Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 30

Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975 Minning: Þorsteinn Þorkelsson skrifstofustjóri Fæddur 20. ágúst 1912 — Dáinn 17. október 1975. Sumir menn eru þeirrar gerðar, að þeir með látleysi sinu verða líkt og órofa hluti af umhverfinu. Við vitum að Esjan er hérna hin- um megin við sundin ; okkur þykir vænt um hana, yrkjum um hana hástemd Ijóð — en hve mörg okkar taka raunverulega eftir því að hún sé þarna? Hún bara á að vera þarna; hún er sjálfsagður hluti landslagsins og önnur mynd þess í huga okkar firra. Því á þessi samlíking rétt á sér hér, að er við samstarfsfólk Þorsteins Þorkelssonar fregnuð- um lát hans, skömmu eftir hádegi föstudaginn 17. þ.m., varð okkur líkt og Esjunni hefði verið klippt út úr sjóndeildarhringnum; það sem átti að vera þarna var ekki lengur; það sem okkur fannst sjálfsagður hluti heildarmyndar fyrirtækisins H.F. Ölgerðin Egill Skallagrimsson var ekki meir. Fólki féllu verk úr hendi það sem eftir lifði dagsins. Þorsteinn Þorkelsson var maður þeirrar náttúru er fágæt er í okkar nútíma þjóðfélagi fram- troðslu, brambolts og upphróp- anna. Hann hafði sig lítt f frammi — persónulega held ég að hann hafi liðið fyrir þau skipti, er hann þurfti þess í ábyrgðarmiklum störfum sínum fyrir fyrirtækið — en ótrúleg afköst hans, vinnusemi og áreiðanleiki, skildu mun meira eftir sig en ætla má mörgum þeim sem mest láta og hæst gaspra. Þótt Þorsteinn muni i eðli sinu hafa verið feiminn maður og ekki mannblendinn umfram það er honum sjálfum þóknaðist, þá var hann klettur þeim er til hans þurftu að leita um tilsögn eða góð ráð. Megum við samstarfsfólk hans þar gleggst um dæma; ekki sízt við bræður, sem ávallt áttum þar vísan hauk í horni og hann hvað traustastan er við gengum okkar fyrstu spor í sViði völundar- húss atvinnurekstrar, hráblautir úr skóla, með þá sjálfskipuðu al- vizku ungmennisins á herðum, að vera guðs einu útvöldu til að leið- rétta og bjarga kerfinu, hvar sem það fyrir fannst. Við erum eldri + Faðir okkar, tengdafaðir og afi VALDIMAR KR. GUÐMUNDSSON, prentari Ásvallagötu 11 lést í Landakotsspltalanum laugardaginn 25 október Þórður Valdimarsson, Sverrir Valdimarsson Málfrlður Jóhannsdóttir og barnabörn. Systir okkar MARÍA JÓNSDÓTTIR andaðist I Landakotsspltala sunnudaginn 26 október Guðfinna Skagfjörð. Ingibjorg Jónsdóttir, Markús Jónsson. Móðir okkar, GÍSLÍNA SIGURVEIG GÍSLADÓTTIR, Hverfisgötu 25, Hafnarfirði, andaðist I Landspítalanum 26 október sl Fyrir hönd svstkina, Dagbjört Sigurjónsdóttir. + Eiginkona mln SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR. kennari, Lokastlg 20 A, lést I Landspltalanum þann 26 október Steinn Erlendsson. + Farðí okkar KRISTINN GUÐJÓNSSON, Ásvallagötu 37, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29 október kl. 13 30. Gunnar B. Kristinsson, Hrafnhildur Kristinsdóttir. