Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975
Landhelgis-
gæzlan hefur
áhuga á Baldri
ÞAÐ ER eins og við höfum
sigrað Þjóðverjana, þeir
sjást vart hér við land. V-
þýzku togararnir eru fyrir
utan mörkin við Austfirði
og fyrir utan úti af Vest-
fjörðum, vitað er um eitt
skip á siglingu fyrir sunn-
an land, sagði Pétur Sig-
urðsson forstjóri Land-
helgisgæzlunnar þegar
Mbl. hafði samband við
hann í gær.
Morgunblaðið spurði Pétur,
hvort Landhelgisgæzlan hefði
hug á að taka skuttogara á leigu.
Hann sagði, að eins og fram hefði
komið hjá dómsmálaráðherra, þá
væri það mál í athugun, en ekkert
væri afráðið ennþá.
Þá spurði Mbl. Pétur hvort það
væri rétt, að gæzlan hefði hug á
að leigja skuttogarann Baldur,
sem staðið hefur til að ríkissjóður
keypti sem rannsóknaskip.
„Það skip kemur til greina eins
og aðrir togarar. Baldur er örugg-
lega ágætis skip og ber meira að
segja ásanafn, eins og varðskip-
4 í bílveltu
á Neskaupstað
Neskaupstað 28. okt.
AOFARARNÓTT s.l. sunnudags
um kl. 23 veitti lögreglan athygli
btl sem ók mjög greitt og hugðist
hún gæta betur að, en skömmu
seinna á eftiriitsferðinni kom
lögreglan að bflnum þar sem hann
lá neðan vegar I djúpum skurði
fyrir neðan Naustahvamm. Hafði
blllinn stungizt niður f skurðinn,
en I honum voru fjórar manneskj-
ur. tvær stúlkur og tveir karl-
menn. Lögreglan kom á slysstað
aðeins 1—2 mln. eftir að óhappið
átti sér stað. og voru þau öll flutt
á sjúkrahúsið. Önnur stúlkan var
ökla- og rifbeinsbrotin, en hin fékk
taugaáfall, en bflstjórinn var rif-
brotinn og eitthvað skaddaður á
lunga og hinn karlmaðurinn, sem
var aftur f bflnum, skaddaðist á
hrygg og var hann fluttur með
sjúkraflugvél suður til Reykjavfkur
f dag. Bfllinn er trúlega gjör-
ónýtur.
— Ásgeir.
3 kippir
við Kröflu
VIÐ höfðum samband við Jósep
Hólmjárn, starfsmann Orkustofn-
unar við Kröflu. f gærkvöldi og
inntum frétta af jarðskjálftunum
þar f gær. Hann sagði að vart
hefði orðið við þrjá kippi, en þeir
hefðu ekki verið mjög snarpir,
heldur af þeirri mæligráðu sem
algeng væri á þessu jarðhita-
svæði. Kvað Jósep þrjá jarð-
skjálftamæla vera f gangi á þessu
svæði sérstaklega, einn við
Kröflu, einn við Reynihlfð og einn
við Gæsadal.
Skjálftakippir
í Mývatnssveit
Mývatnssveit 28. okt.
f DAG kl. 11.36 urðu margir hér f
Mývatnssveit varir við allsnarpan
jarðskjálftakipp, en talið er að
hann hafi átt upptök nálægt
Kröflu og verið 4,4 stig á Richter-
kvarða.
— Kristján.
Siglufjörður:
Reytingsafli
hjá bátum
Siglufirði, mánudag.
STÁLVÍK og Sigluvlk sem sigldu I
höfn f sjómannaverkfallinu láta úr
höfn f dag, Stálvfk fyrst sfðan
Sigluvfk. Lfnubátarnir fóru aldrei I
verkfall og hefur verið reytings-
fiskirl hjá þeim, 4—7 tonn. Hér er
hvftt niður undir sjó og var snjó-
koma fyrsta vetrardag. — mj.
— Ljósm.: Friöþjófur.
Vestur-þýzku ráðherrarnir við komuna til Reykjavlkur f gær. Til
vinstri er Hans-Jiirgen Wischnewski, aðstoðarutanrfkisráðherra og til
hægri Fritz Logemann, aðstoðarfiskimálaráðherra.
Wischnewski, ráðherra, formaður þýzku nefndarinnar:
„Vonast eftir árang-
ursríkum viðræðum
Samningaviðræður hefjast 1 Reykjavík í dag
Islenzku síldarbátarnir
seldu fyrir 66 milljónir
99
„ÉG VONA að við komum til með
að eiga árangursrfkar viðræður á
morgun,“ sagði Hans-Jiirgen
Wisehnewski, aðstoðarutanrfkis-
ráðherra Vestur-Þjóðverja, við
komuna tii Islands f gær, en við-
ræður milli íslendinga og Vestur-
Þjóðverja vegna fiskveiðilögsög-
unnar hefjast f dag í Reykjavfk.
