Morgunblaðið - 05.11.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1976
Þýzku
grafíksýn-
ingunni
frestað
Sýningu þeirri, sem opna átti
nk. laugardag í Bogasalnum á
þýzkri nútímagrafík, hefur nú
verið frestað til laugardagsins
27. nóvember nk. og verður hún
þá haidin að Kjarvalsstöðum.
Þegar var búið að senda út
boðskort til ýmissa aðila, en at-
hygli þeirra er nú vakin á
þeirri breytingu sem orðið hef-
ur og munu boðskortin gilda
þegar sýningin verður opnuð
síðar í mánuðinum.
Sýningin nefnist Þýzk grafík
á vorum dögum, er farandsýn-
ing og kemur hingað á vegum
félagsins Germaníu. Bragi Ás-
geirsson myndlistarmaður ann-
ast uppsetningu sýningarinnar.
Bragi sagði í samtali við
Morgunblaðið, að aðstandendur
hennar hér á landi hefðu átt
von á þvf að sýningin yrði mun
minni en raun varð á. Sýning-
una átti að halda í Bogasalnum,
þar sem Norræna húsið fékkst
ekki á þessum tfma, en þegar
farið var að taka myndirnar úr
kössunum kom í Ijós, að í þeim
Framhald á bls. 24
MYNDARÖÐ eftir Horst
Antes, einn myndlistarmann-
inn á þýzku graffksýningunni,
sem sankað hefur að sér viður-
kenningum og verðlaunum
víða f Evrópu á sfðustu árum.
Efsta myndin nefnist Vera með
dúfu, hin næsta Vera með
rauða P-húfu og flagg og sú
neðsta Vera með svarta slá á
ryðleir.
Lögreglumenn úr umferðardeild voru að störfum fram
eftir kvöldi í gær og höfðu sérstaklega auga með því
hvort þeir rækjust á bíla sem ekki hafa verið skoðaðir.
Lögreglumönnunum varð vel ágengt og voru margir
bílar færðir inn til bifreiðaeftirlitsins þar sem eftirlits-
menn kynntu sér ástand bílanna, og voru númerin óspart
klippt af bílum. Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Fær Akranes hitaveitu
úr Deildartunguhver?
Kannað hvort það geti reynzt arð-
bært með niðurfellingu aðflutnings-
gjalda á nauðsynlegum búnaði
BÆJARRAÐ Akraness hefur nú
til athugunar hvort arðbært geti
orðið með tilliti til hugsanlegrar
hitaveitu fyrir bæinn að virkja
Deildartunguhver f Borgarfirði.
Reykjaneskenn-
arar fella
niður kennslu
BARNAKENNARAR á 9. kjör-
svæði SIB (Hafnarfjörður, Garða-
bær, Álftanes og Suðurnesin)
hafa ákveðið að fella niður
kennslu 8. nóvember nk. en verja
deginum til fundahalda um þau
vandamál er steðja að kennara-
stéttinni og skólahaldi almennt.
Veigamikið umræðuatriði þessara
funda verður sú staðreynd, að
sífellt færra réttindafólk ræðst
nú til starfa við skólana vegna
lélegra launa og eru dæmin þess
að heilu skólarnir séu aðeins
„mannaðir" réttindalausum
kennurum.
Kennarar á 9. kjörsvæði SlB
fagna samstöðu f þessum aðgerð-
um og hvetja kennara um land
allt til að fylkja sér um 8. nóvem-
ber, segir í fréttatilkynningu frá
kennurunum.
Iðnrekendur ánægðir með
niðurfellingu sölugjalds
Vonast til að agnúar verði
sniðnir af með nýrri tollskrá
„FORRÁÐAMENN íslenzks
iðnaðar eru ákaflega ánægðir
með þá ákvörðun að fellt skuli
niður nú frá og með 1. janúar
sölugjald af vélum og tækjum
til samkeppnisiðnaðar,** sagði
Davfð Scheving Thorsteinsson
formaður Félags fslenzkra iðn-
rekenda. Hann sagði jafnframt
að þeir vonuðu að framkvæmd-
in yrði sú, að öfl gjöld yrðu
felld af vélum, tækjum og vara-
hlutum til iðnaðarins nú um
næstkomandi áramót.
