Morgunblaðið - 18.12.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1975
23
Árásum hrundið í
Spænsku-Sahara
Madrid, 17. desember. Reuter.
BARDAGAR halda áfram f sunnanverðri Spænsku-Sahara milli
skæruliða frelsishrevfingarinnar Polisario, sem Alsírmenn stvðja, og
herliðs frá Máritanfu.
Skæruliðum hefur tekizt að hrinda árásum Máritana sem réðust
fyrst á landamærabæinn La Guera fyrir tveimur dögum.
Skæruliðar Polisario lögðu La
Guera undir sig í síðasta mánuði
Fjarstæðu-
leikhús?
Frá Elfnu Pálmadóttur f
New York.
Á blaðamannafundi með
Gaston Thorn, forseta
Allsherjarþingsins, sem
er að Ijúka, sagði einn
blaðamannanna:
„Nú er barizt í
Líbanon, menn drepnir
á trlandi og brezk her-
skip eru við tsland. Á
meðan um það er rætt í
Öryggisráðinu situr
brezkur ambassador í
forsetastóli. Eru Sam-
einuðu þjóðirnar að
verða fjarstæðuleik-
hús?“
Gaston Thorn mót-
mælti aðeins og- svaraði
með almennum orðum.
þegar spænska setuliðið í bænum
hörfaði þaðan. Næsta setulið
Spánverja er í 600 km fjarlægð, í
hafnarborginni Villa Cisneros.
Máritania, Marokkó og Spánn
hafa myndað bráðabirgðastjórn
sem fer með völdin þar til allt
herlið Spánverja verður flutt
burtu f febrúarlok og landinu
verður að öllum líkindum skipt
milli Marokkó og Máritaníu.
Spænsk blöð segja að meira
mannfail hafi orðið í liði Máritan-
íumanna en Polisario. Frestur
sem Máritaniumenn gáfu skæru-
liðum í La Guera til að gefast upp
rann út f dag.
Suðurhluti Spænsku-Sahara
hefur hingað til verið talinn ör-
ugglega á valdi Polisario þar sem
Spánverjar hörfuðu þaðan með
herlið sitt. Máritaniumenn hafa
ekki áður ráðizt inn yfir landa-
mærin.
La Guera er á hernaðarlega
mikilvægum skaga gegnt aðal-
hafnarborg Máritaníu, Port
Etienne. Frá Port Etienne liggur
járnbraut að járn- og eirnámum
Máritaníumanna inni í landi.
Fengsæl fiskimið eru undan
ströndinni og olíu er leitað i Levr-
ier-flóa sem bæirnir standa við.
SIGRI HRÓSANDI — Phil Lyneh (til vinstri), varaleiðtogi Frjálslynda flokksins,
óskar aðalleiðtoga flokksins, Malcolm Fraser, til hamingju með yfirburðasigurinn
í áströlsku kosningunum.-
AP mynd
Bretar
til
gripa
innflutningshafta
Aðstoðin við
Angola felld
Washington, 17. desember.
Reuter.
TILRAUN til að koma í
veg fyrir að Bandaríkja-
menn aðstoði hreyfingar
þjóðernissinna í Angola á
laun var rædd í öldunga-
deildinni í dag á lokuðum
fundi sem er fágætt.
Undirnefnd utanríkis-
málanefndar öldunga-
deildarinnar hefur sam-
þykkt með sjö atkvæðum
gegn engu að binda enda á
alla leynilega aðstoð við
andstæðinga marxista, sem
Rússar styðja í Angola.
Bandaríkjamenn veita nú
hreyfingunum FNLA og Unita að-
stoð sem nemur um 50 milljónum
dollara samkvæmt blaðafréttum
sem hefur ekki verið neitað.
Andstæðingar aðgerða á vegum
CIA í Angola óttast að þær verði
til þess að Bandaríkin dragist inn
í annað Víetnamstríð og segja að
slíkar aðgerðir muni leiða til of
náins samstarfs Bandaríkja-
manna og Suður-Afríkumanna.
Undirnefndin samþykkti einn-
ig ályktun þar sem skorað er á öll
lönd að binda enda á hernaðarað-
stoð við deiluaðila í Angola.
Lýst var yfir stuðningi við til-
raunir Einingarsamtaka Afríku
(OAU) til að finna friðsamlega
lausn á deilumálunum í Angola
og skorað á Ford forseta að gera
allt sem hann gæti til að' koma á
lausn.
Nefndin talaði í sömu andránni
um bætta sambúð risaveidanna og
afskiptaleysi um málefni Angola
og það var talin ábending til
Rússa.
London, 17. desember. Reuíer.
BRETAR settu innflutningshöft f
dag á nokkrar innflutningsvörur
til að styðja við bakið á innlend-
um iðnaði sem samdráttur ógnar.
Höftin ná til innflutnings á
vefnaðarvöru og klæðnaði, skóm
og sjónvarpstækjum. Engin höft
verða lögð á innflutning bifreiða.
Denis Healey fjármálaráðherra
skýrði frá þessum ráðstöfunum í
þinginu og tilkynnti jafnframt að
komið yrði til leiðar auðveidari
afborgunarskilmálum og ríkis-
framlög yrðu aukin til að skapa
atvinnu.
Þótt hér sé um lágmarksráðstaf-
anir að ræða hafa Bretar lengi átt
von á þeim. Stjórn Harold Wil-
sons forsætisráðherra hefur tví-
stigið í margar vikur vegna mikils
þrýstings frá helztu viðskipta-
löndum Breta sem vilja forðast
hvers konar aðgerðir sem geti
komið af stað viðskiptastrfði.
