Morgunblaðið - 01.08.1976, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.08.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. ÁGUST 1976 3 Rauðhetta á ZJlfljótsvatni — KOMDU með hælana! Flýtið ykkur, ég er búinn að ná f tjaldstæði. Hvar er sjoppan? Hvenær kemur næsta rúta? Hve- nær byrjar hljómsveit- in? Köll og hróp — alls staðar var ys og þys þeg- ar unglingana dreif að mótssvæðinu á Úlfljóts- vatni á föstudagskvöldið. Fyrsta rútan kom frá Borgarnesi og þegar Mbl. kom til að líta á Rauð- hettu voru krakkar frá Selfossi nýkomnir og voru að leggja undir sig „gula svæðið“. Veður var bjart og fagurt, en nokk- uð kalt. Islenzkir ungl- ingar láta þó ekki svoleið- is smámuni standa sér fyrir þrifum, og voru flestir á „þjóðbúningi“, þ.e.a.s. kuldafóðruðum lúðaúlpum með loðkanti. Við hittum Þorstein Sigurðsson mótsstjóra þar sem hann var í óða önn að gefa fyrirskipan- ir. Sagði hann undirbún- ing hafa gengið að ósk- um, og tæknilega væri því nú ekkert til fyrir- stöðu að 10—15 þúsund manns gætu tekið sér ból- festu á svæðinu yfir helg- ina. — Undirbúningsnefnd- irnar, sem hafa unnið að þessu fyrir mótið halda starfi sínu áfram hér og klára sitt verk. Við höf- um skipulagt þetta mót með svipuðum hætti og skátamótin, og það skipu- lag hefur gefizt vel, sagði Þorsteinn. — Við erum með 330 manna starfslið. Allir vinna í sjálfboða- liðsvinnu nema læknarn- ir tveir, sem hafa aðsetur i sjúkratjaldinu. — Hvað þurfið þið að fá marga hingað til þess að fyrirtækið borgi sig? — Við þurfum að fá svona 4 þúsund manns, og það er allt útlit fyrir, að þátttakendur verði all- miklu fleiri en það. Ólöf og Edda eru 13 ára vinkonur frá Selfossi. Þær voru búnar að tjalda og koma dótinu sfnu fyrir og biðu þess að lff færi að færast í tuskurnar. Þetta eru félagar f Hjálparsveit skáta úti fyrir sjúkratjaldinu. Þar er fullkomin aðstaða til þess að veita nauðsynlega læknishjálp, enda verða tveir læknar þar meðan mótið stendur, ásamt hjúkrunar- konum og félögum úr hjálparsveitinni. 1 tjaldinu er legupláss fyrir 16 manns, og sögðu skátarnir ekkert veita af þvf, þar sem alltaf væri töluvert um það, að fólki yrði kalt og þyrfti að hlúa að því á ýmsan hátt. — Hver er tilgangur- inn með því að halda svona mót? — Við erum að skapa okkur ný verkefni og færa út kvíarnar, auk þess sem við gerum þetta líka í fjáröflunarskyni, sagði Þorsteinn að lok- um. Þegar Mbl. spurðist fyrir um fjöldann um há- degi á laugardag voru um 4 þúsund unglingar sam- ankomnir á Úlfljótsvatni. Þessir eru frá Selfossi og þeim varð ekki skotaskuld úr því að drffa tjaldið upp á tveimur mfnútum. Þeir sögðust oft hafa verið f tjaldi áður og voru hinir hressustu. Lu. Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær, — og þeir sem eru fyrstir á staðinn fá beztu tjaldstæðin. Með UTSYN til annara landa 15. — 20. september SCANDINAVIAN FASHION WEEK FUENGIROLA Næsta brottför 16 ágúst TORREMOLINOS Næsta brottför 8. ágúst Einn glaðværasti baðstaður Evrópu Næsta brottför 13. ágúst. Fáein sæti laus. Kaupmannahöfn AUSTURSTRÆTI 17 SIMI 26611 Ferða skrif stof a n

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.