Morgunblaðið - 28.10.1975, Síða 18

Morgunblaðið - 28.10.1975, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975 Æfa í Mið-Evrópu í rúman mánuð fjrir Ólympíuleikana í Innsbruek Atta íslendingar verða meðal keppenda á leiknnnm VERKEFNI skíðamanna f vetur verða fleiri og veglegri en undan- farin ár og ber þar að sjálfsögðu hæst Ólv mpíuleikana f Austur- rfki í hvrjun febrúar á næsta ári. Verða sendir átta keppendur þangað og byrjuðu æfingar lands- liðshópsins þegar í sumar, en um miðjan júlfmánuð fór fram tfu daga æfing f Siglufjarðarskarði við hinar ákjósanlegustu að- stæður. Fjórir keppendur verða í alpa- greinum karla og eru það þeir Arni Óðinsson, Haukur Jóhanns- son, Tómas Leifsson, Sigurður Jónsson, Hafþór Júlíusson og Guðjón Ingi Sverrisson. Auk þess- ara var Hafsteinn Sigurðsson val- inn til æfinganna, en hann gaf ekki kost á sér vegna annríkis. Búast má við að keppnin um sætið í landsliðinu komi til með að standa á milli Tómasar og Haf- þórs, en möguleikar Guðjóns eru sýnu minnstir, en þeir fjórir verða valdir, sem flesta punkta hafa hlotið á alþjóðamótum skíða- manna. Tvær íslenzkar stúlkur verða meðal keppenda í alpagreinum kvenna og hafa þær Jórunn Viggósdóttir, Steinunn Sæmunds- dóttir, Margrét Baldvinsdóttir og Katrín Frimannsdóttir verið vald- ar til æfinga. I norrænu greinun- um verða tveir keppendur frá Is- landi, báðir í göngu. Til æfinga hafa þremenningarnir Halldór Matthíasson, Trausti Sveinsson og Magnús Eiríksson verið valdir. Austurríkismaðurinn Kurt Jenni mun þjálfa landsliðið i alpagreinum og var hann með æfinguna i Siglufjarðarskarði i sumar. Auk þess hefur hann út- búið æfingaáætlun, sem skíða- fólkið æfir eftir. Björn Þór Ólafs- son hefur hins vegar séð um æfingar fyrir göngumennina. Einn nauðsynlegasti þátturinn í undirbúningnum fyrir Ólympíu- leikana er að gefa keppnisfólkinu kost á að taka þátt í mótum er- lendis við svipaðar aðstæður og verða á sjálfum Ólympíuleikun- um. Þvi hefur verið ákveðið að hluti keppendanna í alpagreinun- um fari i æfinga- og keppnisferð til Mið-Evrópu og dveljist þar i meira en mánaðartíma, eða frá 15. nóvember og til jóla. Munu þau Árni, Haukur, Tómas, Sigurður, Hafþór, Jórunn, Steinunn og Margrét taka þátt í þessari ferð. Endanlegt lið fyrir Olympíuleik- ana verður siðan valið strax að þessari ferð lokinni. Nokkrir þeirra, sem valdir hafa verið til æfinganna, hafa farið utan til æfinga á eigin vegum. Þannig stunduðu Sigurður og Hafþór æfingar i Austurríki I sumar, Jórunn dvelst um þessar mundir við æfingar í Austurríki og á ítalíu og þangað er Tómas nýfarinn. Halldór Matthíasson hefur undanfarin ár stundað nám i sjúkraþjálfun í Noregi, en vegna Ólympíuleikanna gerði hann hlé á námi sínu og hefur æft göngu í Sami fjöltíi punktamóta og á undanförnum árnm PUNKTAMÓT skiða- fólksins verða í vetur með svipuðum hætti og undanfarin ár og fjöld- inn verður sá sami. Landsmót fullorðinna fer að þessu sinni fram á Akureyri, en unglinga- meistaramótið verður haldið í Reykjavík. Verð- ur mót unglinganna að þessu sinni haldið viku áður en mót þeirra eldri fer fram. Er það gert með það í huga að þeir sem standa sig bezt á unglingamótinu eigi möguleika á að sanna ágæti sitt á sjálfu lands- mótinu. Punktamót unglinga verða þrjú talsins og meðal þeirra staða sem falið hefur verið að halda punktamót er Seyðis- fjörður en þar er skíða- fþróttin nú í miklum upp- gangi og til að ýta undir þann áhuga er Seyð- firðingum falið annað ár- ið í röð að halda punkta- mót. Punktamót vetrar- ins á skíðum verða sem hér segir. Alpagreinar fullorðinna: 24.