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVEINBJÖRG EINARSDÓTTIR, Bræðratungu við Holtaveg, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29 október kl 10 30 Eyjólfur Elfasson, börn, tengdabörn, og barnabörn. Minning: Sveinbjörn Sigurður Tómasson, kaupmaður síðan — Þorsteinn átti eflaust sinn hógværa þátt í þvl. Þó mönnum álengdar muni hafa litizt sem Þorsteinn gæfi sér fáar frístundir, kunni hann öðr- um mönnum betur að nota þær. Hann helgaði heimili sínu og fjöl- skyldu allan sinn tíma utan starfs og féll tómstundaiðkan hans vel inn í þann ramma; hann var fagurkeri, bar gótt skyn á mynd- list og mun málverkasafn hans með þeim vandaðri I einkaeign hérlendis, enda fastagestur á öll- um málverkauppboðum, I vinnu- stofum listmálara og sjálfsagður boðsgestur við opnanir sýninga þeirra margra. Kona hans deildi með honum þessum áhuga, enda jafnræði mikið með þeim hjónum. — O — Þorsteinn var fæddur að Hamri I Gaulverjabæjarhreppi hinn 20. ágúst 1912 og því réttra 63ja ára er hann lézt. Hann var sonur Þorkels bónda þar Þorsteinssonar og Guðrúnar konu hans, en föður- nafn hennar, né heldur frekari ættir þeirra hjóna, kann ég ekki að rekja. Kvæntur var Þorsteinn Friðgerði Friðfinnsdóttur, hinni mætustu konu, ættaðri úr fjörð- um vestur. Lifir hún mann sinn ásamt þremur börnum þeirra uppkomnum, Jóhanni, Gunnari og Sigríði Helgu. Ég og fjöl- skylda mín vottum þeim einlæga samúð. — O — í dag verður Þorsteinn Þorkels- son kvaddur í Fossvogskaþellu. Við öll sem með honum störfuð- um — og þá sérstaklega faðir minn og hlutafélagið sem Þorsteinn helgaði sína mestu og beztu starfskrafta um áratuga skeið — færum minningu hans þakkir fyrir frábært og ómetan- legt samstarf. Skarð er fyrir skildi. Tómas Agnar Tómasson Afmælis- og minningar- greinar ATHVGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á I mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. F. 21. ágúst 1921 D. 30. september 1975. Norður I Siglufirði, þar sem séra Bjarni Þorsteinsson safnaði saman íslenzkum þjóðlögum og samdi eigin tónverk; þar sem Karlakórinn Visir söng sumarið inn I hjörtu fólks á myrkum vetr- arkvöldum; þar sem reist var eitt fyrsta raforkuverið á Islandi og þar sem unnin var nótt með degi á árum Norðurlandssíldar, þróaðist aðlaðandi og sérstætt mannlíf um áratugi. Þar urðu til þau verð- mæti og sá gjaldeyrir, sem á fyrri helmingi þessarar aldar varð ein af undirstöðum þeirrar tækniþró- unar, menntunarmöguleika og fé- laglegra framfara, sem breyttu þjóðfélagi okkar úr frumstæðu og fátæku samfélagi í velmegunar- þjóðfélag dagsins í dag. Þangað sóttu námsmenn vinnu og fjár- muni til langskólanáms. Og þar söfnuðust saman sjómenn og landverkafólk af öllum lands- hornum og fjörðurinn var skógur siglutrjáa isl. og erl. skipa. Siglu- fjörður var ekki einn um hituna, en hann var höfuðborg sildveiða og sildariðnaðar, sem þjóðarbúið sótti drjúgan skerf til. Þessi staður sumarmanna, vetr- ariþrótta og margslunginna menningarstrauma varð vettvang- ur æsku og ævistarfs Sveinbjarn- ar Tómassonar, sem nýlega var lagður hinztu hvílu i grafreitinn undir Gimbrarklettum. Svein- björn Tómasson fæddist á Dalvík 21. ágúst 1921. Foreldrar hans vóru Sigrún Kristinsdóttir og Tómas Sigurðsson, þá þar til heimilis. Annan son eignuðust þau Sigrún og Tómas, Guðjón að nafni, nú starfsmann í Straums- vík og búandi í Reykjavík. Þeir bræður misstu föður sinn ungir að árum og fluttust til Siglufjarð- ar með móður sinni árið 1930. A unglingsárum og nokkuð fram á fullorðins ár stundaði Sveinbjörn íþróttir af kappi og 'varð einn af burðarásum í starf- semi íþróttahreyfingarinnar á staðnum. Hapn var frábær knatt- spyrnumaður og lék með Knatt- spyrnufélagi Siglufjarðar þegar vegur þess var mestur