Morgunblaðið - 05.11.1976, Síða 10

Morgunblaðið - 05.11.1976, Síða 10
10 MOKCkUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBP:R 1976 Féð handlangað niður bergið ( Hafnarbrekkunni, en víð flána liggur Onadin og Skurðin á vfkinni við Bjarnarey og ( fjarska er Klliðaey. Það er betra að hafa aðgæzlusvip þegar bæði þarf að stjðrna bát við bergið og taka á móti skjátunum, en það kemur sér að Sveinn Hjör- leifsson er gamalreyndur í fag- inu, og kann að láta hlutina heita eitthvað þegar á þarf að halda. BJORGIN Elliðaey og Bjarnarey f f jarska. Með rollu- körlum í Vest- mannaeyjum í smölun í Bjarnarey og Elliðaey Hjalti f Varmadal grfpur eina f miðju bjarginu, og náði að verja. „VIÐ sækjum féð f Bajarnarey og Elliðaey á morgun,“ sagði Sveinn Hjörleifsson útvegsbóndi og fjár- bóndi í Vestmannaeyjum," svo fremi að það verði leiði.“ Um aldaraðir hafa Eyjamenn átt sauðfé f úteyjum Vestmanna- eyja sumarlangt og oft hefur nokkur fjöldi fjár gengið úti veturlangt, en fé f úteyjum er einstaklega vænt og kraftur og fótfimi þess f jár er með eindæm- um. Oft hafa menn orðið vitni að þvf að úteyjakindur hreinlega hlaupa björg þar sem menn fara ekki að öllu jöfnu. Að meðaltali er úteyjafé talsvert þyngra og stærra en fé almennt, sem býr ekki við klettakíifur og þá vænu beit sem úteyjar bjóða. Það var leiðTdaginn eftir bæði f Bjarnarey ”ög Elliðaey. Trillan Onedin með kapteini Sveini frá Skálholti brunaði úf vfkina, vel mannað um borð, hrtútusetningaT flugu á milli manna, fýll við kinn- ung og trillan tifaði undirölduna léttilega. I kjölfarið kom Skuldin, báturinn sem flytja átti féðáfyrir heimsiglingu, en Onedin atti að leggjast að flám útvarðanna, Bjarnareyjar. og Elliðaeyjar, og ferja féð í Skuldina. Það var talsvért á annað hundr- að fjár ’í báðum eyjunum og fyrst var brunað að Elliðaey á meðan leiði var tryggt, en þar er vangpsf- ara sjólag við steðjann en f Bjarnarey. Bátur að steðja, menn á stökk, spyrna 'undir fót f bjargi og mað- urinn var á leið upp klettana, rásað skipulega um eylandið og innan tíðar þéttist fjárhópurinn, rann um bringi og bekki, fles og hlfðar að réttinni við flána. Þá var eftir að handlanga féð niður hamrana, kind af kind, maður af manni og’ smátt og smátt fylltist Skuldin af svipmiklu fé. Ein kind, feikn myndarleg ær, slapp úr manna höndum á flánni og það Það duga engin vettlingatök á „stórgripina" úr úteyjnm f Vestmannaeyjum. Maggi f Dölum er þarna um borð f Skuldinni og tekur á móti einni vænni úr trillunni Onedin. Sveinn f Skálholti er sá ábúðarmikli með sixpensarann og takið á horninu. Ljósmyndir Mbl. Siguf^eir. ÞAR HLAUPA KINDURNAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.