Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 11

Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975 11 ins, ef erlend veiðiskip héldu áfram samningsbundnum veiðum innan 50 mílnanna. Skoraði hann á talsmenn stjófnarinnar að lýsa því yfir, 'strax við þessar um- ræður,' að slíkir samningar væri útilokaðir. Vilhjálmur Hjálmarsson mennta- málaráðherra.: Villandi mál- flutningur stjórnarandstöðu. Ráðherrann vék fyrst að þeim viðfangsefnum, sem unnið væri að i ráðuneyti hans, og löggjöf, varðandi þá málaflokka, einkum á grunnskóla pg framhaldsskóla- stigi. Þvi næst vék hann að málflutn- ingi talsmanna stjórnarandstöð- unnar, sem hann sagði villandi og mótsagnakenndan. Ragnar Arnalds bergmálaði skrif Þjóðviljans, sem birt hefði alls konar mótmæli undir 15 yfir- skriftum í einu og sama blaðinu. Hann talaði um skertan hlut byggðasjóðs, sem hefði verið stór- efldur i tíð núv. ríkisstjórnar. Hann talaði gegn gengislækkun- um og söluskattshækkunum, sem hann og flokkur hans hefðu staðið að í tið fyrrv. ríkisstjórnar. Sama máli gegndi um ýmsa opinbera þjónustu, sem þá hefði verið hækkuð. Benedikt Gröndal hefði að vísu verið málefnalegri í sinni ræðu. Hann hefði þó bæði mótmælt tilurð 12% vörugjalds en síðan af engu minni móði væntanlegri niðurfellingu þess. Stjórnarand- stæðingar mæltu með hvers konar útgjaldahækkunum, en gegn hvers konar lækkunum þeirra. Hins vegar stæðu þeir á móti öllum tiltækum leiðum til að mæta kostnaði, sem af kröfum þeirra leiddi. Aukin útgjöld væru óhugsandi án meiri skattheimtu. Ráðherrann vék að ýmsum gjörðum núv. ríkisstjórnar: útfærslu fiskveiðilandhelginnar, framkvæmdum í vatnaflsvirkjun- um og varmanýtingu, vinnslu- stöðvun í landbúnaði og sjávarút- vegi, framkvæmdum í vegamál- um og skólamálum, nýjum tækja- kosti landhelgisgæzlu o.fl. Þá fór ráðherrann nokkrum orðum um hallarekstur ríkissjóðs, viðskiptahalla við útlönd, rýrn- andi kaupmátt útflutningstekna þjóðarinnar og minnkandi þjóðar- tekjur, stöðu fjárfestingarsjóða og verðjöfnunarsjóða atvinnuveg- anna. Hér væri vandi á höndum, sem horfast þyrfti í augu við og mæta á raunhæfan hátt. Efna- hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar þyrfti að tryggja með samstöðu og samátaki allra afla i þjóðfélaginu. Geir Gunnarsson (K): „Það býr ekki ein þjóð f þessu landi.“ Halla á ríkisrekstri er mætt með skuldasöfnun við Seðlabank- ann. Gjaldeyriseyðslu þjóðar- innar með skuldasöfnun erlendis. Þessi er raunin í hægri fjármála- stjórn. Verðbólgan er 'A meiri í ár en á sl. ári. Orsakir verðbólguvaxtar liggja m.a. í gengislækkunum, sköttun á selda þjónustu og neyzluvörur al- mennings og taumlausu fjárfest- ingaræði fjárplógsmanna, sem hafa aðstöðu og aðgang að láns- fjármagni. Hins vegar er gengið á hlut láglaunastétta. „Það lifir ekki ein þjóð í þessu landi." Verzlunin heldur áfram að mata krókinn. Skattareglur koma ranglátlega niður. Verðbólgu- gróðinn ekki síður. Verðbólgu- vöxturinn mæðir þyngst á launa- stéttum. Niðurskurður námslána, væntanlegur niðurskurður al- mannatrygginga auk undangeng- innar kaupskerðingar eru ein- kenni hægri stjórnar. „Nei, það lifir ekki ein þjóð í þessu landi.“ Rikisstjórnin sveik skatt- lækkunarloforð við verkalýðs- hreyfinguna. 