Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 1

Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 1
40 SÍÐUR 246. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975 PrentsmiSja MorgunblaSsins. Samræma Bretar og V-Þjóðverjar nú afstöðu sína? Mynd AP. GÖTUBARDAGARNIR t BEIRUT — Líbanskur skæruliði hleypur í skjól bak við sandpoka með sprengjuvörpu sína rjúkandi i götubardögunum í Beirut. Útlendingar flýja frá Beirut vegna bardaga SÉRFRÆÐINGAR Efnahags- bandalagslandanna f fiskveiði- málum ræddu I gær við Pierre Lardinois, forstöðumann land- búnaðarmála hjá EBE f Briissel, f þeim tilgangi að samræma við- ræður Breta og Vestur-Þjóðverja við Islendinga um tvfhliða sam- komulag f fiskveiðideilunni, að þvf er Reuter-fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimildum f Briissel f gærkvöldi. Bretar og Vestur-Þjóðverjar leituðu þó ekki eftir sameiginlegri afstöðu bandalagslanda til viðræðnanna, heldur væri vettvangur EBE notaður til að miðla af reynslu beggja frá viðræðunum við Is- lendinga. Einar Ágústsson utan- rfkisráðherra sagði f samtali við Morgunblaðið f gærkvöldi að hann hefði vitað um þennan fund f Briissel, en sér væri ekki kunnugt um eðli hans eða um þá samræmingu á viðhorfum sem minnzt er á í Reuter-fréttinni. I fréttinni segir að Bretar og Þjóðverjar hafi einnig skýrt öðrum EBE-löndum frá gangi við- ræðna við Islendinga. Helzti þrándur í götu viðræðna Breta við íslendinga sé að ákveða árlegan veiðikvóta fyrir brezka togara Norðmenn og Sovét- menn ræða 200 mílur Ösló 27. október — NTB SOVÉZKI sjávarútvegsráðherr- ann Aleksander Ishkov hóf f dag ásamt sendinefnd sinni viðræður um fyrirhugaða útfærslu norsku fiskveiðilögsögunnar f 200 mflur við Jens Evensen hafréttarráðherra Noregs, og munu viðræðurnar Framhald á bls. 39 innan 200 mílnanna, en Bretar geri kröfu til um 130.000 tonna árskvóta. Einar Ágústsson var spurður að því hvort Bretar hefðu ekkert slakað á þessari kröfu i Lundúnaviðræðunum fyrir helgina, en hann kvað svo ekki hafa verið. í frétt Reuters segir ennfremur að íslenzka ríkis- stjórnin hafi hins vegar boðið lægri árskvóta. Um þetta sagði utanríkisráðherra: „Við höfum ekkert boðið.“ Líf Francos á bláþræði Madrid, 27. október. AP — Reuter — NTB LÆKNAR börðust f dag enn við að bjarga lífi Francisco Francos, einræðisherra á Spáni, en heilsu hans hélt engu að síður áfram að hraka. Eftir röð hjartaáfalla f nótt fékk Franco sótthita sfðdeg- is, ásamt innvortis blæðingum og óreglulegri hjartastarfsemi. Hinn 82 ára gamli einræðisherra var samt með fullri meðvitund að sögn lækna, en mikill fjöldi fyrir- manna streymdi til Pardohallar- innar þar sem hann hefur legið sfðan hann veiktist fyrir 11 dög- um, þ. á m. Carlos Arias Navarro forsætisráðherra og æðsti maður kaþólsku kirkjunnar á Spáni, Marcelo Gonzales Martin kardináli. Tvisýnan um lif Francos hefur skapað mikla óvissu og spennu i stjórnmálalifi landsins. I dag komu enn upp kröfur um að Juan Carlos prins tæki nú við völdum því ekki væri lengur stætt á því að tómarúm væri á æðsta valdasti^i spánskra stjórn- mála. Þetta getur annað hvort gerzt með skipun Francos sjálfs eða með flókinni stjórn- arskrárlegri aðferð þar sem Franco er lýstur líkamlega ófær um að stjórna. Allt er með kyrr- um kjörum og virðast menn bíða átekta, t.d. hefur hermdarverka- starfsemi legið með öllu niðri. Beirut, 27. október. AP—Reuter. 0 HATRAMMIR götubardagar breiddust út eins og eldur f sinu um Beirut, höfuðborg Lfbanons f dag, milli kristinna hægri manna og vinstri sinnaðra Múhameðs- trúarmanna studdum af Palestínuskæruliðum. Sem fyrr voru átökin útbreiddust f hinum fátæklegri borgarhverfum f austurhluta borgarinnar, en f kvöld höfðu þau borizt til norð- vesturhlutans, þar sem auðmenn ýmsir og útlendingar búa. Er talið að hægri menn reyni nú að styrkja stöðu sfna á þessu svæði, en barizt var með vélbyssum, eld- flaugum og sprengjuvörpum. Ekki ber mönnum saman um tölu látinna f átökunum f dag, sem eru ein þau hörðustu hingað til, en lögreglan segir a.m.k. 20 manns hafa beðið bana en aðrir opin- berar heimildir segja 120. Meir en 6000 manns hafa beðið bana sfðan f aprfl. 