Morgunblaðið - 05.11.1976, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. NÖVEMBER 1976
Mannlegur
ósigur
—listræn
reisn
Helga Bachmann
Þjóðleikhúsið, Litla sviðið:
NÖTT ASTMEYJANNA
eftir Per Olov Engquist.
Þýðandi: Stefán Baldursson.
Leikmynd og búningar: Birgir
Engilberts.
Leikstjóri: HelgaSkúlason.
I athugasemdum sem Per
Olov Enquist hefur gert við
leikrit sitt Nótt ástmeyjanna
minnist hann á þá tegund gagn-
rýni gegn August Strindberg
(1849—1912) sem felst í því að
hneykslast á persónulegum sér-
kennum hans og smámunasemi.
„1 rauninni er það makalaust
að löngu liðinn höfundur geti
haldið áfram að lifa í hugum
manna á þennan nálæga hátt,“
segir Engquist.
Þegar leikrit Enquists um
Strindberg var frumsýnt í
Stokkhólmi hófust fljótlega
deilur um túlkun hans á per-
sónu Strindbergs og ekki
vantaði þá sem þóttust vita bet-
ur um einkalíf skáldsins en
fram kemur í leikritinu. Á
sænsku nefnist verkið
Tribadernas natt og merkir
eiginlega Nótt kynvilltu kvenn-
anna, en eðlilegt er að Stefán
Baldursson kalli leikritið Nótt
ástmeyjanna. Það lætur betur í
munni.
Nótt ástmeyjanna gerist 1889
á æfingu hjá Dagmarleikhús-
inu í Kaupmannahöfn á Þeirri
sterkari eftir Strindberg. Þeir
sem koma við sögu eru auk
Strindbergs sjálfs kona hans
Siri Von Essen, vinkona hennar
og síðar sambýliskona Marie
Caroline David og leikarinn
Viggo Schiwe. Skilnaður þeirra
Strindbergs og Siri von Essen
er yfirvofandi og þau átök sem
eiga sér stað milli þeirra meðan
á æfingu stendur eru þunga-
miðja Ieiksins. Æfingin fer út
um þúfur. Hatur Strindbergs á
Marie David og afbrýðisemi
hans í garð Viggos Schiwe sýna
mann sem er að þvf kominn að
verða brjálaður, er orðinn ör-
væntingu að bráð. Strindberg
telur að um ástasamband sé að
ræða milli konu hans og Marie
David. Hún hafi rænt hann
konu sinni meðan hún dvaldist
hjá þeim í Grez og rifjar sffellt
upp nótt eina þegar hann þyk-
ist hafa komist að hinu sanna.
Þriðja konan, Sophi von
Holten, tók einnig þátt í svall-
veislunni fyrrnefnda nótt. I
þeirri sterkari er fjallað um
tvær konur sem báðar elska
mann sem lifir sínu lífi utan
sviðsins. Strindberg er f raun
og veru að lýsa þeim Siri von
Essen og Marie David og sjálf-
ur er hann fjarstaddi maður-
inn, en eins og skiljanlegt er
hafa þær ýmislegt við verkið að
athuga. Við kynnumst öðrum
hliðum þeirrar baráttu sem átt
hefur sér stað i huga skáldsins,
en einna glöggust í verkinu er
hin magnaða spenna milli
Strindbergs og Marie David,
sambland fyrirlitningar og
aðdáunar, haturs og ástar.
Marie David verður eins konar
tákn hinnar nýju frjálshuga
konu sem Strindberg óttast, en
veit að hlýtur að rfsa upp. Sam-
kvæmt þvf má velta fyrir sér
orðum höfundarins, Enquists,
að kannski hafa Siri von Essen
verið að leita að einhverju
öðru: „frjálsri mannveru,
frjálsri konu“ hjá Marie David
og hún hafi fundið það. Eða svo
að enn sé vitnað til Engquists:
„Vinátta, systraþel, nýtt upp-
haf, eitthvað annað.“
Gegn öllu þessu berst Strind-
berg vonlausri baráttu, haldinn
sálarflækjum sínum og ímynd-
unum sem birtast með ýmsu
móti. En í huga hans er sterk-
ust vissan um að allt sé glatað.
Að mfnu viti var frumsýning
Þjóðleikhússins á Nótt ástmeyj-
anna eftirminnilegur sigur sem
ekki síst ber að þakka traustri
leikstjórn Helga Skúlasonar.
Hér var sannarlega á ferðinni
list sem á erindi til fólks og
vonandi kunna leikhúsgestir að
meta það.
Þegar túlkun Erlings Gísla-
sonar á Strindberg er metin er
ekki unnt að gleyma þeim hug-
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
myndum sem maður hefur gert
sér um skáldið. En ekki væri
sanngjarnt að láta þær ráða
dómi sfnum. Smávægilegar að-
finnslur sem vissulega eiga rétt
á sér skulu ekki tfndar til, held-
ur er ástæða til að gleðjast yfir
því hvernig leikur Erlings í
heild sinni færir okkur mynd
hins hrjáða skálds.
Helga Bachmann leikur Siri
von Essen af innri styrk sem
verður æ ljósari eftir því sem á
verkið líður. Eins og Erlingur
nær hún lengst í túlkun van-
máttar, ástar sem er fyrir
hendi, en fær ekki notið sín
vegna alls sem á undan er
gengið.
Leikaranum Viggo Schiwe er
vel borgið í höndum Bessa
Bjarnasonar, en þeir Bessi og
Sigmundur örn Arngrímsson
munu skiptast á um þetta hlut-
verk. Schiwe er ekki gerður að
neinu gáfnaljósi f verkinu og
Bessi dregur ekki úr þeirri ætl-
un höfundarins. En hér var
vissulega leikið af öryggi og
kunnáttu.
Edda Þórarinsdóttir er vax-
andi leikkona. I hlutverki
Marie Caroline David held ég
að hún hafi náð einna bestum
árangri á leikbraut sinni. Þetta
er hlutverk sem vex úr þögn til
að verða hljómmikið afl.
Ólafur Örn Thoroddsen fer
með lítið hlutverk (ljósmynd-
ara) af smekkvísi.
1 Nótt ástmeyjanna öðlast
mannlegur ósigur listræna
reisn.
OKKAR FRAMTÍÐ I REYKJAVÍK
HVERFAFUNDIR BORGARSTJÓRA 1S76
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri flytur ræðu og
svarar fyrirspurnum fundargesta
Bakka- og Stekkjahverfi,
Fella- og Hólahverfi,
Skóga- og Seljahverfi
Laugardagur 6. nóvember
kl. 14.00
SELJABRAUT 54 (2. hæð)
UMHVERFIÐ
ÞITT
Á fundunum verður:
1. Sýning á líkönum og upp-
dráttum af ýmsum borgar-
hverfum og nýjum byggöa-
svæöum
2. Litskuggamyndir af helztu
framkvæmdum borgarinn-
ar nú og að undanförnu.
3. Skoðanakönnun um borg-
armálefni á hverjum
hverfafundi og veröa nió-
urstöður birtar borgarbú-
um eftir aö hverfafundum
lýkur.
V__________________)
Reykvíkingar — tökum þátt í fundum borgarstjóra