„Við komum hingað sem vinir,“
sagði ráðherrann, „og vonumst til
að viðræðurnar beri þann
árangur, sem bæði löndin geti
sætt sig viðrÉg er þess fullviss, að
unnt er að ná samkomuIagi.“
Morgunblaðið spurði þvf næst um
þær tillögur, sem Þjóðverjarnir
kæmu með og svaraði ráðherrann
þvf að eins og hann hefði áður
skýrt frá í viðtali við Morgun-
blaðið, fyndist honum það
ókurteist að skýra frá tillögum
stjórnar sinnar áður en þær yrðu
kynntar fyrir fslenzkum stjórn-
völdum.
Viðræðurnar hefjast í dag
klukkan 10,30 í ráðherrabústaðn-
um. Af Islands hálfu taka þátt í
viðræðunum ráðherrarnir Einar
Ágústsson og Gunnar Thorodd-
sen, Hans G. Andersen, sendi-
herra, Már Elisson, fiskimála-
stjóri, Jón Jónsson, forstöðu-
maður Hafrannsóknastofnunar-
innar, þingmennirnir Guð-
mundur H. Garðarsson og Þór-
arinn Þórarinsson, Jón L. Arn-
alds, ráðuneytisstjóri, Þórður As-
geirsson, skrifstofustjóri, Ólafur
Egilsson, deildarstjóri, og Árni
Tryggvason sendiherra.
Af hálfu Þjóðverja taka þátt í
Stolið ávísunum
fyrir 200 þúsund
BROTIZT var inn hjá Kirkju-
sandi hf um helgina og stolið þar
gömlum og ógildum ávfsunum að
upphæð 200 þúsund krónur. Þetta
voru þrjár ávísanir, stílaðar á
Landsbankann og gefnar út fyrir
5 árum. I gærmorgun gerði þjóf-
urinn tilraun til að leysa eina
þeirra út f Landsbankanum, en
bankafólkið sá við honum og var
maðurinn handtekinn.
viðræðunum Hans-Júrgen
Wischnewski, aðstoðarutanríkis-
ráðherra, Fritz Logemann,
aðstoðarfiskimálastjóri, dr. Karl-
August Fleischhauer, dr. Fredo
Dannenbring, Berhard Zepter,
Gero Möcklinghoff, dr. Arno
Meyer, dr. Breloh, Winninger,
framkvæmdastjóri fylkisþingsins
í Bremen, Raimund Hergt, sendi-
herra Þjóðverja á Islandi og
Giesna Niederste-Ostholt.
17 tSLENZK sfldveiðiskip seldu
afla sinn f Danmörku f sfðustu
viku, samtals 1476 lestir fyrir 66,3
milljónir króna. Meðalverð var 45
krónur kflóið. Jón Finnssón GK
hafði mestan afla, 161 lest sem
hann seldi fyrir 7,4 milljónir.
Loftur Baldvinsson EA seldi 136
Iestir fyrir 6 milljónir.
I fyrra höfðu íslenzk síldveiði-
skip fengið 34 þúsund tonn frá 7.
maí til 26. október og selt fyrir
975 milljónir. 1 ár hafa íslenzku
skipin aflað á svipuðum tíma 16
þúsund lestir og selt fyrir 672
milljónir. Meðalverð í ár eru 42
krónur kílóið en var f fyrra mun
lakara, eða 28 krónur. Loftur
Baldvinsson EA hefur fengið
mestan afla nú, 1661 lest og selt
hann fyrir 66 milljónir. Súlan EA
hefur fengið 1224 lestir og selt
fyrir 54 milljónir og Gísli Árni RE
hefur fengið 1023 lestir og selt
fyrir 50 milljónir.
Stálu 262 lítrum af
spíra frá varnarliðinu
SJÖ ungir menn hafa viðurkennt
að hafa á undanförnum vikum
stolið 262 lítrum af hreinum vfn-
anda frá varnarliðinu á Keflavfk-
urflugvelli. Aðeins hluta af þessu
mikla spfritusmagni komu þeir f
verð og seldu þriggja pela
flöskuna á 4000 krónur. Ef þeir
hefðu hins vegar selt allt magnið
fyrir sama verð, hefðu þeir fengið
hátt á aðra milljón króna fyrir
góssið.
Þessi spíritusþjófnaður úr
geymslum varnarliðsins hefur
viðgengist í 6—7 vikur. Lögreglan
I Keflavík fékk málið til með-
ferðar og hafði upp á þjófunum
sem reyndust vera 7 ungir menn.
Sat einn þeirra í gæzluvarðhaldi
um tíma. Vínandans höfðu ungu
mennirnir annað hvort neytt
sjálfir, selt, gefið eða hellt niður
en 40 lítra gerði lögreglan upp-
tæka. Vínandinn hafði borizt víða
áður en lekinn var stöðvaður, m.a.
norður á Húsavik.
Guðmundi
gengur vel
í Búlgaríu
GUÐMUNDI Sigurjónsson stór-
meistari hefur staðið sig mjög vel
f fyrstu umferðum svæðamótsins
f Vrasa f Búlgarfu. Er Guðmund-
ur f efsta sæti með 3 vinninga
eftir 4 umferðir.
