Morgunblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1975
35
Sveinbjörn Bjarkason og Þóroddur Stefánsson. Ljósmynd Mbl. Sv.-
Þorm.
Plötuhúsið, ný
hljómplötuverzlun
PLÖTUHÚSIÐ heitir ný hljóm-
plötuverzlun sem opnuð hefur
verið í Reykjavík. Er hún á horni
Snorrabrautar og Hverfisgötu.
Eigendur Plötuhússins eru Svein-
björn Bjarkason og Þóroddur
Stefánsson. — Verksviðið, sögðu
þeir, er fyrst og fremst sala á
hljómplötum og hljómflutnings-
tækjum. Kváðu þeir góða sam-
vinnu hafa tekizt við diskótek
borgarinnar og mun Plötuhúsið
sjá þeim fyrir nýrri tónlist handa
borgarbúum að sögn þeirra fé-
laga. Hljómplötutækin sem þeir
bjóða upp á eru japönsk af gerð-
inni Onkyo.
Þeir kvaðust kappkosta að hafa
ávallt á boðstólum nýjar og góðar
hljómplötur frá Bandaríkjunum
auk fslenzkra platna. Sérstaklega
kváðust þeir ætla að vera með
soultónlist, sem væri vinsælasta
hljómlistarstefnan i heiminum i
dag. Þá kváðust þeir ætla að vera
með mikið úrval af kassettum.
Minningar Guðmundar
Jónssonar frá Selbekk
komnar út hjá Letri
SÝSLAÐ I BASLINU nefnast
minningar Guðmundar Jónssonar
frá Selbekk í Steingrfmsfirði og
síðar á Ingunnarstöðum í Geira-
dal, sem komnar eru út hjá bóka-
útgáfunni Letri i Reykjavík. Það
er Jón frá Pálmholti, er skráð
hefur minningar Guðmundar en
þær voru lesnar í útvarpinu sl.
sumar og á bókarkápu segir m.a.,
að frásögnin sé óvenjulega hrein-
skilin og viðskipti Guðmundar við
samtfðarmenn sfna um margt
óvenjuleg og söguleg. I bókinni
segir Guðmundur frá heima-
högum sínum norður á Ströndum
og frá fyrstu árum sínum f
Reykjavfk. Bókinni er skipt f tvo
hluta, en í allt er hún rúmar 180
sfður, fjölrituð hjá Letri s/f.
AUGLÝSINGASIMINN ER;
22480
2H«r0unb[abife
PHILIPS KANN TÖKIN A TÆKNINNP wk
HEIMILISTÆKI SF
Hafnarstræti 3, simi 20455 — Sætúni 8, sími 1 5655.
Eyjólfur Einarsson listmálari við
verk sín. Ljósmynd. Mbl. Frið-
þjófur.
Sjávar-
stemmning
Eyjólfur Einarsson
listmálari sýnir
EYJÓLFUR Einarsson listmálari
hefur opnað sýningu á vatnslita-
myndum (akvarelle) hjá Guð-
mundi Árnasyni á Bergstaða-
stræti 19 (rammagerðinni). !
stuttu rábbi við blm. Mbl. sagði
Eyjólfur að hér væru aðallega
myndir sem hefðu orðið til fyrir
áhrif frá sjónum og kallar hann
sýninguna Sjávarstemmningu.
Sýningin verður opin á venju-
legum verzlunartíma til jóla.
Sendir frá sér
tvær þýddar
barnabækur
BARNABLAÐIÐ Vorið sendir
fyrir þessi jól frá sér tvær barna-
bækur Teskeiðarkerlingin, ný
ævintýri eftir Alf Pröysen er
gefin út með styrk frá Norræna
þýðingasjóðnum. Hin bókin nefn-
ist Branda litla og villikettirnir
eftir Robert Fisker. Báðar bæk-
urnar eru myndskreyttar með
teikningum og þýddar af Sigurði
Gunnarssyni. Bækurnar eru
prentaðar f Prentsmiðju Árna
Valdemarssonar h.f.
Léttir og
liprir úr mjúku
brúnu leðri
með slitsterkum sólum
Nr. 35
Nr. 41
40 Kr. 5.450
46 Kr. 5.550
Skóverzl. Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181
Nr. 36-45 Verð kr. 4.995.-
Léttir og
liprir úr mjúku
i brúnu
leðri og með
slitsterkum sólum