Davíð Scheving sagði að þessi
ákvörðun, sem nú hefði verið
gerð f fjárlagafrumvarpinu,
leysti engan veginn það mál.
Þessu var lofað 1970 í sambandi
við inngöngu íslands í EFTA
en nú kvað hann vera 6 ár síðan
Óskaplega mörg tollnúmer,
vélar til iðnaðarins, tæki og lítil
hjálpartæki eru enn tolluð upp
úr öllu valdi. Sem dæmi nefndi
Davíð t.d. Álafoss hefði flutt
inn vélar nú nýlega sem kost-
uðu 1,4 milljónir króna cif. en
síðan greiddi félagið f tolla,
vörugjald og söluskatt 1,2
milljónir króna. Er það 82,3%
tollur en þetta breytist ekki við
niðurfellingu þessa gjalds.
Afram verður 82,3% tollur.
Þess vegna fagna iðnrekendur
þvf að tollskrá skuli endurskoð-
uð og vonast tal þess að fá að
vera með í ráðum, er hún verði
samin, svo að snfða megi af
henni ýmsa agnúa sem þar eru
aðeins til vansa.
Þá minntist Davíð Scheving
Thorsteinsson á að fiskiðnaður
væri enn með 22% sölujald þar
sem ríkisstjórnin liti ekki á
hann sem samkeppnisiðnað
eins og það er orðað f fjárlaga-
frumvarpinu.
Forsenda slfks er þó að felld verði
niður aðflutningsgjöld og sölu-
skattur af leiðslum og búnaði sem
þarf til að flytja vatnið þessa
löngu vegalengd, en uppástunga
um að slfk leið til lausnar hita-
veituvandamálum Ákurnesinga
verði athuguð hefur komið fram
hjá iðnaðarráðherra, Gunnar
Thoroddsen.
Á fundi sem sjálfstæðisfélögin
á Akranesi efndu til f fyrrakvöld
kom það fram, að boranir við
Leirá hafa leitt f ljós að heita
vatnið sem þar fæst hentar ekki
til húsahitunar og er einasta
leiðin að virkja Deildartungu-
hver. Fyrirsjáanlegt er þó að
gffurlegur kostnaður er samfara
þvf að flytja vatnið þessa löngu
leið og hitaveitan þvf ekki arðbær
af þeim sökum. Á fundinum
skýrði iðnaðarráðherra, frá þvf að
athuga mætti hvort ekki væri
unnt að fá felld niður aðflutnings-
gjöld og söluskatt af þeim búnaði
sem til þessara framkvæmda
þyrfti og hvort dæmið kynni þá
ekki að breytast. Munu bæjaryfir-
Framhald á bls. 24
Kennara-
nemar hefja
mótmæla-
aðgerðir
NEMENDUR við Kennaraháskól-
ann munu f dag efna til eins
konar setuverkfalls innan skólans
og meðtaka ekki kennslu f mót-
mælaskyni við hinar nýju útlána-
reglur lánasjóðs fsl. námsmanna.
Mótmælaaðgerðir þessar ná til
allra nemenda skólans en
nemendurnir sem eru um 350
talsins munu allir mæta f skólann
en sinna hagsmunabaráttu sinni f
stað námsins.
Hyggjast nemur nota fyrri
hluta dagsins til að þinga um ýmis
málefni, er hagsmuni þeirra
varðar, og undirbúa jafnframt
þátttöku f mótmælafundi, sem öll
nemendasamtök skóla, sem eiga
aðild að lánasjóðnum, ætla að
efna til á þriðjudag f næstu viku.
Síðdegis munu nemendur koma á
framfæri við almenning dreifirit-
um, þar sem gerð er grein fyrir f
hverju óánægja nemenda með út-
hlutunarreglur lánasjóðsins er
fólgin.
