Morgunblaðið - 16.05.1976, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAl 1976
LOFTLEIDIR
S 2 1190 2 11 88
Fa
jl níi.i v
UiAit:
22-0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
BILALEIGA
Car Rental
SENDUM
41660—42902
BILALEIGAN—
51EYSIR ■
CAR LAUGAVEGI66
RENTAL
Utvarpog storeo. kasettutæki
JOSTYKIT
Sjáðu?
Nú höfum við fengið
nýja sendingu, þará
meðal AE-BÓKINA
sem er alhliða fróð-
leiks og kennslu
bók, sem er mikið
notuð í fagskólum
um öll Norðurlönd.
Hún lýsir undir-
stöðuatriðum í upp-
byggingu og með-
ferð hálfleiðara
(Transistors, IC ), og
með henni fylgir
prentplata fyrir
fyrstu 10-AEverk-
efnin.
Verð aðeins 1 300
kr.
Hringdu — komdu
— skrifaðu.
Sameind h.f.
Útsölustaðir.
Sameind h.f.
Tómasarhaga 38 R
sími 1 5732.
Heimilistæki s.f.
Sætúni 8.
Geymdu mig
Útvarp Reykjavlk
SUNNUD4GUR
16. maf
MORGUNNINN_________________
8.00 Morgunandakt
Séra Pétur Sigurgeirsson
vígsluhiskup flvtur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
9.00 Fréttir. Utdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veóurfregnir).
a. Prelúdía og fúga um
nafnió B.A.C.H. eftir Franz
Liszt. Cabor I.ehotka leikur á
orgel Tónlistarakademl-
unnar f Búdapest.
b. Tónlist eflir Johann
Sehastian Bach: Svíta í C-
dúr, Konsert fvrir óbó og
fiólu í c-moll og Magnificat f
D-dúr.
Flvtjendur: Fílharmonfu-
svcitin í Búdapest, Peter
Pongracz, Denes Kovacs,
Livia Buday, Margit Laszló,
Istvan Rozsos, Alhert Antalf-
fv og Kodalv-kórinn í Deb-
recen. Stjórnandi: Andras
Kordoi.
11.00 Messa í Lögmanns-
hlfóarkirkju (hljóórituó
viku fvrr).
Prestur: Séra Birgir
Snæbjörnsson. Organleikari:
Áskell Jónsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veóurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.55 Baldur og Hafmcvjan
Líf, störf og vióhorf áhafnar
á varóskipinu Baldri. Sfðari
þáttur. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson. Tæknivinna:
Runólfur Þorláksson.
15.00 Miódegistónleikar
a. Svíta nr. 3 f G-dúr op. 55
eftir Tsjaíkovský.
Fílharmonfusveit Lundúna
leikur; Sir Adrian Boult
stjórnar.
b. Fiðlukonsert f a-moll op.
53 eftir Dvorák. Josef Suk og
Tékkneska fflharmonfu-
sveitin leika; Karel Ancerl
stj.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Létt-klassfsk tónlist
SÍÐDEGIÐ
17.00 Barnatfmi: Gunnar
Valdimarsson stjórnar
SUNNUDAGUR
16. maf
18.00 Stundin okkar
1 Stundinni okkar f dag er
mynd um sex litla hvolpa,
sfóan er finnsk brúðumvnd
um konu, sem týnir hæn-
unni sinni, og austurrfsk
mynd um nauólendingu
geimbúa á jöróinni.
Þá er spjallaó vió nokkur
börn um hvað þau ætli aó
taka sér fyrir hendur f
sumar og aó lokum er mynd
úr myndaflokknum „Enginn
heirna".
Umsjónarmenn Sigrfður
Margrét Guómundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son. Stjórn upptöku Kristfn
Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Augiýsingar og dagskrá
20.35 Heimsókn
Kemst, þótt hægt fari
Einu sinni til tvisvar f viku
ekur Helgi Antonsson
fiutningabflnum A-507 milli
Akureyrar og Reykjav fkur.
