Morgunblaðið - 23.11.1975, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÖVEMBER 1975
„HORFÐU í augun á mér.
Þá sérðu sjálfa þig betur en
í spegli."
Sex manns sitja þröngt
og horfa í augun á Höllu
Guðmundsdóttur leikara.
Og horfa á Hrönn Stein-
grímsdóttur horfa í augun á
Höllu Guðmundsdóttur.
Hvað eftir annað, aftur og
aftur er horft á Hrönn horfa
i augun á Höllu. Svo oft
raunar að áður en yfir lýkur
eru menn hvattir að sjá
þessi annars prýðilegu
augu. Hvað þá að menn sjái
sjálfa sig i þeim.
Og svo koma Morgunblaðsmenn
og þrengslin verða enn meiri. Það er
verið að setja saman af myndsegul-
bandsspólum sjónvarpsleikrit Jökuls
Jakobssonar, Keramik Staður
skoðunarkompa I sjónvarpshúsinu.
Stund: fimmtudagsslðdegi ekki alls
fyrir löngu. Viðstaddir: höfundur-
inn, Jökull Jakobsson, eiginkona
hans, Ása Beck, og Spilaverk þjóð-
anna, Egill, Valgeir, Bjólan og
Diddú, annáluð háfjallasveit sem
fengin hefur verið til að fremja tón-
list við leikritið Rétt ókominn:
Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri Kera-
miks
Á sjónvarpsskerminum er fylgzt
með viðureign Egils Eðvarðssonar
upptökustjóra og tæknimanna hans
við samskeytingu atriðanna af
tveimur segulbandsspólum Sú
viðureign fer fram á öðrum stað I
húsinu, en árangurinn birtist jafnóð-
um á skerminum I skoðunarkomp-
unni Þeir eru búnir að vera að setja
leikritið saman frá þvi klukkan niu
um morguninn og þeir bjuggust við
að verða til klukkan nlu um kvöldið
Þetta er ótrúlega seinlegt Og
menn horfa ábyggilega I tuttugasta
sinn á Hrönn horfa I augun á Höllu,
þvi Egill verður seint ánægður með
tengingu þessa atriðis við það næsta
sem er snögg og óvænt skipting frá
þögn og augum Höllu yfir I hávært
diskaglamur næsta atriðis sem sýnir
familiuna við morgunverðaborðið,
— Hrönn Sigurð Karlsson, önnum
kafinn athafnamann og strákinn son
þeirra Þessi tenging þarf að
vera nákvæm og skiptir sekúndu-
brot máli Enn horfa menn á Hrönn
horfa I augun á Höllu. „Þá sérðu
sjálfa þig betur en I spegli "
Atriðið milli Hrannar og Höllu
virðist hafa einhverja lesbiska undir-
tóna „Er nokkurt klám I þessu leik
riti?" spyr Morgunblaðsmaður Jökul
spenntur „Nei, það getur ekki
verið," svarar höfundurinn, ,,er
nokkurt klám til I dag? Nema
kannski I sjónvarpinu?"
Það er fróðlegt að fylgjast með
baráttunni við myndsegulböndin.
Fæstir gera sér sjálfsagt grein fyrir
þeirri nákvæmnisvinnu sem útung-
un sjónvarpsleikrits krefst Bjólan er
„Eru þetta ríkisstarfsmenn að tala saman?”
0 Egill Eðvarðsson (fremst) og tæknimenn setja saman Keramik. Aftast er Elsa Eðvarðsdóttir, systir
og aðstoðarmaður Egils.
Hvernig Keramik
verður til
% Bjólan, Jökull, Egill, Hrafn, Asa og Diddú fylgjast með samsetningu Keramiks f skoðunarkomp
unni. Valgeir er væntanlegur á myndina.
r
& 'J-i? -■
mk ■
®9
m
x A. ,AT' : íijt ór
> tw» r4,t--t: fyúr...
■ j vHtr. >.r3rtumr*i- -- 3
rr.-B : - ■ fy. u».
rt ÞÍ TF R tÁJ fc> J
ÍXannÁr JU-m'.ur- ur-r> br-m^r, stlfi’f.t.
rr,-: .,ar,r. lftur I noWtrar avr «n
>Mff at T.'-ttu. vl». tyftii
w........W
ijSKI - tXtfl
P+te/L
My/ví > i/íifi/í $0
r- W/tk,
t* 'í «' « ” kMt HÚIU “■ •
fant tetutc
t-t&K Et>.
Sýnishorn af þvf hvernig handritið var unnið.
h«r,air„ii cír.s o« h„nn xttjti. a*
ivrufr. „r, h.rttir vlt. leRHMr eyra UPP..SÖ
htir*ir,ri „r svtptir hffrml sítan upp. tteqr)
stfJmar Í krir.e.um si.a í h«rl-.<i»tnu b«ir- ggárs
Au'ur Xicgur i rýmtrm, revkir sígarottu.
les í i r'.j ■ nX.Ata á ff.Shúrrirr,. hau hrrf ,1 hvort
á ar.na*. bSfut nokfrra stunri. Sífan brc-slr
AuAur. C.unnar iai, up aflyr riyrrrrr. an sta-ijur
>cvrr í r Afru soc-rug. >
Gunnar:
■vaff 4rr hríh?_______ ^
B t> IT £ R UU6~7
Auftur:
Hver?
Gunnari
Konan Ȓn.
