Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
7
Einokun og
undarlegheit
„I hreinskilni sagt“
nefnist fastur þáttur f
Alþýðublaóinu, ritaður
af Oddi A. Sigurjðns-
syni, fyrrverandi skóla-
stjóra. Þar er sl. laugar-
dag m.a. fjallað um þá
ákvörðun StS að skera
niður sölu á sauðagær-
um til fyrirtækisins
Loðskinns hf. á Sauðár-
króki, sem þar hefur
gegnt mikiivægu hlut-
verki I iðnaðaruppbygg-
ingu og atvinnusköpun.
Oddur segir m.a. um
þessa ákvörðun: „Þar
með er sýnt, að allt eins
getur það fyrirtæki orð-
ið að leggja upp laup-
ana.“
Sfðan fjallar Oddur
um verðlagningu á gær-
um til bænda. Hann vfk-
ur að tilhneigingu verk-
smiðja SlS til að halda
þvf verði niðri, sem hafi
verið rökstutt með þvf,
að útflutningsverð væri
bágborið. Lág verðlagn-
ing á gærum hafi m.a.
þær afleiðingar að
hvert kg af kjöti verði
að vera dýrara til al-
mennings, til þess að
meðaltalsverð náist.
Segir Oddur, að sú
krafa hafi komið fram á
sl. hausti að stórlækka
verð á gærum af þess-
um sökum, enda hafi
verksmiðjurnar ekki
talið sig geta greittj
nema 220 krónur fyrir
hvert kíló. Við þessum
tilmælum hafi sex
manna nefndin hins
vegar ekki orðið. Gæru-
verð hafi verið ákveðið
hið sama og f fyrra,
292.55 krónur (með
sláturkosnaði). Þrátt
fyrir þessa verðlagn-
ingu, sem eftir útreikn-
ingi vinnsluaðila átti
naumast að ýta undir
eftirspurn á gærum,
hafi verksmiðjur SlS
skyndilega ákveðið að
„stórbæta við ársvinnsl-
una og vinna 550 til 600
þúsund skinnbjálfa á
komandi vertfð". Þessi
skyndilega vinnslu-
aukning veki ýmsar
spurningar, f Ijósi
rekstrarstöðunnar, eins
og hún var sögð f sept-
ember sl., þegar verð-
lækkunar hráefnis var
krafizt.
Gæruverð
og kjötverð
Sfðan ræðir Oddur
um áhrif ákvörðunar
gæruverðs á ákvörðun
um kjötverð sem hann
telur að hafi orðið 20
krónum dýrara fyrir
vikið. Hann segir orð-
rétt: „Ef við gerum ráð
fyrir að ársneyzla okkar
sé 8000—10.000 tonn,
förum milliveginn og
segjum 9000 tonn, er
dæmið auðreiknað;
9.000.000 kg x 20 kr.
gera 180 m.kr. — Eftir
er vitanlega að athuga
hvaða áhrif þessir til-
burðir hafa á þjóðar-
hag. Skal það ekki rakið
langt hér. En eitt er
vfst, að hafi útreikning-
ar verksmiðjumanna
verið rangir f septem-
ber og leiðrétzt fyrir
einhverja „himnasend-
ingu“ skömmu sfðar, er
full ástæða til að taka
slfkum spádómum með
allri varúð á komandi
tfmum. 1 annan stað
getur það verið fhugun-
arefni meira en til
næsta dags, hversu
heppileg er sem næst
einokun á þýðingar-
miklum vöruflokkum,
sem eins er ástatt um og
landbúnaðarafurðir
okkar. Hversu langt er
svo komið frá hugsjón-
um frumherja sam-
vinnustefnunnar, er
enn önnur saga.“
Alþýðublaðið
um Þjóðviljann
1 sunnudagsleiðara
Alþýðublaðsins segir
m.a., þar sem fjallað er
um viðtöl f afmælis-
blaði Þjóðviljans:
„Eðvarð Sigurðsson
kvartar yfir skorti á
tengslum og samráði
milli þeirra, sem nú rit-
stýra Þjóðviljanum, og
forystumanna verka-
lýðshreyfingarinnar.
Þarna segir einn merk-
asti og áhrifamesti for-
ystumaður verkalýðs-
hreyfingarinnar um-
búðalaust og opinskátt
það, sem er efst f huga
leiðtoga verkalýðs-
hreyfingarinnar al-
mennt. Þjóðviljinn er
löngu orðinn málgagn
þröngsýns hóps manna,
sem að vfsu eru ekki
háskólamenn, en eru þó
að reyna að Ifkjast þeim
og vilja láta kalla sig
menntamenn."...
„Enn eitt einkenni
hafa þessi afmælisblöð,
sem er með eindæmum
ósmekklegt. Það er við-
leitnin til þess að sýna
fram á tengsl blaðsins
við ýmsa helztu andans
menn þjóðarinnar á sfð-
ast liðinni hálfri öld.
Það er rétt sagnfræði að
allir hafa þessir til-
greindu menn á sfnum
tfma ritað f Þjóðvilj-
ann. En hitt er söguföls-
un af grófasta tagi að
láta þess að engu getið,
að leiðir margra þeirra
og þess málstaðar, sem
Þjóðviljinn boðaði og
boðar, skildu... Smekk-
leysa er leiðinleg. En
óheiðarleiki er verri,
þvf að hann blekkir.
Þegar menn, sem urðu
kommúnistar á unga
aldri, og barizt hafa fyr-
ir kommúnista f ára-
tugi, segja pólitfska
ævisögu sfna án þess að
nefna kommúnisma á
nafn, er það óheiðar-
leiki — eða kjarkleysi,
— sem er einnig skað-
legt...“
YLURINN FRÁ OSRAM HEFUR
LINAÐ ÞRAUTIR MARGRA.
Hvort sem þú þjáist af gigt eöa harðsperrum — eöa þá bara
löngun til sólarlanda — hefur OSRAM ráð viö verstu stingjunum!
OSRAM Ultra Vltalux er lampinn, sem kemur öllum í suörænt
skap, og heldur við heilbrigðum litarhætti, jafnvel í versta
skammdeginu.
OSRAM Theratherm hefur reynst gigtarsjúkum vel í mörgum
tilvikum.
OSRAM
vegna gæðanna
Einbýlislóðir
I Vesturbænum til sölu. Tilboð sendist Mbl. fyrir
13. þ.m. merkt „Lóðir : 2957".
r
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919
Fréttir
fra
yogiie
Vorum ad taka upp:
Sængurfataefni
Dagatöi
Blúndustórísa
THbúnar eldhúsgardinur
Ódýr stórísefni
HHdargardínuefni