Guðmundur tefldi í gærkvöldi
við hollenska alþjóðameistarann
Ree og að sögn Björgvins Vig-
lundsonar, aðstoðarmanns Guð-
mundar, tókst Guðmundi ekki að
knýja fram vinning þrátt fyrir
betri stöðu og sömdu þeir kapp-
arnir um jafntefli eftir 30 leiki. 1
3. umferð tefldi Guðmundur við
ungverska stórmeistarann Sax, og
sigraði Guðmundur sannfærandi i
38 leikjum og þótti skákin sérlega
vel tefld að hálfu Guðmundar,
eftir því sem Björgvin tjáði blað-
inu. Helstu keppinautar Guð-
mundar um efstu sæti mótsins
eru stórmeistararnir Matulovic og
Matanovic.
YIIRLVSING RIKISSTJ (jRNARINNAR
Hér fer á eftir yfirlýsing
sú, sem rlkisstjórnin birti I
gær og leiddi til lausnar
fiskverðsdeilunnar, sem
staðiS hefur undanfarna
daga
Forsætisráðherra hefur undan-
farna daga átt viðræður við forystu-
menn hagsmunasamtaka í sjávarút-
vegi, yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins og samstarfsnefnd áhafna
þeirra fiskiskipa, sem hættu róðrum
um sinn, um ástæður róðra-
stöðvunar og þann vanda, sem
henni fylgdi '
Helstu niðurstöður þessara við-
ræðna eru:
1. Fiskverðsákvörðunin fyrir tima-
bilið 1. október til 31. desember
n.k var I alla staði i samræmi við
lögin um Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins; og var hún tekin með samhljóða
atkvæðum fulltrúa seljenda (sjó-
manna og útvegsmanna) og kaup-
enda (fiskvinnsluaðila). Verð-
ákvörðunin er óuppsegjanleg að
óbreyttum lögum og felur þar með í
sér lögboðið lágmarksverð til ára-
móta.
2. I viðræðum kom skýrt fram, að
allir aðilar i sjávarúrvegi eru sam-
mála um, að ekki sé unnt að benda á
heppilegri leið fyrir fiskverðs-
ákvarðanir en þá tilhögun, sem felst
I starfsemi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, ekki sist vegna þess, að
þótt ákvarðanir ráðsins hafi oft verið
umdeildar, hefur starfsemi þess
tryggt starfsfrið í sjávarútvegi miklu
betur en tókst með fyrri aðferðum
Rikisstjórnin telur þvi mikilvægt, að
samningar, sem takast á vettvangi
Verðlagsráðsins séu virtir! hvívetna.
3 Fiskverðsákvörðunin frá 1
október s.l. fól I sér 4,6% meðal-
hækkun á lágmarksverði þeirra fisk-
tegunda, sem um var fjallað. Þessi
meðalhækkun er miðuð við teg-
undaskiptingu þess hluta ársaflans
1974, sem landað var hérlendis,
skv skýrslum Fiskifélags íslands, og
við áætlaða skiptingu í stærðar- og
gæðaflokka Sern kunnugt er var
tekin upp ný stærðarflokkun helstu
fisktegunda um s.l. áramót, sem
m.a fól I sér, að upp var tekin
þrlskipting þorsks og ufsa eftir
stærð og að þvi stefnt að
halda I við verð á smáfiski en
hækka verð á stórfiski. Áætlanir
um stærðarskiptingu voru m.a.
reistar á skýrslum Hafrannsókna-
stofnunar Niðurstöður aflaskýrslna
Fiskifélags um stærðarflokkun
þorskaflans veturinn 1 975 benda til
þess, að ofangreint mat á fiskverðs-
breytingunni 1 október s.l. sé frem-
ur of lágt en of hátt, e.t.v. svo nemi
0,5 til 0,7% Mat Verðlagsráðs á
fiskverðsbreytingum hefur yfirleitt
verið miðað við samsetningu árs-
afla. Ástæðurnar til þessa eru eink-
um tvær: í fyrsta lagi er það megin-
regla laganna um Verðlagsráð að
ákveða skuli fiskverð „fyrir eitt ár i
senn og aldrei fyrir skemmri tima en
eitt veiðitímabil." [ öðru lagi eru
flestar heimildir, sem ráðið hefur á
að byggja, reistar á árstölum og
ársreikningum, t.d. rekstrarreikn-
ingar. Þrátt fyrir þessa verklags-
reglu, er jafnan til þess litið, að
þegar verð hinna ýmsu fisktegunda
breytist misjafnlega koma breyt-
ingarnar misjafnlega niður eftir
greinum útgerðar og árstiðum
Þannig var talið sýnt, að miðað við
samsetningu haustaflans væri fisk-
verðshækkunin 1. okt. s I. mun
minni en 4,6% eða 3—3’/2%, og er
þá miðað við tegundasamsetningu
aflans mánuðina október til desem-
ber 1974. Þessi áætlun er þó
nokkru óvissari en áætlunin um
verðhækkun ársaflans vegna þess,
að bein vitneskja um stærðarflokka-
skiptingu haustaflans skv hinni
Framhald á bls. 28