Knndn
hv«n konah
Hvwctvegna h«rf »ut «* TOra
með skeiðklukku og tekur tlma atrið-
anna Þeir Spilverksmenn eiga eftir
að útsetja tónlistina og æfa en þeir
eru búnir að koma sér niður á stef
sem þeir ætla að byggja á. Það er úr
lagi á væntanlegri (og vlst lang-
þráðri) plötu þeirra. Hrafn Gunn-
laugsson sem nú er kominn lafmóð-
ur og másandi segir að tónlistin
skipti afar miklu máli I leikritinu.
„Það er um að gera að þið komið
með sem flestar útgáfur af stefinu
sem hentað geta andrúmslofti hinna
einstöku atriða," segir hann
Vinnan við upptöku Keramiks hef-
ur mótazt af nokkuð öðrum vinnu-
brögðum en áður hafa tíðkast við
gerð sjónvarpsleikrita hér. Hand-
ritið eittjSem sýnishorn eru úr hér á
síðunni, tók mánaðarvinnu hjá þeim
Agli og Hrafni myndatökumeistaran-
um, Snorra Þorissyni, því þar er ekki
aðeins texti leikritsins heldur hafa
þeir félagar teiknað upp hvert smá-
atrði leikmyndarinnar, merkt inn
hvern einstakan leikmun, myndhorn
(þ.e stöðu og sjónarhorn myndavél-
anna) o.s.frv. og loks rissað upp
mynd af þvl hvernig þeir vilja að
hvert atriði birtist á skerminum,
nærskot, fjarskot, skiptingar o.s frv.
Öll gerð sjónvarpsleikritsins var
þannig gerð I samvinnu leikstjóra,
upptökustjóra, myndatökumeistara,
leikmyndateiknarans Björns Björns-
sonar, leikara og tækniliðs, frá
byrjun, og t d fylgdust tæknimenn
með æfingum. Örn Sveinsson,
tæknistjóri tjáði Morgunblaðsmanni
að þeir væru mjög ánægðir með
þessa vinnuaðferð. Þetta væri eina
vitið. Áður hefði gangurinn á þessu
of oft verið sá að leikstjóri og leik-
arar hefðu verið búnir að ákveða
hvernig skyldi taka verkið upp áður
en þeir komu I stúdíóið, og oftar en
ekki hefðu þær ákvarðanir reynzt
óraunhæfar. Þessi nýju vinnubrögð
hefðu gefizt mjög vel. en þau voru
raunar fyrst reynd við upptöku á
leikriti Þorvarðar Helgasonar, Sigri.
Eftir að handritsgerðin hafði tekið
mánuð stóðu æfingar yfir I annan
mánuð. Síðan fóru fimm dagar i
sjálfa upptökuna og nú var sumsé
verið að setja þá upptöku saman I
réttri atriðaröð af myndsegulbands-
spólum tveimur. Og svo er eftir að
setja tónlist Spilverksins inn á. Öll
þessi vinna fer i um 55 minútna
langt sjónvarpsleikrit, sem svo loks
berst væntanlega út til sjónvarps-
neytenda I janúar—febrúar á næsta
ári
Keramik fjallar að sögn höfundar-
ins, Jökuls Jakobssonar („minnsta
Jökuls á íslandi " — Hrafn Gunn-
laugsson) um ungan lögfræðing
(Sigurð Karlsson) sem er að brjóta
sér braut i athafnalifinu, og konu
hans (Hrönn Steingrímsdóttur) sem
er að reyna að gera slíkt hið sama á
sinn hátt. Ungur sonur þeirra er
leikinn af Birni Gunnlaugssyni. Og
loks er það ástkonan (Halla Guð-
mundsdóttir), sem eftir „augnaatrið-
inu" að dæma gæti vel verið ást-
kona beggja hjónanna. En það
kemur auðvitað I Ijós, „Þetta er ekki
kvenfrelsisleikrit, þótt það kunni að
sýnast svo á yfirborðinu," segir höf-
undurinn „Það er fremur reynt að
lýsa þv! hvernig bæði kynin eru i
sömu viðjunum."
Og nú er Hrönn loksins hætt að
horfa I augun á Höllu. Samsetningin
hefur tekizt svo Egill sé ánægður og
morgunverðaratriðið hefst. Sigurður
lögfræðingur er að lýsa ásetinni
stundaskrá dágsins fyrir eiginkon-
unni, — hádegisverðarfundur hjá
Læons o.s.frv. En eiginkonan herðir
upp hugann og stingur upp á að
þau fari austur að skoða sumar-
bústaðarlandið sem þau höfðu
ætlað að kaupa. Það er mikið sam-
bandsleysi i þessu atriði.
Sigurður lemur eggið sitt svolítið
stresslega Hann mun hafa þurft að
borða átta egg áður en atriðið tókst.
Er Morgunblaðsmenn halda út
eftir að hafa fengið nasasjón af því
hvernig sjónvarpsleikrit er sett
saman er smá pása. f herberginu við
hliðina á skoðunarkompunni er
Magnús Bjarnfreðsson til húsa. Og
er við göngum út er einhver maður
að berja á hurðina hjá Magnúsi."
„Maggi, það þýðir sko ekkert að
loka bara að sér og gera ekki neitt!"
kallar hann
„Eru þetta ríkisstarfsmenn að tala
saman?" spyr Jökull ofurrólega
Texti: Á.Þ.
Myndir: Friðþjófur
og Sv. Þorm.