Morgunblaðið - 28.10.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975
17
Axel og Kristbjörg — þau eru bæði meðal þátttakenda f Evrðpu-
mötunum I handknattleik.
Fimm „íslenzk” lið
í Evrópumótunum
ÍSLENZKT handknattleiksfóik tekur I ár þátt í Evrópukeppni í
handknattleik með fimm félögum. Auk fslenzku liðanna Vík-
ings, FH og Vals tekur lið þeirra Ólafs H. Jónssonar og Axels
Axelssonar, / Dankersen, þátt f Evrópukeppni bikarmeistara og
Kristbjörg Magnúsdóttir, kona Axels, leikur með félaginu
Minden, sem einnig tekur þátt f Evrópukeppni.
Frá þvf var greint f Morgunblaðinu á sunnudaginn hverjir
verða mótherjar Víkings, Vals og FH f Evrópukeppninni, en hér
fer á eftir listi yfir hvaða lið leika saman f 2. umferð Evrópumót-
anna. Þess má geta hér til gamans að Valsstúlkurnar höfðu rætt
það sfn á milli áður en dregið var að þær mundu örugglega fá HG
frá Kaupmannahöfn sem mótherja f keppninni, vegna þess að
þær væru sjálfar með auglýsingu frá HG (Herði Gunnarssyni) á
búningum sfnum.
Liðin sem enn eru eftir f keppninni leika þannig saman f
annarri umferð:
MEISTARALIÐ KARLA:
Hapoel Rohovot (Israel) —Calpisa Alicante (Spáni)
Slask Wroclaw (Póllandi) —Sittardia Sittard (Hollandi)
Sparta IF (Finnlandi) — Sasja HC Antwerpen (Belgfu)
Borac Banja Luka (Júgóslavfu) — CH Bratislava
(Tékkóslóvakfu)
MarseiIIes (Frakklandi) —Fredericia KFUM (Danmörku)
Vfkingur (Islandi) —Gummersbach (V-Þýzkalandi)
Sportist Kremikovzi (Búlgarfu) —Grasshoppers Ziirich (Sviss)
Drott Halmstad (Svfþjóð) —Fredensborg (Noregi)
BIKARMEISTARAKEPPNIN
Universite Club Paris (Frakklandi) — Hapoel Ramat-Gan
(Israel)
UHC Salzburg (Austurríki) — Griin-Weiss Dankersen (V-
Þýzkalandi)
BSV Bern (Sviss) —Crvena Belgrad (Júgóslavfu)
Vástra Frölunda (Svfþjóð) —Balonmano GranoIIers (Spáni)
East Kilbride (Skotlandi) — Progres HC Seraing (Belgfu)
Bred Boys Differdange (Luxemburg) — AHC 31 Amsterdam
(Hollandi)
Oppsal (Noregi) — FH (Islandi)
FIF Kaupmannahöfn (Danmörku) — Sporting Lisbon
(Portúgal)
KVENNAKEPPNIN
HG Kaupmannahöfn (Danmörku) — Valur (Islandi)
Hapoel Raanana (Israel) — Polisens IF (Svfþjóð)
ZSKA Sname Sofia (Búlgarfu) — IF Vestar (Noregi)
Inter Bratislava (Tékkóslóvakfu) — Danicki Belgrade
(Júgóslavfu)
Eintracht Minden (V-Þýzkalndi) — Admira Landhaus Vfn
(Austurríki)
Byes aus Lyons (Frakklandi) — Mora Swift Roermond (Hol-
landi)
Medina san Sebastina frá Spáni situr yfir f umferðinni.
Björgvin
í Víking
lSLANDSMEISTURUM Víkings
hefur bætzt góður liðsauki þar
sem er Björgvin Björgvinsson.
Þessi reyndi landsliðsmaður
hyggst flytjast 'til Reykjavfkur
upp úr áramótum og hefja þá að
leika með Víkingsliðinu. Ástæðan
fyrir því að Björgvin gekk í Vfk-
ing, en hélt ekki áfram að leika
með Fram, mun m.a. vera sú, að
honum Iíkar mjög vel við Karl
Benediktsson þjálfara Víkinga.
Gengið var frá félaga-
skiptunum nú um helgina og
flugu þeir Rósmundur Jónsson og
Viggó Sigurðsson austur á Egils-
staði á sunnudaginn með nauð-
synleg plögg og komu til baka
með nauðsynlegar undirskriftir.
Björgvin má byrja að leika með
Vfkingum eftir einn mánuð og
gæti því leikið seinni leikinn
gegn Gummersbach f Evrópu-
keppninni. Hannes Guðmundsson
formaður Handknattleiksdeildar
Vfkings sagði f viðtali við
Morgunblaðið f gær að hann teldi
fullvfst að Björgvin færi með til
Þýzkalands.
Jón U við
200 mílumar
á tæpri viku
MITT í ös kvennadagsins s.I. föstudag kom Jón
Guðlaugsson, HSK, í mark úr 200 mílna landhelgis-
hlaupi sínu. Var það þá búið að standa í tæpa viku.
