Morgunblaðið - 09.11.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
Sjópróf hefjast í dag:
íslenzk áhöfn m.s.
Sögu neitar ásökunum
Stjórn Sjómannasambandsins styður formann sinn
AÐ ÓSK útgerðar m.s. Sögu hefj-
ast í dag sjópróf I máli Nígerlu-
mannanna tveggja, sem hafa
ásakað skipstjóra og áhöfn skips-
ins um slæman aðbúnað og
ómannúðlega meðferð á ferð
skipsins frá Port Ilarcourt I
Nfgerlu til Islands. Þá hefur Sig-
urður Markússon, skipstjóri m.s.
Sögu, lýst þvl yfir að hann hyggist
höfða meiðyrðamál á hendur Ósk-
ari Vigfússyni, formanni Sjó-
Fyrrverandi bæjar-
lögmaður ákærður
fyrir brot i starfi
EMB/ETTI rfkissaksóknara hefur
fyrir nokkru slðan gefið út ákæru
á hendur Ingvari Björnssyni,
fyrrverandi bæjarlögmanni I
líafnarfirði, fyrir brot f opinberu
starfi og fyrir að hafa misnotað
aðstöðu sfna sem embættismanns.
Hefur Sverrir Einarsson saka-
dómari verið settur dómari I
málinu.
Málavextir eru þeir, að fyrir
allmörgum mánuðum bauð lög-
maðurinn sjálfur í húseign á
nauðungaruppboði í Hafnarfirði,
en hann átti að vera við uppboðið
til að gæta þar hagsmuna Hafnar-
fjarðarbæjar. Urðu miklar deilur
um þetta mál á sínum tima og var
bæjarlögmanninum vikið úr
starfi og krafizt opinberrar rann-
sóknar á gerðum hans. Að rann-
sókn lokinni var málið sent ríkis-
saksóknara, sem nú hefur ákveðið
málshöfðun á hendur Ingvari
Björnssyni.
Ljósm. Mbl.: RAX.
Starfsmaður einnar bensfn-
stöðvarinnar með pakka af
eitrinu, sem nú hefur verið inn-
kallað.
mannasambands Islands, vegna
ærumeiðandi ummæla, sem hann
telur Óskar hafa viðhaft á blaða-
mannafundi, er hann efndi til,
þegar sambandið tók kvartanir
Nfgerfumannanna f sfnar hendur.
Lögfræðingur Sigurðar Markús-
Framhald á bls. 47
Brú yfir Ölfusárósa
næsta stórverkefni
í brúargerd hér
HALLDÓR E. Sigurðsson
samgöngumálaráðherra lýsti þvf
yfir á samkomu við opnun nýju
Landshafnarinnar f Þorlákshöfn
s.l. sunnudag að næsta stórverk-
efni f brúargerð hlyti að vera
brúargerð yfir Ölfusárósa,
tenging Suðurlands og Reykja-
ness með vegasambandi við sjó
fram, tenging Eyrarbakka og
Stokkseyrar við Landshöfnina f
Þorlákshöfn.
I samtali við Mbl. í- gærkvöldi
sagði samgönguráðherra: „Mín
skoðun er sú að þegar Borgar-
fjarðarbrúin verður fullgerð, eigi
að hefjast handa við brúarfram-
kvæmdir við Ölfusárósa í beiriu
framhaldi. Það er mikið af mótum
og stöplum frá Borgarfjarðar-
brúnni sem myndi koma að full-
um notum í sambandi við brúar-
gerð yfir Ölfusárósa og ég tel að
sú reynsla sem Vegagerðarmenn, .
m.a. Helgi Hallgrímsson, Jónas
verkstjóri og fleiri, hafa fengið
við gerð Skeiðarárbrúarinnar og
Borgarfjarðarbrúarinnar, sé svo
mikilvæg og þjóðin hafi ekki efni
á að láta þetta liggja á milli hluta.
Ég mun gera tillögu um þessa
Framhald á bls. 47
Auðar kennslustofur Melaskólans f gær. Neðri myndin sýnir nokkra
nemendur skólans, sem voru að koma af kóræfingu. Kórinn fékk að
æfa sig fyrir jólaskemmtun, þrátt fyrir að kennsla félli niður f
skólanum.