Sjónvarpsmenn fylgdust
meö honum f slíkri feró
aprfldag einn f vor.
Kvikmyndun Þórarinn
Guðnason. Hljóð Marinó
Ólafsson. Klipping Erlendur
^ Sveinsson.
Umsjón Ómar Ragnarsson.
21.15 Herb Albert og hljóm-
sveit hans
Trompetleikarinn Herb
Alpert kemur fram á sjínar
sviðiö á ný eftir margra ára
veikindi.
t þættinum koma einnig
fram söngkonan Lani Hail
og leikbrúðurnar Muppets.
Þýðandi Jón Skaptason.
22.05 A Suóurslóð
Breskur framhaldsmvnda-
flokkur bvggöur á sögu eftir
Winifred Holtbv
5. þáttur Blákaldar stað
reyndir
Lvdiu Hollv gengur vel f
skólanum, en semur illa við
Midge Carne. Sara fær
Huggins til aó Ifta á aóbún
aðínn f skólanum, og hann
lofar aö hreyfa málinu á
bæjarstjónarfundi.
Holly fær atvinnu í Cold
Harbour. Kona hans á enn
von á barni-og segir Lvdiu,
aó hún þurfi sennilega aö
hætta námi.
Þvðandi Óskar Ingimarsson.
22.55 Að kvöldi dags. ,
Séra Halldór S. Gröndal
flytur hugvekju
23.05 Dagskrárlok
Helga Hjörvar flvtur frásögu
eftir Gunnar Valdimarsson:
„í tilefni af vorkomunni".
Asgeir Höskuldsson segir frá
þremur telpum og talar um
sauðburð. Guðrún Aradóttir
les ævintýrið „Surtlu í Blá-
landseyjum" úr þjóðsögum
Jóns Árnasonar.
17.50 Stundarkorn með
sænska söngvaranum Jussi
Björling
Tilkvnningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkvnningar.
19.25 Bein Ifna til Matthfasar
Bjarnasonar sjávarútvegs-
ráðherra
Fréttamennirnir Kári Jónas-
son og Vilhelm G. Kristins-
son sjá um þáttinn.
KVÓLPIÐ
20.30 Sinfónfa nr. 3 f Es-dúr
op. 97 eftir^ Robert
Schumann
Sinfónfuhljómsveit Berlfnar-
útvarpsins leikur: Peter
Schrotter stjórnar.
21.00 „Fermingarfötin", smá-
saga eftir Brendan Behan
Anna Marfa Þórisdóttir
þýddi. Hjörtur Pálsson les.
21.20 Samleikur í útvarpssal
Robert Aitken, Gunnar
Egilsson, Þorkell Sigur-
björnsson og Ilafliði
Hailgrímsson leika „Four
better or worse“ eftir Þorkel.
21.45 Kvæði eftir Henrik
Wergeland
Þýðandinn, Þóroddur
Guðmundsson, les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir.
Danslög
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin og
kvnnir.
23.25. Fréttir. Dagskrárlok.
ER^ RBl ( HEVRR!
Um borð
í Baldri
SÍÐARI þáttur Páls Heiðars
Jónssonar Baldur og Hafmeyj-
an verður i hljóðvarpi í dag og
hefst hann kl. 13.55. I sfðasta
þætti var greint frá því þegar
siglt var inn í togarahópinn til
þess að freista þess að klippa á
togvira. 1 þættinum f dag tekst
klipping í fimmtu tilraun að því
er Páll Heiðar Jónsson sagði.
Þá sagði Páll Heiðar að i
þessum þætti væri lýsing á
störfum áhafnarinnar og rætt
um aðbúnaðinn.
Í þættinum koma einnig fram
viðhorf skipstjórnarmanna til
gæslunnar og þeirri spurningu
er varpað fram hverjar sigur-
horfur okkar séu raunverulega.
