Morgunblaðið - 23.11.1975, Side 32

Morgunblaðið - 23.11.1975, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1975 — Nokkur orð Framhald af bls. 3 skaðlega og vilja raunar banna hana, rétt eins og þekkist I Rússlandi og gert var í Þýzka- landi Hitlers. Frægir listamenn lofsungu þessa röggsemi Þjóð- verja og töldu að list ætti að blómstra við slík skilyrði. En hvað sanna dæmin. Alls staðar þar sem gagnrýni eru settar skorður, er sjálfsánægja, and- leg lognmolla og stjórnunarlygi í fyrirrúmi. Frjáls og óvægin listgagnrýni á sinn þátt í að örva menn til dáða, viðhalda kröfunni um vönduð vinnu- brögð, koma í veg fyrir stöðnun í listsköpun og er auk þess marktæk en einstaklingsbund- in viðmiðun. Gagnrýni ber að skoða sem viðhorf gagn- rýnandans og það eitt er satt, sem honum finnst sjálfum, hvernig svo sem það snýr gegn öðrum. Herra Gunnar Egilsson veit mætavel að aragrúi „virtúósa" leikur sér að öllum heimsins erfiðustu tónverkum án þess svo mikið sem blása úr nös og án þess svo mikið sem að snerta nokkurn streng hjá hlústendum. Þó hann tilkynni í upphafi ritsmíðar sinnar, eins og útvöldum er tamt, — að tónleikarnir hafi tekizt vel og verið öllum þeim er að þeim stóðu, til óblandinnar ánægju, — snertu þeir mig ekki. Það skiptir ekki máli hvaða verk var mikið eða lítið æft. Með mikilli æfingu má rýja tónverk allri fegurð. Má vera að afstaða mín til flutnings serenötu Mozarts og oktetts Stravinsky, hafi mótazt af því að mér var meira nýnæmi f oktettinum. Áorkan þessara tónverka fer ekki eftir mældum æfingar- tíma, heldur því hver þörf hlustandans er hverju sinni. Athugasemd um efnisval var sett fram vegna þess, að það er engu líkara en Mozart og Beethoven hafi verið þeir einu sem rituðu góða tónlist á 18. og 19. öldinni. Herra Gunnar Egilson. Persónutöfrar og alúð píanósnillingsins Ashkenazy, sem ég efast ekki um, er um- sögn minni um tónleikana óvið- komandi og sömuleiðis ræðan um forleikina að Fidelío. Um þróun tónlistar, sem einnig bar á góma I umsögn minni og herra Gunnar Egilson umritar að nokkru kemur fram varnar- þörf hljóðfæraleikarans gegn þeirri staðhæfingu að þróun tónlistar sé nær eingöngu bundin tónsmíði. Tónlist er aðeins til í því formi sem heitir tónverk og hljóðfæraleikur hefur ávallt staðið tónsköpun að baki. Það hefur tekið hljóð- færaleikara oft áratugi að ná valdi á nýrri tónhugsun. „Vitúósarnir“ eru skýrasta dæmið um slíka þróun. Þeir fást að mestu við þá tónlist sem hefur verið tæknilega þraut- könnuð. Þetta mál er svo um- fangsmikið að til þess þarf aðra umræðu, en hér er til stofnað. Að lokum þetta: Ég hef ekki boðið mig fram sem gagnrýnanda. Tón- flytjendur fara fram á, að í Morgunblaðið sé rituð tónlistar- gagnrýni og ég var beðinn að sinna því verkefni, án þess að mér væru lagðar nokkrar lífs- reglur. Ég tók þessu boði vegna þeirrar trúar að slík skrif væru þó að minnsta kosti skárri en þögnin, sem um skeið hafði ein- kennt afstöðu flestra fjölmiðla til hljómleikahalds í Reykjavík. Sem svar við því hvort ég sé hæfur sem tónlistargagn- rýnandi, vil ég gefa Morgun- blaðinu tækifæri til að finna mann sem er „dómbær á tón- listarflutning“ og gerir sig ekki sekan um ritun umsagnar, sem er „fullkomlega ósæmandi manni, sem fæst við tónlist (í jafn ríkum mæli og Jón).