Morgunblaðið - 09.11.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1976
5
Hinn nýi dómprófastur ásamt fjölskyldu sinni. Frá vinstri: Ebba,
Skúli Sigurður, séra Ólafur. Bak við foreldra sína standa þær
Sigríður t.v. og Guðrún Ebba.
Ólafur Skúla-
son kjörinn dóm-
prófastur 1 Reykjavík
SÉRA Ólafur Skúlason, sóknar-
prestur f Bústaðasókn, fékk
flest atkvæði presta f Reykja-
víkurprestakalli um dóm-
prófastsembætti, en alls eru 19
prestar í Reykjavfkurprófast-
dæmi, sem nær yfir Reykjavfk
og Kópavog. Ólafur er fyrsti
presturinn f Reykjavík, sem
kjörinn er dómprófastur, en
gegnir ekki þjónustu við Dóm-
kirkjuna. Reykjavík var hluti
af Kjalarnesprestakalli allt til
ársins 1941, er borgin varð sér
prestakall. Ólafur Skúlason
sagði í samtali við Morgun-
blaðið f gær, að embætti dóm-
prófasts fylgdi að vfsitera
söfnuðina f prófastsdæminu,
ennfremur að fylgjast með
eignabreytingum hjá söfnuð-
unum, halda félagsfundi og
sitja f forsæti f safnaðarráði
o.fl.
Þá sagði séra Ólafur, að
prófastur tæki á móti öllum
fæðingarskírteinum og dreifði
þeim eftir búsetu móður. Þá
sæi hann um alla skýrslugjörð
til biskups.
Morgunblaðið spurði séra
Ólaf hvernig honum litist á að
taka við hinu nýja starfi sam-
hliða prestskapnum. Sagðist
hann aldrei mundu hafa tekið í
mál að gerast dómprófastur
nema hann hefði langað til að
spreyta sig í embættinu. Að
vísu væri hann svolítið skelfd-
ur. Prófastur hefði enga aðstoð,
og ekki væri gert ráð fyrir því
að hann hefði nein útgjöld.
„Við prestar höfum oft talað
um, að koma upp miðstöð fyrir
prófastdæmið, þar sem við höf-
um hvergi aðstöðu."
N orðursjávarskipin:
Haf a selt fyrir
845 millj. króna
UM HELGINA voru fslenzk skip
búin að selja sfld fyrir 844,6
millj. kr. f Danmörku það sem af
er þessu ári, en á sama tfma f
fyrra var búið að selja fyrir 780,2
millj. kr. Á síðasta ári var búið að
selja alls 18 þús. lestir af sfld, en
það sem af er þessu ári er aðeins
búið að selja 11.502 lestir. Hins
vegar hefur fengist miklu hærra
meðalverð nú en f fyrra. Fyrir
hvert kfló af síld fram til þessa
hafa fengist 73.43 kr. fyrir kflóið
en í fyrra var meðalverðið kr.
43.22.
í síðustu viku seldu síldarskip-
in alls 16 sinnum eða dagana 1. og
2. nóvember. Alls seldu skipin
1.336 lestir fyrir 92 millj. kr. og
var meðalverð kr. 68.39.
Hæsta meðalverð vikunnar
fékk Óskar Halldórsson, sem seldi
82.4 lestir þann 2. nóvember fyrir
5.8 millj. kr. en meðalverðið var
þá kr. 71.42. Hæstu heildarsölu
vikunnar var Hákon ÞH með, sem
seldi 114.5 lestir fyrir 7.7 millj.
kr. 1. nóvember s.l.
Þrjú íslenzk sfldveiðiskap seldu
afla í Hirtshals i gær: Albert GK
seldi 90.6 lestir fyrir kr. 7.6,
meðalverð var kr. 84.40, Sæbjörg
VE seldi 78.6 millj. kr. fyrir kr.
6.2, meðalverð kr. 79.87 og Örn
KE seldi 20,3 lestir fyrir 1,7 millj
kr., meðalverð kr. 85.74.
„Farið í einu
og öllu eftir
fyrirmælum
sérfræðinga”
VEGNA fréttar f Morgunblað-
inu síðastliðinn sunnudag um
háhyrninga f Sa*dýrasafninu
hafði formaður safnsins, Hörð-
ur Zöphaníasson, samband við
blaðið og bað fyrir eftirfar-
andi athugasemd:
„Um meðferð og umhirðu á
þeim háhyrningum, sem voru í
Sædýrasafninu nú fyrir
skömmu, er það að segja að þar
var farið í einu og öllu eftir
þeim fyrirmælum, sem þeir
erlendu sérfræðingar, sem hér
voru vegna þessara veiða
mæltu fyrir um og í engu út af
brugðið i þeim efnum. Þessir
sérfræðinger eru dr. Dudok
Van Heen, sem er hollenskur
dýrafræðingur og hefur samið
doktorsritgerð um hvali og
hvalalíf, og trúnaðarmenn og
fulltrúar Seaword f San Diego,
en það er sædýrasafn, sem
þekkt er víðs vegar um heim
fyrir góða starfsemi á þessu
sviði og hafði hu§'á þvi að fá
annan háhyrninginn í safn
sitt.“
Ullarvörur til Sovét-
ríkjanna fyrir rúm-
lega 1,2 milljarða kr.