12% vörugjaldið var dæmi þess. Lækkun niður- greiðslna á landbúnaðarafurðir mun stórhækka verð á helztu nauðþurftum almennings. Verka- lýðshreyfingin er nú tilneydd til að gripa til sinna ráða. Lárus Jónsson (S): Þreföldun f járlaga f vinstri stjórn. Gagnrýni á fjármálastjórn kemur úr hörðustu átt þegar Geir Gunnarsson (K), sem formaður var í fjárveitinganefnd Alþingis I tíð vinstri stjórnar, þegar fjárhæð þeirra þrefaldaðist á skömmum valdatima, snýst gegn nauðsyn- legum aðhaldsaðgerðum. Nú er stefnt að alhliða aðhaldi I rikisbú- skapnum, verulegri niðurfærslu rikisútgjalda, sem er í senn for- senda jafnvægis í þjóðarbúskapn- um og raunhæfum aðgerðum gegn verðbólguvextinum. Gagnrýni Karvels Pálmasonar á byggðastefnu núv. ríkisstjórnar fellur um sjálfa sig, þegar þess er gætt, að framlög ríkissjóðs til byggðasjóðs eru margföld nú á við það, sem var í tið vinstri stjórnarinnar. Tekjustofnar sveitarfélaga hafa verið verulega efldir og stefnt er að auknu verk- sviði þeirra. Raforkuframkvæmd- ir, sem og jarðvarmarannsóknir og virkjanir, sem engar voru i tíð vinstri stjórnar, eru nú umfangs- miklar víðast hvar á Iandsbyggð- inni. Ljóst er hins vegar, að nú- verandi efnahagsaðstæður, sem rætur eiga í versnandi viðskipta- kjörum, sem og verðbólguarfleifð fyrri stjórnar, knýja á um frestun ýmissa framkvæmda og minni framkvæmdahraða. — Hyggi- legra væri og að biða með sleggju- dóma um bætur aldraðra og öryrkja, unz tillögur um fram- kvæmd sparnaðar í trygginga- kerfinu liggja fyrir. Ef viðskiptakjör þjóðarinnar hefðu á yfirstandandi ári verið þau sömu og í ársbyrjun 1974, þ.e. verðlag innfluttra nauðsynja og útflutningsframleiðslu okkar, hið sama, hefðu þau þýtt 10.000 milljóna króna hagstæðari út- komu fyrir þjóðarbúið. Þessi skerðing hlaut að segja til sin á öllum sviðum þjóðlifsins. Þessi er meginorsök gjaldeyrisstöðunnar og minnkandi þjóðartekna. Þrátt fyrir þessa stöðu hefur tekist að halda uppi fullri atvinnu, hvar- vetna á landinu enn sem komið er. Verðbólgan hefur að vísu hægt á sér síðustu 3 mánuðina, en vöxt- ur hennar er eitt helzta vandamál efnahagslífsins. Fyrirhugaðar að- haldsaðgerðir, sem stjórnarand- staðan deilir nú á, eru óhjá- kvæmileg forsenda þess, að takist að hægja á verðbólguvextinum, sem og nauðsynlegt samstarf stjórnvalda og aðila vinnu- markaðarins um að fyrirbyggja nýtt víxlhækkunarkapphlaup verðlags og launa. Stefna þarf áfram að því megin- marki að tryggja atvinnuöryggi almennings, þ.e. rekstrargrund- völl atvinnuveganna. Að þvi miða allar aðgerðir stjórnvalda í efna- hagsmálum. Aðhaldsaðgerðir nú eru forsendur nýs framfaraskeiðs í landinu. Ólafur R. Grfmsson (SFV): Sam- staða vinstri afla. Leiðarljós þjóðmálanna eiga að vera: efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, byggðajafnvægi og jöfnuður f kjörum þjóðarinnar. öllu þessu er þó stefnt í hættu af núverandi ríkisstjórn. Mál öll hafa þróast á hinn verri veg, enda stendur stjórnin á brauðfótum. Erlendar skuldir vaxa, gjaldeyris- forðinn þrotinn og lifað á skulda- söfnun, verðbólgan vex hröðum skrefum, hallarekstur rfkissjóðs og skuldasöfnun við Seðlabank- ann eru staðreyndir, sem og skert almannakjör. Skera á nú niður framkvæmd- ir á landsbyggðinni — á sama tfma og stofnað er til 20 þús. milljóna fjárfestingar á suðvest- urhorninu: í stórvirkjunum, her- framkvæmdum á Keflavíkurflug- velli og járnblendiverksmiðju. Þessi er byggðastefnan. Aukning fjárframlaga f byggðasjóð heitir á máli Sverris Hermannssonar stjórnarþingmanns „krækiber í helvíti" f samanburði við þessa fjárfestingu. Hann lfkir henni og við smádúsu til að „geta f friði byggt stórt á S.v.landi". Og hann talar um mestu byggðaröskun af mannavöldum! Ólafur sagði, að þó heimilin i landinu byggju almennt við bjargarþrot, sæi ríkisstjórnin um sfna. Þá, sem græddu á verðbólg- unni, skattakerfinu og rangsnúnu þjóðfélagi. Hann hvatti að lokum til náins samstarfs Alþýðubanda- Iags, Alþýðuflokks og Samtak- anna. Gylfi Þ. Gfslason (A): Efnahags- legt sjálfstæði f hættu. Erlendar skuldir þjóðarinnar hafa þrefaldast á fjórum árum. Gjaldeyrisvarasjóðurinn er horf- ipn. I fyrsta skipti um langt árabil hefur þjóðin orðið að sætta sig við lækkandi ráðstöfunartekjur. Verðbólgan vex hröðum skrefum. Viðskiptahallinn sömuleiðis sem og staða ríkissjóðs. Það var mikið góðæri um og upp úr 1970. Þáverandi stjórn- völd reyndust ekki vandanum vaxin, að stjórna f góðæri. Því fór sem fór. Núverandi ríkisstjórn tók við ýmsum þjóðfélagsvanda. En hún reyndist heldur ekki þeim vanda vaxinn. 