Um 95% barnakennara
lögðu niður vinnu í gær
„Kann enga töfraformúlu til að koma í veg fyrir að
svona hlutir gerist,” segir menntamálaráðherra
KENNSLA féll niður í langflestum barnaskólum lands-
ins og sumum framhaldsskólum f gær vegna þess að
kennarar mættu ekki til kennslu til að leggja áherzlu á
kjarabaráttu sína. Að sögn Valgeirs Gestssonar, for-
manns Sambands fslenzkra barnakennara, er talið að um
1300 kennarar innan sambandsins hafi tekið þátt f
þessum aðgerðum eða nærri 95% allra meðlima sam-
bandsins. Héldu kennarar fundi í gær, þar sem kjaramál
voru rædd og ályktanir samþykktar.
„Þessi gífurlega þátttaka í að- hafi ekki verið skipulögð af sam-
það væri skylda hvers og eins
þegns í lýðræðisrfki að fylgja lög-
um og reglu. „Hitt er svo það,“
sagði ráðherra, „að ég kann enga
töfraformúlu til að koma í veg
fyrir að svona hlutir gerist.“
Og hann bætti því við, að hann
teldi rétt fyrir kennarasamtökin
að móta sína stefnu i kjaramálum
á heild og vinna að þeim innan
ramma laga, t.d. nýsettra laga um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna.
gerðum dagsins þrátt fyrir að þau
Skordýraeitur innkallað
Innflytjandanum láðist að hafa
samband við eiturefnanefnd
IIEILBRIGÐISEFTIRLIT rfkis-
ins hefur nú ákveðið að kalla inn
skordýraeitur, sem um nokkurt
skeið hefur verið á boðstólum f
verzlunum og bensfnstöðvum vfðs
vegar á landinu. Nefnist skor-
dýraeitur þetta „Vapona Cass-
ette“ og er hér um að ræða hylki
úr ljósu plasti með fjórum striml-
um er hafa að geyma hið virka
efni.
I fréttatilkynningu sem
Morgunblaðinu barst I gær frá
Framhald á bls. 47
bandinu sýnir ljóslega hver hug-
ur barnakennara er til kjaramál-
anna,“ sagði Valgeir. Og hann
bætti við: „Stjórn stéttarfélags,
með slíkt lið að baki sér, hlýtur að
standa vel að vlgi.“
Þá ræddi Mbl. einnig við Vil-
hjálm Hjálmarsson menntamála-
ráðherra f gær og spurði um það
hver yrðu viðbrögðin við þessum
aðgerðum kennaranna. Ráðherr-
ann sagði að þessar aðgerðir
hefðu ekki verið ræddar ennþá
innan ráðuneytis og ríkisstjórnar.
Hann sagði það sína skoðun, að
Ungir síbrota-
menn í gæzlu
UNGIR afbrotamenn voru staðnir
að þjófnaði í þvottahúsinu Fönn
við Langholtsveg um helgina.
Voru þeir þrir saman. Einn slapp
en eigandinn gat handsamað tvo
þeirra með hjálp leigubílstjóra af
Bæjarleiðum, sem eru í nágrenni
þvottahússins. Menn þessir hafa
margsinnis áður verið staðnir að
þjófnuðum og öðrum afbrotum.
Voru þeir því báðir úrskurðaðir í
gæzluvarðhald, annar í 60 daga og
hinn í 30 daga. Annar þeirra var
nýsloppinn úr gæzluvarðhaldi
fyrir þjófnaði þegar hann var tek-
inn á nýjan leik.
N orðurlandsvirk jun:
Framleiðsluverð mun hærra en
heildsöluverð Landsvirk junar
Holberg Másson f loftbelg sfnum
TF-HOT yfir Reykjavfk s.l. sum-
ar.