IÐNAÐARDEILD Sambands fs-
lenzkra samvinnufélaga hefur
undirritað við tvö sovézk fyrir-
tæki sölusamning á fslenzkum
ullarvörum, sem afgreiða á á ár-
inu 1977 samtals að upphæð 840
milljónir króna, en jafnframt
hafa verið lögð drög að viðskipta-
samningi við annað fyrirtækið á
ullarvörum og mokkakápum að
upphæð 380 milljónir króna.
Samanlagt eru samningarnir því
að verðmæti 1.220 milljónir
króna.
Ullarvörusamningurinn, 840
milljónir, er um 280.000 peysur og
rúmlega 120.000 ullarvoðir. Peys-
urnar verða framleiddar í Fata-
verksmiðjunni Heklu á Akureyri,
svo og á nokkrum öðrum prjóna-
stofum víðs vegar um land. Værð-
arvoðirnar eru framleiddar í Ull-
arverksmiðunni Gefjun á Akur-
eyri. Samningurinn var nýlega
undirritaður í Moskvu. Er hann
við V/0 Raznoexport og sam-
vinnufyrirtækið V/O Soju-
zkoopeneshtorg. í samninganefnd
iðnaðardeildarinnar voru Hjörtur
Eiríksson framkvæmdastjóri,
Andrés Þorvarðarsonviðskipta-
fulltrúi og Hreinn Þormar verk-
smiðjustjóri.
Andrés Þorvarðarson sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær, að
megnið að peysunum væri af
sömu gerðum og Sambandið hefði
áður selt til Sovétríkjanna.
Reyndar kvað hann nú heldur
meira vera af hnepptum peysum
en áður og peysur prjónaðar úr
lopagarni. Þá náðust nú samning-
ar um nýja gerð af barnapeysum
og munu um 80 fyrirtæki vinna að
því að prjóna þær eingöngu.
Andrés sagði að verðið að þess-
um vörum væri eitthvað lægra en
ef varan væri seld til Vestur-
landa, en í móti kæmi það hag-
ræði að um langtímasamning
væri að ræða. Þá kvað hann erfitt
að bera saman verð við peysur,
sem seldar væru til Vesturlanda,
þar eð hér væri um aðrar gerðir
að ræða en þangað færu. Ein
gerðin, sem seld er-til Sovétríkj-
anna er mjög lík peysu, sem seld
er til Ameríku en á henni er þó sá
munur að ameriska peysan er
50% ull og 50% DuPont-efni, sem
gerir að verkum að hún þófnar
ekki, þött hún virðist hafa sömu
eiginleika og alullarpeysan. Verð
þessarar peysu til Ameríku er ei-
lítið hærra, en um 15 til 16%
hækkun varð á samningnum við
Sovétrikin frá því í sumar. Sagði
Andrés að Sambandsmenn teldu
það mjög viðunandi. Þá sagði
hann einnig að hráefnið og vinn-
an við gerð áðurnefndrar peysu
með DuPont-blöndunni væri
nokkuð dýrara en þegar unnin
væri aluliarpeysan.
Gert er ráð fyrir að það verk-
efni, að vinna upp í þennan samn-
ing, sé fyrir allt næsta ár. Verður
nýtíng verksmiðja Sambandsins
mjög góð með þennan samning —
sagði Andrés.
Flugumferðarstjóriim hefur starf
á vöktum að loknu eftirlitstímabili
í FRÉTT f Mbl. fyrir helgi um
þat tvik, er tværrþotur
mætttttttttust fyrir noran
ísland nær hvor annarri en
reglur mæla fyrir um, var farið
rangt með tvö atriði eftir Leifi
Magnússyni, varaflugmála-
stjóra, þ.e. að starfsmanni
hefði verið vikið úr starfi og
hinir erlendu sérfræðingar
hefðu komið til landsins strax
eftir atvikið.
Hið rétta er, að umræddur
flugumferðarstjóri var tekinn
af reglubundnum vöktum i
flugstjórnarmiðstöð á meðan
rannsókn fór fram og tillögur
gerðar til úrbóta. Slíkt er í sam-
ræmi við alþjóðlegar venjur, er
hliðstæð atvik verða. Starfs-
maður þessi á að baki sér lang-
an og flekklausan feril við þessi
störf og mun i samráði við til-
lögur frá rannsóknarnefnd
hefja störf á vöktum að loknu
tilskildu eftirlitstímabili.
Hinir erlendu sérfræðingar
komu til landsins 25. október til
að vera flugmálastjórn til ráð-
gjafar við rannsókna þessa
máls. Annar þeirra fór af land-
inu 27. október, en hinn 1. nóv-
ember. Niðurstöður þeirra stað-
festa í öllum meginatriðum
niðurstö-u frumrannsóknar
flugmálastjórnarinnar.
Farseóill,
sem vekur fögnuó
erlendis
Félög með fastar áætlunarferðir
( desember bjóöum viö sérstök jóla-
fargjöld frá útlöndum til íslands.
Þessi jólafargjöld, sem eru 30% lægri
en venjulega, gera fleirum kleift aö
komast heim til íslands um jólin.
Ef þú átt ættingja eöa vini erlendis,
sem vilja halda jólin heima,
þá bendum viö þér á aö farseðill
heim til (slands er kærkomin gjöf.
Slikur farseðill vekur sannarlega fögnuö.
FLUGFÉLAG LOFTIEIDIR
ÍSLAJVDS