Morgunblaðið - 16.05.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAl 1976
11
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Emil
Gilels
EMIL Gilels er tvfmælalaust einn
af mestu píanóleikurum okkar
tíma. Hann ræSur yfir ótrúlegri
tækni. hefur fullt vald á henni á
víðfeðnu styrkleikasviði og er
auk þess mjög sérstæður í túlkun
sinni. Vísindamenn hafa reynt að
skýra hvers vegna leikur einstaka
hljóðfærasnillinga er kynngi
magnaðri en annarra góðra
manna á þessu sviði og komist að
þeirri niðurstöðu, að stundvisin
eða árásin i tóntaki þeirra. sé
hvassari og fyrr á ferðinni en
almennt gerist. Til þess að spila í
réttum takti þarf tónninn að
verða til á vissu tímabili
Spennan er talin verða meiri ef
tóntakið er fremst i þessu tima-
bili, en þvi aftar sem tónninn
stendur, verði flutningurinn svip-
lausari. Emil Gilels er einn af
þeim er kippir í mann og slakar
aldrei á. Miðað við það sem
undirritaður hefur heyrt til Gilels,
var leikur hans að þessu sinni
ekki eins hvass og búast hefði
mátt við, sem gæti stafað af þvi,
að hljómsveitin okkar hefur ekki
tamið sér mjög hvasst tóntak og
hann því að nokkru orðið að
halda aftur af sér, til samræmis
við leik hljómsveitarinnar. í
þessu sambandi mætti ætla að
hraðinn á síðasta kaflanum hafi
verið valinn með hliðsjón af
þessu.
Hann var mun hægari en undir-
ritaður þekkir til, en fyrir bragðið
var flutningurinn sérlega skýr.
Þessir sfðustu tónleikar Sinfónfu-
hljómsveitar íslands hófust með
verki, er sérstaklega hafði verið
keypt af Arne Nordheim. Verkið
er f hefðbundnum nútfmastfl, þar
sem á fiðlurnar eru leiknir enda-
lausir flaututóns hljómklasar f
ýmsum styrkleikastigum og smá-
stef inn á milli. „Ansans ári"
Iftílfjörlegt en ekki óáheyrilegt.
Tónleikunum lauk svo með
Sinfónfu nr. 2 eftir Sibelius, sem
er mjög erfitt verk f flutningi.
einkum er varðar tóngæði. í heild
var flutningur hljómsveitarinnar
mjög góður, ef frá eru teknir
nokkrir erfiðir staðir f seinni hluta
verksins. Þegar litið er yfir verk-
efni vetrarins, verður ekki annað
sagt en að hljómsveitin hafi
skilað dagsverki sambærilegu við
aðrar og frægari hljómsveitir.
Satt best að segja, megum við
íslendingar þakka fyrir að hafa
tækifæri á jafngóðum flutningi
og hér tfðkast, við ekki betri
aðstæður en hérlendir tónlistar-
menn þurfa að búa við og, ef við
stæðum okkur eins vel á ein-
hverju öðru sviði, yrði það
áreiðanlega blásið út í fjöl-
miðlum.
Karsten Andersen, sem hefur
verið aðal stjórnandi hljóm-
sveitarinnar hefur verið endur-
ráðinn næsta ár. Hann er góður
tónlistarmaður og áhugasamur
um fslenzka tónlist. Um leið og
þakkað er fyrir liðið er hann
boðinn velkominn til starfs á
næsta vetri, ef Guð lofar, eins og
gamla fólkið f landinu hafði áður
fyrr að máltæki.
Sinfón-
íutón-
leikar
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
■
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG66 LAUGAVEG20a
SIMI FA SKIPTIBOPÐI 28155
L \ t « \ » Jr « mlmm 1
r —— —.—g S SK