Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 8

Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÖBER 1975 Áhugamenn um sjávarútvegsmál: Fagna 200 mílum Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi stjórnarályktun Fé- lags áhugamanna um sjávarút- vegsmál 14. október 1975. Stjórn Félags áhugamanna um sjávarútvegsmál fagnar því loka- spori í landhelgisbaráttu Islend- inga, er 200 mflna fiskveiðilögsag- an verður staðreynd á morgun, 15. október. Yfir þessari útfærslu hvílir sami skuggi og ávallt hefur áður hvflt, er Islendingar gera ráðstaf- anir til verndar þeirrar einu auð- lindar, er þjóðin hefur til að byggja efnahagsafkomu sína á, en það er skilningsleysi og fjandskapur Breta og Þjóðverja við hinar lífsnauðsynlegu aðgerðir okkar. Báðar þessar þjóðir hafa sýnt augljósar valdsréttaraðgerðir, Þjóðverjar með löndunarbanni og aðgerðum innan Efnahagsbanda- lagsins, og Bretar með hótunum aðstoðarráðherra og ráðherrans Crosland um valdbeitingu á Is- iandsmiðum, yfiriýsingar beggja staðfestar vera í samráði við stefnu brezku stjórnarinnar. Þessar aðgerðir eru ekkert annað en opinberar átakayfirlýsingar. Staða Islands hefur aldrei verið sterkari en nú. öll þróun í haf- réttarmáium hefur gengið okkur í vil. Haagdómurinn hafnaði aðal- kröfu Breta og Þjóðverja um að íslendingar væru að brjóta Iög með útfærslunni í 50 mflur, tólf mílna regla Breta og Þjóðverja er endanlega dauð. Yfirgnæfandi meirihluti heimsbyggðarinnar hefur lýst yfir stuðningi sínum við 200 mílna auðlindalögsögu. Því liggur fyrir sem óhrekjandi staðreynd, að Bretar og Þjóðverj- ar eiga engan rétt til veiða á Is- landsmiðum. Þvf er vaidsréttur- inn það eina, sem Bretar og Þjóð- verjar eiga eftir til viðhalds veið- um sínum á Islandsmiðum. Það má aldrei til þess koma að íslend- ingar beygi sig fyrir þessum valdsrétti. Tollafríðindi innan Efnahags- bandalagsins eru hreinir smá- munir miðað við þau stóru verð- mæti sem útlendingar hafa tekið af íslandsmiðum, sem eru ekki undir 275.000 tonnum af bolfiski á síðastliðnu ári, en fryst til út- flutnings ekki undir 25 þúsund milljónum króna. Þar að auki er svo þjóðaröryggið, sem felst í vís- indalegri stjórnun á nýtingu fiski- stofnanna, sem getur aukið afköst sumra þeirra um helming. I þess- um staðreyndum liggja framtíðar- vonir íslendinga, og hin eina raunverulega lausn efnahags- vandans. Stjórn Félags áhugamanna um sjávarútvegsmál harmar það van- traust, sem fram hefur komið hjá sumum ráðamönnum á Landhelg- isgæzlunni og varnarmætti henn- ar. Stjórnin hvetur til þess, að nú þegar verði gerðar ráðstafanir til þess að taka megi nægjan- lega marga af okkar stærstu og öflugustu skuttogurum til gæzlu- starfa fyrirvaralaust, til þess að tryggja allan þann tækjakost, sem nauðsynlegur er til varnar 200 mílunum en skip þessi eru tilval- in til gæzlustarfa. öll staða málsins og allar stað- reyndir aðlútandi því, krefjast allsherjarvarnar'Islendinga á 200 mílunum. Færeyskur togari fékk á sig brotsjó tsafirði, 25. okt. FÆREYSKI togarinn Hjallar- klettur TN—167 frá Þórshöfn fékk á sig brotsjó aðfararnótt föstudagsins um 20 mflur útaf Straumnesi eftir að hafa verið um tvo daga á veiðum á Islandsmið- um. Brotnaði rúða f brú skipsíns og kom talsverður sjór f brúna. Nokkrar