“ Að lokum þakka ég starfsmönnum Morgunblaðsins fyrir mjög ánægjulegt samstarf og vona að stjórn blaðsins finni hæfan mann í minn stað. Með vinsemd og virðingu Jón Ásgeirsson í dag eiga silfurbrúðkaup frú Vigdfs Ingibergsdóttir og Karl Georg Þorleifsson loftskeytamaður, Eskihlfð 18 R. — Álit fiskifræðinga Framhald af bls. 48 er næmi frá 450—500.000 tonn- um. 2. Atriði þau, sem taka þurfti til yfirvegunar, eru því þessi: a) Hvort átt hefði sér stað veru- leg aukning á sókn í þorsk- stofninn. b) Hvort unnt væri að koma sér saman um niðurstöðutölur er taka til leyfilegs hámarksafla ásamt hámarksaflaþoli til langframa. 3. Engir verulegir erfiðleikar komu fram varðandi fyrra atriðið. Ganga má út frá því sem vísu að hluti smáfisks f heildaraflanum hafi farið vaxandi. Auk þess er það augljóst að sókn f þorskstofn- inn hefur aukist. Ekki verður ráð- ið af þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, hve mikil þessi aukning er. Enda þótt sókn breskra skipa á togveiðar hafi minnkað, þá hefur aukningin á togveiðum íslenska veiðiflotans gert meir en að vega upp á móti þvf. Það er þvf ekki mögulegt að ákvarða heildar- aukningu veiðisóknarinnar, þar sem upplýsingar skortir varðandi smærri íslensku veiðiskipin. En líkur eru á að jafnvel þeirra sókn hafi fremur vaxið en minnkað. Það er sameiginlegt álit beggja aðila að vaxandi hlutfall ungviðis í heildaraflanum sé mjög óæski- legt, og að áframhaldandi aukning veiðisóknar hljóti að leiða til þess að hlutfall smáfisks í aflanum fari vaxandi. 4. Erfiðara hefur reynst að komast að sameiginlegri niður- stöðu um það, að hvaða marki nauðsynlegt er að draga úr veiði- sókninni. Þetta hlýtur að byggjast m.a. á þvf, hvernig aflinn skiptist í aldursflokka, og sömuleiðis á því hver nýliðunin (endurnýjunar- hæfin) kann að vera. Með því að mæla með 230 þúsund tonna leyfi- legum hámarksafla höfðu íslensku vísindamennirnir reitt sig á niðurstöður af seiðarann- sóknum (þ.e. athuganir á fiski, sem er yngri en 1 árs að aldri). í fjögur af undanförnum fimm ár- um hafa þessar rannsóknir bent til lítillar nýliðunar. Það er álit íslensku vísindamannanna að mjög varasamt sé að gera ráð fyrir því að niðurstöðutölur seiða- Íþróttahátíð í Hafnarfirði ÍÞROTTABANDALAG Hafna- fjarðar efnir f dag til míkillar íþróttahátíðar í íþróttahúsinu við Strandgötu. Hefst hátíðin klukk- an 14.00 en hún er haldin í tilefni 30 ára afmæli IBH, sem var 28. aprfl á þessu ári. Munu Fimleika- félagið Björk, Skotfélag Hafnar- fjarðar, Haukar, Sundfélag Hafnarfjarðar, Badmintonfélag Hafnarfjarðar, Golfklúbburinn Keilir og Fimleikafélag Hafnar- fjarðar kynna starfsemi sfna á íþróttahátíðinni, en þau eru öll aðilar að ÍBH. Einnig mun for- maður ÍBH fyrir ávarp og Lúðra- sveit Hafnarfjarðar leika. rannsóknanna séu villandi, þegar ákvarða skal hverjar framtíðar- horfurnar kunni að vera. Bresku vísindamennirnir eru á hinn bóg- inn þeirrar skoðunar, að niður- stöður þessara rannsókna skapi ekki nægilega öruggan grundvöfl til þess að spá um styrkleika stofnsins í framtíðinni, og að betra sé að byggja á niðurstöðum athugana á fyrri árgöngum (þ.e. niðurstöðum fenginnar reynslu). Á þessu byggist sú skoðun bresku vísindamannanna að álit og niður- stöður íslensku sérfræðinganna feli f sér of mikla svartsýni; engu að síður skal fallist á þá skoðun að minnkandi sókn sé æskileg. Ef gert er ráð fyrir að nýliðun (endurnýjunarhæfi) sé nú hin minnsta, sem hún hefur verið síð- ast liðin 13 ár, og ef jafnframt er hallast að því að nota þann mæli- kvarða, sem beitt hefur verið við útreikning á 230 þúsund tonna leyfilegum hámarksafla, þá gæti leyfilegur hámarksafli á árinu 1976 orðið nálægt 250 þúsund tonn. Ef síðan er beitt meðaltali þeirrar nýliðunargetu, sem rann- sóknir gefa til kynna, þá myndi