og meist- aratitill Norðurlands var færður heim í fjörðinn. Hann var einnig virkur skfðamaður og iðkaði þá iþrótt alla tið, einnig eftir að heilsa hans brást og sá sjúkdómur gerði vart við sig, sem að lokum batt enda á hans hérvistardaga. Sveinbjörn Tómasson sótti nám f Verzlunarskóla Islands og lauk þaðan prófi árið 1940. Arið 1946 kvæntist hann frú önnu Láru Hertervig, dóttur frú Línu og Óla Hertervig, fyrrverandi bæjar- stjóra og forvígismanns Siglfirð- inga um langt árabil. Frú Anna er sérstæð dugnaðar- og hæfileika kona, sem reyndist manni sínum farsæll förunautur á vegferð þeirra. Þeim varð tveggja sona auðið, Óla Hertervig Sveinbjörns- sonar, viðskiptafræðings, og Tóm- asar Sveinbjörnssonar, saum- tæknis. Kona Óla er Guðrún Val- garðsdóttir og kona Tómasar Ragnheiður Pétursdóttir, og búa báðir synirnir í Reykjavík. Sonar- synirnir tveir vóru augasteinar afa síns. Sveinbjörn Tómasson vann, eins og aðrir ungir menn nyrðra, margháttuð störf í sinum heima- bæ. Arið 1951 hefja þau hjón verzlunarrekstur á Raufarhöfn og 1958 á Siglufirði, Verzlunina Tún- götu 1 hf., sem þau ráku alla tíð. Þau áttu og með öðrum Matstofu Siglufjarðar um árabil. Svein- björn var og einn af stofnendum hlutafélagsins Togskip hf., sem gerir út skuttogarann Dagný, og var í stjórn þess frá stofnun þess og á meðan hann lifði. Þau hjón stofnuðu og með sonum sínum verzlun og saumastofu i Reykja- vík. Tvennt var það i Siglufirði, sem átti hug Sveinbjarnar öðru frem- ur, og hann varði tómstundum sinum einkum í. Annarsvegar í- þróttir, en hann var í stjórn IBS um árabil, og Karlakórinn Visir, en f stjórn hans átti hann sæti í fjölda ára. I þessi hugðarefni sín sótti hann marga gleðistund. Og þær eru ótaldar stundirnar, sem hann vann þeim. Um það ræddi hann aldrei, enda var hann óvenju hógvær og háttvís, bæði i orði og æði. Nú, þegar Sveinbjörn er geng- inn, eiga Siglfirðingar á bak að sjá góðum dreng, sem unni sínum heimahögum. Hann er kvaddur hlýjum huga af samborgurum sin- um. Megi lög séra Bjarna og söng- ur Vísis óma í nýjum firði, þar sem önnur Hólshyrna speglast í sléttum sjávarfleti — og þær gát- ur ráðast, sem óleystar eru hérna megin. Frú önnu Láru, sonum og vandamönnum, sendi ég vinar- kveðjur minar og minna. Stefán Friðbjarnarson. Erfitt að eiga við síldina SlLDVEIÐI var frekar litil i fyrrinótt, en þó er vitað um tvö skip, sem fengu sild, Reykjaborg RE með hátt i 100 lestir og Hrafn Sveinbjarnarson GK með um 50 lestir. Síldin veiddist á milli Tvisker.ia og Hrollaugseyja. Eyjólfur Friðgeirsson, leið- angurstjóri á Arna Friðrikssyni, sagði f samtali við Morgunblaðið i gær, að mjög erfitt væri að eiga við sildina. Veður væri hálf leiðinlegt og ekki bætti úr skák að stórstraumur væri og rifu bát- arnir næturnar unnvörpum. 4 innbrot í Eyjum FJÖGUR innbrot voru framin í Vestmannaeyjum i fyrrinótt og i þeim stolið töluverðu af tóbaki og sælgæti. Brotist var inn í verzlan- irnar Völund, Eyjabúð og Friðar- hafnarskýli og heildverzlun Kristmanns Karlssonar. Innbrot þessi eru í rannsókn. útfaraskreytingar blómouol Gróðurhusið v/Sigtun simi 36770/ Vegna jarðarfarar ÞORSTEINS ÞORKELSSONAR, skrifstofustjóra, verða allar deildir fyrirtækisins lokaðar frá hádegi I dag, þriðjudag. H/F ÖlgerSin Egill Skallagrimsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.