Páll Heiðar sagði að eflaust
myndu ummæli manna um
landhelgisgæsluna fá einhverja
tíl að sperra eyrun.
Í þættinum heyrist einnig frá
skipstjóra á Hull-togaranum
Prince Charles varðandi rassa-
sýningu sem áhöfn hans hafði í
frammi að útvarpsmönnum og
áhöfn Baldurs ásjáandi að sögn
Páls Heiðars.
Þess má líka geta að þáttur-
inn hefst á að afhjúpað er eins
konar leynivopn sem Baldur
hefur notað í þessu þorskastríði
þó ekki sé rétt að skýra nánar
frá því hér.
Tæknimaður með Páli Heið-
ari i ferðinni var Runólfur Þor-
láksson.
Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra sem verður fyrir svörum.
Ekkí er ósennilegt að margar
spurningar beri á góma, enda
sjávarútvegsmál ofarlega á
baugi í vetur eins og oft áður.
Má nefna ýmis fiskfriðunar-
mál, veíðiheimildir og veiðitak-
markanir og síðast en ekki sist
svörtu skýrsluna svonefndu en
nú er ástand fiskstofnanna
talið jafnvel enn lakara en lýst
er í skýrslunni.
Það eru fréttamennirnir Kári
Jónasson og Vilhelm G.
Kristinsson sem sjá um þáttinn
að vanda en þátturinn er
rúmlega klukkustundar langur.
Bein lína
Beín lfna verður í hljóðvarpi
í kvöld og hefst kl. 19.25. Að
þessu sinni er það Matthías
Smásaga eftir
Brendan Behan
I kvöld verður lesin í hljóð-
varpi smásagan Fermingar-
fötin eftir Brendan Behan.
Hjörtur Pálsson les og hefst
lesturinn kl. 21.00 en þýðingu
sögunnar gerði Anna María
Þórisdóttir. Brendan Behan var
eins og kunnugt er írskur rit-
höfundur. Skrifaði hann bæði
leikrit og sögur og var mjög
vinsæil af þjóð sinni.
Að sögn Hjartar Pálssonar er
sögumaður í leikritinu að rifja
upp fermingardaginn sinn og
ekki síður undirbúning ferm-
ingarinnar. Segir í sögunni frá
þvi hvernig það atvikaðist að
fermingarfötin hans urðu hon-
um sérstaklega eftirminnileg.
Við sögu koma gömul amma
söngumanns, foreldrar hans,
skólafélagar, jafnaldrar og
fleira fólk.
— Sagan er spaugileg lýsing,
sagði Hjörtur, en höfðar í raun
og veru til mannlegra tilfinn-
inga. Undirtónn hennar er
manneskjulegur og hlvr.
ER
HP.
5JR
Fyrir skömmu bauð ríkisútvarpið áhöfninni á Baldri í kaffi, en eins og hlustendur vita fóru þeir Páll Heiðar
Jónsson og Runólfur Pétursson með Baldri í ferð fyrir skömmu. Tók RAX þessa mynd í kaffiboðinu. Seinni hluti
frásagnarinnar af lífinu um borð i varðskipi er í hljóðvarpi í dag og er rætt við skipverja og fylgst með klippingu.
Með fhitningaM
nonlur í land
Heimsókn er í sjónvarpi kl.
20.35 í kvöld. Umsjónarmaður
er Ómar Ragnarsson en um
kvikmyndun sá Þórarinn
Guðnason.
Heimsókn er að þessu sinni
nokkuð frábrugðin því sem fólk
hefur átt að venjast í þessum
þáttum i vetur. Ekki er heim-
sóttur einn ákveðinn staður
landsins, heldur er fylgst með
flutningabíl norður i land. Það
er Helgi Antonsson sem ekur
bílnum en hann fer eina til
tvær ferðir milli Reykjavíkur
og Akureyrar á viku.
í einni slíkri ferð fylgdust
sjónvarpsmenn með honum og
ræddu við hann um fjölbreyti-
legustu málefni.