0 Hið hraðversnandi ástand f höfuðborginni endurspeglaðist f dag f tilmælum bandaríska sendi- ráðsins til bandarfskra borgara þar um að þeir komi fjölskyldum sfnum frá Beirut. Talsmaður brezka sendiráðsins sagði enn- fremur að brezkum þegnum sem ekki eiga brýnum erindum að gegna f Líbanon hefði verið ráðlagt að fara úr landi, eiginkon- ur og börn fyrst. Önnur evrópsk sendiráð hafa einnig brottflutn- ing f athugun. Her Líbanons sem telur um 18000 manns setti upp varðstöðvar meðfram veginum til flugvallarins, þar sem flýjandi Vesturlandabúar sköpuðu mikla ringulreið. Aðeins farþegar með staðfesta farmiða fengu að koma þar nærri. Herinn hafði fyrirmæli um að halda sér frá aðalbardagasvæð- inu, en tök hinnar fjögurra mán- aða gömlu ríkisstjórnar Rashid Karamis forsætisráðherra á ástandinu virtust fara minnkandi. Tilkynning Karamis eftir ríkis- stjórnarfund i gær um enn eitt vopnahléð fann aldrei hljóm- grunn og alla nóttina og allan daginn hneggjuðu vélbyssur og sprengjur drundu. Þuli einum i ríkisútvarpinu í Beirut blöskraði og sagði i beinni útsendingu: „Hvar er þetta vopnahlé sem þið eruð að tala um? Fólk vill vita það. Þið hljótið að vera drukknir að tala um vopnahlé. Hvar er það?“ Þingmenn reyndu að koma sam- an og ræða ástandið, en aðeins 49 þeirra tökst að komast til þing- hússins vegna bardaganna. Þeir sátu þar í meir en fjórar klukku- stundir og biðu eftir að sá fimmt- ugasti kæmi til þess að þingfund- urinn væri gildur en án árangurs. Síðan gáfust þeir upp og fóru. Kínversk kjarnorku- sprenging Tókýó 27. október — AP KlNA sprengdi f dag „velheppnaða" kjarnorku- sprengju neðanjarðar, að þvf er hin opinbcra Ilsinhua- fréttastofa skýrði frá. t frétt- inni sagði að hinar „nauðsyn- legu og takmörkuðu" tilraunir Kínverja með kjarnorkuvopn séu eingöngu gerðar í „land- varnaskyni" og til að rjúfa „kjarnorku-einokun stórveld- Framhald á bls. 39 Flugslys La Paz, 27. október — Reuter. ÖTTAZT var í kvöld að um 50 hermenn og ættingjar þeirra hefðu farizt er herflutningavél hrapaði til jarðar norðaustur af La Paz, höfuðborg Bólivíu. Meðal þeirra sem voru um borð var frændi Hugo Banzers forseta, sem sagði í kvöld að þetta væri „versta og alvarlegasta slys i sögu lands- ins.“ Björgunarsveitir voru á leið á vettvang. Útvegur í Bretlandi fær annan ríkisstyrk Frá Mike Smart í Hull. BREZKA stjórnin hefur enn ákveðið að styrkja sjávarútveginn f Bretlandi. Að þessu sinni nemur styrkurinn einni milljón punda og hann nær til þriggja sfðustu mánaða ársins. Margir eru óánægðir með að styrkurinn er ckki hærri. Stjórnin ákvað fyrst að styrkja sjávarútveginn i sumar með 6.25 milljóna punda fram- lagi sem náði frá ársbyrjun. Hún ákvað síðan að veita 2.25 milljón punda aðstoð á þriðja ársfjórðungi og tók þá fram að aðstoðinni yrði haldið áfram til ársloka. Forystumenn sjávarútvegs- ins höfðu gert sér vonir um styrk að upphæð tvær milljónir punda fram á næsta ár til að fleyta þeim yfir mestu erfið- leikana. Þó kemur ekki á óvart að styrkurinn nemur aðeins einni milljón punda. Stjórnin hefur jafnframt til- kynnt að styrkveitingum til sjávarútvegsins verði með öllu hætt um næstu áramót og vera má að sú tilkynning sé öllu afdrifarfkari en ákvörðunin um styrkveitinguna. Fred Peart landbúnaðarráð- herra sagði i viðtali við BBC- útvarpið í Humberside að á- stæðan til þess að styrkveiting- um yrði hætt frá og með 31. desember væri sú að það væri stefna ríkisstjórnarinnar að draga úr ríkisútgjöldum. Hann tók einnig fram að sjávarútvegurinn væri að ná sér eftir það neyðarástand sem skapaði vegna stórhækkaðs olíuverðs og að fiskverð í Bret- Iandi færi hækkandi. Forseti sambands togaraeig- enda í Ilull, Mike Burton, sagði að næstu þrír mánuðir yrðu sjávarútveginum erfiðir. Hann kvaðst vona að ekki þyrfti að leggja fleiri togurum. 40 togarar hafa verið seldir i brotajárn við Humberfljót á þessu ári og útgerð er auðvitað stunduð frá miklu fleiri stöðum á Bretlandseyjum, en vitaskuld hafa ekki allir þessir togarar veitt við Island.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.