Talsmaður Ihaidsflokksins, Sir
Geoffrey Howe, sagði að ráðstaf-
anirnar mundu valda þjóðinni al-
varlegum vonbrigðum þar sem
þær gengju ekki nógu langt.
Brian Sedgemore úr vinstra
armi Verkamannaflokksins sak-
aði stjórnina um ragmennsku þar
sem hún hefði ekki þorað að
skerða hagsmuni Bandarikjanna,
Efnahagsbandalagsins og Japans,
þó að vísu hefði verið gengið
nærri Japönum i einu smátilfelli.
Svíar ræða
við Evensen
Þúsundir erlendra
hermanna í Angola
New York, 17. desember.
Reuter.
ÁHEYRNARFULLTRÚI
marxistahreyfingarinnar
MPLA hjá Sameinuðu
þjóðunum, Elisio de
Figueiredo, sagði í dag að
11.200 hermenn frá Zaire
og 4.000 hermenn frá
Suður-Afríku berðust I
Angola.
Hann sagði að 2.500 suður-
afriskir hermenn til viðbótar
væru í Suður-Angola nálægt
landamærum Suðvestur-Afrfku
(Namibíu). Hann sagði að 50
suður-afrískir hermenn hefðu
verið teknir til fanga og yrðu
sýndir blaðamönnum í Luanda.
De Figueiredo hélt því einnig
fram að bandarískir hernaðar-
ráðunautar væru i Zaire þar sem
þeir þjálfuðu hermenn er væru
sendir til Angola. Hann sagði að
engir bandariskir hermenn hefðu
verið teknir til fanga í Angola en
kvað bandariska málaliða berjast
þar.
ERLENT
Ósló, 17. desember.NTB.
Landbúnaðarráðherra Svfa,
Svante Lundkvist, ræddi í dag við
Jens Evensen hafréttarráðherra
og Eivind Bolle sjávarútvegsráð-
Fyrsta þing
kúbanskra
kommúnista
Havana, 17. desember. Reuter.
FYRSTA þing kúbanska komm-
únistaflokksins hófst i dag eftír
margra ára undirbúning og er
kallað mikilvægasti stjórnmála-
viðburður á Kúbu síðan byltingin
var gjerð fyrir 17 árum.
Ný stjórnarskrá og fyrsta fimm
ára áætlun Kúbumanna eru með-
al mála á dagskrá. Þingið sækja
fulltrúar frá rúmlega 80 löndum,
þeirra á meðal foringjar kommún-
istaflokka sem eru í stjórn, stjórn-
arandstöðu eða bannaðir.
herra f Ösló um áhrif landhelgis-
stefnu Norðmanna og hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á
veiðar Svía í Norðursjó.
Evensen og Lundkvist munu
haida þessum viðræðum áfram og
viðræður munu einnig fara fram
milli norskra og sænskra embætt-
ismanna.
Síðan í haust hefur Evensen
rætt á mörgum fundum við full-
trúa þeirra ríkja sem landhelgis-
stefna Norðmanna mun hafa
áhrif á og fundurinn i dag var sá
næstsíðasti.
Síðasti fur.durinn verður
haldinn í byrjun janúar þegar
rætt verður við fulltrúa finnsku
stjórnarinnar i Helsingfors.
Óveðurskafli á Grænlandi
Frá Henrik Lund f Julianchaab.
SNJÖAÐ hefur samfellt hér á
Grænlandi f margar vikur og
óvenjulega mikill snjór safnazt
fyrir.
Á Suður-Grænlandi hafa
skipzt á snjókoma og rigning og
þykkur snjór hefur orðið að
fshellum sem snjóað hefur ofan
á. Fé á Grænlandi hefur verið f
alvarlegri hættu vegna óveðurs-
ins en henni hefur verið afstýrt
vegna skeleggrar framgöngu
yfirvalda og bænda.
Mestallt fé er komið f hús og
vfðast eru til nóg hey til margra
mánaða.
Ég hef verið í kynnisferð f
Igalikofirði og ekki er að sjá að
bændur hafi lært af fyrri nátt-
úruhamförum, en þeir hafa get-
að smalað fénu þrátt fyrir erfið
skilyrði, sem ollu þvf að ekki
var einu sinni hægt að nota
snjósleða.
Rigningar sem fylgdu í kjöl-
far fyrstu snjókomunnar, gerðu
illt verra og ollu snjóflóði i
Igalikofirði. Það gengur krafta-
verki næst að aðeins skuli hafa
orðið eignatjón, en gripahús
sluppu.
Umferð hefur gengið
skrykkjótt vegna óveðursins og
Greenlandair hefur tilkynnt að
félagið geti ekki flutt alla far-
þega sina á ákvörðunarstað fyr-
ir jól.
Fróðlegt verður að vita hvort
veðurguðirnir verði okkur hlið-
hollari um jólin.
Kínverjar
skjóta enn
gervihnetti
Hong Kong. 17. desember. Reuter
KlNVERJAR hafa skotið á braut
enn einum gervihnelti, hinum
fimmta sfðan f aprfl 1970 og hin-
um þriðja á þessu ári.
Fjórða gervihnettinum var
skotið skömmu fvrir heimsókn
Fords forseta og komið aftur til
jarðar sex dögum síðar.
Þá var talið að verið gæti að
þess væri skammt að bfða að
Kfnverjar gerðu tilraunir með
eldflaugar sem draga milli heims-
álfa.