skemmdir urðu á sjálf- stýringu, radar og öll siglingaljós urðu óvirk. Ekki urðu nein meiðsli á mönnum og er viðgerð nú að mestu lokið. Alvi Michelsen skipstjóri á Hjallakletti var að því spurður í morgun, hvað hann hefði að segja um útfærslu islenzku fiskveiði- lögsögunnar í 200 mílur. Hann kvaðst einungis tala fyrir sig og sagðist fyllilega vera sammála að- gerðum Islendinga. Varðandi af- stöðu Færeyinga, sem hafa samninga til 13. nóvember um að veiða 20 þúsund tonn, vonaðist hann til að þeir samningar yrðu endurnýjaðir og að þeir myndu fá að veiða sama kvóta eftir sem áður. Aðspurður um hvað honum þætti um aðgerðir Islenzkra sjómanna nú sfðustu sólarhring- ana, svaraði hann því til, að þeir ættu alla samúð sina, t.d. væri afkoma færeyskra sjómanna um þessar mundir miklu betri og sjómenn í Færeyjum fengju mun hærra verð fyrir afla sinn sem seldur væri á sama markað og afli Islendinga og jafnvel I sömu um- búðum og sagði hann t.d. að hásetahlutur á sinu skipi á s.l. ári hefði verið 90 þúsund danskar krónur og á öðru skipi frá sömu útgerð hefði hásetahlutur verið 105 þúsund danskar krónur eða 2,5—3 millj. ísl. króna. Hjallarklettur er skuttogari að svipaðri stærð og skuttogarar Vestfirðinga, um 500 lestir, og er aflinn ísaður í kassa. — Siggi Grfms. Höfum kaupanda Höfum kaupanda að einbýlishúsi á góðum stað i Reykjavík. Útb. 10—12 millj. Höfum kaupanda Höfum kaupanda að 3—600 ferm. Iðnaðarhúsnæði i Reykja- vik. Útb. um 10 millj. Höfum kaupendur að flestum stærðum ibúða, ein- býlishúsa og raðhúsa, i Reykja- vík., Kópavogi og Hafnarfirði. Eignaskipti Vandað einbýlishús í Kleppsholti alls um 240 ferm. ásamt bilskúr, i skiptum fyrir góða sérhæð með bílskúr, i Safamýri eða nágrenni. Upplýsíngar aðeins á skrifstof- unni. Til sölu Einbýlishús i nágrenni Reykjavik- ur um 100 ferm. Húsið er í góðu standi lóð um 4800 ferm. útb. um 3 millj. Raðhús Við Vesturberg, við Smyrla- hraun, við Hraunbæ. Við Bræðratungu, í Smiðum einbýlishús á Arnarnesi, á Sel- tjarnanesi, Kópavogi og Mos- fellssveit. Raðhús í Kðpavogi, Garðahreppi og Reykiavik Símar: 1 67 67 ______________1 67 68 Til Sölu: Hafnarfjörður lítið hús 3-herb. ris óinnréttað með hitalögn og nýrri raflögn. Hafnarfjörður 2- herb. ibúð með rúmgóðu eld- húsi flisalagt bað, hol og svefnh. með innb. skápum. Hafnarfjörður 4-herb. góð íbúð við Holtsgötu sér hiti. Óðinsgata 3- herb. litil ibúð með sér inngangi og sér hita. Laugarnesvegur góð 3-herb. ibúð á 2. hæð. Svalir Maríubakki 4- herb. ibúð 3-svefnh. þvottahús á hæðinni óvenjufalleg ibúð Hverfisgata 4- herb. ibúð þarfnast stand- setningar útb. 2—2,5 millj. Meistaravellir 5- herb. ibúð með þvottahúsi á hæðinni og búri Höfum fjársterkan kaupanda að iðnaðarhúsnæði 500—600 ferm. á 1. hæð þarf ekki að vera fullbúið Okkur vantar alltaf fleiri fasteignir á söluskrá. Makaskipti oft möguleg. Elnar Sigurðsson. hrl. Ingólfsstræti4, sími 16767 Eftir lokun 36119. Yfir hafið með SKIP VOR MUNU LESTA ERLENDIS Á NÆSTUNNI SEM HÉR SEGIR: Skip vor munu lesta erlendis sem hér segir: HAMBORG: Langá 3. nóvember + Skaftá 1 4. nóvember + Langá 24. nóvember + Skaftá 1. desember + Langá 1 1. desember + ANTWERPEN: Langá 6. nóvember + Skaftá 12. nóvember + Langá 27. nóvember + Skaftá 4. desember + Langá 1 5. desember + FREDRIKSTAD: Selá 6. nóvember Laxá 1 2. nóvember Laxá 24. nóvember. GAUTABORG: Selá 5. nóvember. Laxá 1 3. nóvember. Laxá 28. nóvember. KAUPMANNAHÖFN: Rangá 27. október. Selá 3. nóvember Laxá 14. nóvember Laxá 26. nóvember HELSINGBORG: Selá 4. nóvember Laxá 27. nóvember HELSINKI: Rangá 17. nóvember VENTSPILS: Rangá 14. nóvember. Rangá 9. desember GDYNIA/GDANSK Rangá 1 9. nóvember. Rangá 1 1. desember Le Havre: Skaftá 10. nóvember. + Skipin losa/lesta á Akureyri og Húsavík. HAFSKIP H.F. HAFNARHUSINU REYKJAVIK Sl M N r F N i. HAFSKIP SIMI 21160 Verksmiöju útsala Alafoss Opid þridjudaga 14-19 fimmtudaga 14-21 á útsolunm.* Flækjulopi Hespulopi Flækjuband Endaband Prjónaband Vefnaðarbútar Bílateppabútar Teppabútar Teppamottur ALAFOSS HF MOSFELLSSVEIT 27233á1 I----------- I ■ 3ja herb. _ Imjög skemmtileg jarðhæð I fjór- I býlishúsi við Goðheima. Gott út- sýni. Sérhiti. Sérinngangur. ■ ITeppi, Flisalagt bað Fallegt eld- I hús. Verð 6 millj. Útb. 4 til 4,5 millj. Í |3ja herb. snotur kjallaraibúð við Lindar- fl Igötu. Sérhiti. Sérinngangur. Ný- ■ leg teppi. Laus strax. _ Raðhús í Árbæjarhverfi. IHef kaupanda _ að einbýlishúsi I Garðahreppi. ■ Góð útb I Fasteignasalan | | Hafnarstræti 15a Bjarni I Bjarnason U i Mk- j Laugarnesvegur 3ja herb. íbúð á 2. hæð í blokk við Laugarnesveg ásamt her- bergi í kjallara. Vélaþvottahús, Laus strax. Ásbraut 4ra herb. mjög vönduð íbúð við Ásbraut Kópavogi Sérhæð 5 herb. glæsileg efri hæð í þrí- býlishúsi við Skipholt. Sér inn- gangur sér hiti. Bilskúrsréttur. Raðhús i Garðahreppi Óvenjuvandað og glæsilegt 140 ferm. endaraðhús allt á sömu hæð. Stór bilskúr með herb. og sér snyrtingu fylgir. Fullfrágeng- in lóð. Hitaveita að koma. Eign í sérflokkL Háhýsi 4ra herb. ibúð i háhýsi við Sól- heima til sölu, í skiptum fyrir stóra 2ja — 3ja herb. ibúð. Seljendur athugið Höfum kaupendur að 2ja og 3ja herb. ibúðum með fullar hendur fiár. Seljendur Höfum fjársterka kaupendur að ibúðum, sérhæðum, raðhúsum og einbýlishúsum. Málflutnings & t fasteignastofa Jflnar Gustalsson, hrl. Auslurslrætl 14 jSímar 22870 - 21750, Utan skrifstofutima: — 41028 AUCLÝSINGASÍMINN ER: 22480 r Okeypis Ijósaskoðun til 1. nóvember fyrir allar teg. Skoda-bifreiða Tékkneska — bifreióaumboðið á fslandi h.f., Auðbrekku 44 — 46 Kópavogi. SÍNIAR 21150 - 21370 Til sölu m.a. jr I smíðum stór úrvals raðhús við Fljótasel og Dalsel. Endaraðhús við Torfufell um 1 30 fm rúmlega fokhlet. Tvíbýlishús tvær hæðir á mjög góðum stað í Garða- hreppi. 5herb. íbúöir við Þverbrekku Kópavogi ný úrvals ibúð i háhýsi. Bólstaðarhlíð á 4. hæð 125 f. Sérhitaveita. Bílskúrs- réttur. Góð sérhæð á Seltjarnarnesi við Lindarbraut um 120 fm. (búðin er á 1. hæð í þribýlishúsi. Stofa, og 3 svefnherb. Allt sér. Góður bílskúr. Útb. aðeins kr. 2,8 millj. 4ra herb. góð samþykkt kjallaraíbúð við Bræðraborgar- stíg um 100 fm. Eldhús og bað endurnýjað. Sér- hitaveita * I Vesturborginni óskast 4ra til 5 herb. íbúð á 1. hæð eða jarðhæð. Skipti möguleg á góðri 3ja herb. íbúð á Högunum Nýtt endaraðhús við Vesturberg um 1 60 fm á tveim hæðum. íbúðarhæft en ekki fullgert. Vönduð eign. Teikning og nánari uppl á skrifstofunni. NÝSÖLUSKRÁ HEIMSEND AIMENNA FASTEIGNASALAM LAUGAVEGI 49 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.