leyfilegur hámarksafli geta num- ið 265 þúsund tonnum, með sömu stjórnunarmarkmið f huga. 5. Fufltrúar Stóra-Bretlands telja nauðsynlegt að benda á, að þær tölur um leyfilegan hámarks- afla, sem hér eru nefndar gefa það allar ótvirætt til kynna að veiði á fiski, sem er yngri en 4 ára, verði með öllu hætt. Þessi fiskur tekur til verulegs hluta þess magns af ókynþroska fiski, sem aflað er við Island. Hversu æskilegt sem slikt markmið kann að reynast þá eru brezku full- trúarnir þeirrar skoðunar að mjög óliklegt megi teljast að unnt verði að stöðva slíkar veiðar í nánustu framtíð, ef veiðisókn al- mennt fær að halda áfram i svip- aðri mynd og nú á sér stað. 6. Islensku fulltrúarnir eru þeirrar skoðunar að þá breytingu á veiðisókn, sem þeir telja óhjákvæmilega til þess að unnt verði að ná hámarksafla til lang- frama, megi framkvæma með því að stækka möskva veiðarfæra (e.t.v. upp í 165 mm.), og sömu- Tafla 1. leiðis með því að loka þeim veiði- hólfum, sem mestu máli skipta fyrir uppeldi ókynþroska fisks. Viðauki — Tölfræðilegar skýringar 1. í töflu 1 birtist áætlað afla- magn miðað við hvern árgang á tímabilinu frá 1970. Þessar tölur hafa verið lagðar til grundvallar við útreikning á stærð fiskistofna og dánartölu innan einstakra ár- ganga. 2. Hér á eftir er sýnd áætluð dánartala innan hvers árgangs, að því er tekur. til ársins 1974. Dánartalan er sambærileg við tímabil áranna 1970—1972. Aldur Dánartala Stofnx 10+6 Aldur Dánartala Stofni 10+6 3 4 5 6 7 0.13 0.30 0.50 0.55 0.60 128 247 63 39 24 8 9 10 11 12 0.65 0.80 1.10 1.10 0.8 14 3 5 4 1 3. Þessar dánartölur hafa verið notaðar til þess að reikna út stærð fiskistofna árin 1975 og 1976. Við gerð slíkra útreikninga er nauð- synlegt að taka tillit til áætlaðrar nýliðunar. Þrennskonar áætlanir hafa verið notaðar, svo sem hér greinir: a) íslenskar áætlanir samkvæmt rannsóknum á þorskseiðum. b) Lágmarksnýliðun eins og hún er skráð samkvæmt cohort- rannsóknum á tfmabilinu frá 1960 til 1972. c) Meðaltal nýliðunar miðað við sömu tölfræðilegu upp- lýsingarnar. Áætluð 3 ára ný- liðun f milljónum, eins og hún kemur fram samkvæmt þess- um aðferðum, er sem hér greinir 1975 1976 a) 40 550 b) 130 130 c) 211 211 4. Áætlað aflamagn í þúsundum tonna, miðað við samskonar dánartölu og árið 1974, er sem hér segir: 1975 1976 a) 352 338 b) 364 320 c) 375 334 5. íslensku vísindamennirnir höfðu gert ráð fyrir að unnt yrði að ná hámarksafla til langframa, er næmi 500 þúsund tonnum, mið- að við eftirfarandi dreifingu á dánartölu: Aldur 3456789 10 II 12 Dánartala .0 .2 .4 .5 .5 .5 .6 .6 .6 .6 Miðað við þessa dánartölu myndi áætlun þeirra á leyfilegum hámarksafla árið 1976, I þúsund- um tonna, að því er tekur til ofan- greindra fiskistofna, verða svo sem hér segir: 1976 a) 230 b) 250 c) 265 6. Gerð var tilraun til þess að athuga breytingar á sókninni á undanförnum árum, bæði að því er tekur til islenska og breska fiskiflotans. Svo virðjst sem sókn íslenska fiskiflotans hafi getað aukist á árunum 1974—5 um nálægt því 25%, en hins vegar hafi sókn breska fiskiflotans minnkað um hér um bil 17% á sama tímabili. Líklegt er að dánartala fisks á árinu 1975 reynist eitthvað hærri en á árinu 1974. — Gömul prentverk Framhald af bls. 23 eitthvað alveg nýtt komi til. Góða varðveizlu bókar ber að þakka bandinu venjulegast að miklu leyti. Hér er óhemjuefni við að fást og hef ég orðið að sniðganga það nema að þvi leyti sem hér hefur verið gert. Kunnáttu hef ég ekki til þess að gera því skil í örsuttu máli svo sem hér yrði að