1 þessum tveimur rikisstjórnum hafa allir íslenzkir stjórnmálaflokkar setið, nema Alþýðuflokkurinn. Efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er í hættu. Glatist það, hversu lengi tekst okkur þá að vernda hið stjórnar- farslega sjálfstæði? Enginn einn aðili ræður við hinn risavaxna aðsteðjandi vanda sem þjóðin á við að etja, ekki rikisstjórnin ein, ekki verkalýðs- hreyfingin ein. Hér þarf vfðtækt samstarf allra þjóðfélagsafla, en til þess að það megi takast, þarf rikisstjórnin að afla sér þess al- mannatrausts, sem hún hefur glatað. Alþýðusamband Islands hefur boðið fram sína samvinnu um að- gerðir gegn orsökum verðbólg- unnar, ekki siður en afleiðingum hennar. I þvf sambapdi þarf m.a. að hyggja að breytingum á skatta- kerfinu, vanda ungs fólks i húsnæðismálum, ekki sízt varð- andi lausaskuldir, vandamálum lffeyrissjóða og skynsamlegri stefnu í fjárfestingarmál- um. Stefnubreytingar er og þörf i málefnum landbúnaðar. Það þarf hugarfarsbreytingu hjá þjóðinni allri, en ekki sizt ríkisstjórninni sjálfri, ef okkur á að takast að komast út úr þeim vítahring, sem við erum nú f og stefnir efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í verulega hættu. Hjálmar Ólafsson kosinn formaður Norræna félagsins Á nýafstöðnu sambandsþingi Norræna félagsins voru mættir 86 fulltrúar frá 24 félagsdeildum og er þetta langfjölmennasta sam- bandsþing Norræna félagsins. I skýrslu framkvæmdastjóra kom fram, að 1Ó félagsdeildir höfðu verið stofnaðar frá síðasta sam- bandsþingi 1973. Á sama tima hafði félögum fjölgað um 3400, æskulýðssamtök höfðu verið stofnuð og samnorræn námskeið verið haldin. Fram kom í skýrsl- unni, að sambandið við norrænu félögin á hinum norðurlöndunum var mjög náið og að fslenska félag ið tók þátt í norræna samstarfinu af fullum krafti. Stjórn Norræna félagsins hafði komið saman tvisvar á ári bæði árin og fram- kvæmdaráðið hafði á tímabilinu haldið 36 fundi. I skýrslunni kom fram þakklæti til styrktarfélaga Norræna félagsins, auglýsenda í blaðinu „Vi i Norden" og að lok- um voru nefndir þrfr aðilar er sýndu Norræna félaginu sér- stakan velvilja og góða fyrir- greiðslu en það voru, Flugleiðir, menntamálaráðuneytið og Norr- æna húsið. Formenn allra félagsdeilda, er fulltrúa áttu á þinginu, fluttu skýrslur um störf deildanna og kom þar í ljós, að töluverð gróska er í starfi deildanna og vakandi áhugi fyrir norrænni samvinnu. Þingfulltrúar voru á einu máli Hjálmar Ólafsson um að megináherslu bæri að leggja á sambandið við hinar ein- stöku deildir. Gunnar Thoroddsen iðnaðar- ráðherra, sem verið hefur formað- ur félagsins s.l. fimm ár baðst nú eindregið undan endurkosningu. I hans stað var kosinn formaður til næstu tveggja ára Hjálmar Ölafsson, Kópavogi. Aðrir í stjórninni eru: Helgi Bergs, vara- formaður, Arnheiður Jónsdóttir bæði I Reykjavfk, Guðmundur Björnsson Akranesi, Gunnar Ölafsson Neskaupstað, Sverrir Framhald á bls. 28 ja hérna! Nú hefur Innréttingabúðin enn einu sinni endurnýjað teppalagerinn sinn. Þeir eiga nú hvorki meira né minna en 60 nýja liti og mynstur, og bjóða góða greiðsluskilmála Okkar aðall er: ÞEKKING - REYNSLA — ÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.