—25. janúar í Reykja- vík 21.—22. febrúar á Húsa- vfk 6. —7. marz á ísafirði 27.—28. apríl á Akureyri 14.—20. apríl verður landsmótið haldið á Akureyri. Alpagreinar unglinga: 7. —8. febrúar á Húsavík 13.—14. marz á Seyðis- firði 11.—13. apríl í Reykjavík í göngu verður keppt á sömu stöðum á sama tíma, nema hvað 21.—22. febrúar verður keppt í göngu á Siglufirði. í stökki verða haldin tvö mót í vetur fyrir utan landsmótið, á Siglufirði 21. og 22. febrúar og á Ólafsfirði 27.—28. marz. Noregi og þá meðal annars með norska Iandsliðinu, sem er senni- lega það sterkasta í heimi um þessar mundir. Fyrir helgina hélt Halldór til Kiruna I N-Svíþjóð, þar sem snjór fellur fyrr en á góðum skíðastöðum í Noregi. Á fundl með fréttamönnum á föstudaginn sagði Hákon Ólafsson formaður Skíðasambands Islands að hann væri þess fullviss að íslenzk skiðaæska væfi ekki síður efnileg en ungt skíðafólk i öðrum löndum. Hins vegar skorti mikið á að Skíðasambandið hefði fjár- hagslegt bolmagn til að veita sínu fólki jafn góða aðstöðu til þjálf- unar og nágrannaþjóðirnar gerðu til dæmis. Síðastliðið ár var velta Skiða- sambandsins um ein og hálf milljón og skuldir sambandsins voru við síðasta uppgjör á milli 3 og 400 þúsund. Kostnaður við undirbúning fyrir Ólympiuleik- ana mun væntanlega verða nokk- uð á þriðju milljón króna. Megin- hluta þess fjár verður SKI að afla upp á eigin spýtur á ýmsan hátt, en kostnað við þátttöku Islands í sjálfum Ólympíuleikunum greiðir Ólympiunefndin. Skíðasambandið hyggst á næst- unni efna til happdrættis og hefst miðasalan í lok þessa mánaðar. kort af landssvæði þvf þar sem vetrarólympíuleíkarnir fara fram í vetur. Alpagreinarnar verða I Axamer Lizum, en göngukeppnin f Seefeld. Haukur Jóhannsson ætti að vera öruggur f landsliðið, sem keppir f Innsbruck. Báðar þessar myndir eru teknar f Kerlingaf jöllum. Hver græðir á hverjum? Skfðavörur voru á síð- asta ári seldar fyrir rúm- lega 30 milljðnir krðna og f ár má búast við að salan verði um 45 millj- ónir. 1 rauninni hefur salan ekki aukizt svo mjög, heldur hefur allt verð hækkað til muna. Af þessum upphæðum fær ríkið um 37% þannig að Iáta mun nærri að rfkið hafi fengið 13 milljónir á sfðasta ári f tolla, skatta og annað fyrir vörur til skfðaiðkana. Það var Hákon Ólafs- son formaður Skíðasam- bandsins sem benti á þetta dæmi á fundi með fréttamönnum á föstu- daginn. Setti Hákon dæmið upp á þann hátt að af skíðum sem eru tveir metrar á lengd skiptist söluverðið á eftirfara^di hátt á milli hinna ýmsu viðkomandi aðila: Framleiðandi fær 26.48% eða 53 sm Flutningsgj. og vátr. nemur 9% eða 18 sm Tollur er 15.61% eða 31 sm Ileildsalinn fær 5.83% eða 12 sm Smásalinn fær 18.58% eða 37 sm 20% söluskattur fer til rfkisins eða 16.67%, en það eru um 33 sm af tveggja metra skfðum og loks fer 2.21% í ýmislegt eða 5 sm. Á sfðastliðnu ári fékk Skfðasambandið hálfa milljón króna f út- breiðslilistyrk, sem kem- ur í gegnum ÍSÍ frá rík- inu. Auk þess hefur skíðasambandið fengið nokkurn styrk frá Ólympíunefndinni. Rfk- ið tekur þátt í kostnaði við byggingu skfðamann- virkja sem og annarra íþróttamannvirkja, en vfðast hvar eru það fþróttafélögin sjálf sem sjá um rekstur þessara mannvirkja, nema í Blá- fjöllum, þar sem Reykja- víkurborg hefur að mestu Ieyti veg og vanda af rekstrinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.