- skapist ekki verulegir nýir markaðir
I.JÓST er aó til aó geta staðió undir beinum rekstrarkostnaói ásamt
afborgunum og vöxtum af iánum, verður framleiósluverð á raforku frá
Noróurlandsvirkjun, eftir að Kröfluvirkjun hefur verið tekin f notk-
iin, töluvert miklu hærra en núverandi heildsöluveró Landsvirkjunn-
ar, ef ekki koma til verulegir nýir markaóir. Má gera ráð fyrir að það
geti oróió allt aó átta sinnum hærra en veró I.andsvirkjunar til Suóur
og Suó-vesturlands. Kemur þetta fram f skýrslu Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins um ástand og horfur f orkumálum Norðlendinga.
í skýrslunni, sem unnin er af
áætlanadeild Framkvæmdastofn-
unar og Ráðgjafaþjónustu Kjart-
ans Jóhannssonar, er lýst orku-
markaði Noróanlands eins og
hann er í dag og eins og hann
getur hugsanlega vaxið. Núver-
andi markaður Norðurlandsvirkj-
unar á Norðurlandi er um 200
gígawattstundir, en með raforku-
sölu til Austurlands inn á Gríms-
árvirkjunarsvæðið er hann áætl-
aður um 250 gwst árið 1978, sam-
kvæmt orkuspám, en 300 gwst ár-
ið 1980. Að auki er svo möguleg
raforkusala til verksmiðja Sam-
bandsins og KEA á Akureyri á
bilinu 20 til 40 gwst.
Miðað við þessa markaði verður
framleiðsluverð þvf að vera á bil-
inu krónur 3.90 til 6.80 á kíiówatt-
stund næstu sjö árin til staðið sé
undir útgjöldum, ef lánin til
Kröflu eru til 15 ára og með 8 til
914% vöxtum, en það er sam-
kvæmt svonefndum fram-
lengingarlánskjörum. Sé hins
vegar miðað við núgildandi láns-
kjör og lán til 7 ára með 9t4%
vöxtum verður verðið á bilinu
krónur 5.30 til 9.25 krónur fyrir
hverja kílówattstund á síðast
liðnu ári, en meðalverð allrar sölu
Landsvirkjunar var um eina
krónu og fimmtíu aura fyrir kíló-
wattstundina.
Sé hins vegar gert ráð fyrir
verulegri stóriðju á veitusvæði
Norðurlandsvirkjunar á jafnaðar-
verð næstu sjö ára að geta orðið
frá 1.80 krónum upp í 3.70 eftir
því um hve orkufreka stóriðju er
að ræða og eftir lánskjörum.
Lægri talan gerir ráð fyrir stór-
iðju, sem notaði um 400 gwst, en
það er tvöfaidur núverandi orku-
markaður Norðurlandsvirkjunar.
Samkvæmt skýrslunni má þó
gera ráð fyrir að þessar verðtölur
séu fremur of lágar en of háar,
þar sem þær byggja á of lágum
kostnaðaráætlunum. Samkvæmt
áætiunum Verkfræðiskrifstofu
Sigurðar Thoroddsen, er fastur
kostnaður vegna framkvæmda við
Kröflu um 6 milljarðir króna. Er
þar innifalinn kostnaður vegna
véla, byggingaframkvæmda og
borunar, en ekki gert ráð fyrir
kostnaði vegna annarra fjárfest-
inga eins og dreyfikerfi. Þá gerir
áætlunin ráð fyrir borun 15 hola,
sem gefa eiga 60 megawött. Hafa
þegar verið boraðar 11 holur og
aðeins lítill hluti orkunnar náðst.
Framhald á bls. 46
Holberg reyn-
ir við heims-
metið í loft-
belgjaflugi
HOLBERG Másson loftbelgsflug-
maóur er nú staddur 1 Albuqer-
que f New Mexico f Bandarfkjun-
um meó loftbelg sinn TF-HOT.
Þar mun hann freista þess í lok
mánaðarins aó setja nýtt heims-
met í tímalengd flugs f loftbelg.
I samtali við Mbl. f gær sagðist
Holberg hafa flogið TF-HOT 20
sinnmn þarna að undanförnu við
Framhald á bls. 47