gera. Ég verð aftur á móti að leggja áherzlu á það hvað er að gerast varðandi glötun þeirra verðmæta er óbætanleg eru og áróðurs- svipurinn á máli mínu verður því að afsakast og er á mína ábyrgð. Það næsta sem bíður könnunar er: Leturskrár, húsakostur, verk- efnaskrár, svo tæmandi sem kost- ur er; aðbúnaður; prentgripirnir sjálfir eins og þeir koma fyrir, form þeirra og útlit. Kannski er það ekki ómerkileg- ur hlutur fyrir mig persónulega, að það fyrirtæki er ég lauk mínu prentnámi i er innan tveggja ára 100 ára gamált, og er það elzta prentverk sem á landi okkar hefur verið rekið. Við þennan vinnustað minn eru tengdar margar minningar er ég geymi með mér og eru þær allar kærar og ánægjulegar. Eitt er þó er ég harma og á það sinn þátt i þvi hve sárt mér er um hvað glatast hefur á liðnum öldum. Ég held að því miður séu öll gögn frá starfssögu ísafoldarprentsmiðju glötuð eða ef bezt lætur að hverfa. Gæti ekki aldar afmælið opnað augu okkar fyrir því hvernig snúa beri sér að þessum málum í einu lagi. Á sýningunni eru nokkrar bækur unnar í gömlu prent- verkunum, lánaðar góðfúslega af Landsbókasafni. Þær eru hinn ljósasti vottur þess, um hvað er að ræða þá er talað er um fornprent. Ég vil sérstaklega til gamans benda á einn titil, sem mér finnst bera þess ljóst vitni að sá sem upp hefur sett hefur kunnað góð skil á formi og hlutföllum svo er allt hnitmiðað og yfirvegað. Prent- gripur sem sómi er að. Þetta er Graduale eða Grallarinn eins og bókin fékk heiti á tungu almennings, prentaður á Hólum árið 1594. TJtlit hinna verkanna er engu síður athyglisvert. Einnig eru til sýnis nokkrar tré- ristur úr ýmsum prentverkum, allt gögn sem notuð hafa verið í prentgripi prentsmiðjanna gömlu. Talið er að jafnvel að Guðbrandur biskup hafi gert í það minnsta eitt þeirra, en það er dulinn sannleikur, en skemmti- legt íhugunarefni. Þessi gögn eru lánuð af Þjóðminjasafni Islands. Þá sem hafa skoðað Gutenberg- sýninguna, samstarfsmenn mína og aðra, bið ég að íhuga að hvert eitt gott starf er ekki eingöngu brauðstrit. Það er auk þess skuldaskil við fortíð og innlegg óbornum og þeim er á stundinni lifa. Fjðldi þorskfieka, sem veiddir hafa veriö viö — Öldutúns- skóli ísland (ICES V a) á ári hverju, miftaö við aldurBar » Framhald af bls. 11 Aldur 1970-1974 (x 10"J) 1970 1971 1972 1973 1974 verið stefnt meira og minna frá áramótum. 1 sumar voru æfingar 2 . 307 801 3612 2363 2317 líka, nema einn mánuð. Dagskrá- in verður býsna fjölbreytt. Flutt verða lög sem spanna tímabilið 3 10256 13001 8499 36990 14181 frá 16. öld og fram á okkar daga, 4 47924 35086 27278 25209 5 8 2 37 eftir erlenda og innlenda höf- 5 23984 45018 30408 26001 22475 unda, þjóðlög og negrasálmar. 6 26691 20979 23054 15886 15003 Kórinn kemur fram tvískiptur. 7 15687 17368 11100 11983*. 9694 P’yrra hluta dagskrár flytur kór- 8 12437 12339 10624 3626 6224 inn eins og hann er skipaður nú, 0 14834 6938 11394, 5983 1738 en síðan taka þátt í söngnum eldri IV 527 4792 4 3 57 • 7991 3093 félagar eins og ég minntist á. 11 177 365 1299 1474 2183 — Mér hefur verið það óskipt 12 102 109 85 264 290 ánægja að vinna með þessum 13 45 57 33 11 109 börnum öllum, sem hafa verið í 14 19 19 3 _ 31 kórnum, enda uni ég mér hvergi 15 + 11 20 5 2 2 betur en með námfúsum og já- Heildarafli (veginn upp úr sjó) 470757 453002 39828 • 379563 37987. kvæðum börnum, sem leggja metnað sinn í að gera sitt bezta og vera sjálfum sér og sínum til sóma, sagði Egill Friðleifsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.