Ósaimindi Þjóðvilj-
ans 1956 um Pétur
Benediktsson
MARTA THORS hafði sam-
band við Morgunblaðið í gær og
bneti á þá staðreynd, að þegar
þessar svokölluðu árásir voru
gerðar á sovézka sendiráðað hér
vegna innrásar Rússa í Ung-
verjaland, þá stóð hún við hlið
manns sfns, Péturs Benedikts-
sonar þáverandi bankastjóra,
og Hauks Snorrasonar sem var
ritstjóri Tímans, og horfðu þau
á mannfjöldann safnast saman
i Tungötu og á Hólavallagötu
Mbl. vill benda á, að Þjóð-
viljinn og kommúnistar réðust
helzt að Pétri Benediktssyni, af
því að hann var maður óhrædd-
ur að segja skoðanir sínar, enda
kom það fram þegar hann þetta
sama kvöld, 7. nóv. 1956, flutti
ræðu á fundi og fordæmdi
innrás Rússa í Ungverjaland.
Kommúnistar óttuðust penna
hans og kusu að reyna að koma
þvf inn hjá fólki, að hann hafi
staðið með grjót f hendi, en
ekki penna.
Að sjálfsögðu voru þetta
venjuleg ósannindi Þjóðviljans
og hans veika vörn.
Ekki þarf að taka fram, að
ýmsir aðrir, sem Þjóðviljinn
nefndi f nóv. 1956 og reyndi að
bendla við skrílslæti, voru að
sjálfsögðu alsaklausir af slfkri
framkomu.
Flóamarkaður
myndlistarnema
NEMENDUR í Myndlistar- og
handfðaskólanum efna til flóa-
markaðar við Bernhöftstorfu f
dag og á morgun, þar sem á boð-
stólum verður ýmiss konar góss,
sem nemendur hafa viðað að sér
eða gert sjálfir. Flóamarkaður
þessi er orðinn árviss í félags-
starfi nemenda, og hann hefst kl.
1 í dag og verður einnig á morgun
frá kl. lOtiI 6.
Bókmennta-
kynning í
Keflavík
BÓKMENNTAKYNNING verður
á vegum Bæjarbókasafns Kefla-
vfkur nk. laugardag og hefst kl. 2
f Félagsbfói.
Þar munu átta rithöfundar lesa
úr verkum sínum þeir Ármann
Kr. Einarsson sem les úr
ópreútaðri barnabók, Gunnar Dal,
sem les úr Kamölu, sögu frá Ind-
landi; Hilmar Jónsson les úr
skáldsögunni Hundabyltingunni,
Jóhann Gfslason les úr ljóðabók-
inni við Nónvörðuna, Helgi Skúla-
son leikari mun lesa úr nýrri bók
eftir Jóhannes Helga, Jón
Böðvarsson les úr óprentuðum
ljóðum, svo og Kristinn Reyr en
Sigurgeir Þorvaldsson les úr
ljóðabókinni Hraungrýti.
Þá mun Karlakór Keflavíkur
syngja og aðgangur er öllum
heimill og ókeypis.
tjúkum
verkinu
l'il hjalpar
vangefnum börnuni
(á
•yý Hjálparstofmin
kirkjuimar
Gíró 20.000
Leiðrétting
PRENTVILLA var f millifyrir-
sögn greinargerðar Garðabæjar,
sem birtist hér í blaðinu í gær,
sem kann að gefa villandi hug-
mynd. Rétt átti millifyrirsögnin
að vera svohljóðandi: Erfiðleikar
við endurbyggingu Hafnar-
fjarðarvegar.
Þetta er veggspjald það sem
hefur verið komið upp vfða og
minnir á söfnunina. Sams konar
mynd er á umslögum þeim sem
send hafa verið út sums staðar á
landinu.
Nálægt einni
milljón króna
hafa safnast
Hjálparstofnun
kirkjunnar framlengir
söfnunina um viku
N(J hefur verið ákveðið að söfn-
unarherferð Hjáfparstofnunar
kirkjunnar verð framlengd um
eina viku. Sagði Guðmundur
Einarsson framkvæmdastjóri að
það væri gert vegna f jölda beiðna
og vegna þess hve undirtektir
hefðu orðið góðar. Guðmundur
sagði að f gær hefði Hjálparstofn-
uninni verið kurtnugt um gjafir
go loforð fyrir gjöfum að upphæð
lálægt einni milljón króna. Sem
dæmi nefndi hann að hjón héldu
upp á gullbrúðkaup sitt með þvf
að gefa 50 þúsund krónur. Ekki
væri enn farið að berast neitt að
Framhald á bls. 24