Jón lauk hlaupinu við styttu Ingólfs Arnarsonar á
Arnarhóli, og var þar til staðar Hafsteinn Þorvalds-
son, formaður UMFl, ásamt fleirum og afhenti hann
Jóni verðlaunabikar fyrir hlaupið og var mynd þessi
tekin við það tæki'færi.
Celtic tókst
ekki að verja
deildarbikarinn
Jóhannes kom Celtic f úrslitin,
en hvorki honum né félögum
hans tókst að brjótast f gegnum
vörn Rangers.
Glasgow Rangers hreppti skozka deildarbikarinn f ár, en
leikið var til úrslita um þennan eftirsóknarverða grip á
Hampden Park, f Glasgow á laugardaginn. Mótherjar Rangers f
úrslitaleiknum voru Celtic, en þau eru ótalin skiptin sem þessi
tvö lið hafa mætzt f úrslitaleikum f skozku knattspyrnunni á
undanförnum árum. Þannig hafði Celtic t.d. eigi færri en 10
sinnum unnið deildarbikarinn, og að þessu sinni veðjuðu mun
fleiri á Celtic f leiknum.
Varnarleikur var í fyrirrúmi hjá báðum liðunum, og ekki
tekin hin minnsta áhætta. Virtist markalaust jafntefli blasa við
er Rangers herti sig loks upp f sókn þegar langt var liðið á
leikinn og úr henni skoraði Alex MacDonald.
Ágnst sigraði í Englandi
AGUST Ásgeirsson varð sigur-
vegari í 7,5 kílómetra víðavangs-
hlaupi sem fram fór við Durham f
Englandi um síðustu helgi. Hljóp
Ágúst vegalengdina á 24:30,0
min., en sá er varð i öðru sæti, Ian
Beuchamp, hljóp á 24:49,0 mln.,
þannig að yfirburðir Ágústs í
hlaupinu voru umtalsverðir.
— Ég var engan veginn búinn
að jafna mig eftir götuhlaupið i
Amsterdam á dögunum sagði
Ágúst, er Morgunblaðið ræddi við
hann. Ég var með blöðrur á
fótunum og þreytan sat i mér,
þannig að ég átti alls ekki von á
góðum árangri, ekki sízt þar sem
brautin var nokkuð erfið, m.a. i
henni þrjár snarbrattar brekkur
og auk þess moldarsvæði, sem
voru sem eðja.
Ágúst sagðist lítið hafa skipt
sér af hraðanum fyrstu 2 kiló-
metrana, en þá tekið forystu og
farið greitt næstu kílómetra, og
náð þá um 100 metra forskoti á
aðalhópinn. — Andstæðingar
minir hafa látið blekkjast af tíma
mínum frá Amsterdam og ekki
tekið það með í reikninginn að ég
var ekki búinn að jafna mig eftir
það hlaup, þannig að þeir slepptu
mér frá sér, sagði Ágúst, sem
sagðist siðan hafa hlaupið síðasta
spölinn afslappaður til þess að
hætta ekki á meiðsli.
Alls voru 35 hlauparar i hlaupi
þessu og meðal þeirra allir beztu
langhlauparar Durham-
háskólans, að Sigfúsi Jónssyni
undanskildum.
Ágúst sagði, að næsta stór-
keppni sem hann tæki þátt í færi
fram 8. nóvember og væri þar um
að ræða 4x5,5 kílómetra boð-
hlaup. Sveit Durham hefði unnið
þetta hlaup í fyrra, og ætlaði sér
að endurtaka það. Róðurinn yrði
þó erfiður þar sem meðal and-
stæðinganna í þessu hlaupi yrði
Walter Wilkinson, sá Breti sem
oftast hefur hlaupið milu undir 4
mínútum. Þá sagði Agúst að hann
og Sigfús væru að reyna að
komast inn i 10 mílna hlaup í
Englandi, en fyrirhuguð er þátt-
taka allra beztu hlaupara Bret-
lands í þvi hlaupi.
4gg^:
Ljósm. MorgunblaðrthFrióþjöfur.
Meistarar
REYKJAVÍKURMEISTARAMÓTINU í körfu-
knattleik Iauk á laugardaginn með sigri ÍR í úrslita-
leik við Ármann. Mót þetta hefur vakið meiri
athygli en flest önnur körfuknattleiksmót hérlendis
fyrir þátttöku tveggja blökkumanna, sem nú þjálfa
lið KR og Ármanns. En það var samt sem áður lið ÍR
sem hreppti titilinn. Myndin er af Reykjavíkur-
meisturunum. Aftari röð frá vinstri: Ásgeir Guð-
laugsson, formaður ÍR, Hólmsteinn Sigurðsson, liðs-
stjóri, Stefán Kristjánsson, Jón Jörundsson, Krist-
inn Jörundsson, fyrirliði, Agnar Friðriksson, Sig-
urður Gíslason og Einar Ólafsson, þjálfari. Fremri
röð frá vinstri: Sigurbergur Bjarnason, Þorsteinn
Guðnason, Kolbeinn Kristinsson, Þorsteinn Hall-
grímsson og Erlendur Markússon.