blómlauka má hafa til inni-
ræktunar svo sem páskaliljur,
túlípana, krókusa og flestar teg-
undir smálauka. Hve margir
eru settir i sama ílát fer að
sjálfsögðu eftir því hversu stórt
það er. I meðalstóran blómapott
er t.d. hæfilegt að setja 3—7
túlípanalauka, en 10—15 stk. sé
um smálauka að ræða.
Gott er að nota gróðurmold
blandaða sandi, ekki má kúf-
fylla ílátið sem gróðursett er í
heldur hafa á þvi nokkurt borð.
Moldin þarf að vera vel mulin,
laus og létt og varast skal að
þjappa henni saman. Til þess
að bæta frárennslið má setja
lag af smásteinum á botn Iláts-
ins. Laukana á að leggja þannig
að oddurinn á þeim standi upp
úr moldinni.
Um leið og laukarnir eru
komnir í moldina hefst rótar-
myndunin en hún tekur jafnan
8—12 vikur og þann tíma þurfa
þeir að vera á svölum, dimmum
stað. Breiða má svart plast yfir
þá sé staðurinn sem þeim er
valinn of bjartur. Moldinni
þarf að halda lítið eitt rakri og
gæta þess að hún ofþorni ekki.
Þegar spírurnar eru komnar
vel upp (3—5 sm) og finna má
fyrir blóminu er kominn tími
til þess að taka pottana inn í
stofu. Bezt er að venja laukana
við stofuhita og birtu smátt og
smátt svo viðbrigðin verði ekki
of snögg.
Hyasintur og jólatúlípanann*
Brilliant Star tekst jafnan að
láta bera blóm um jólaleytið,
einnig tazettur og vafalaust
margar fleiri tegundir séu lauk-
arnir lagðir nógu snemma
hausts. En gott er nú líka að
eiga blómgun þeirra í vændum
á þorranum meðan enn er óra-
langt til vors.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Frumatriði rekstrarhagfræði
Stjórnunarfélapið gengst fyrir námskeiði i frumatriðum rekstrarhagfræð-
innar 13. —17. okt. n.k. að Skipholti 37. Námskeiðið stendur yfir
mánud. 13. okt. kl. 14:00—19:00, þriðjud. 14 okt. kl. 15:30 —
1 9:00 miðv.d. 1 5. okt. og föstud. 1 7. okt. kl. 14:00 — 1 9:00,
Á námskeiðinu verður þátttakendum gefin innsýn í undirstöðuatriði
rekstrarhagfræðinnar, sem fjallar um, hvernig nota megi framleiðslu-
tækin á sem hagkvæmastan hátt. Gerð verður grein fyrir kostnaðarhug-
tökum, eftirspurn og þáttum, sem hafa áhrif á hana. Sérstaklega er
sýnt, hvernig finna má hagkvæmast verð og magn við mismunandi
skilyrði.
Leiðbeinandi er Brynjólfur Sigurðsson lektor.
Stjórnun I.
Námskeið í stjórnun I verður haldið að Skipholti 37, mánud. 20.,
þriðjud. 21. og miðv.d. 22. okt. n.k. Námskeiðið stendur yfir kl. 1 5:00
— 18:45 alla dagaaa.
Fjallað verður um eftirfarandi:
Hvað er stjórnun og hvert er
hlutverk hennar?
Stjórnunarsviðið og setning
markmiða.
Stjórnun og skipulag fyrir-
tækja.
Til að ná settu marki er mikilvægt að starfsfólk fyrirtækisins starfi sem
ein heild. Þeir, sem hafa mannaforráð, þurfa að sjálfsögðu að kunna
góð skil á stjórnun, en það er misskilningur, að stjórnun eigi aðeins
erindi til þeirra. Þeim mun meiri yfirsýn, sem hinir einstöku starfsmenn
hafa, má ætla, að auðveldara sé að láta heildarmarkmið fyrirtækisins
sitja i fyrirrúmi.
Leiðbeinandi er Brynjólfur Bjarnason rekstrarhagfræðingur.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST í SÍMA 82930
ÞEKKING ER GÓÐ FJÁRFESTING.